Morgunblaðið - 20.11.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
23
Áhrif vaxta (arðs) á fjárfestingu
(tvöfoldun verðmætis)
Raunvextir TvöfðlduiiAr- tími Verdmjeti 100 kr. eftir 10 ir
1% 70 ár 110 kr.
5% 14 ár 163 kr.
9% 8 ár 237 kr.
10% 7 ár 259 kr.
11% 5 ár 405 kr.
borðar ýsu í dag í staðinn fyrir
lúðu og sparar við það 20 krónur
getur ekki vænst þess að kaupa
fyrir það íbúðarhúsnæði. En strax
og hann er búinn að spara 500 kr.
getur hann farið að huga að kaup-
um á minnstu einingum spari-
skírteina. Seljanleikinn fer einnig
eftir einingastærðinni. Minni ein-
ingar eru yfirleitt auðveidari í
sölu.
Hverjir eru ávöxtunarmöguleikar
einstakra fjárfestingarleiða sem í
boði eru?
Á mynd 2 má sjá samanburð á 4
mismunandi sparnaðarformum,
þ.e. í fyrsta lagi 6 mánaða verð-
tryggðir reikningar í innláns-
stofnunum með 1% vexti umfram
verðbólgu á ári, í öðru lagi spari-
skírteini ríkissjóðs með 4,5% vexti
umfram verðtryggingu skv. aug-
lýstu sölugengi Kaupþings hf. í
þriðja lagi verðtryggð veðskulda-
bréf með allt að 10% vexti um-
fram verðtryggingu og í siðasta
lagi 3ja ára óverðtryggð veð-
skuldabréf með 20% föstum vöxt-
um skv. auglýstu sölugengi Kaup-
þings. Á myndinni er sýnd ávöxt-
un verðtryggðra og óverðtryggðra
bréfa miðað við mismunandi for-
sendur um verðbólguþróun á ári
næstu árin. Eins og sjá má á
myndinni eru vextir umfram verð-
bólgu fullverðtryggðra spari-
skírteina og veðskuldabréfa óháð-
ir verðbólgu. Vextir umfram verð-
bólgu á óverðtryggðu bréfunum
eru hins vegar háðir þeirri vaxta-
kröfu sem gerð er þegar viðskiptin
eiga sér stað og þeirri verðbólgu
sem raunverulega verður á láns-
tímanum. Sjá má á myndinni að
lína óverðtryggða bréfsins og
verðtryggða bréfsins skerast við
47% verðbólgu, sem þýðir með
öðrum orðum að fari verðbólga á
ári upp fyrir 47% borgar sig betur
að kaupa verðtryggt veðskulda-
bérf sé óverðtryggða bréfið með
20% vöxtum til 3ja ára. Niður-
staðan er því sú að verðtryggð
bréf eru mun áhættuminni en hin
óverðtryggðu. Verðtryggðu veð-
skuldabréfin má auk þess fá núna
á mjög góðum kjörum þar sem í
boði eru 10% vextir umfram verð-
tryggingu.
Ef fólk er hins vegar áhættu-
glatt og tilbúið að veðja á lækk-
andi verðbólgu getur hagnaðar-
vonin verið mest í óverðtryggðu
veðskuldabréfunum.
Það mat sem lagt er á fjárfest-
ingar er að sjálfsögðu háð þeim
aðstæðum sem í gildi eru hér á
landi á hverjum tíma. Þær geta
breyst án fyrirvara. Fjárfestingar
eru alltaf byggðar á huglægu mati
manna á þróun mála í framtíð-
inni. Þegar menn festa fé sitt ættu
þeir að gæta vel að þeim kostum
sem til greina koma og hafa það
hugfast að það erfiði sem kostaði
að afla fjárins má ekki fara fyrir
bí vegna rangrar fjárfestingar. Þá
verða menn að hugsa til framtíð-
arinnar, hvað hún muni bera í
skauti sér.
Hvernig er starfsemi Kaupþings hf.
háttað?
Kaupþing hf. var stofnað í
október í fyrra og starfar á tveim-
ur sviðum, eignaumsýslusviði og
ráðgjafarsviði, auk þess sem
Kaupþing hf. gefur út Vísbend-
ingu, vikurit um erlend viðskipti
og efnahagsmál. Eignaumsýslusv-
iðið felur í sér fasteignasölu og
verðbréfasölu, en verðbréfasalan
er hér helst á dagskrá. í verð-
bréfasölu Kaupþings er verslað
með ríkisskuldabréf (þ.e. spari-
skírteini ríkissjóðs og happ-
drættislán ríkissjóðs) og veð-
skuldabréf (verðtryggð og óverð-
tryggð) í umboðssölu. Kaupþing
hf. býður viðskiptavinum sínum
auk þess að annast ávöxtun fjár-
muna þeirra í formi fjárvörslu-
samnings.
lánskjaravísitölu, en hún er háð
breytingum stjórnvalda. Allt
krukk í lánskjaravísitöluna hefur
þannig mikil áhrif á þennan
markað og getur breytt aðstæðum
á verðbréfamarkaðinum á tiltölu-
lega stuttum tíma.
í rauninni væri það heppilegast
að losna við allar þessar vísitölur
út úr íslenska fjármálakerfinu —
vísitölur þekkjast ekki á Vestur-
löndum og hafa aðeins orðið til
ófarnaðar hér. Almenningur veit
lítið sem ekkert um þessar vísitöl-
ur og þær eru oft notaðar til að slá
ryki í augun á fólki. Þær valda því
að mishæf stjórnvöld geta verið
með puttana í öllu og hefur það
valdið sífelldum hringlanda á
fjármálasviðinu. Ég er sannfærð-
ur um að fjármálastarfsemin
myndi þrífast margfalt betur,
þjóðinni til heilla, ef framtak ein-
staklingsins fengi að njóta sín
meir á þessu sviði.
Ég tel brýna þörf á að settar
verði vinnureglur um verðbréfa-
viðskipti. Ýmsar óæskilegar venj-
ur hafa myndast sem gera verð-
bréfaviðskiptunum miður gott.
Þar á ég m.a. við útgáfu bréfanna,
útreikning á skuldabréfum,
starfsaðferðir verðbréfasala og að
réttur kröfuhafa verði fljótvirk-
ari.
/ bverju felst starfsemi Ávöxtunar
sf.?
— Ávöxtun sf. er fyrsta fyrir-
tæki sinnar tegundar á ísiandi.
Auk verðbréfasölu eru aðalvið-
skipti Ávöxtunar að fjárfesta á
sem arðvænlegastan hátt fjár-
muni viðskiptavina sinna. Við-
skiptavinir okkar gera samning
um ávöxtun fjármuna sinna
ákveðið timabil. Fjármagnið er í
raun aldrei fryst hjá okkur, þ.e.
viðkomandi viðskiptavinur getur
tekið út fé sitt hvenær sem er.
Verðtrygging miðast við heila
mánuði. öll ráðgjöf og upplýs-
ingar um fjármál er innifalið.
Viðskiptavinir okkar greiða ekki
fyrir ávöxtunarþiónust.una. Við
bjóðum fulla verðtryggingu sam-
kvæmt lánskjaravísitölu og bjóð-
um að auki:
3%ársvexti fyrir 1—3 mán.
4% ársvexti fyrir 4—6 mán.
6% ársvexti fyrir 7—9 mán
8% ársvexti fyrir 10—12 mán.
Þá er komið að hinni stóru
spurningu, hvernig Ávöxtun sf.
fjárfestir. Ávöxtun kaupir skulda-
bréf eingöngu af fyrirtækjum með
ákveðnum og eðlilegum afföllum,
og þar fær Ávöxtun sína söluþókn-
un; þannig þurfa viðskiptavinir
okkar ekki að greiða fyrir ávöxt-
unarþjónustuna. Skuldabréfin eru
verðtryggð og bera fyrirtækin
ábyrgð á skuldaranum. Þannig
tryggir Ávöxtun sf. sig fyrir
skakkaföllum.
Viðskiptavinir okkar eru fólk úr
ölium starfsgreinum, á öllum aldri
og úr öllum stjórnmálaflokkum.
Það gerir starfsemina svo sann-
arlega líflega og yfirgripsmikla.
Fólk kemur með í ávöxtun allt frá
5000 kr. og upp úr.
Fyrirtækið hefur nú starfað um
7 mánaða skeið og sýna undirtekt-
ir almennings að brýn þörf er
fyrir starfsemi sem þessa. Það er
undarlegt hversu stjórnmálamenn
og verkalýðsforysta hafa látið
þessi fjárfestingarmál almennings
lítið til sín taka, þegar haft er í
huga að fjárfesting sparifjár hlýt-
ur að vera hverjum manni mikils
virði. Að líkindum er góð fjárfest-
ing einhver besta kjarabótin sem
völ er á í dag.
Það er ósk mín, að íslenskir
stjórnmálamenn taki fljótt við
sér, svo auðveldara verði að þróa
hinn íslenska fjármagnsmarkað
og koma íslensku viðskiptalífi úr
þeirri stöðnun sem verið hefur
undanfarið. Við erum nú þegar 50
árum á eftir tímanum í fjármála-
viðskiptum — því þarf að undir-
búa jarðveginn vel fyrir nútima-
viðskipti.
SJÁ EINNIG Á BLS. 26.
Okkar gæði - Okkar verð
Ekki útsala — Okkar verö — Ekki útsala — Okkar verd
Sérhannaöir skóla- og vinnuskór meö gæru-
fóöursóla og sterkum og grófum botnum sem
þola sýrur, olíu, hita og kemísk efni.
Litur: Svartur.
Verö kr. 895.
PÓSTSENDUM
KREDITKORTAÞJÓNUSTA
Bastad-
klossar
í tveimur
breiddum, G
og H, fyrir þá sem eru
meö háa rist. 4 litir.
Verð trá kr. 575.
Kveninniskór,
leður.
Litir: Hvítt, blátt
og drapp.
St. 36—41.
Verð frá kr. 679.
T0PP
^ÍköRINN 21212
VELTUSUND11 ÍSi ,I_
Þúsundir ánægöra lesenda um víöa veröld
fá blaöiö okkar reglulega
Eru vinir þínir medal þeirra?
Sendu þeim gjafaáskrift
aö lceland Review — nú er tækifæriö
lceland Review
Höfðabakka 9, sími 84966, Reykjavík.
• Hverri nýrri áskrift 1984
getur allur árgangur 1983
fylgt á sérstökum kjörum
meðan birgðir endast.
• Útgáfan sendir viðtakanda
jólakveðju i nafni gefanda,
honum að kostnaðarlausu.
• Hvert nýtt hefti af lceland
Review styrkir tengslin við
vini í fjarlægö.
□ Undirritaður kaupir... gjafaáskrift(ir) að lceland Review
1984 og greiði áskriftargjald kr. 595 pr. áskrift að við-
bættum sendingarkostnaði kr. 100 pr. áskrift. Samtals
kr. 695.
□ Árgangur 1983 verði sendur til viðtakanda (enda) gegn
kr. 200 pr. áskrift. (Sendingarkostnaöur um allan heim
innifalinn). Ofangreind gjöld eru í gildi til ársloka 1983.
Nafn áskrifanda
Sími Heimilisfang
• Ódýrt, en umfram allt þægi-
legt.
Nafn móttakanda
Heimilisfang
Nöfn annarra móttakenda gjafaáskrifta fylgja með á sérstöku
blaöi.
Sendist ásamt greiðslu til lceland Review, Hötðabakka 9,
Reykjavík.