Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 25

Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 Utgefandi nX»Xnt>iÞ hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skelfunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö. Alþýðubandalagið er flokkur í fjötrum fortíð- arinnar. Þráðurinn frá Kommúnistaflokki íslands, sem var stofnaður 1930 undir handarjaðri Jóseps Stalín, er óslitinn. Hugsjón flokksins var smíðuð af Karli Marx um miðja síðustu öld. Flokks- stefnan byggist á því kenningakerfi sem hefur orðið fleiri að aldurtila og leitt til meiri örbirgðar en nokkur önnur stjórnmála- stefna á þessari öld. Þeir sem nú fara með völdin í Al- þýðubandalaginu sækja afl sitt að verulegu leyti til Sósí- alistafélags íslendinga Aust- antjalds (SÍA), en um störf og stefnu þess óþjóðlega fé- lagsskapar eru til óhrekjan- leg gögn, SÍ A-skýrslurnar í Rauðu bókinni, sem rifjaðar hafa verið upp hér í blaðinu undanfarna daga í tilefni af landsfundi Alþýðubanda- lagsins. Við varaformanns- kjör í flokknum í dag hafa tveir félagar úr SÍA verið nefndir til leiks: Hjörleifur Guttormsson, formaður SÍA, og Vilborg Harðardóttir. SIA starfaði í nánum tengsl- um við austur-þýska komm- únistaflokkinn og í sam- vinnu við hann og með fjár- stuðningi austur-þýskra stjórnvalda var efnt til stjórnmálaskóla Sósíalista- flokksins í Austur-Þýska- landi á árinu 1960 fyrir 67 félaga úr flokknum og Æskulýðsfylkingunni. A landsfundi Alþýðubanda- lagsins nú er ætlunin að endurreisa Æskulýðsfylk- inguna og í setningaræðu fundarins komst Svavar Gestsson, formaður, svo að orði um Sósíalistaflokkinn: „Hann lagði okkur ... til vegnaesti, víðsýni og alþjóðahyggju." Alþýðubandalagið getur ekki brotist undan fjötrum fortíðarinnar og reynir því að fara í feluleik til að forð- ast hana. Samskonar tvö- feldni einkennir svipaða flokka annars staðar í lýð- frjálsum ríkjum. Til þess að draga athyglina frá upp- runa, sögu og grundvallar- stefnu sinni reyna flokkar af þessari gerð að standa fyrir „umræðu" um hitt og þetta án þess þó að meina nokkuð með henni en í þeirri von að fólk glepjist til fylgis við þá. Lýðskrumið verður æ Ijósara þeim mun lengur sem flokk- arnir starfa. Nú þegar 15 ár eru liðin frá stofnun Alþýðu- bandalagsins flytur formað- ur þess setningarræðu á landsfundi sem hlegið er að síðar á fundinum þegar einn ræðumanna dregur fram innantóm slagorðin. Fréttir af landsfundinum staðfesta þá skoðun, að eftir 5 ára setu í ríkisstjórn sé Al- þýðubandalagið sundurvirk- ari flokkur en nokkru sinni fyrr. Þetta er forystu flokks- ins ljóst, en það er til marks um hve veik hún er að nú berst formaðurinn fyrir hug- myndum um að brjóta flokk- inn upp í nýjar einingar í þeirri von að geta deilt og drottnað. Fyrir þessari til- lögugerð hefur sá hópur í flokknum staðið sem lýtur forystu Ólafs R. Grímssonar, gömlu Möðruvellingarnir, sem hafa hreiðrað um sig á flokksskrifstofunni og Þjóð- viljanum. Tillögurnar um niðurrif flokkskerfisins voru fyrst settar fram í árásar- grein ólafs R. Grímssonar á flokkinn eftir afhroðið í sveitarstjórnarkosningunum í maí 1982. Á landsfundinum réðst Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands ís- lands, á lagabreytingarnar, þær væru eingöngu til að sundra flokknum með því að stilla upp andstæðum hóp- um. Flokksformaðurinn telur ekki aðeins nauðsynlegt að breyta skipulagi flokksins, hann vill líka að stefnan sé tekin til „umræðu": „Nú eftir að 10 ár eru liðin frá því að stefnuskráin var samþykkt liggur reynsla fyrir og því rétt að taka hana enn til um- ræðu,“ sagði Svavar Gests- son í setningarræðu lands- fundarins og boðaði „stefnu- skrárumræðu" að fundinum loknum, ekki til að breyta grundvallaratriðunum, hin- um hugsjónalegu fjötrum sósíalismans, heldur til að nýju flokksbrotin geti sam- einast um pólitísk tískumál. Nú er svo komið fyrir hinu „pólitíska forystuafli verka- lýðshreyfingarinnar", að á landsfundi þess stendur hag- fræðingur Bandalags starfs- manna ríkis og bæja upp til þess að harma það að á landsfundinum sé ekki að finna eitt einasta stefnumót- andi skjal í kjaramálum. Sundrung, forystuleysi og hugmyndafræðilegir fjötrar einkenna Alþýðubandalagið og landsfund þess. í setn- ingarræðunni sagði Svavar Gestsson: „Þau grundvallar- atriði sem við viljum að setji svip á íslenska þjóðfélagið eru þau hin sömu og ein- kenna flokk okkar. Þess vegna á Alþýðubandalagið að geta orðið samnefnari fyrir þúsundir og aftur þús- undir íslendinga sem til þessa hafa fylgt öðrum flokkum — einnig stjórnar- flokkum." Ásmundur Stef- ánsson hitti naglann á höf- uðið þegar hann sagði um þessa hrokafullu yfirlýsingu formannsins: „Það er kjaft- æði að þúsundir bíði í röðum eftir að komast í flokkinn." Stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn á alþingi er í upp- lausn. Hann hefur efnt til misheppnaðs landsfundar. Alþýðubandalagið hefur ekki lagt mál þannig fyrir að það eigi framtíð án fjötra. Flokkur í fjötrum ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Rey kj avíkurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 19. novembcr ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Tími hugsjóna, vona og bjartsýni Fyrri hluti sjöunda áratugarins var tímabil blómstrandi hugsjóna, sterkra vona og mikillar bjart- sýni. Þjóðir Vesturlanda höfðu rétt við eftir heimsstyrjöldina síð- ari, lífskjör fóru batnandi og framtíðin blasti við. Línur í hugmyndabaráttu þjóða heims voru skýrar. Berlínarmúrinn reis. Hinum megin hans lifðu hinar kúguðu þjóðir kommúnismans. Hérna megin við múrinn stóð ungur maður í ræðustól við ráð- húsið í Vestur-Berlín og mælti hin fleygu orð, sem áttu eftir að hljóma um alla heimsbyggðina: Sérhver frjáls maður segir stoltur: ég er Berlínarbúi. „Ich bin ein Berliner". Það var ógleymanleg stund fyrir tvo íslenzka háskóla- stúdenta að fylgjast með þeim gíf- urlegu áhrifum, sem þessi orð John F. Kennedys höfðu á a.m.k. hálfa milljón Berlínarbúa, sem söfnuðust saman á ráðhústorginu sólbjartan júnídag til þess að hlýða á ræðu Bandaríkjaforseta. Þess er minnzt víða um heim þessa dagana, að á þriðjudaginn kemur eru tuttugu ár liðin frá því að Kennedy var myrtur í Dallas. Á þeim tíma sem liðinn er, hefur engum Ieiðtoga hins frjálsa heims tekizt að blása æskunni í brjóst hugsjónir, vonir og bjartsýni með sama hætti og Kennedy gerði. Ef til vill er það mikilvægasta arf- leifð þeirra tíma. Æskufólk þarf hugsjónir til að berjast fyrir. Fyrir tuttugu árum stóðu þær í blóma. Æska Vesturlanda var reiðubúin til að halda á lofti fána frelsis gegn einræði kommúnism- ans. Þetta unga fólk hafði líka löngun til að láta gott af sér leiða í þeim hlutum heimsins, þar sem hlutskipti fólks var verra. Frið- arsveitir Kennedys streymdu út um heiminn fullar af bjartsýni. Víetnamstríðið eyðilagði þetta andrúmsloft. Unga fólkið varð fyrir alvarlegum vonbrigðum. Ef til vill höfðu vonir verið kveiktar í brjósti þess, sem enginn gat staðið við. Smátt og smátt var skapaður jarðvegur fyrir sumrinu 1968 og öllu því sem á eftir fylgdi. Það er fyrst á allra síðustu árum, sem áhrif þeirra atburða hafa fjarað út. Er tími hugsjóna, vona og bjart- sýni liðinn? Eða er nú tímabært að hefja til vegs það merki, sem æskan bar með slíkum glæsibrag á fyrstu árum sjöunda áratugarins? Stórveldin eru ekki eins Það hefur verið tízka í allmörg ár að leggja stórveldin tvö, Banda- ríkin og Sovétríkin, að jöfnu og telja að áhrif þeirra á heims- byggðina séu jafn slæm. Það er tímabært að hrinda þessari rök- semd. Sovétríkin eru nú sem fyrr höf- uðvígi einræðisaflanna í heimin- um. Þar ráða ríkjum örfáir menn, sem byggja vald sitt á öflugri hernaðarvél. Þar ríkir ekkert lýð- ræði, ekkert málfrelsi, ekkert skoðanafrelsi, ekkert frelsi yfir- leitt. Þar eru þeir, sem andvígir eru öldungaveldinu í Kreml, settir á geðveikrahæli, sendir i útlegð, hraktir úr landi eða settir í fang- elsi. Þar er hver tilraun til sjálf- stæðrar skoðunar barin niður. Sovétríkin eru fjölmennasta lög- regluríki veraldar. Þau hafa lagt undir vald sitt hvert nágrannarík- ið á fætur öðru. Sérhver tilraun þeirra til að skapa sér sjálfstæða stöðu hefur kallað á sovézka skriðdreka. Berlín 1953, Poznan 1956, Búdapest 1956, Prag 1968. Pólverjar hafa leitað frelsis í skugga sovézka hersins í 3 ár. Og sovézkir hermenn berjast við að leggja enn eitt nágrannaríkið, Afganistan, undir sovézka stjórn. Bandaríkin eru stærsta lýðræð- isríki heims. Líklega hafa lýðræð- islegir stjórnarhættir hvergi náð eins langt eins og þar. Frjáls skoð- anaskipti eru þar til sérstakrar fyrirmyndar. Tvisvar sinnum á þessari öld hafa Bandaríkin bjarg- að Evrópu úr klóm einræðissinna. Bandaríkin hafa legið undir þungri gagnrýni fyrir afstöðu þeirra til nágrannaríkja í Mið- og Suður-Ameríku og alveg sérstak- lega í Víetnam. En þegar lóðin eru lögð á vogarskálarnar getur eng- um blandast hugur um, að Banda- ríkin eru höfuðvígi frelsishug- sjóna og lýðræðisstjórnarhátta Vesturlandabúa. Ef Bandaríkj- anna nyti ekki við hefði frelsi þegn- anna og lýðræðislegir stjórnar- hættir fyrir löngu verið þurrkaðir út í okkar heimshluta. Stórveldin eru ekki eins. Þau eru gjörólík. Það er tími til kominn, að þjóðir Vesturlanda og þá ekki sízt æsku- fólk öðlist á ný kjark til þess að viðurkenna þessa staðreynd og halda henni fram og segja með sama stolti og fyrir tuttugu árum: Við erum borgarar hins frjálsa heims, við viljum vera það og er- um tilbúnir til að berjast fyrir hugsjónum okkar. Trúin á verð- bólgubaráttuna I forystugrein Morgunblaðsins sl. sunnudag var því haldið fram, að sá árangur, sem núverandi rík- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 25 Áhrifa frá kvikmyndinni Gandhi er farið að gæta, að því er sagði í frétt í þessu blaði fyrir rúmri viku. 1 London er búið að opna nýjan veitingastað í Bail- ey-hótelinu, þar sem boðið er upp á indverskt lostæti á hlað- borði að eigin vali og þjónusta fyrsta flokks. Þjónað til borðs á kvöldin. Þarna geta menn sem sagt kýlt vömbina — í anda Gandhis. Obbolítið er það nú skondið að meinlætamaðurinn sem varði ævi sinni í að predika gegn bruðli og græðgi og lifði sjálfur á svo litlum og fábreytt- um mat að hann leit út eins og beinagrind, skuli vera orðinn auglýsing fyrir sælkera? Nafn hans notað til að lokka fólk til að eta sem mestan og dýrastan mat? Ætli fylgi ekki með mynd af litla horaða karlinum. Kannski skiptir það engu máli á nútíma auglýsingaöld hvernig Gandhi var áður en hann, löngu látinn, lenti í frægðarmyllunni með ævisagnagerð, kvikmyndun með tilheyrandi auglýsinga- kynningum í fjölmiðlum og eft- irfarandi mótun I rétta ímynd til að hala inn peninga. Eru ekki allir í stílnum eins og strúturinn sem fann filmubút og gleypti. Þegar næsti strútur spurði: „Hvernig var hann?“ svaraði hann eins og vera ber: „Mér fannst nú bókin betri." Ekki ætti að vanmeta aug- lýsingamaskínu nútímans. Væri það ekki fyrir hana mundi mað- ur kannski fara á leiksýningu eða listsýningu án þess að vita nokkuð hvernig á að horfa á eða meðtaka það sem boðið er upp á. Ef höfundurinn væri til dæmis ekki búinn að segja manni til vonar og vara nokkrum sinnum f viðtölum í útvarpi, sjónvarpi og öllum blöðum að þetta sé grát- broslegt leikrit með alvarlegu ívafi, hvernig á maður þá að vita að bæði ber að hlægja og gráta. Gæti orðið sér til algerrar skammar með því að skelli- hlægja allan tímann. Og ef leik- stjórinn væri ekki líka í tæka tíð fyrir frumsýningu búinn að full- vissa alla í viðtölum um að leik- ritið sé Jafnvel ennþá betra en höfundurinn geti ímyndað sér“, þá gæti áhorfandinn álpast til að standa ekki á öndinni af hrifn- ingu. Og ef leikararnir væru ekki búnir að búa mann fyrirfram undir það hvers konar persónur þeir eru að túlka og leiða í sann- leika um hve margbrotnar og erfiðar þær eru, þá mundi maður kannski halda að þetta væri bara hversdagsfólk á sviðinu. Kynni að þvælast fyrir að átta sig á hversu mikið afrek er að skapa það. Og hver á svo sem betur að vita og geta leitt mann í allan sannleika um hvílíkt af- bragð verkið sé en höfundurinn sjálfur og leikstjórinn eða leik- ararnir sem eru að búa því bún- ing? Leiðir af sjálfu sér að út- varp, sjónvarp og blöð sjá svo um að skoðanir þeirra geti ekki farið fram hjá væntanlegum áhorfendum áður en þeir fá leyfi til að sjá þetta sjálfir. Ekki ráð nema í tíma sé tekið. Hvernig ættu menn svosem að vita þegar þeir koma á indverskan veit- ingastað í London með öllum þessum fjölbreyttu krásum, að þetta sé svo merkilegt ef ekki er vísað til' Gandhis. Indverjans sem með lífi sínu ávann sér nægilega virðingu og traust til að hlustað yrði á hann? Fyrir hvað er þá kannski aukaatriði. Svona margfaldar fyrirfram- kynningar hafa fleiri kosti. Að hlusta á söguþráðinn nokkrum sinnum í misflötum styttingum og fá endursögn í blaðafréttum, auk þess sem það liggur fyrir hvort þarna er um að ræða vandamál, getur svei mér komið sér vel í tímaþröng nútímans og miklu framboði. Þar er búið að svala mestu forvitninni og eftir- væntingunni. Það kom dálítið skrýtið fyrir mig þegar ég kom heim úr sumarleyfinu í haust. Mig lang- aði til að sjá íslenska mynd sem ég hafði nær ekkert um heyrt, Nýtt líf í Nýja bíói. Mikið var gaman. Við hlógum og hlógum og skemmtum okkur svo vel við græskulausan húmor. Enginn að lemja neinn eða skjóta á nokk- urn mann. Bara ærsl og kunn- uglegar uppákomur. Nú er alveg óvíst að við höfum átt að hlægja og skemmta okkur svona vel. Ef til vill hefur leynst þarna vanda- mál, sem fór alveg fram hjá okkur svona aðvörunarlaust. Nýlega lenti ég svo fyrir tilviljun í Stúdentaleikhúsinu þar sem gamanleikarar frá Frakklandi drógu upp bráðskemmtilega þætti úr daglega lífinu. Vissi ekkert fyrirfram við hverju mátti búast og beið með öll skilningarvit opin eftir því hvað kæmi næst. Fannst ég ekki mega missa af neinu og þótti fengur að því sem bar fyrir augu. Á meðan bíður margt af því sem búið er að fræða mann miklu meira um — og vitanlega er ætlunin að sjá þegar tími gefst til. En allt er þetta víst afstætt. Nærri lá að ég missti af kvik- mynd Lárusar Ýmis, Andra dansen, fyrir það að ég var búin að lesa svo mikið af söguþræðin- um um tvær konur sem aka sam- an norður eftir Svíþjóð. Sú frá- sögn vakti ekki áhuga. En í blæ- brigðum sínum og uppákomum reyndist myndin sjálf óskert hreinasta listaverk. Fékk enda verðlaun í Svíþjóð og slagaði hátt upp í kvikmynd Ingmars Bergmans um Alexander og Fanney þegar til samkeppni kom. Svona verður að vara sig. En líklega er það samt rétt hjá honum Oskari Wilde, að maður eigi að halda svolítið spart á sannleikanum. Það er nefnilega svo lítið af honum. fiokks I hádeginu er boöiö upp á indverskt lostaeti á hlaöboröi aö eigin vali, en viö kvöldverð er þjónaö til borös. Áhrif frá kvikmyndinni „Gandhi“ gætir á veitingahúsum Ahrif frá kvikmyndinni Gandhi teygja sig víöa Fyrir skömmu var opnaöur nýr veitingastaöur „Bombay Brasserie" i Bailey-hótelinu viö Gloucester Road. Mat- • < mí isstjórn hefði náð með störfum sínum fram að þessu, væri fyrst og fremst fólginn í því, að hann hefði sýnt fólki fram á kosti stöð- ugs verðlags og þolanlegrar verð- bólgu. Ríkisstjórnin hefði gefið fólki tækifæri til að meta þetta tvennt: sívaxándi verðbólgu, stöð- ugt gengissig, vísitöluhækkanir kaupgjalds á þriggja mánaða fresti og allt sem þessum víta- hring fylgir og hins vegar óbreytt gengi, takmarkaðar verðhækkan- ir, litla hreyfingu á kaupgjaldi en leið út úr vítahringnum. Þetta mat Morgunblaðsins hef- ur nú verið staðfest í skoðana- könnun sem Hagvangur hf. hefur framkvæmt og birt var í Morgun- blaðinu í gær, föstudag, þar sem fram kemur, að ríflegur meirihluti þjóðarinnar trúir því, að unnt sé að ná verðbólgunni niður á svipað stig og í nágrannalöndum okkar, á næsta ári. Niðurstöður þessarar könnunar eru mjög uppörvandi fyrir ríkis- stjórnina vegna þess að þær sýna, að henni hefur tekizt það sem miklu skiptir, að sannfæra verð- bólguhrjáða þjóð um, að enn sé von til að komast upp úr kviksynd- inu. í rauninni er fátt mikilvæg- ara fyrir ríkisstjórnina en einmitt þessi trú almennings á árangur. Segja má að hún sé forsenda þess, að raunverulegum árangri verði náð. En jafnframt gera þessar niður- stöður ákveðnar kröfur til ríkis- stjórnarinnar um, að hún standi við þær vonir, sem hún hefur kveikt í hugum fólks um betri tíð. Til þess að svo megi verða, þarf samstilltan ráðherrahóp, þar sem hver sýnir öðrum tillitssemi af þeirri óeigingirni sem ein hæfir þeim sem sækjast eftir að bera ábyrgð á æðstu stjórn landsins. Þjód í kreppu — hvernig bregst hún við? Um þessa helgi efna samtökin Líf og land til ráðstefnu undir heitinu Þjóð í kreppu. Þetta er rétt lýsing á stöðu þjóðar okkar nú. Við erum í margvíslegri kreppu, bæði efnahagslegri, at- vinnulegri og sálrænni kreppu. En hvernig snúumst við gegn þessari kreppu? Athafnamaður sagði við höfund þessa Reykjavík- urbréfs fyrir skömmu: Um allan bæ eru menn að leita nýrra leiða og vilja taka höndum saman um að brjótast út úr þessari kreppu. Þannig á að bregðast við. Við- brögðin við kreppunni eiga og munu spretta upp úr atvinnulífinu sjálfu með samstarfi og samstilltu átaki þeirra þúsunda einstaklinga, sem hafa hazlað sér völl þar. Það er mikilvægt, að menn geri sér glögga grein fyrir því hver verkaskipting á að vera milli at- vinnulífs og stjórnmálamanna að þessu leyti. Stjórnmálamennirnir og það opinbera kerfi, sem þeir styðjast við, eiga ekki að hafa frumkvæði um uppbyggingu ein- stakra þátta atvinnulífsins. Þær áætlanir um uppbyggingu at- vinnufyrirtækja hér og þar, sem orðið hafa til á undanförnum ár- um með einhvers konar fyrir- greiðslu stjórnmálamanna og opinbera kerfisins, eru nánast all- ar tóm vitleysa, þótt enginn þori að segja það vegna margvíslegra hagsmuna, sem tengdir eru þess- um áætlunum. Hlutverk stjórn- málamanna og opinbera kerfisins er í þessum efnum eitt og aðeins eitt: Að skapa almenn skilyrði fyrir atvinnulífið til þess að það blómstri. Þrátt fyrir vinstri stjórnir síð- ustu ára hafa múrar gamalla for- dóma verið að hrynja í samfélagi okkar. Einkaverzlunin í Reykjavík hefur gert verðlagslöggjöf hlægi- lega með þeirri verðsamkeppni, sem orðið hefur til í höfuðborginni á nokkrum árum og breiðst út um landið. Nú á þessi verðsamkeppni enn eftir að harðna, þegar Sam- bandsveldið með allt sitt auðmagn á bak við sig, hefur lagt til atlögu við einkaverzlunina í því skyni að leggja undir sig mikinn hluta smásöluverzlunar í Reykjavík, eins og Sambandsforstjórunum finnst sjálfsagt. Nú reynir á einkaframtakið. Frjálsræði í gjaldeyrisviðskipt- um er að aukast. Senn geta þeir íslendingar, sem flytjast til út- landa flutt eignir sínar með sér með eðlilegum hætti og þess er skammt að bíða, að allur almenn- ingur geti tekið upp nútíma ferða- máta, sem í nokkur misseri hefur verið á færi aðeins fárra útvaldra. Viðhorfið til atvinnulífsins er að breytast. Fyrir nokkrum árum töldu menn hættulegt að láta það vitnast, ef fyrirtæki hagnaðist. Nú er það til marks um sterka forystu og góða stjórn, ef fyrirtæki sýnir hagnað og sífellt meiri kröfur eru gerðar til stjórnenda atvinnufyr- irtækis. Mesta framlag stjórnmála- manna nú til þess að brjóta þjóð- inni leið út úr kreppunni, er að brjóta niður síðustu múra for- dóma og þröngsýnis í löggjöf, sem snertir atvinnulífið. Þar skiptir miklu, að sett verði á þessu þingi löggjöf, sem gerir jafn hagkvæmt fyrir fólk að leggja sparnað sinn í hlutabréf eins og spariskírteini frá skattasjónarmiði séð. Enn- fremur er nauðsynlegt að setja rammalöggjöf um starfsemi þess fjármagnsmarkaðar, sem hefur verið að spretta upp fyrir frum- kvæði og framtak nokkurra ein- staklinga og mun skapa þá sam- keppni við ríkisbanka og opinbera fjárfestingarsjóði, sem gerir at- vinnulífið óháðara opinberum að- ilum um fjármögnun fram- kvæmda. Margt fleira mætti nefna. Við slík skilyrði reynir á framsýni og áræði einstaklinga í atvinnurekstri. Tími stærri ein- inga í atvinnulífinu er runninn upp. Samstarf fyrirtækja, sem hingað til hafa starfað hvert í sínu horni, er forsenda verulegra fram- fara. Beinn samruni þeirra fyrir- tækja, sem fyrir eru, getur víða átt við. En um leið og atvinnulífið leitar nýrra leiða til þess að brjóta þjóð- inni leið út úr kreppunni, má ekki gleyma sjálfum undirstöðum þjóð- lífsins. Engin nýjung í atvinnulíf- inu er mikilvægari en sú að færa rekstur útgerðar og fiskvinnslu í nútímalegra horf. Það kallar á róttækan uppskurð í höfuðat- vinnugrein landsmanna. Hugsunarháttur fólks, sem býr í fámenni og einangrun á eyju langt norður í hafi, verður óhjákvæmi- lega lokaður og þröngur. Leiðin út úr kreppunni kallar á víðsýni og framsýni. Getum við brotið af okkur fjötra gamals hugsunar- háttar? Það er forsenda fyrir ný- sköpun atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.