Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
35
Fyrsta refabúið
í Reykholtsdal
komið undir þak
Kleppjárn.srcykjum, 22. nóvember.
LAUGARDAGINN 19. nóvember varð fyrsta refahúsið á Grímsstöðum fok-
helt. Guðmundur Kristinsson bóndi sagði að ýmiss frágangur væri eftir eins
og búrasmíði og að steypa ganga. Guðmundur sagðist fá refalæðurnar frá
Krísuvík, 40 stykki, og högna.
Húsið er tæpir 400 m2 að stærð og getur hýst 50 læður með högnum og
hvolpum, meðaltal hvolpa eftir læðu er um 8 stykki, þannig að eftir ár verða
um 300—350 dýr hjá honum. Fóður er svolítið vandamál því ekki er svokall-
að eldhús hér í nágrenninu. Því verður hann að sækja fóðrið til Reykjavíkur.
f Geirshlíð eru bræðurnir Jón
og Guðmundur Péturssynir að
verða tilbúnir með sitt refabúr og
verður trúlega samvinna við fóð-
uröflun milli þeirra, að sögn Guð-
mundar.
Tíðarfar hefur verið mjög gott
það sem af er vetri og aðstaða til
smíða þess vegna góð. Um aðrar
byggingaframkvæmdir er varla að
ræða nema 200 m2 gróðurhús hjá
Þórði Þórðarsyni í Reitum og
endurbygging á 270 m2 gróðurhúsi
há Kristjáni Benediktssyni í Viði-
gerði.
Garðyrkjubændur eru að byrja
undirbúning fyrir næsta ræktun-
artímabil. Uppskeru þessa árs er
að mestu lokið, enda var haldin
uppskeruhátíð Garðyrkjubænda-
félags Borgarfjarðar 12. nóvember
á Hreðavatni. Þar mættu félags-
menn með gesti sína og borðuðu
þar gæsasteik, en gæsirnar voru
frá Þorvaldi Pálssyni í Runnum.
Þessi viðburður er orðinn árviss
aftur eftir nokkurt hlé.
Vegurinn frá Gróf að Hvítár-
völlum hefur verið merktur með
hálkumerki nú í haust sökum þess
að vegakantarnir voru teknir upp
og settir ofan á veginn en ekki
borið ofan í á eftir vegna þess að
fjármagn vantaði hjá Vegagerð-
inni.
Verið er að reyna að klára aust-
ur-vesturbraut á Stóra-Kropps-
flugvelli. Það er gert með því að
keyra bindiefni á brautina. Það er
fyrirtækið Vellir sf. sem sér um
framkvæmdina undir stjórn flug-
málastjórnar.
Hólakotsbrekkan á Hálsasveit-
arvegi er nú horfin. Var hún
sprengd í burtu í haust og ýtt út.
Þetta hefur verið leiðindafarar-
tálmi á veturna og horfa menn nú
björtum augum á framtíðina.
— Bernhard
Eyrarbakki:
Verkalýdsfélag-
ið Báran áttrætt
Eyrarbakka, 29. nóvember.
LAUGARDAGINN 26. nóvember
var haldið afmælishóf í tilefni 80 ára
afmælis Verkalýósfélagsins Bárunn-
ar á Eyrarbakka. Báran var stofnuð í
desember árið 1903, og var hiö
þriðja í röð samnefndra verka-
mannafélaga, sem stofnuð voru upp
úr aldamótunum. Það mun hafa ver-
ið Sigurður Eiríksson regluboði, sem
stóð að stofnun félagsins, en hann
bjó á Eyrarbakka.
Alls hafa verið 15 formenn í
Bárunni frá upphafi, og núverandi
formaður er Guðrún Thorarensen.
Það er augljóslega tímanna tákn,
að í stjórn Bárunnar eru nú fjórar
konur og aðeins einn karlmaður og
formenn þeirra tveggja verkalýðs-
félaga, sem sátu afmælishófið, frá
Stokkseyri og Selfossi, eru einnig
konur.
Daginn sem afmælishófið var
haldið, var vonskuveður, stórhríð
og norðanstormur með mikilli
ófærð og var því gripið" til þess
ráðs að fá rútubifreið með drif á
öllum hjólum til þess að aka gest-
unum til samkomunnar og heim
að henni lokinni. Fólk þurfti því
ekki að láta ófærðina á sig fá og
fór skemmtunin hið besta fram og
skemmti fólk sér vel.
— Óskar
„Ég græt að
morgni“ í
þriðju útgáfu
„ÉG GRÆT að morgni“, ævisaga
Lillian Roth, seldist upp í fyrra en
kemur nú í III. útgáfu hjá Bókaút-
gáfunni Hildi í takmörkuðu upplagi.
Þessi vinsæla bók segir frá ör-
lögum þekktrar konu, sem berst
hetjulegri baráttu við áfengisböl-
ið, en sigrar að lokum. Bókin er
sígild saga örlaga milljóna manna,
þar sem sigur og ósigur skiptast á,
segir í frétt frá forlaginu.
morgni
Úr refahúsinu á Grímsstöðum.
Morgunblaðið/Bernhard.
PORTAFIX
SKÚFFUSKÁPURINN vinsæli.
Fyrir bifvélavirkjann, trésmiöinn,
pípulagningamanninn, flugvirkjann,
við saumavélina, í tómstundaher-
bergið og bílskúrinn.
Aðrir sölustaðir:
Reykjavík:
J.L. Byggingavörur, O. Ellingsen
Vald. Paulsen
Hafnarfjörður:
Lækjarkot, Miðvangur, Dvergur h/f
Keflavík:
Stapafell h/f
Hvammstangi:
Versl. Sigurðar Pálmasonar
Blönduos:
Stígandi h/f
ísafjörður:
Póllinn h/f
Siglufjörður:
Versl. Sigurðar Fanndals
Akureyri:
Raftækni
Vestmannaeyjar:
Brimnes.
STALSKAPAR
Sem gefa mikið
geymslurými með fær-
anlegum hillum með
eða án hurða (læsan-
legum) með eða án
plastskúffa í mörgum
stærðum.
Hringið eða komið og
fáið myndalista.
PLASTKASSAR
í mörgum stærðum og litum
fyrir flesta hluti, stóra og
smáa.
Ótal möguleikar.
Kíktu i gluggann hjá okkur.
W Fl
Grensásvegi 12, Reykjavík Sími 85840
opiðtilsjöíkvöldNJí ] Vörumarkaöurinnhf. e/ð/storg/n
mánudaga — þriöjudaga — miðvikudaga