Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
29
Mótmæla nið-
urskurði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Öldungi,
ncmendafélagi Öldunadeildar
Menntaskólans við Hamrahlíð:
„Fundur Öldungs, félags nem-
enda í öldunadeild Menntaskólans
við Hamrahlíð, haldinn 11. nóv-
ember 1983, ásamt fulltrúm frá
Flensborg, Sauðárkróki, Akranesi
og Selfossi, mótmælir harðlega
öllum áformum Menntamálaráðu-
neytisins og annara stjórnvalda
um hverskonar niðurskurð á fjár-
veitingum til öldungadeilda. Bent
skal á að nú þegar greiða nemend-
ur beint hluta af launum kennara
og við bætist að kennsla er helm-
ingi minni við öldungadeildir en
við dagskóla."
Bragi Sigurjónsson
Göngur og
réttir í end-
urútgáfu
FYRSTA bindi af ritsafninu „Göngur
og réttir", sem út kom á árunum 1948
til 1953 og löngu er uppselt, er nú
komið út aftur hjá Bókaútgáfunni
Skjaldborg á Akureyri. Hefur Bragi
Sigurjónsson búið hana til prentunar.
Segir hann í formála, að efni sé að
verulegu leyti óbreytt frá fyrri útgáfu,
en því raðað skipulegar, dregið sam-
an það sem saman á, skekkjur leið-
réttar og efni aukið í svo sem það
aflast. Er þessi útgáfa líka betur búin
myndum en 1. útgáfan, afréttarkort
látin fylgja af umfangsmestu leitar-
svæðum og þeim forvitnilegustu til
skoðunar. Og nú fylgir nafnaskrá,
sem tilfinnanlega vantaði { fyrri út-
gáfu.
Bókinni fylgir mjög ítarlegur
formáli um þróun afréttarmála frá
upphafi byggðar í landinu, einnig
bókarauki, þar sem segir frá brú-
arbyggingu bænda í Lóni á Lóns-
öræfum og endurbyggingu hinna
sérstæðu Reykjarétta á Skeiðum.
Bókin er 400 bls. og í henni 80—90
myndir. Fyrsta bindið fjallar um
göngur og réttir í Austur- og
Vestur-Skaftafellssýslu, Rangár-
vallasýslu og Vestmannaeyjum.
Bragi, sem einnig safnaði efni í 1.
útgáfuna, segir ennfremur í for-
mála, að þá hafi hann verið svo
heppinn að ná víðast hvar um land-
ið sambandi við menn sem ger-
þekktu í heimabyggð sinni allt
varðandi þessi mál, eins og þeim
hafði verið háttað síðustu manns-
aldrana með sáralitlum breyting-
um. Vissulega mátti það ekki
seinna vera, því nú hafa breytingar
miklar orðið með nýrri tæknihjálp,
sem valdið hafa því að fjárleitir
hafa breyst talsvert og orðnar
minna karlmennskuverk en áður og
eru sumir farnir að spá því að fjár-
leitir um heiðar og fjöll fari senn
að heyra sögunni til.
r
Utigangsbörn
ÚTIGANGSBÖRN heitir bók sem
Skuggsjá hefur gefið út. Sagan er
eftir Dagmar Galin og er sönn saga
um systurnar Pilar, Biöncu og hin
indíánabörnin frá Kólumbíu, sem
fundu heimili hjá frönskum fjöl-
skyldum.
Þessi bók hlaut fádæma góðar
viðtökur í Þýskalandi og Frakk-
landi og hefur oft verið endur-
prentuð í stórum upplögum.
Allt bendir til þess, aö Lisa verði stjarna þessa áratugar í
tölvuheiminum, en meö henni hefur Apple sett markmið,
sem tölvur framtíöarinnar veröa að keppast viö aö ná.
Lisa er engri annarri tölvu lík. Þetta byggist fyrst og fremst á
nýrri aðferð í samskiptum mannsins viö tölvuna. 200 mann-
ár fóru í hönnun Lisu og var ekkert til sparað til þess aö gera
hana sem best úr garöi. Frá upphafi var aöaláherslan lögö á
aö gera tölvuna sem þægilegasta í notkun og var alltaf viö
þaö miöaö, að væntanlegir notendur þyrftu ekki að hafa
neina reynslu af tölvum til þess aö geta hagnýtt sér hina
margþættu eiginleika vélarinnar. Hér er í fyrsta sinn alvar-
lega hugaö aö því aö aölaga vélina vinnubrögöum notand-
ans í staö þess aö krefjast þess aö notandinn aölagi vinnu-
brögö sín aö kröfum vélarinnar. Nú þarf notandinn ekki aö
læra flóknar skipanir til þess aö stjórna tölvunni, heldur er
nægilegt aö benda á myndrænt tákn á skjá tölvunnar til
þess aö láta hana framkvæma þaö verk sem til er ætlast.
í Lisu er ein fullkomnasta örtölva sem fáanleg er í dag, 32
bita Motorola MC68000 og vélin hefur milljón stafa eigiö
minni (RAM). Þrjár örtölvur til viöbótar eru í vélinni og sjá
þær um diskettudrifin og lyklaboröið. Kerfið felur í sér sex
mismunandi forrit, sem geta stafaö saman, þ.e. ritvinnslu-
kerfi, tvenns konar grafisk forrit, LisaCalc reikniforrit,
gagnagrunn og áætlunargeröarforrit. Hægt er aö færa upp-
lýsingar á milli forritanna meö afar einföldum bendingum og
nýta þannig upplýsingar sem unnar eru t.d. í reikniforriti í
skýrslu sem unnin er í ritvinnslukerfinu. Eitt af því sem gerir
vélina svo einstaklega auövelda og þægilega í notkun er, aö
stýriskipanir eru byggöar upp á sama hátt í öllum forritun-
um, þannig aö þegar búiö er aö læra eitt þeirra, þá er leikur
einn aö læra á öll hin.
Tvö innbyggö diskettudrif eru í tölvunni, samtals meö 1,74
milljón stafa geymslurými, og er stjórnaö af sérstakri örtölvu
(6504). Meö vélinni fylgir haröur diskur, Profile, sem getur
geymt 5 milljón stafi, en auövelt er að bæta viö geymslurými
tölvunnar eftir þörfum. Skjámyndin er 364x720 punktar.
Þaö hefur sýnt sig, aö afar auövelt er aö læra aö nota
Lisa-tölvuna, enda er kerfið þannig uppbyggt, aö þaö líkir
eftir því hvernig fólk vinnur á skrifstofunni. Strax í upphafi
getur nýr notandi gert sér grein fyrir því hvernig vélin vinnur
vegna þess aö allt er svo rökrétt og auöskiliö af myndunum
á skjánum. Á minna en hálftíma getur nýr notandi byrjaö aö
hagnýta sér eitthvert forritanna sem í kerfinu eru.
Skjámynd Lisu mætti einna helst líkja viö skrifborö. Hjá
skrifboröinu er skjalageymsla (í raun Profile 5 mb harður
diskur) þar sem geymd eru skjöl og pappírar, teikniáhöld,
reiknivél, klukka og öll þau gögn og forrit sem á þarf aö
halda.
Notandinn tekur einfaldlega þau gögn út úr skjalageymsl-
unni, sem hann ætlar aö nota meö því einu aö benda á þau
meö músinni, og getur valiö um aö láta þau liggja á skrif-
borðinu, þar sem þau eru fyrirvaralaust tilbúln til notkunar,
eöa þá aö láta tölvuna hefja vinnslu meö þeim.
Þau gögn eöa tæki, sem tekin hafa veriö út úr skjala-
geymslunni eru sýnd á skjánum eins og þau liggi á skrif-
borðinu, þ.e.a.s. myndir af þeim eru á skjánum, og getur
notandinn ráöiö því hvernig þeim er raöað upp, og getur
gripiö til þeirra hvenær sem er meö því aö benda á þau.
Hvenær sem er, getur notandinn hætt aö nota eitthvert tæki
eða gögn og lagt þau til hliðar á skrifboröinu, lagt einhver
önnur skjöl yfir þau, eöa sett þau í skjalageymsluna. Þetta er
framkvæmt meö músinni meö einföldum bendingum. Til
dæmis um hversu augljósar skipanir eru mætti taka það, aö
maður vilji henda einhverri skrá. Þá þarf ekki annað aö gera
en aö benda á mynd af skránni, benda síðan á mynd af
ruslakörfu, og þá setur Lisa skrána í körfuna. Snúist manni
svo hugur, getur maöur gáö í ruslakörfuna og tekiö aftur
þaö sem í henni er og haldið áfram aö nota þaö.
Þeir sem hafa notað Lisu hafa komist að því, aö eftirlíkingin
af skrifboröi er svo raunveruleg, aö í lok vinnudagsins lítur
skjárinn út eins og skrifboröiö þeirra geröi áöur. Fyrirhafnar-
laust er aö taka til á skrifboröinu í lok vinnudagsins. Lisu er
einfaldlega sagt aö taka til, og raöar hún þá öllu á sinn staö,
gengur frá öllum skrám og gögnum og er tilbúin að taka til
starfa næsta dag þannig aö allir hlutir eru eins og síöast var
við þá skiliö. Ekki þarf aö hafa fyrir því að muna hvað var
hvar, Lisa man þetta alltsaman og lætur alla hluti aftur á
skrifborðiö, þar sem síöast var skilið viö þá. Þegar slökkt er
á Lisu fer straumurinn ekki samstundis af vélinni. Lisa byrj-
ar sjálfvirkt á því aö taka til, ganga frá öllum gögnum og
skrám og raöar öllu á sinn staö. Þaö er ekki fyrr en vélin er
búin aö þessu, aö hún slekkur á sér sjálf. Þannig er tryggt
aö gögn týnist ekki fyrir þaö eitt aö notandinn hefur gleymt
að geyma þau áöur en hann slökkti á tölvunni. Á sama hátt
hugsar Lisa fyrir því aö koma í veg fyrir aö notandinn
framkvæmi eitthvaö sem haft getur alvarlegar afleiöingar,
eins og t.d. aö hreinsa óvart út dýrmæt gögn. Tölvan aðvar-
ar notandann ef hann er aö gera eitthvað af þessu tagi og
neitar aö framkvæma skipanir, sem gætu eyöilagt mikil-
væga hluti á diskettum eöa haröa diskinum.
Öllum fyrirmælum til Lisu er komiö á framfæri meö því aö
benda meö músinni, en lyklaborðið þarf aðeins aö nota til
þess aö slá inn tölur eöa texta.
Lisa dregur sjálfvirkt úr birtu á skjánum ef hún er ekki í
notkun. Um leiö og komið er viö músina eöa lyklaborðið,
stillir Lisa birtuna á ný og er tilbúin til vinnslu.
Þegar vélin er sett í gang, byrjar hún á því aö framkvæma
prófun á örtölvubúnaðinum, minniseiningunum og öllum
tengingum viö jaðartæki, og lætur vita ef eitthvaö er öðruvísi
en þaö á aö vera.
Lisa er annaö og meira en venjuleg einkatölva. Hún ryður
braut nýrri kynslóð tölva. Svo byltingarkennd er Lisa og svo
margt nýtt hefur hún upp á aö bjóöa, að engin leið er að
gera því fullnægjandi skil í oröum. Þaö verður aö sjá hana meö
eigin augum til þess aö geta gert sér grein fyrir vinnslugetu
vélarinnar og öllum þeim möguleikum sem í henni felast.
SKIPHOLTI 19 — 121 REYKJAVÍK — SÍMI 29800