Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 42

Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 Guðmunda Guðmunds- dóttir — Minning Minning: Þorsteinn Magnússon frá Vestmannaeyjum Fædd 1. febrúar 1918 Dáin 13. nóvember 1983 Mumma lést í Landspítalanum þann 13. nóvember sl., eftir langa og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm. Kallið kom því ekki á óvart, undanfarnar vikur var vitað að hverju stefndi. Hún var gift Herði Ásgeirssyni, föðurbróður mínum, en hann lést fyrir rúmu ári. Mumma er sú sjötta úr hópi föðursystkina mjnna og maka þeirra, sem kveður þetta tilverustig. Af þeim hafa fimm látist á aðeins einu og hálfu ári. Dauðinn er það sem koma skal, það á við okkur öll. Misjafn- lega gengur að sætta sig við hann, einkum ef manni finnst að hinir látnu hafi verið á besta aldri. Það er því mikil raun fyrir samferða- fólkið að sjá nú á eftir enn einum úr fjölskyldunni hverfa á braut. Það er lífsreynsla út af fyrir sig að hafa kynnst Mummu og örlög- um hennar í lífinu. Þau hjón eign- uðust eina dóttur, Áshildi, sem er þroskaheft. Ása hefur alla tíð búið í heimahúsum, og þar notið þeirr- ar umhyggju og blíðu, sem for- eldrar geta veitt barni sínu. Jafn- framt hefur hún um langt skeið verið í dagvistun á þeim stofnun- um, sem Styrktarfélag vangefinna starfrækir, og þar fengið tækifæri til að njóta hæfileika sinna. Hvoru tveggja er mikils virði fyrir slíkan einstakling sem Ásu. Fyrir Mummu var það alltaf sjálfsagður hlutur að hafa hana heima hjá sér, og aldrei var á henni að heyra, að hún teldi eftir sér þá miklu vinnu og bindingu, sem það hefur í för með sér að annast og hafa í sinni umsjá þroskaheftan ein- stakling. Það var ekki fyrr en und- ir lokin að krafturinn þyarr, og hún gat ekki lengur sinnt henni. Ása er nú í góðum höndum, og á ég þá ósk heitasta henni til handa, að hún megi áfram njóta slíkrar umönnunar sem hún hlaut í for- eldrahúsum. Baráttan við sjúkdóminn reynd- ist Mummu bæði löng og erfið. Aldrei var að heyra neina kvörtun, né kom í ljós sjálfsvorkunn. Hún hélt áfram að lifa lífinu eðlilega, eftir því sem unnt var, og virtist leiða hjá sér þá staðreynd, að henni hrakaði stöðugt. Ég dáist að þeim krafti og vilja sem hún bjó yfir alla tíð. í þeirri von að heiðurskonan Guðmunda Guðmundsdóttir sé hvíldinni fegin, votta ég öllum að- standendum hennar dýpstu sam- úð. Ég er forsjóninni þakklátur fyrir að hafa kynnst henni, og varðveiti í huga mínum minning- una um góða konu. Ásgeir Eiríksson Ennþá einu sinni hefur orf sláttumannsins höggvið í fjöl- skyldu okkar. Á einu og hálfu ári hafa 5 með- limir hennar verið hrifnir á brott úr hinu veraldlega lífi til hins ei- lífa. Á sl. ári hurfu frá okkur Katrín mágkona, Ingimar mágur og Hörður bróðir minn. Á þessu ári Eiríkur bróðir minn, eiginmaður Katrínar, og nú Guðmunda, eigin- kona Harðar. Þegar alvarlegir sjúkdómar steðja að, sem læknavísindin enn ekki ráða við, má segja að flestir séu hvíldinni fegnir. Mumma veiktist af krabbameini fyrir rúmum 2 árum en barðist gegn veikinni með von um að fá að lifa lengur. Það var ekki fyrr en daginn áður en hún lézt að hún sagði við mig: „Ég vona að þetta fari að styttast. Kvalirnar eru svo miklar." Hugur og umhyggjusemi henn- ar var til eina barnsins þeirra, Áshildar, dótturinnar sem er 44 ára og þroskaheft. Þau hjónin lifðu fyrir hana og eftir að Hörður dó og Mumma var orðin mikill sjúklingur, þurfti oft að fara á spítala til aðgerða eða rannsóknar. Lá henni alltaf mikið á að komast aftur heim. Þó hún væri ekki lengur manneskja til að sjá um heimilið gerði hún það. Frá upphafi, að séð var ástand Áshildar, dóttur Mummu og Harðar, kom það oft til tals að hún ætti heima á heimili sér líkra. Svar Mummu var: „Ég hef fætt hana og ber að sjá um hana þar til ég dey.“ Áshildur var á dagheimili fyrir þroskahefta og leið þar vel en heim varð hún að koma á hverjum degi. Mumma gat ekki hugsað sér annað. Nú hefur Áshildur eignast aðrar mömmur á dagheimilinu Lækjar- ási og Kópavogshælinu. Þar veit ég að henni mun líða vel þó heima sé alltaf best að vera. Mumma var dóttir hjónanna Mari Magnúsdóttur og Guðmund- ar Eyjólfssonar, sjómanns í Bol- ungarvík. Mari dó 1953 nær 70 ára að aldri, en Guðmundur 1970 þá nær 90 ára. Guðmundur var tví- kvæntur. Með fyrri konu sinni átti hann 3 börn, Guðrúnu, sem er lát- in, Jónas og Magnús sem báðir bjuggu lengi á Flateyri. Magnús er nú á Sjúkraskýlinu (elliheimilinu) Flateyri, en Jónas á Elliheimilinu Grund. Með Mari átti hann Guðmund, rafvirkja, Isafirði, sem lést 1946, og Guðmundu. Börn Guðmundar eru þrjú. Guðmunda kom til Flateyrar í vist hjá sæmdarhjónunum Ingi- björgu og Ragnari Thorarensen bakara. Þar kynntust þau Mumma og Hörður bróðir minn. Þau giftu sig 1. maí 1937. Aðalstarf Harðar framan af ár- um var verkstjórn í frystihúsum, hjá föður okkar á Flatéyri, Kaup- félaginu á Skagaströnd og Sigurði Ágústssyni, Stykkishólmi. Til Reykjavíkur fluttu þau fyrir rúm- um 20 árum og starfaði Hörður við fyrirtæki mín við umsjón vöruafgreiðslu, en Mumma sá um mötuneyti og síðar var hún hús- móðir á heimilinu, þ.e.a.s. sá um að skrifstofurnar væru hreinar og fágaðar, enda sérstök manneskja hvort sem um matargerð var að ræða eða halda öllu snyrtilegu. Heimili hennar bar því einnig vitni fram á seinasta dag. Ég og kona mín áttum þess kost að koma á heimili þeirra hvar sem þau bjuggu. Það var dásamlegt að heimsækja þau og munum við ekki hafa verið ein um að njóta gestrisni þeirra hjóna en margir nutu þar góðs matar, gistingar og gestrisni. Börnin okkar eiga sælar minn- ingar frá dvöl sinni hjá Mummu og Herði á leið í eða úr sveitinni, þar sem þau voru jafnan sem ung, í nágrenni Stykkishólms. Starfsfólk fyrirtækja minna minnast konunnar sem gekk hljóðlega um skrifstofurnar, not- aði tækifærið þegar enginn var þar inni til að þurrka af, laga til á borðum eða ryksuga. Þess á mill- um gat hún verið í vinahópi með kaffibollann og rætt um daginn og veginn. Prúð í framkomu, dul en þó ræðin og ánægð með tilveruna, þótt oft væri erfitt líf heima fyrir að okkar mati. Slíkt lét hún ekki á sig fá. Þetta var þeirra líf, það varð að taka því og það gerði Mumma með prýði ásamt Herði eiginmanni sínum. Við fjölskyldan, starfsfólkið og aðrir vinir sjáum nú á bak mikilli konu, konu sem hafði stórt hjarta, byggði upp dásamlegt heimili með manni sínum. Þau voru bæði hvers manns hugljúfi. Það er mikill missir að góðum vinum og förunautum og þegar lit- ið er til baka vakna í huga margar góðar endurminningar. Fjöl- skyldubönd okkar fjölskyldu hafa verið sterk og þótt nánustu ætt- menni og makar séu nú nær 130 höfum við kappkostað að hittast við hvert tækifæri sem gefist hef- ur og a.m.k. flest öll einu sinni á ári í sl. 30 ár. Mumma er nú komin til Harðar síns en eftir er dóttirin Áshildur og bið ég Guð almáttugan að halda yfir henni verndarhendi. Ég þakka Mummu fyrir ánæg- julega samfylgd í lífinu fyrir hönd okkar hjóna, barna og annarra fjölskyldumeðlima, svo og starfs- fólks fyrirtækja okkar. Fyrir hönd okkar fjölskyldunn- ar vil ég þakka sambýlisfólkinu Kleppsvegi 28 fyrir alla þá aðstoð og hlýju sem þau veittu Mummu og Herði í veikindum Jieirra. Gunnar Ásgeirsson Á morgun, mánudaginn 21. nóv- ember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík frú Guðmunda Guðmundsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að minnast þessarar ágætu konu, en eins og oftar á kveðjustundu mega orð sín lítils, en margar góðar minningar leita á hugann. Guðmunda, eða Mumma eins og hún var kölluð innan fjölskyld- unnar, var gift föðurbróður mín- um, Herði Ásgeirssyni, og eignuð- ust þau eina dóttur, Áshildi, sem ennþá er aðeins barn þó fullorðin sé. Mínar fyrstu minningar af þeim hjónum eru frá þeim tíma er þau bjuggu í Stykkishólmi. Nú eru rúmlega 20 ár síðan ég dvaldi hjá þeim, barn að aldri, ásamt yngri bróður mínum. Það var ekki lítið ævintýri að vera sendur í burtu frá foreldrum sínum í fyrsta skipti og eftirvæntingin því mikil. Dvölin var hin ánægjulegasta í alla staði, enda voru þau ávallt góð heim að sækja. Líf þeirra hjóna var ekki áhyggjulaust. Mótlæti máttu þau þola meira en margir, en þrátt fyrir erfiðleika var ekki gefist upp, heldur barist af fullum krafti. Styrkur Mummu var ótrú- lega mikill og kom vel í ljós síð- ustu ár eftir að hún veiktist af sjúkdómi þeim er flesta sigrar að lokum. Eftiiv sem áður annaðist hún eiginmann sinn og dóttur sem hvorugt gekk heilt til skógar. Áshildur þurfti alltaf sinnar umönnunar við. Samband þeirra mæðgna var alltaf eins og sam- band móður og barns er fyrstu æviárin, þar sem oft er það móðir- in ein sem skilur barn sitt og þekkir þarfir þess. En Mumma var ákveðin í því til síðasta dags að veita henni sjálf þessa umönnun. Þann 23. okt. 1982 missti Mumma eiginmann sinn og kom þá styrkur hennar enn betur í ljós, er þær mæðgur stóðu einar eftir. Þrátt fyrir margar erfiðar sjúkra- húslegur var hugurinn alltaf heima hjá Áshildi og lagði hún allt kapp á að eyða sem flestum stundum heima með henni. Skömmu eftir lát Harðar eign- uðumst við hjónin son, sem hlaut nafn afabróður síns. Þetta var Mummu mikið gleðiefni og var Hörður litli einn af sólargeislun- um í lífi hennar þetta síðasta ár. Þennan tíma áttum við margar ánægjulegar samverustundir, sem hefðu svo gjarnan mátt verða fleiri. Ég og fjölskylda mín senduro Ásu okkar innilegustu samúðarkv- eðjur og óskum henni allrar guðs blessunar. ilalldór Eiríksson Fæddur 30. júní 1919. Dáinn 12. nóvember 1983. Hinn 12. þessa mánaðar lést Þorsteinn Magnússon, trésmiður, sem um árabil hefur haft umsjón með trésmíðaverkstæði Kópa- vogsbæjar. Kynni okkar Þorsteins vörðu ekki lengur en eitt ár eða frá því ég hóf störf hjá Kópavogsbæ, þar til nú, að hann er kallaður burtu af sjónarsviðinu. Þessi kynni voru hins vegar með þeim hætti að ég finn til sterkrar löngunar til að minnast hans með fáeinum orð- um. Þorsteinn Magnússon vann hug og hjörtu þeirra sem áttu við hann samskipti. í starfi sínu hjá Kópa- vogsbæ ávann hann sér virðingu og vinsældir meðal samstarfsfólks síns sakir þeirrar velvildar og hjálpsemi, sem öðru fremur ein- kenndi framkomu hans. Verklagni hans og samviskusemi var við brugðið. Oft mæddi mikið á Þor- steini enda starf hans þess eðlis að ófyrirséð atvik kölluðu á skjót viðbrögð og kom þá gjarnan í ljós hversu ósérhlífinn og úrræða- góður hann var. Síðustu mánuðina fór það ekki fram hjá neinum að Þorsteinn átti við alvarleg veik- indi að stríða. Hann tók veikind- unum með því æðruleysi sem hon- um var eðlislægt og dró hvergi af sér í starfi. Skyldurækni og iðju- semi Þorsteins ásamt mannkær- leika hans og prúðmennsku mun prýða minningu hans. Ég vil fyrir hönd starfsfólks Fé- lagsmálastofnunar Kópavogs, votta konu, börnum og öðrum ástvinum Þorsteins samúð og virðingu. Bragi Guðbrandsson, félagsmálastjóri. Þorsteinn Magnússon frá Vest- mannaeyjum verður jarðsettur á morgun, mánudag. Hann var kenndur við London eins og fleiri góðir menn voru kenndir við ákveðna staði þar i bæ. Ekki þekkti ég þann stað og kom þar ekki, því miður, en þeir sem til þekktu höfðu orð af þeirri gest- risni sem þar ríkti ávallt. Ekkert veit ég um uppeldisár Þorsteins vinar míns, hann ræddi þau ekki, enda ekki margmáll. Þó veit ég margt um greiðasemi hans gagnvart öðrum og finnst mér það bera einhvern vott um uppeldi hans og kærleika gagnvart þeim sem bágt áttu og minna máttu sín. Sjálfsagt hefir uppeldið átt sinn hluta svo og eigin lífsskoðun Þorsteins sjálfs, en Þorsteinn var sérstakur maður. Skýringarinnar á því af hverju við urðum svo góðir vinir í byrjun, er ef til vill ekki vandleitað. Skap- lfkir á okkar þögla hátt, stundum án orða. Raunar hófst þessi vin- átta okkar, þegar ég sem hönnuð- ur Sjúkrahússins í Vestmannaeyj- um, kynntist Þorsteini yfirsmið. Þar var ég viss um að færi af- bragðs fagmaður, þess vegna þurfti ekki svo mörg orð vegna þess að hann vissi nákvæmlega hvað ég vildi og ég treysti honum, eins og áður sagði sem afbragðs fagmanni. Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum var hans verkefni og hann vildi skila því eins og hann vildi og gat manna best. Við áttum þetta áhugamál sameiginlegt, eins og svo mörg önnur. Þarna var m.a. um að ræða heilsugæslustöð til að byrja með, innréttingu sjúkra- deilda, skurðstofa, fæðingarstofu, gjörgæslu, eldhúss og matarað- stöðu starfsfólks. Sjúkrahúsið væri ekki það í dag ef Þorsteinn Magnússonar hefði ekki notið við. Þarna lagði Þorsteinn Magnússon nótt við dag, bæði fyrir og eftir gos. Auðvitað kom þetta niður á fjölskyldulífi hans og hans yndis- legu konu, Guðrúnu. Vinátta okkar náði þar til yfir lauk, þökk sé Guði fyrir það. Þorsteinn hafði svo mikið að gefa mér í vináttu og kunnáttu hans sem fagmanns. Vináttan, skap- gerðin og svo margt annað gerði okkur samrýnda, það sem ég sagði við hann fer með honum í gröfina, en hitt, sem hann sagði mér og dýrmætara er mér gleymdi ég ekki og geymi næst hjarta mér, þökk sé vini mínum. Ferðir mínar til Vestmannaeyja voru ófáar og dvöl okkar í gámn- um eftir gos voru ávallt ánægju- legar eftir strangan og langan vinnudag. Þorsteinn var strangur verkstjóri og vildi hafa allt fyrsta flokks um leið og hann gætti ávallt hags bæjarsjóðs í útgjöld- um. Vilhjálmur, sonur minn, átti þess kost að vinna með Þorsteini vini mínum í sjúkrahúsinu. Ég veit það og þekki að hann minnist vinar míns sem jákvæðum at- vinnurekanda svo og leiðbeinanda, ekki þá síður sem verkstjóra og uppalanda. Þegar Þorsteinn og Guðrún fluttu hingað alfarið til Reykja- víkur, urðu kynni okkar allra nán- ari. Þá var lok^ins tími til þess að hittast öll. Þá varð það einnig að konur okkar urðu mjög góðar vinkonur. Vináttan var sameinuð. Fyrir þá sem ekki þekktu Þor- stein Magnýsábn náið, var það ef til vill á stundum einkennilegt, því að hann átti til að bregða fyrir sig stríðni. Stríðnisorð sem voru jafn- vel vinarorð frá honum til ann- arra, sem honum líkaði sem best við. Þessi stríðnisorð gátu auðveld- lega orðið að ástarorðum til Guð- rúnar konu hans, torskilin stund- um bæði henni og börnum þeirra. Þegar til fastlandsins kom hóf hann fljótlega störf sem yfirmað- ur Trésmiðju Kópavogskaupstað- ar, þar sem hann m.a. bar ábyrgð á öllu viðhaldi skóla þar í bæ. Hefi ég það frá yfirmönnum hans þar að einnig þar stóð hann sig með afbrigðum vel og var alls staðar vel liðinn. Hann var einnig þar vakandi nótt sem dag ef á ein- hverju liðsinni þurfti að halda. Þegar mest var að gera í því starfi var oft leiðinlegt að tala við hann, að mínum dómi, því þar og þá var alltaf talað um starfið. Þorsteini leið vel, þegar hann gat talað af allri sinni hógværð um það sem honum var kærast. { Vestmannaeyjum var hann vinamargur, sem von var og minntist hann þeirra oft með ánægju og þakklæti. Ég ætla mér ekki að nefna nein nöfn í því sam- bandi, ég geymi þau nöfn en þökk sé þeim öllum. Sama veit ég að átti sér stað í Kópavogi. Hann var sami Þor- steinn þar og í Vestmannaeyjum. Þar bar hann einnig ávallt hag bæjarfélagsins fyrir brjósti um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.