Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 46

Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 Frá Hafnarfiröi 1948. Af sálarkirnu og formrænum vísindum Hugleiðing á yfirlitssýningu verka Harðar Ágústssonar Servantur, 1945. Mars og Venus 1950. Myndlist Bragi Ásgeirsson Þótt segja megi með réttu, að myndlistarmenn og listamenn yf- irleitt túlki fyrst og fremst vett- vang samtíðar sinnar, eru þeir um leið boðberar framtíðarinnar. Þeir skynja hræringarnar í samtíman- um, sem seinna verða að umfjöll- unarefni hug- og raunvísinda. Þannig eru listamenn iðulega langt á undan vísindunum hve merkilegt sem það kann að virð- ast. Eitt sannverðugasta dæmið er e.t.v. hið djúpa sálræna raunsæi og þau miklu umbrot, er birtast í málverkum Edvards Munch, leik- ritum Strindbergs og Ibsens. Á það hefur verið bent, að Sigmund Freud fór ekki að fjalla um sama efni fyrr en löngu seinna. Þegar hann grundvallaði kenningar sín- ar, er vitað, að hann þekkti Ibsen og Much. Þannig eru listamenn næmir fyrir þeim öflum í samtíð- inni, vitandi eða óvitandi, sem seinna verða að ríkjandi veruleika. Sagt hefur verið, að strangleik- inn í þýskri byggingarlist hafi boðað komu fasismans. Einnig má álíta að Cobra-listin hafi um sumt speglað óróa og upplausn eftir- stríðsáranna, og að kalda stríðið og sú sálarkreppa, sem heimurinn var í, komi fram í hinu stranga og óvæga flatarmálsmálverki (geo- metríu) sjötta áratugarins. Grundvöllurinn að flatarmálsmál- verkinu var þó lagður mörgum áratugum áður. Abstrakt- expressjónisminn og tassisminn losuðu svo um ný öfl. Hugmynda- fræðilega listin og poppið var tímabil endurmats og niðurrifs viðtekinna kenninga um eðli myndverksins og nýja málverkið gæti þannig rökrétt verið sam- svörun brenglaðs verðmætamats nútímans, upplausnar og terror- isma, — ásamt síaukinni sókn f vímuefni, sértrúarsöfnuði, flótta frá raunveruleikanum og ábyrgð- inni. Niðurstaðan minnir óneitanlega á vísdómsorð forns japansks spakmælis: „Sá er lifir í minning- unni, lifir árangurslaust, — sá sem lifir í framtíðinni, lifir sem heigull, — einungis sá, er lifir í endurtekningunni, höndlar fegurð lífsins..." Með uppátækjum sínum á alla mögulega vegu hefur nútíminn þörf fyrir að virkja skapandi lista- menn meir en nokkru sinni áður og mun gera í auknum mæli f framtfðinni. Heimurinn þarf meira en nokkru sinni fyrr á sjálfstæðri hugsun og sköpunar- gleði að halda til mótvægis við hina geldu, ófrjóu örtölvuöld, sem þegar hefur hafið innreið sína. Þetta segja og fremstu vísinda- menn á sviði örtölvunnar, sem mjög eru uggandi um, að maður- inn samlagist hinu ófrjóa vél- menni. Þannig má álykta með meiri rétti en nokkru sinni fyrr, að siðmenningin geti ekki án skap- andi lista verið. Hörður Ágústsson, er Listasafn íslands heiðrar um þessar mundir með veglegri yfirlitssýningu, er gott dæmi um togstreitu á milli vísinda og listar. Eftir stúdents- próf árið 1941 hefur hann nám í verkfræðideild Háskólans og nem- ur um leið byggingarlist í einka- tímum hjá Einari Sveinssyni húsameistara. Leggur um svipað leyti út í myndlistarnám við Handíða- og myndlistarskólann og er þar í tvö ár. Síðan er hann í einkatímum hjá Gunnlaugi Schev- ing, en heldur svo utan til Kaup- mannahafnar strax í stríðslok og nemur í eitt ár við Fagurlistaskól- ann þar í borg. Dvelur þar næst í London í eitt ár. Kemur til París- arborgar og innritast í „Académie de la Grande Chaumiere". Hér verða mikil umskipti í lífi Harðar Ágústssonar, og við erum komin til ársins 1947. Er Hörður gistir Parísarborg, var frægð húsameistarans og myndlistarmannsins Le Corbusi- ers hvað mest. Þessi sjálflærði en hámenntaði listamaður, er í raun hét Charles-Edouard Jeanneret (1887—1865) varð einn frægasti húsameistari og áhrifavaldur ald- arinnar á sínu aðalsviði og auk þess vel þekktur sem málari og rithöfundur. Hann var ásamt Amedée Ozenfant upphafsmaður listastefnu, er hlaut nafnið „postkúbískur púrismi", og sem byggðist á því að hreisa málverkið af öllum hjáleitum vangaveltum. Hús sín vildi Le Corbusier fyrst og fremst gera manneskjuleg og nota til þess lágmark af tildri, en gera þau um leið sjónrænt fögur. Kynni Harðar af þessum meistara munu hafa haft djúpstæð áhrif á list- sköpun hans og lífssýn allt fram á daginn í dag, þótt hann hafi einnig orðið fyrir áhrifum af seinni tíma hræringum í myndlist sem húsa- gerðarlist. En þau áhrif hafa ein- mitt byggst á hinu rökfræðilega á myndfletinum og um leið hinni ósjálfráðu skrift handarinnar, svo sem fram kemur í rannsóknum listamanna á kalligrafíunni. Þá detta mér í hug listamenn svo sem Dotremont og Henri Michaux. Það er ekkert nýtt, að lista- menn, er tjá sig í lágmarki efni- viðar, geri það með sem mestum formrænum andstæðum, þraut- hugsuðum eða ósjálfráðum og um- búðalausum. Eins og margir landar, er gistu Parísarborgar á þessum árum, var Hörður fljótur að skipta yfir í flatarmálsmálverkið — sennilega má álykta, að þeir hafi flestir ver- ið of bráðir á sér, enda hvorki sprottnir upp úr sama jarðvegi né hefð og helstu iðkendur listastefn- unnar. Þetta varð því nokkuð hrámelt framleiðsla hjá þeim, og þótt hún væri oft tæknilega vel af hendi leyst, þá skorti hið innra samhengi og sannfæringu — sem fram kom m.a. i óeðlilegu ofstæki og í sannfæringu um ágæti þess, sem þeir voru að gera. Margir þessara listamanna hafa þar.nig farið í heilan hring í listsköpun sinni og sama má segja um hlið- stæður þeirra erlendis. En á sama tíma ræktuðu velflestir brautryðj- endurnir sinn garð staðfastir, sallarólegir og rökrétt. Andlegu meltingarfærin eru þannig ekki síður samsvarandi og mikilvæg en hin líkamlegu. Menn geta aldrei með öllu flúið uppruna sinn án þess að blekkja sjálfa sig, — svo sannarlega ekki, ef maður starfar mitt í honum og aðlagast ekki með öllu öðrum vettvangi. Þannig er eðlilegt, að listamaður starfandi á íslandi hugsi öðruvfsi en erlendir og landar hans, er í áratugi starfa erlendis. Jarðveg- urinn er annar, þótt grundvallar- hugmyndirnar kunni að vera þær sömu. Annað væri að taka það bókstaflega, sem gárunginn sagði um Kínverja, að þeir væru svona gulir vegna þess að forfeður þeirra hefðu borðað svo sterka karrísósu! Það er öðru fremur umhverfið, sem mótar manninn, en ekki hjá- leitar kennisetningar, hversu sennilegar sem þær kunna að virð- ast. Eiginlega gera allar harð- soðnar kennisetningar listina svo fjarska leiðinlega, því að það er hið óræða og óvænta, sem heillar og sem hlýtur að vera kveikjan að allri lífvænlegri list. Ég held því þannig fram, að hið óskiljanlega skipti ekki mestu máli í myndlistinni, heldur hæfi- leikinn til að hrífast af hlutunum án þess að spyrja um merkingu þeirra. Við getum meðtekið hið óskiljanlega með kenndum okkar án þess að vera færir um að skilgreina það nánar. Það sem all- ir skilja og geta skilgreint býr einnig iðulega yfir leynd og yndis- þokka og það að bregða yfir hlut- inn nýju óvæntu ljósi er einnig mikil list. Uppgötva ný sjónar- horn almennra hluta. Hér er ekki hægt að alhæfa neitt, og það er galdurinn við alla lifandi list, sem og lífið sjálft. List Harðar Ágústssonar hefur tilhneigingu til að vera klár og skilmerkileg eins og maðurinn er sjálfur í persónu sinni, skrifum og viðtölum. En eins og oft vill vera, leynist með honum efasemdar- maðurinn, er bankar reglulega upp á f smiðju listamannsins, glottir og vekur athygli á tilvist sinni. í samþjöppuðu máli má segja, að þróun listar Harðar Ágústsson- ar spanni frá hlutbundnu mál- verki, eins og það var kennt og iðkað á stríðsárunum hér í borg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.