Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
39
Miðhúsum:
Velheppnuð aðventuhátíð
haldin í Reykhólaskóla
Midhúsum, 30. nóvember.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag átti að
vera aðventuhátíð í Reykhóla-
kirkju, en vegna slæms veðurs og
ófærðar var þessari hátíð frestað
fram á þriðjudag, en þá var vegur-
inn opnaður hingað.
Friðrik Hjartar sóknarprestur
í Búðardal, sem þjónar í fjarveru
sóknarprestsins hér, skipulagði
þessa hátíð. Dagskráin var fjöl-
þætt, nemendur úr tónlistarskól-
anum í Búðardal léku á blást-
urshljóðfæri undir stjórn skóla-
stjórans Kjartans Eggertssonar,
en hann stjórnaði einnig almenn-
um söng og lék undir á gítar.
Fermingarbörn hér sýndu
helgileik undir stjórn Ingibjarg-
ar Björgvinsdóttur kennara og
Friðriks Hjartar. Nemendur úr
Króksfjarðarnesi sungu undir
stjórn skólastjórans þar, Lilju
Sveinsdóttur, sem einnig lék eft-
irspil. Söngfólk úr Garpsdals- og
Reykhólasókn sameinaði krafta
sína og söng undir stjórn Ólínu
Jónsdóttur organista. Nemendur
úr 1. og 2. bekk Reykhólaskóla
sungu með aðstoð kennara síns,
Dagnýjar Jónsdóttur, og organ-
ista Reykhólakirkju. Fjórir
kirkjugestir lásu úr ritningunni,
en þau voru Karl Árnason,
Kambi, Unnur Guðmundsdóttir,
Stað, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Garpsdal, og Kristján Þór Krist-
jánsson, Reykhólum.
Um þessa aðventuhátíð sam-
einuðust Reykhóla- og Garps-
dalssókn. Þá var kirkjan þétt-
skipuð kirkjugestum og má ætla
að helmingur íbúa þessara
hreppa hafi verið viðstaddur
þessa hátíðarstund. Á eftir kirkj-
ugöngu var farið í samkomuhús-
ið, en þar seldu kvenfélagskonur
pappír og kvenfélögin úr báðum
hreppunum höfðu basar og
hlutaveltu. Við sem vorum þátt-
takendur í þessari hátíð þökkum
prestinum í Búðardal og öllum
öðrum sem hjálpuðu til við und-
irbúning þessarar ánægjulegu
stundar. Þessi hátíð sýnir að
ungir og aldnir geta átt samleið.
— Sveinn
Hvort sem um er aö ræöa kaffi-
vélar, straujárn, hársnyrtitæki,
brauöristar eöa þeytara sameinar
SIEMENS fyllstu gæöi og smekk-
legt útlit.
SIEMENS-tæki eru ávallt vel
þegin.
SMITH & NORLAND HF„
NOATUNI 4, SÍMI 28300.
■
□
NEW
Canon
Personal Copier
VERÐ AÐEINS FRA 38.600
ÓDÝRUST Á MARKAÐNUM
LJÓSRITAR í ÞREMUR LITUM
ENGAR STILLINGAR EÐA HREINSANIR
LJÓSRITAR Á ALLAN PAPPÍR 40—128 GR.
1M2 BÁÐUM MEGIN
HEPPILEG FYRIR MINNI OG MEOALSTÓR FYRIRTÆKI,
DEILDIR STÆRRI FYRIRTÆKJA, EINSTAKLINGA, FÉ-
LAGASAMTÖK O.FL.
LANG SÖLUHÆSTA VÉLIN í EVRÓPU OG
BANDARÍKJUNUM í ÁR
T0PPGÆÐIA LAGU VERÐI
Canon
Skrífvélin hf
Suöurlandsbraut 12.
Sími 85277
TT A P A Tip Skeifunni 15
IlAVJliAU 1 Reykjavík