Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
280. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkjamenn segja
loftárásina árangursríka
Wa.shington. Beirút, 5. desember. AP. ^
Þannig var umhorfs við
bygginguna þar sem bíl-
sprengja sprakk í Beirút í ..
gærmorgun. 20 manns týndu
lífi og yfir 50 slösuðust er
byggingin hrundi að hluta. í
sprengjunni voru um 150 kíló
af TNT-sprengiefni.
AP/ Símamynd
CASPAR Weinberger, varnarmálaráöherra Bandaríkjanna, sagði enga lausn
í átökunum í Líbanon í sjónmáli og væru Bandaríkjamenn að íhuga ýmsar
leiðir til að vernda friðargæzlusveitir sínar þar. Af hálfu varnarmálaráðuneyt-
isins var sagt í dag að bandarískar orrustuþotur hefðu valdið „meiriháttar
tjóni“ á eldflaugapöllum, loftvarnabyssum, skotfærabyrgjum og ratsjárstöðv-
um Sýrlendinga á þremur stöðum f miðhluta Líbanons á sunnudag. Sagéi
ráðuneytiö árásina árangursríka, en hún var fyrirskipuð í framhaldi af harðri
skothríð Sýrlendinga á bandarískar könnunarvélar á laugardag.
í árásinni í gær voru notaðar 28
A-6E og A7E þotur af flugmóð-
urskipunum Independence og
Kennedy, og voru tvær þeirra
skotnar niður. Vörpuðu flugvélarn-
ar klasasprengjum og öflugum 500
kílóa sprengjum. Flugmaður ann-
arrar þotunnar lézt af völdum sára
sem hann hlaut er þotan hrapaði
til jarðar, en hinn bjargaði sér í
fallhlíf og er fangi Sýrlendinga.
George Shultz, utanríkisráðherra,
sagði árásina einfaldlega lið í þeim
ásetningi Bandaríkjamanna að
gjalda árásir á bandaríska gæzlu-
liða í Líbanon í sömu mynt.
Þá féllu átta bandarískir gæzlu-
liðar og nokkrir líbanskir hermenn
í stórskotaárás drúsa og shita á
stöðvar gæzluliðsins í Beirút í
gærkvöldi. Fórust gæzluliðarnir er
ein sprengja hæfði ófullkomið
byrgi þeirra á þaki veitingahúss.
Gæzluliðar beittu stórskotavopn-
um er þeir vörðust árásinni og
skotið var á stöðvar árásaraðila af
bandarískum herskipum úti fyrir
strönd Líbanons.
Jafnframt sprakk öflug bílspr-
engja fyrir utan níu hæða fjölbýl-
ishús í hverfi múhameðstrúarm-
anna í Beirút í morgun og týndu
a.m.k. 20 manns lífi og tugir slösuð-
ust er byggingin hrundi að hluta.
Ástæður tilræðisins eru óljósar en
það hefur ekki orðið til að draga úr
ört vaxandi spennu í Líbanon. Lítt
þekkt samtök, sem berjast fyrir
brottrekstri allra útlendinga úr
landinu, lýstu ábyrgð sinni á verk-
naðinum.
Weinberger sagði að engin von
væri um frið í Líbanon meðan þar
dveldust erlendar hersveitir. Árás-
in í gær hefði verið gerð í varnar-
skyni. Viðbrögð við árásinni hafa
verið á ýmsa lund, eins og vænta
Flugmaður annarrar bandarísku
orrustuþotunnar sem skotin var
niður yfir Líbanon á sunnudag nýtur
aðhlynningar óbreytts borgara.
mátti. Rússar og nokkur Arabaríki
gagnrýndu Bandaríkjamenn, en
Shamir forsætisráðherra ísrael
sagði árásina skiljanleg a og skyn-
samlega. Wazzan forsætisráðherra
Líbanon gagnrýndi árásina. Kenan
Evren Tyrklandsforseti kom úr
opinberri heimsókn til Jórdaníu í
dag og sagði mikla spennu í Mið-
austurlöndum í framhaldi af at-
burðum síðustu daga.
Ríkisútvarpið í Líbanon sagði í
kvöld að brotist hefðu út harðir
bardagar í nágrenni Trípólí í norð-
urhluta landsins. Þar börðust
sveitir Líbana, sem ýmist eru
hliðhollir Arafat eða honum and-
snúnir. Palestínuskæruliðar munu
ekki hafa tekið þátt í átökunum.
8já nánar á bls 19.
Kloftiingur á
togafundi EBE
Aþenu, 5. desember. AP.
LEIÐTOGAR Efnahagsbanda-
lagsríkjanna komust hvergi er þeir
deildu um landbúnaðarniður-
greiðlsur og kröfur Breta um
endurgrciðslur á framlagi sínu til
bandalagsins.
Fulltrúar íra og Hollendinga á
fundinum óttuðust að enginn
árangur yrði af fundi þessum
Bandaríkin hefja frí-
verzlun við ísrael
Wa.shington, Jerúsalem, 5. desember. AP.
Bandaríkjamenn og ísraelar gerðu
með sér samkomulag er kveöur á um
umfangsmikla fríverzlun milli ríkja
þeirra, og er talið að samkomulagið,
sem gert var í Bandaríkjaferð Sham-
irs forsætisráðherra, kunni að marka
þátttaskil í utanríkisviðskiptum
Bandaríkjanna.
Samkvæmt samkomulaginu fella
bæði ríkin niður tolla eða aðrar
hömlur á flestum vörum sem þau
skipta með sín í milli.
Ríkin tvö gerðu einnig með sér
samkomulag um að freista þess
með samræmdum pólitískum að-
gerðum að knýja Sýrlendinga til að
draga heri sína frá Líbanon.
Hosni Mubarak Egyptalandsfor-
seti gagnrýndi þá hernaðarsam-
vinnusamninga sem Bandaríkja-
menn og ísraelar gerðu með sér á
dögunum og kvað þá ólán og nýja
hindrun í vegi friðar í Miðaustur-
löndum.
Arafat skæruliðaleiðtogi hafnaöi
í dag hugmyndum um myndun út-
lagastjórnar og kvaðst voniítill um
að andstæðingar sínir leyfðu sér að
fara með friði frá Trípólí.
Kasparov sigraði
liondon, 5. desember. AP.
SOVÉZKI stórmeistarinn Gary
Kasparov bar sigur úr býtum í sjöttu
einvígisskák þeirra Viktors
Korchnoi í kvöld, en hún fór ( bið á
sunnudag.
Staðan í einvíginu er því sú að
báðir hafa hlotið þrjá vinninga.
Korchnoi vann fyrstu einvígis-
skákina en síðan lauk næstu fjór-
um með jafntefli.
Korchnoi stýrði hvítu mönnun-
um að þessu sinni en Kasparov
þeim svörtu.
Sjá nánar á miðopnu blaðs-
sökum djúpstæðs klofnings í
veigamestu málunum, en fund-
unum á að ljúka á morgun,
þriðjudag.
Gert var ráð fyrir fundum
fram eftir kvöldi í þeirri von að
eitthvað rættist úr. Ágreiningur
er um tillögur um framleiðslu-
kvóta í landbúnaði er iækka
myndi niðurgreiðslur, sem taka
til sín tvo þriðju bandalags-
útgjaldanna, eða jafnvirði 14
milljarða dollara.
Þá voru Frakkar í forystu fyrir
ríkjum sem lögðust hart gegn
kröfu Breta um endurgreiðslu á
framlagi sínu til bandalagsins að
jafnvirði um 1,2 milljarða doll-
ara. Telja ríkin aðeins réttlæt-
anlegt að endurgreiða helming
þeirrar upphæðar.
Bretar hafa krafizt endurskoð-
unar á reglum um framlög til
bandalagsins. Aðeins V-Þýzka-
land greiðir hærra framlag til
EBE en Bretar. Greiða Bretar
jafnvirði 830 milljóna dollara
umfram það sem þeir njóta úr
sameiginlegum sjóðum banda-
lagsins á ári hverju. Náist ekki
samkomulag í þessari deilu er
óttast að það kunni að lama
bandalagið.
Áður en leiðtogafundinum lýk-
ur er búist við sameiginlegri
yfirlýsingu um málefni Líbanon
og í undirbúningi var í dag
áskorun til yfirvalda í Tyrklandi
um að Tyrkir fengju Kýpur-
Tyrki til að draga til baka
sjálfstæðisyfirlýsingu sína.
Eftir áralanga stöðnun sjást
þess nú ýms merki að efnahagslíf
í EBE-ríkjunum sé að rétta úr
kútnum. Hagvöxtur í banda-
lagsríkjunum nam 0,5% að
meðaltali 1983 og er spáð 1,5%
hagvexti á næsta ári.
Kafbáta-
olíu
stolið
(•lasgow, 5. desember. AP.
STOLIÐ hefur verið díselolíu
fyrir um átta milljónir sterlings-
punda úr kjarnorkukafbátastöð
brezka hersins í Faslane í Clyde-
firði í Skotlandi, samkvæmt upp-
lýsingum varnarmálaráðu
neytisins.
Sex óbreyttir starfsmenn
stöðvarinnar, þar sem öryggis-
eftirlit er mjög strangt, Jiafa
verið leystir frá störfum um
stundarsakir vegna rannsókn-
ar á þjófnaðinum.
Að sögn Lundúnablaðsins
Times átti þjófnaðurinn sér
stað á „mjög löngum tíma“ og
er talið að olían hafi verið seld
á svartamarkaði í Englandi.
Eldsneytisþjófnaðurinn hefur
ekki komið niður á umsvifum
brezka flotans.