Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 19 œggfi' Fögur hönnun — Fágað handverk Vönduð gjöf sem vermir Póstsendum í boda) Bankastræti 10. Sími 13122 íkosta] _I_____/ Kosningamar á Taiwan: Fyrsta loftárás Bandaríkja- manna í Líbanon var dýrkeypt Weinberger hótar fleiri viðlíka aðgerðum ReiruL .1 Hesemher AP. Beirut, 5. desember. Af\ BANDARÍKJAMENN fóru í sínar fyrstu herferðir með sprenjuþotum í Líbanon á sunnudaginn, er 28 þotur hófu sig til flugs af flugmóðurskipi úti fyrir Beirút, og gerðu árásir á stöðvar Sýrlendinga í fjöllunum 30 kílómetra fyrir austan Beirút. Voru árásirnar svar Bandaríkjamanna við skothríð Sýr- lendinga á könnunarflugvélar Bandaríkjamanna að undanförnu. Síðast skutu Sýrlendingar á könnunarvélar á laugardaginn, en hæfðu ekki frekar en áður. Hins vegar grönduðu þeir tveimur herþotum í orrustunum á sunnu- daginn og lést þá einn bandarískur flugmaður en annar var handtekinn. Þetta var í sjötta skiptið sem um þ£ sem berðust gegn ofríki friðargæsluliðin hafa svarað Bandaríkjanna og ísraels. Nikolai L/iuansKur nermaour sKooar verksummerki í byrgi bandarískra gæzluliða á húsþaki við úthverfi Schweifat. Átta gæzluliðar týndu lífi er ein sprengja féll beint ofan á byrgið í stórskotaárás drúsa og shita á bandaríska gæzluliðið á sunnudagskvöld. AP-símamynd. áreitni með loftárásum, en til þessa hafa Frakkar verið drýgstir við að beita herþotum sínum, svo og ísraelsmenn. Könnunarflug Bandaríkjamanna, Frakka og ísraela hafa stóraukist eftir sprengingarnar mannskæðu á dögunum, er hryðjuverkamenn shita drápu hundruð friðargæslu- liða. Það hefur vakið athygli, að þot- urnar sem Bandaríkjamenn tefldu fram voru af gerðunum A-7E Corsair og A-6E Intruder, en þær voru fyrst framleiddar fyrir 10 ár- um og þykja fremur hægfleygar heldur en hitt. Ein af hverri teg- und var skotin niður á sunnudag- inn. Viðbrögð við aðgerðum Banda- ríkjamanna voru á ýmsa lund. Sovétmenn og Kínverjar for- dæmdu þær harðlega og töluðu þeir síðarnefndu um hættulega samvinnu bandaríska og ísraelska „öxulsins". Leonid Zamayitin, talsmaður Kremlverja, sagði jafn- framt að Sovétmenn myndu ekki hika við að aðstoða með öllum ráð- Ogarkov, yfirmaður sovéska her- aflans, sagði Grenadamálið segja allt sem segja þyrfti um heims- valdastefnu Bandaríkjamanna. Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels, sýndi skilning á að- gerðum Bandaríkjamanna og sagði Sýrlendinga neyðast til að skoða hug sinn og gerðir betur. Ronald Reagan, forseti Bandaríkj- anna, varði áraáirnar og sagði kjarna málsins vera að það yrði að vernda líf og limi bandarísku her- mannanna og öllum ráðum yrði að beita til þess. Caspar Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, bætti við orð forsetans, að ekki væri fráleitt að fleiri slíkar herfarir yrðu farnar ef ástæða væri til að mati Bandaríkja- manna. Bandarískar könnunarflugvélar fóru aftur á loft gær og reyndu að finna fallbyssur þær, sem drápu átta bandariska friðargæsluliða og særðu tvo um helgina. Ekki var skotið að þeim og var það nýlunda miðað við síðustu vikurnar. ■ Norskir útgerðarmenn óánægðir Osló, 5. desember, frá frélUriUra MorgunbUósills, Per A. Borglund. UM HELGINA slitnaði upp úr við- ræðum norskra útvegsmanna og norsku stjórnarinnar um hagsmuna- mál sjávarútvegsins, eftir að viðræð- ur höfðu staðið yfir nær næturlangt. Kröfðust útgerðarmenn þess, að rík- issjóður legði fram 1,4 milljarða n.kr. og veitti þar að auki útflutn- ingsábyrgðir fyrir 300 millj. n.kr. Stjórnin hafði boðizt til þess að leggja fram 1,1 milljarða n.kr. og að veita útflutningsábyrgð fyrir 300 millj. n.kr. að auki. Gert var ráð fyrir því, að á ríkisráðsfundi í dag yrðu tillögur stjórnarinnar í þessu máli til með- ferðar, en síðan yrðu þær lagðar fyrir Stórþingið. Samtök norskra útgerðarmanna íhugar nú til hvaða ráðstafana grípa skuli af þess hálfu, eftir að slitnaði upp úr viðræðunum. Sýrlenskir hcrmenn gefa sigurmerki við stélflöt annarrar bandarísku herþot- unnar, sem skotin var niður yfir Líbanon á sunnudag. Sýrlendingar skutu þotuna niður er 28 bandarískar A6- og A7-þotur gerðu árás á stöðvar Sýrlendinga austur af Beirút. Yfirburðasigur þjóðernissinna Taipei, Taiwan, 5. dosember. AP. KUOMINTANG, stjórnarflokkurinn á Taiwan, vann mikinn sigur í þing- kosningum þar á laugardag. Flokkur þessi, sem er flokkur þjóðernissinna, fékk 62 af 71 þingsæti á þjóðþinginu, en helzti stjórnarandstöðuflokkurinn, Tangwai, fékk aðcins 6 þingsæti og tapaði þremur. Er þetta einhver versta útreið flokksins í kosningum um langt skeið. Kjörtímabilið á Taiwan er þrjú in eingöngu sem oánægju kjós- ár og er myndun nýrra stjórn- málaflokka þar bönnuð. Þetta veldur því, að kosningabarátta stjórnarandstöðunnar byggist meira á persónulegum sjónarmið- um frambjóðendanna en flokks- legum grundvelli. Helztu kröfur þeirra í kosningunum nú voru á þann veg, að bannið við myndun nýrra stjórnamálaflokka yrði fellt niður og jafnframt afnumin her- lög, sem í gildi hafa verið síðan 1949. Stjórnmálaskýrendur telja hins vegar, að of mikill þótti og sjálfs- ánægja hafi einkennt kosninga- baráttu stjórnarandstöðunnar og að ekki megi túlka kosningaúrslit- enda með hana. Engu að síður sýni kosningaúrslitin vel afstöðu fólks til stjórnar þjóðernissinna, sem með stefnu sinni í efnahagsmálum hafi lagt grundvöll að mikill vel- gengni og góðum lífskjörum á Tai- wan. Kunnasti þingmaðurinn úr röð- um Tangwai, sem féll í kosningun- um nú, var Kang Ning-Hsiang, 45 ára gamall blaðaútgefandi, sem kunnur var fyrir harða gagnrýni á stjórn þjóðernissinna. Tvær kon- ur, sem voru í framboði fyrir flokkinn nú í fyrsta sinn, náðu hins vegar báðar kjöri og gerðu raunar enn betur, því að þær voru á meðal þeirra frambjóðenda, sem fengu flest atkvæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.