Morgunblaðið - 20.11.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
3
Hulda Gudjónsdóttir á Eiríksbakka með Skjóna í taumi.
Morjfunblaðið/ Sifjurður Sigmundsson.
Hulda á Eiríksbakka notar
enn hestvagn við bústörfin
Syðra-Langholti, 17. nóvember.
ÞAÐ er víða fámennt í sveitum
landsins, einkum á veturna, og
sumstaðar býr einsetufólk, þ.e. að-
eins ein persóna er á viðkomandi
bæ. Á Eiríksbakka í Biskupstung-
um býr ein kona, Hulda Guðjóns-
dóttir. Hún er þar fædd og uppalin,
en ein hefur hún búið í tæpa tvo
áratugi, eða síðan faðir hennar dó.
Á sumrin hefur hún jafnan haft hjá
sér ungling úr kaupstað.
Bústofninn er 6 kýr, um 40 ær
og þrjú hross. Hulda keypti
dráttarvél eins og aðrir bændur,
en ekur henni ekki sjálf. Þvi hef-
ur hún fengi nágranna til að
heyja túnið með sér á síðari ár-
um og einnig til að aka mykjunni
á túnið. En hún notar einn hest
og hestvagn til ýmissa bústarfa
líkt og bændur gerðu almennt á
fyrri hluta aldarinnar. Vagn-
hesturinn hennar, hann Skjóni,
er orðinn 30 vetra gamall, sem
teljast verður mjög hár aldur
hjá hestum. En hann gegnir eigi
að síður sínu hlutverki vel enn,
og Hulda segist nota vagninn til
að flytja ýmislegt til á búi sínu
líkt og aðrir bændur nota drátt-
arvélar. Ekki er mér kunnugt
um að hestvagn sé notaður til
bústarfa á neinum bæ nema
þessum, og orðnir nokkrir ára-
tugir síðan það var algengt.
Það mun hafa verið um og upp
úr aldamótunum sem farið var
að nota hestvagna til bústarfa
hér á landi, og síðar komu hesta-
verkfærin hvert af öðru. Þá
hófst mikið framfaraskeið í ís-
lenskum landbúnaði. Tímabil
hestaverkfæranna var merki-
legur kafli í búnaðarsögu lands-
ins. Um og eftir 1950 fara drátt-
arvélarnar að verða almenn eign
bænda og hestaverkfærin
hverfa.
Fréttaritara Mbl. þótti því við
hæfi að mynda þessa dugmiklu
einsetukonu, þar sem hún teymir
Skjóna sinn fyrir vagninum. Það
er sjón sem að fáir af ýngri
kynslóðinni hafa séð og heyrir
senn sögunni til, en vekur endur-
minningar einhverra þeirra sem
eldri eru.
En hvernig skyldi líf einyrkj-
ans vera á sveitabæ? Ég spurði
Huldu hvort henni leiddist ekki
stundum.
„Nei, mér leiðist aldrei, ég hef
> < ■ ■ ” &Þ ' ‘
.- *** .. . &k.
»"*<*■
Hulda Guðjónsdóttir með Skjóna, sem er 30 vetra.
alltaf nóg að gera. Ég er heldur
ekki ein, ég er með skepunum
mínum og hef ánægju af þeim.“
— Styttir sjónvarp og útvarp
ekki stundirnar?
„Ég hef ekki horft á sjónvarp-
ið síðan í apríl. Drengurinn sem
var hér í sumar kveikti stundum
á því. Ég er að mjólka kýrnar
þegar fréttirnar eru í því, en ég
tek stundum útvarpið með mér í
fjósið."
— Það hefur þá væntanlega
gefist lítill tími til ferðalaga?
„Það er ekki hægt að fara mik-
ið frá búinu. Ég hef farið austur
í Rangárvallasýslu og ég komst
með kvenfélaginu vestur í Borg-
arfjörð fyrir tveimur árum. Nei,
ég hef aldrei komist norður."
Þessar línur gefa nokkra
mynd um líf þessarar fullorðnu
konu sem er sennilega síðasti
bóndinn sem notar dráttarhest
við bústörfin og kaus heldur að
búa ein á föðurleifð sinni þó erf-
itt sé og bindandi, en að flytja á
mölina, sem hefur orðið hlut-
skipti svo margra.
Sig.Sigm.
Utsýn
uppfyllir ósk
Verð frá
kr. 8.915.-
Verð frá.
kr. 8.208.-
Verð frá
kr. 8.202.-
Verð frá
kr. 10.273.-
Sérstök
jóla-
fargjöld
í desember
til:
Kaupmannahafnar
Osló
Gautaborgar
'Stokkhólms
Lúxerriborgar
Skíðaferðir
AUSTURRÍKI
Lech
Beint leiguflug með Flugleiðum,
2 vikna ferðir.
Brottfarardagar: 22. janúar, 5. og
19. febrúar, (fullbókaö), 4. mars.
Verð frá kr. 18.030.
Sérstök
jólaferð 20. des.
til
Austurríkis.
Odyrar
viku- og helgarferðir
Kaupmannahöfn Edinborg Glasgow Lúxemborg London
Costa del Sol
Brottfarardagar:
16. des., 30. des., 6. jan., 13. jan., 3. febr., 10. febr., 17
febr., 24. febr., 9. mars, 16. mars, 23. mars, 30. mars.
Verð frá 14.800 í 2 v.
Brottfarardagar
í leiguflugi:
14 des., 4. jan.,
25. jan, 15. febr.,
7. marz, 28. marz,
18 apr., 9. mat.
Brottfarardagar
(áætlunarflugi:
Vikulega frá og
með 2. nóvember.
Verð frá kr.
19.159,-
PLAYA DEL iNGLÉS
Á suðurströnd Gran Canaria mílii bæjanna San Augustin og
Maspalomas, er enska ströndin — Playa del Inglós — sann-
kallaður sælureitur sóldýrkenda og annarra sem kunna að
meta lifsins lystisemdir. Rétt ofan viö ströndina er hver
lúxusgististaöurinn viö annan, sem aliir bjóða ferðamönnum
fyrsta flokks þæglndi og þjónustu. Þar eru einnlg verslanir, sem
seija vöru sína á ósviknu fríhafnarveröi, líflegur útimarkaður
þar sem prúttið er í hávegum haft, skemmtistaöir og veitinga-
hús á spænska vísu.
Verð frá
kr. 8.275.-
Amsterdam
Verð frá
kr. 9.950.-
París
Verð frá
kr. 12.754.-
Helsinki
Verð frá
kr. 10.918.-
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Reykjavík:
Austurstræti 17,
sími 26611.
Akureyri:
Hafnarstræti 98,
sími 22911.
Ráðstefnur — Vörusýningar — Kaupstefnur — Viðskiptaferðír
Tæknivæddasta ferðaskrifstofa landsins