Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 28

Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 ÞINGBREF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON stefnu (um þorskeldi í Noregi 1983) að ekki muni tímabært fyrir íslendinga að hefja miklar til- raunir með seiðaeldi á þorski eða öðrum fiski sem hrygnir f sjó. Slíkar tilraunir hafa reynzt tíma- frekar, mannfrekar, flóknar og kostnaðarsamar. Til að seiða- slepping hefði umtalsverð áhrif á árgangsstyrk islenzka þorsksins við núverandi aðstæður yrði að sleppa árlega tugum eða hundruð- um milljóna af sumaröldum seið- um. Slík framleiðsla gæti orðið óhemju kostnaðarsöm og ólíklegt að hún svaraði kostnaði við núver- andi aðstæður." Flutningsmenn telja engu að síður og vitna enn í Björn Björns- son, þrátt fyrir þessa umsögn um líkur seiðaeldis, að „æskilegt sé fyrir fslendinga að hefja fljótlega Þær vóru tíu konurnar, sem sátu þing þegar þessi mynd var tekin, nfu þingmenn, einn varaþingmaður. Ein þeirra, Ragnhildur Helgadóttir, er menntamálaráðherra, önnur, Salome Þorkelsdéttir, forseti efri deildar Alþingis. Ratsjá fyrirhyggju — eldflaug samstöðu „Lúða, lax og kræklingur saman í eldistjörn“ Þingsköp og þingforsetar Forsetar Sameinaðs Alþingis og þingdeildar eru húsbændur og fara með verkstjórn á löggjafar- þingi þjóðarinnar, bæði þing- manna og annars starfsliðs. For- setar Alþingis skipa í sameiningu skrifstofustjóra þess, en hann er „háður eftirliti forsetanna og skuli þeir semja og setja erindisbréf handa honum og öðrum starfs- mönnum þingsins". Forseti Sameinaðs þings fer og með vald forseta fslands, í fjar- veru hans, ásamt forsætisráð- herra og forseta hæstaréttar. f margra huga hefur embætti for- seta Sameinaðs þings vægi ráð- herraembættis, a.m.k. að virðingu. Röggsemi forseta, eða hið gagn- stæða á stundum, setur mörk á þingstörfin. Starfshættir þing- nefnda ráða að vísu miklu um framvindu mála, en einnig þar hafa forsetar tök á að ýta á eftir. Síðast en ekki sízt skal nefna und- irbúning mála í þingflokkum og ríkisstjórn, sem oft ræður miklu um framvindu og afdrif mála í meðferð þingsins. Forseti Sameinaðs þings, Þor- valdur Garðar Kristjánsson, sýnir festu í bland við lipurð á forseta- stóli. Verkstjórn hans lofar góðu, bæði um vinnulag og virðingu Al- þingis. Salome Þorkelsdóttir, fyrsta konan á forsetastóli efri deildar, hefur einnig sýnt röggsemi í starfi og ganga mál vel fram í þingdeild hennar. Ingvar Gíslason, fyrrv. mennta- málaráðherra, forseti neðri deild- ar, er og gamalreyndur stjórn- málamaður, sem þekkir vel sinn starfsvettvang. Það hefur hins vegar viljað brénna við þessa þingdeild að verða á stundum mál- þófsvöllur, hvar stjórnmálamenn fara mikinn í rökræðum — og karpi. Forseti neðri deildar má gjarnan fara sparlegar með ljúf- mennsku sína, sem hann á mikið af, en beita festu oftar, sem han á einnig til, ef í harðbakka slær. Þetta er sagt með fullri virðingu fyrir málfrelsi og málfimi þing- manna, sem sjálfsagt er að virða vel. Alþingi er og á að vera íhalds- samt í starfsháttum. Engu að síð- ur er eðlilegt að endurskoða þing- sköp, ekki sízt er varða þá þætti, sem vaxið hafa mest á síðustu ár- um: tillögur til þingsályktunar, fyrirspurnir og umræður utan dagskrár. Benedikt Gröndal, þá formaður Alþýðuflokks, flutti fyrir nokkr- um árum frumvarp til laga um breytingu á þingsköpum, sem Kjartan Jóhannsson, núv. formað- ur flokksins, hefur endurflutt. Helztu breytingar, sem felast í frumvarpinu, eru þessar: • 1. Tillögum til þingsályktunar er skipt í tvo flokka eftir efni- þeirra. Fjalli þær um stjórn- skipan, utanríkis- eða varnar- mál eða staðfestingu fram- kvæmdaáætlana (t.d. vegaáætl- un) er gert ráð fyrir óbreyttri meðferð, tveim umræðum og nær ótakmörkuðum ræðutíma. Um allar aðrar tillögur skal fara fram ein umræða. Flutn- ingsmaður fái 10 mínútur til framsögu, en síðan verði tillög- unni vísað til nefndar án frek- ari umræðu. Þegar nefnd hefur afgreitt málið fer fram umræða um það, og fá framsögumenn nefndar og flutningsmaður 5 mínútur, en síðan er ræðutími takmarkaður við 3 mínútur. Þingsályktunartillögur verði aðeins leyfðar í Sameinuðu þingi. Sá heildartími, sem þær taka, mundi við þessa breytingu styttast verulega. • 2. Varðandi afgreiðslu fyrir- spurna verði sú breyting gerð, að einungis fyrirspyrjandi og ráðherra, sem svarar, taki til máls. Við þetta styttist sá tími, sem þarf til afgreiðslu á hverri fyrirspurn, og ættu þá aðrar fyrirspurnir að fá afgreiðslu mun fyrr. óvíst er að tími til fyrirspurna í heild styttist, en fleiri spurningum yrði svarað. • 3. Sett verði í fyrsta sinn ákvæði í þingsköp um umræður utan dagskrár, en þær hafa á síðari árum orðið veigamikill og nauðsynlegur þáttur þing- starfa. Gert er ráð fyrir, að slíkar umræður fari aðeins fram í sameinuðu þingi, enda ekki eðlilegt, að önnur deildin ræði ein „aðkallandi mál, sem ekki þola bið“. Settar verði hömlur á ræðutíma, svo að slík- ar umræður fari ekki úr bönd- um eða ryðji öðrum þingstörf- um frá. Hér er aðeins komið inn á þrjú atriði, sem mörgum hefur fundizt tefja fyrir löggjafarstarfinu, höf- uðverkefni þingsins. Eðlilegt er að setja þessum þingþáttum skýrari mörk. Öll nútíma þjóðþing þurfa að hafa opna leið til þess að þing- menn geti fyrirvaralítið, jafnvel fyrirvaralaust, hafið umræðu um aðkallandi mál, sem ekki þola bið né verða afgreidd á viðunandi hátt innan ramma venjulegra þing- mála. Hér er farvegurinn umræða utan dagskrár. Hefur skapazt sú hefð að þingmenn leita eftir sam- þykki forseta og láti viðkomandi ráðherra vita fyrir hádegi sama dag og umræða fer fram. Hins vegar er ekki stafur um utan- dagskrárumræður í þingsköpum. Öhjákvæmilegt virðist að þingið taki þessar, eða aðrar hliðstæðar tillögur um þingsköp, til af- greiðslu, fyrr en síðar. En brýnast er að þingmenn stytti mál sitt. Klak og eldi sjávar- og vatnadýra Stjórnarfrumvarp um skipulegt átak í fiskirækt mun fullbúið eða langt komið í viðkomandi ráðu- neyti. Þingmenn hafa áður hreyft þessu máli á Alþingi, þó jafnan hafi dagað uppi. Tveir þingmenn Alþýðuflokks fluttu fyrir fáum árum frumvarp til laga um rannsóknir í þágu at- vinnuveganna (103. löggjafar- þing), sem fjallaði m.a. um til- raunir „með klak og eldi þorsks og annarra nytjafiska, með það fyrir augum, að seiðum verði sleppt í stórum stíl þegar þau hafa náð þeim aldri að þau leita til botns, u.þ.b. 5 mánaða gömul". Fimm þingmenn Sjálfstæðis- flokksins fluttu tillögu til þings- ályktunar (104. löggjafarþing) um skipulegt átak og áætlun í fiski- rækt og veiðimálum. í tillögunni er lögð áherzla á rannsóknir og tilraunir, leiðbeiningar í fiskirækt og samræmingu í fjárveitingum til fiskiræktarmála og eflingu Fiskræktarsjóðs. Loks hafa fjórir þingmenn Al- þýðubandalags flutt tillögu um fiskeldi og rannsóknir á klaki og eldi sjávar- og vatnadýra. Tillagan felur ríkisstjórn, ef samþykkt verður, að undirbúa áætlun um eflingu fiskeldis, með það fyrir augum, að ræktun sjávar- og vatnadýra geti orðið gildur þáttur í atvinnulífi okkar. Heildarlöggjöf verði sett um fiskeldi og komið upp tilraunastöð á vegum Haf- rannsóknastofnunar. Óþarfi er að minna á að einka- aðilar hafa þegar unnið þrekvirki í fiskiræktarmálum (silungur og lax), sem vísa veg til fengsællar framtíðar í þessari atvinnugrein. Hins vegar hefur minna borið á „klaki og eldi þorsks og annarra nytjafiska", svo notuð séu orð úr frumvarpi um þetta efni fyrir þremur árum. I greinargerð með síðasttalda þingmálinu er vitnað til Björns Björnssonar, sem er að Ijúka dokt- orssnámi við Dalhousie-háskóla í Halifax í Kanada. Hann segir: „Eg dreg þá ályktun' eftir þessa ráð- tilraunir með eldi á þorski og öðr- um sjávardýrum til manneldis. Þá á ég aðallega við að veiða ungfisk hér við land og koma honum fyrir í sérstökum eldistjörnum og ala hann þar upp til slátrunar ... Nokkrar tegundir, sem kæmu vel til greina, eru þorskur, lúða, lax, ufsi og kræklingur. Það er trúlega hagkvæmasti kosturinn að vera með blandað eldi, t.d. lúðu, lax og krækling saman í eldistjörn. Þannig yrði lúðan á botninum, laxinn við yfirborð og kræklingur- inn mundi hreinsa vatnið og nýta um leið alla tiltæka smáfæðu." Hér verður ekki frekar farið út í þetta mál. En tímabært er að ís- lendingar, sem nú fjalla um vanda sjávarútvegs, stærri og meiri en nokkru sinni fyrr, hugi í leiðinni að fiskiræktar- og fiskeldismálum. Einkaaðilar hafa sem fyrr segir stigið stór spor á þessu sviði, að því er viðkemur vatnafiskum, sil- ungi og laxi. En betur má ef duga skal. Það er þörf á mörgum við- bótarstoðum undir atvinnu- og efnahag þjóðarinnar, ef hún ætlar að ganga til góðs götuna fram eft- ir veg. Ratsjá framsýni og eldflaug samstöðu Eldflaugar og ratsjárstöðvar settu mark á þingræður í vikunni sem leið. Þá var mikill hiti í mönnum; lá við að sumir stæðu á öndinni, svo mikið var þeim niðri fyrir. Þrátt fyrir alvöru þessara nýju umræðuefna — og andar- teppu — vóru þingmenn léttari á brún; líklega fegnir því að fá tæki- færi til að horfa til annarrar áttar en þeirrar, sem sýnir efnahagskr- eppu og aflasamdrátt. Þegar leið á vikuna stóðu þeir þó í sömu spor- um og flesta aðra daga, frammi fyrir óleystum vanda sjávar- útvegs, ítem efnahagsdæminu. Heimsmálin máttu þoka fyrir erf- iðleikum í túninu heima. Launafrumvarp ríkisstjórnar- innar kom til annarrar umræðu í neðri deild. Þorsteinn Pálsson, nýkjörinn formaður Sjálfstæðis- flokks, mælti fyrir breytingartil- lögu frá stjórnarliðum, sem m.a. kveður á um brottfall afnáms samningsréttar úr frumvarpinu. Meðal efnispunkta i máli hans vóru: • Þegar við horfðum framan í óðaverðbólgu og atvinnusamdrátt á sl. vori var ekki ágreiningur milli stjórnmálaflokka um það, að fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum hlytu að lúta að launamálum. • Alþýðubandalagið lagði til í stjórnarmyndunarviðræðum að öllum verðbótagreiðslum á laun yrði frestað í einn mánuð og freistað að ná fram samningum um vísitölukerfi, er drægi úr víxlhækkunum launa og verðlags. • Það var óhjákvæmilegt að stjórnvöld tækju af skarið til að koma í veg fyrir stöðvun atvinnu- rekstrar og fjöldaatvinnuleysi. • Enn eru mörg og erfið verkefni óleyst, ef við ætlum að höggva að rótum efnahagsmeinsemda. Það er unnið að verkefnum á þessu sviði. Meginmáli skiptir að stýra fjárfestingu þangað, sem hún skil- ar beztum arði. Eitt þessara við- fangsefna er endurskoðun banka- og fjárfestingarlánasjóðakerfis- ins, til að tryggja að við fáum há- marksarðsemi af fjárfestingar- fjármagni. • Jafnframt er unnið að endur- skoðun laga um Framleiðsluráð landbúnaðarins og verðmyndun í landbúnaði. • Ennfremur að áframhaldandi uppbyggingu orkufreks iðnaðar. • Að fengnum nýjum upplýsing- um um stöðu þorskstofns og minnkandi afla á næsta ári er nauðsynin enn brýnni á víðtækri samstöðu með þjóðinni um að- gerðir á sviðum atvinnu- og efna- hagsmála. • Það, að fellt er niður umdeild atriði úr bráðabirgðalögunum, fel- ur ekki í sér neinn undanslátt frá efnahags- og atvinnumálastefnu stjórnarflokkanna. Áætlanir hafa gengið eftir í hjöðnun verðbólgu. Ný áföll valda því hins vegar að það er nauðsynlegt að stjórnvöld og hagsmunasamtök atvinnulífs- ins taki höndum saman. Fulltrúar stjórnarandstöðu, sem mæltu gegn bráðabirgðalög- unum, viðurkenndu, sumir hverjir, þann neyðarrétt, sem þau vóru byggð á, ekki beinum orðum að vísu, heldur óbeint. Guðrún Agnarsdóttir, Kvenna- lista, sagði m.a.: „Við samþykkjum þó að það hafi verið nauðsynlegt að grípa til einhverra breytinga á verðbótakerfinu sl. vor, samhliða öðrum aðgerðum í efnahagsmál- um, en við vildum fara aðra leið ..." Hún skilgreindi hins veg- ar ekki þessa „aðra leið“ að því marki, að ná hefði mátt niður verðbólgu um nálægt hundrað prósentustig, eins og nú hefur tek- izt, hvert sem framhaldið verður. Hún sagði á öðrum stað í ræðu sinni: „Ég held að almenningur hafi verið samþykkur því að brýna nauðsyn hafi borið til að ná tökum á verðbólgunni og sýnt ótvíræðan vilja til að sameinast um það að vinna sig út úr þeim efnahagslegu ógöngum sem við blöstu." Vandinn er viðurkenndur. Þörf- in fyrir aðgerðir er viðurkennd. Þeir, sem síðan gagnrýna bráða- birgðalögin, axla þá ábyrgð, að benda á annan, jafnmikilvirkan kost eða mótleik. Á það hefur verulega skort, vægt orðað. Jón Baldvin Hannibalsson, Al- þýðuflokki, minnti á tillögu Al- þýðuflokks í viðræðum við aðra flokka eftir kosningar sl. vor: „Vísitölukerfið í sinni núverandi mynd verði afnumið. í staðinn komi frjálsir samningar aðila vinnumarkaðarins. Gætt verði sérstaklega hagsmuna láglauna- fólks." Alþýðuflokkurinn staðfesti þessa afstöðu sína í atkvæða- greiðslu um bráðabirgðalögin, eft- ir aðra umræðu í neðri deild. Fékk bágt fyrir í Þjóðviljanum. Það blað mætti raunar endurprenta kenningu Alþýðubandalagsins um „fjögurra ára neyðaráætlun" í þjóðarbúskapnum, fram setta áð- ur en fiskifræðingar settu fram hugmyndir sínar um aflasamdrátt 1984. Það kann að þjóna tilgangi að munnhöggvast um eldflaugar og ratsjárstöðvar á hinu háa Alþingi. Ekki sízt ef þingheimur skoðar þjóðarbúskapinn í ratsjá fyrir- hyggju og framsýni — og beinir eldflaug samstöðunnar að efna- hagskreppunni. Steíán Friðbjarnarson er þing- fréttamaður Mbl. og skrifar að staðaldri um stjórnmál í hlaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.