Morgunblaðið - 03.12.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
25
Greinargerð frá Hagvangi hf.
um niðurstöður úr spurningavagni
Hér á eftir verdur gerð grein
fyrir niöurstöðum tveggja spurn-
inga úr öörum spurningavagni
fyrirtækisins á þessu ári.
Eins og komið hefur fram náði
könnunin til alls landsins, og
voru 1300 þátttakendur á aldrin-
um 15 ára og eldri valdir af
handahófi úr þjóðskrá af Reikni-
stofnun Háskólans að undan-
gengnu leyfi Hagstofu íslands og
Tölvunefndar.
Svarprósenta af brúttó-úrtaki
var 76,9%, en af nettó-úrtaki
85,7%. Svörin reyndust vera
auðkennandi fyrir þann hóp sem
úrtakið var valið úr hvað varðar
kyn, aldur, búsetu o.fl. Könnun
fór fram í gegnum síma og stóð
hún yfir frá 28. október til 6.
nóvember síðastliðinn.
Spurt var um eftirfarandi:
1. „Hvert telur þú vera helsta
vandamál íslendinga í dag“?
2. „Telur þú að hægt verði að
leysa þetta vandamál á næstu
árum?“
Fyrr á þessu ári eða í apríl
síðastliðnum gerði fyrirtækið
samskonar könnun, þar sem
spurt var sömu spurninga, og er
samanburður á niðurstöðum
þessara tveggja kannana sýndur
hér til hliðar. Það skal tekið
fram, að í samanburðinum eru
eingöngu þeir einstaklingar
lagðir til grundvallar sem voru á
aldrinum 20 ára og eldri.
Marktækur munur miðað við
95% vissu er á niðurstöðunum
t.d. varðandi verðbólguna og
sömuleiðis í hve ríkum mæli
bjartsýni gætir hjá þátttakend-
um varðandi lausn á viðkomandi
vandamálum.
Að öðru leyti er vísað í ein-
stakar töflur, en í þeim eru sýnd-
ar prósentutölur sem hafa verið
hækkaðar eða lækkaðar á fyrsta
aukastaf í útreikningi, og því
þarf summa þeirra í öllum til-
vikum ekki að vera jöfn og
100,0%. Hagvangur hf.
Hvert telur þú vera helsta vandamál
íslendinga í dag?
Telur þú að hægt verði að leysa
þetta vandamál á næstu árum?
Könnunartími 28. okt. — Apríl Okt.—
Úrtaksstærö 6. nóv.’83 ’83 nóv. '83
1.300 manns Almennt efnahagsástand 22,3 13,6
Svarprósenta brúttó 76,9% Veröbólga 37,2 29,5
Svarprósenta nettó 85,7% Stjórn- og ábyrgðarleysi 12,2 5,4
Aldur þátttakenda 15 ára og eldri Þaö aö lifa um efni fram 8,1 7,7
Framkvæmdarmátí í gegnum síma Áfengi / Fíkniefni 5,5 6,3
Búseta Allt Island Annað 14,7 37,5
Apríl Okt. —
’83 nóv. ’83
Að verulegu leyti 27,9 34,8
Aö einhverju leyti 37,1 39,0
Aö litlu leyti 17,8 12,6'
Aö engu leyti 10,4 7,2
Veit ekki 6,8 6,4
Fiskiþingi lokið:
Kvóti á allar veiðar
og öll skip samþykktur
FISKIÞINGI lauk í gær og sendi
þaö frá sér fjölda ályktana, meöal
annars um kvótaskiptingu á öll skip
og allar veiðar. A þinginu var Jón
Páll Halldórsson, ísafiröi, kosinn
varafiskimálastjóri til tveggja ára og
í hans staö í aðalstjórn var Guöjón
A. Kristinsson tilnefndur af hálfu
Vestfiröinga.
Fiskiþing samþykkti að stjórn-
un fiskveiða á árinu 1984 verði
með eftirfarandi hætti:
1. Við ákvörðun um hámarksafla
einstakra fisktegunda á árinu
1984, verði þess gætt, að fisk-
stofnarnir vaxi til aukinna
veiðimöguleika í framtíðinni.
2. Allar veiðar verði leyfis-
bundnar.
3. Kvótaskipting verði á öllum
aðalfisktegundunum og á öll
skip yfir 12 brúttórúmlestir,
en sameiginlegur heildarkvóti
á skip 12 rúml. og minni.
4. Aflamagn síðustu þriggja ára
verði lagt til grundvallar við
skiptingu aflakvóta á milli
skipa. Við úthlutun veiðikvóta
til báta sem hafa sérstök leyfi
til veiða skelfisktegunda, loðnu
og síldar, verði tekið tillit til
heildaraflaverðmætis, miðað
við samskonar skip á almenn-
um fiskveiðum.
Öllum frávikum sem gera
kvótaskiptingu óeðlilega fyrir
einstök skip verði vísað til
ráðgjafarnefndaí- sbr. 9. lið.
5. Úthlutun aflakvóta verði til
eins árs í senn. Heimild verði
gefin til þess að flytja úthlut-
aðan aflakvóta á milli skipa.
6. Veiðiheimildir verði rýmkaðar
verulega frá því sem nú er.
Endurskoðuð verði ákvæði um
möskvastærð með tilliti til
nýtingar tiltekinna fiskteg-
unda.
Jón Páll Halldórsson
7. Gerðar verði ráðstafanir til
þess að allur afli sem á skip
kemur verði færður af landi og
fyrirbyggt eins og kostur er að
verðminni fiski eða gölluðum
sé hent aftur í sjóinn.
Lög um að gera afla upptækan
verði afnumin.
8. Gildandi reglur um skyndilok-
anir svæða verði óbreyttar.
Lokuð svæði verði ekki opnuð
á ný fyrr en eftir könnun
veiðieftirlitsmanns.
Kannað verði hvort unnt sé að
beita skyndilokunum til þess
að vernda fisk í hrygningu, í
stað þess fyrirkomulags sem
nú gildir. Allar veiðar báta
verði áfram stöðvaðar um
páska.
9. Þar sem hér er lögð til kerf-
isbreyting frá núgildandi til-
högun veiða, láti sjávarút-
vegsráðherra framkvæma
nauðsynlega útreikninga nú
þegar. Sjávarútvegsráðherra
skipi nefnd eftir tilnefningu
hagsmunaaðila til þess að
fylgjast með framkvæmd
kvótakerfisins og gefa umsögn
og gera tillögur til ráðherra
um úrlausn vandamála, sem
upp kunna að koma.
10. Sú kerfisbreyting, sem hér er
lögð til, gildi einungis til eins
árs og verði tekin til endur-
skoðunar með tilliti til
reynslu.
Dalvík:
1100 laufa-
brauðskök-
ur seldust á
hálftíma
Dalvík, 2. desemer, 1983.
SÍÐASTLIÐINN laugardag stóðu
kvenfélagskonur á Dalvík í laufa-
brauösgerö til fjáröflunar fyrir starf-
semi félagsins. Laufabrauö kvenfé-
lagsins Vöku á Dalvík er orðinn ár-
viss viöburður fyrir jól. Um þrjátíu
félagar komu saman í heimavist
skólans á Dalvík og flöttu út og bök-
uöu um ellefu hundruð kökur. Nutu
þær aöstoöar barna viö útskurö
brauðsins.
Á sunnudag seldu konurnar
brauðið ásamt ýmsu öðru sem á
boðstólum var. Mikill áhugi var á
að fá brauð hjá þeim, því allt var
selt á hálftíma og fengu færri en
vildu.
Starfsemi kvenfélagsins Vöku
hefur staðið í miklum blóma und-
anfarin ár. Hefur félagið tekið
þátt í uppbyggingu Dalbæjar,
dvalarheimilis aldraðra, auk þess
sem félagið hefur safnað fé til
tækjakaupa fyrir heilsugæslustöð-
ina á Dalvík og Systrasels á Akur-
eyri, en þar hefur verið stofnuð
langlegudeild fyrir aldraða.
Fréttaritarar
Þeir „gömluu standa fyrir sínu
Skák
Margeir Pétursson
RÖKRÉTTUR skákstfll Vassily
Smyslovs, 62ja ára, fyrrum heims-
meistara í skák, fær svo sannar-
lega aö njóta sín um þessar mund-
ir. I sjöttu einvígisskákinni við
Zoltan Ribli tefldi Smyslov eitt af
sínum rólegu uppáhaldsafbrigðum.
Ungverjinn náði vissu frumkvæði,
en það rann út í sandinn þegar
Smyslov sneri vörn í sókn með
peösfórn. Um tíma voru síðan ýms-
ar blikur á lofti, en eftir aö Ribli
gaf peðið til baka í 30. leik var
jafntefliö fyrirsjáanlegt.
Smyslov hefur því enn foryst-
una í einvíginu, hefur hlotið þrjá
og hálfan vinning gegn tveimur
og hálfum vinningi Riblis. Áður
en undanúrslitaeinvígin hófust
var talið að ungu ljónin, Kasp-
arov og Ribli, myndu ryðja
gömlu mönnunum, Korchnoi og
Smyslov úr vegi, en sem stendur
virðast miklar líkur á því að
eldri kynslóðin haldi velli, því
gömlu mennirnir hafa teflt bet-
ur það sem af er.
6. skákin:
Hvítt: Zoltan Ribli
Svart: Vassily Smyslov
Slavnesk vörn
I. d4 — d5, 2. c4 — c6, 3. Rc3 —
Rf6, 4. e3 — g6.
í fjórðu skákinni fór Smyslov
út í hina hefðbundnu Meran-
vörn og lék 4. — d6, en lenti í
erfiðri stöðu. Þetta lítt teflda af-
brigði, sem kennt er gamla jafn-
tefliskónginum Schlechter, hæf-
ir traustum skákstíl hans betur.
5. Rf3 — Bg7, 6. Bd3 — 0-0, 7. 04)
— Bg4.
Smyslov er allra manna lagn-
astur við að losa sig við slæma
menn, en halda eftir þeim góðu.
Nú hyggst hann losa sig við
hvítreitabiskup sinn og setja síð-
an peð sín á hvíta reiti, þannig
að svartreitabiskup hans fái gott
svigrúm. Afar rökrétt, en þetta
kostar tíma og hvítur fær bisk-
upaparið.
8. h3 — Bxf3, 9. Dxl3 - e6, 10.
Hdl — Rbd7.
Þessi staða kom upp í skákinni
Korchnoi-Jusupov, Lone Pine
1981, að vísu eftir aðra leikjaröð.
í þeirri skák náði hvítur heldur
betri stöðu eftir 11. De2 — Dc7,
12. Bd2 - Had8, 13. Hacl -
Db8,14. Bel.
II. b3 — He8, 12. Bfl — e5!, 13.
cxd5
Lakara var 13. dxe5 — Rxe5,
14. De2 — Da5, 15. Bd2 — dxc4,
og svartur fær betri peðastöðu.
13. — e4, 14. De2 — Rxd5, 15.
Rxd5 — exd5, 16. Db5!
Ribli reynir að blása lífi í stöð-
una.
16. — Rb6, 17. Ba3 — a6, 18. Da5
- Hc8.
Sú hernaðaráætlun Smyslovs
sem nefnd var í skýringu við 7.
leik hans, hefur tekist ágætlega í
framkvæmd. Hvíti biskupinn á
fl hefur sáralítið svigrúm.
19. Hacl — Df6, 20. Hc5!
20. — Bf8!
Ef Smyslov hefur einhvern
tímann á sínum 45 ára skákferli
teflt betur en nú, hefur hann
sannarlega verið stórkostlegur!
Nú fórnar hann peði fyrir mót-
spil og léttir um leið á stöðunni.
Eftir 20. - De6, 21. Hdcl hefði
hvítur haldið þungri pressu á
svarta drottningarvænginn.
21. Hxc8 — Hxc8, 22. Bc5 - Rd7,
23. Bxf8 — Rxf8, 24. Dxd5 — Hc2,
25. Dxe4 — Dxf2+, 26. Khl — b5!
Mun lakara var 26. — Hxa2,
27. Bc4 með hótuninni 28. Hfl.
27. a4 — Hc3, 28. Bd3
Bætur svarts fyrir peðið koma
fram í sóknarfæruni eftir leikja-
röðina 28. axb5 — axb5, 29. Bxb5
- Hxe3, 30. Dbl - Re6, 31. Hfl
— Dd2 og svartur hótar 32. —
Rf4.
Hér hafði Ribli eytt furðulega
litlum tíma á skákina, aðeins
tæplega einni klst. á móti
klukkutíma og fjörutíu mínútum
Smyslovs.
28. — Db2, 29. axb5 — axb5, 30.
Df3 — Dxb3.
Svartur hefur unnið peðið til
baka og skákin er þar með dæmd
til að verða jafnteflisdauðanum
að bráð.
31. Hbl — Da3, 32. Bxb5 — Hxe3,
33. Ddl — He7, 34. d5 — Dd6, 35.
Bc6 — Rd7, 36. Bxd7 — Hxd7, 37.
Dd4 — f6, 38. Hb6 — De5, 39.
I)b4 — Dal+, 40. Kh2 — De5+,
41. Kgl — Dxd5, 42. Hxf6 —
Dd4+. Jafntefli.