Morgunblaðið - 20.11.1983, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
Frá hárgreiðslusýningu á Broadway
ÍSLENSKIR hárgreiðslumeistarar eru þátttakendur í alþjóða
félagsskap ICD, eða Intercoiffure, í París, sem er félagsskapur
hárgreiðslufólks sem eflir kynningu og samvinnu hárgreiðslu-
meistara fremur en að hann skapi beinlínis tískuna. Gat íslenski
hópurinn sér gott orð fyrir sýningu sína í Ríó de Janeiro í fyrra,
og einnig í Sviss í ár. í janúar næstkomandi fer hópurinn með
sýningu til Florida. Gafst íslendingum kostur á að sjá þá sýn-
ingu, þar sem sýningarstúlkur voru m.a. í gærum, á hárgreiðslu-
sýningu ICD i veitingahúsinu Broadway á þriðjudagskvöld.
En auk þess sem allir þessir tíu íslensku hárgreiðslumeistar-
ar í ICD sýndu þar klippingar og daggreiðslur á jafnmörgum
sýningarstúlkum, þá hafði verið fenginn til landsins einn af
listrænum ráðunautum Alexandres de Paris, forseta samtak-
anna, hárgreiðslumeistarinn Gérard Vintin. Hann greiddi sex
samkvæmisklæddum stúlkum á sviðinu og töfraði fram glæsi-
legar gala-greiðslur.
Fullt hús var af áhorfendum. Ljósmyndari blaðsins, Friðþjóf-
ur, tók myndirnar á síðunni. Þar má sjá meistara Vintin, sem
greiddi samkvæmisklæddu stúlkunum á myndunum, nokkrar
stúlkur með daggreiðslur eftir íslenska hárgreiðslufólkið, í sér-
hönnuðum rúskinn- og leðurfatnaði frá Skryddunni á Berg-
staðastræti, og loks myndir frá sýningaratriðinu sem fór til Ríó,
en það þekkist af gærunum.