Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 44

Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 Augun í rágeitunum eru helst til mannleg en þær eru herramannsmatur Veiöivöröur í Iögregiutyigd fylgdiet meö veiöunum. Refur og tvrnr rágeitur voru þeger fettder. „Þarna, þarna, þarna,“ hvíslaði ég og benti á fallegan, ljósbrúnan ref sem hljóp eins og hann ætti lífið að leysa í gegnum skóginn. Veiðimaðurinn sneri sér snöggt við, mund- aði riffilinn, skaut einu skoti og refurinn lá grafkyrr. Kúlan hitti hann í höfuðið og blóð seytlaði hægt út úr kjaftinum á hon- um. Veiðimaðurinn var alsæll með skotið og blés tvisvar í veiðilúðurinn til að láta vita að refur var felldur. Skógurinn var morandi af veiðimönnum þennan dag. Þeir voru saman komnir á Ulmizberg, sem er hæð álíka langt frá Bern í Sviss og Rjúpnahæðin er frá Reykjavík, til að skjóta rágeitur. Þær valda tjóni á skóginum og uppskeru bænda svo að veiði- mönnum er gefin frjáls höndin á svæðinu einu sinni á ári til að fækka dýrunum. Það gekk bæri- lega þennan dag, fjórtán rágeit- ur voru drepnar og tveir refir. Veiðimennirnir voru hreyknir af frammistöðunni og hugsuðu sér gott til glóðarinnar að gæða sér á villibráðinni. Hún er herra- mannsmatur og mjög vinsæl fæða í Evrópu á haustin á meðan á veiðitímanum stendur. Félagar úr veiðimannaklúbbn- um Hubertus í Bern söfnuðust saman á bílastæði við Ulmizberg árla morguns í byrjun nóvember. Náttþokunni hafði ekki létt og það var kalt. En veiðimennirnir voru vel búnir, klæddir í græn föt og með hatta í sama lit. Þeir voru tilbúnir til að standa graf- kyrrir í langa stund og bíða þess að bráðin léti bóla á sér. Riffl- arnir voru rammgerðir, veiði- hornin héngu í snúru um öxlina og vasapelarnir voru ávallt til taks. Þeir skiptu sér í nokkra hópa. Hundeigendur slepptu hundun- um lausum og gengu á eftir þeim um hæðina með vissu bili á milli sín til að reka rágeiturnar úr fylgsnum sínum. Hinir dreifðu sér um skóginn og biðu þess að dýrin hlypu hjá. Þá skutu þeir, gáfu þrjú hljóðmerki og hreins- uðu innyflin strax úr dýrunum svo það kólnaði og geymdist bet- ur. Síðan var gjarnan skálað í snaps og beðið eftir öðru fórn- ardýri. Vaninn er sá að 3—5 veiði- menn fari saman á veiðar. Hub- ertus-rágeitaveiðarnar eru und- antekning frá reglunni og eins konar árshátíð hjá klúbbnum. Trjágreinin í hettinum á þeeeeri hreyknu ekyttu er merki um eö henn hefi fellt rágeit. Hluti ef veiöinni. Þennen deg voru elle fjórtán rá- geitur drepner og tveir refir. Þeir veiddu fram yfir hádegi en þá settusst þeir að snæðingi og drykkju undir berum himni og skiptust á veiðisögum. Þeir voru ekki alltof hrifnir af að hafa blaðamann á staðnum. „Nú fer hún heim og skrifar um okkur morðingjana,“ sögðu þeir, „og svo verða birtar myndir af okkur með blóðugar hendur." Veiðimenn eru ávallt gagn- rýndir fyrir að myrða blessuð dýrin en yfirleitt hikar fólk ekki við að gæða sér á villibráðinni sem þeir drepa. Keppnin milli dýranna og mannsins þykir ójöfn. Þeir króa dýrin af og oft eru fleiri en einn tilbúnir að skjóta. Það er augljóst hversu hrætt dýrið er. Marió, sá sem felldi refinn, sagði að hann ætti Hausinn á vegginn og kjötíð í pottínn Henn ver 14,5 kg. Ver búiö eö hreinee úr honum innyflin og eig- endinn hlekkeöi til eö boröe hjerte, lifur og nýru um kvöldiö. Heueinn ekorinn ef. Henn veröur húeprýöi á heimili veiöimenneine en kjötkeupmeöur fákk búkinn til eö bite niöur og eelje é himinháu veröi. Villibráð er fyrirtaks matur og í kringum 40 þús. tonn etin á ári hverju í Sviss. Stór hluti magnsins er að sjálfsögðu fluttur inn frá öðrum löndum Evrópu. Rádýr, hérar og hirtir eru einna vinsælastir til manneldis og þessi matur er borinn fram á ýmsan hátt með rjómasósum og öðru góðu meðlæti. Hér á eftir fara tvær uppskriftir sem vel mættti reyna á hreindýrakjöti eða jafnvel lambakjöti. BÚRGUNDARVILLIKÁSSA 5 dl rauðvín % dl. edik laukur, lárviðarlauf, negulnaglar 5 einiber 5 heil piparkorn Best er að hafa villibráðina í þessum legi í eina 10 daga. Það þarf að snúa henni daglega og passa að lögurinn fljóti yfir alla bitana. 1,2 kg. smábitar villibráð 2 msk. smjör 50 gr beikonteningar 150 gr. sveppir 2 matsk hveiti 1 dl súr rjómi 100 gr léttsteiktir brauðteningar Taka kjötbitana úr kryddlegin- um og þurrka það vel. Setja löginn í pott og láta suðuna koma upp. Sigta hann og setja til hliðar. Hita feitina og steikja kjötið, beikon- bitana og sveppina. Strá hveitinu yfir og leysa upp með sigtaða kjötleginum. Bæta kannski smá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.