Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 41 Viðskiptafræðinemar á 4. ári: Efna til ráðstefnu um starfsmannastjórnun ÞEIR sem sinna starfsmanna- málum í fyrirtækjum sakna þess oft að geta ekki borið saman reynslu sína við önnur fyrirtæki. Nemendur á 4. ári í viðskipta- deild Háskóla íslands, ásamt kennara sínum á námskeiðinu „Stjórnun starfsmannamála", hafa tekið þessi mál til sérstakr- ar umfjöllunar. Nemendurnir hafa undir um- sjón kennara samið lýsingu á meðferð einstakra þátta starfsmannamála í 17 fyrir- tækjum hér á landi. Sérstak- lega hafa verið tekin til um- fjöllunar eftirtalin mál: Tengsl milli stærðar og starfsmanna- halds, þjálfunarmál, ráðn- ingar, launamál, velferðar- og hlunnindamál og sveigitími. Hópurinn hefur nú ákveðið að efna til ráðstefnu á morgun, 7. desember, í Norræna húsinu, þar sem niðurstöður þeirra verða kynntar. Til ráðstefn- unnar er sérstaklega boðið þeim stjórnendum, sem nem- endurnir ræddu við, svo og fé- lögum í Klúbbi starfsmanna- stjóra innan Stjórnunarfélags- ins. Annars er ráðstefnan opin áhugamönnum. Ráðstefnan hefst klukkan 13.00 og gert er ráð fyrir, að henni ljúki á bilinu 16—17. Til- kynna þarf þátttöku á skrif- stofu Háskóla íslands. People Express: Hyggjast stórauka flug á Norður- Atlantshafinu Hafa óskað eftir að fjölga ferðum úr 5 í 14 á næsta sumri BANDARÍSKA flugfélagið People Express, sem hóf flug á Norður-Atlantshafinu fyrr á þessu ári og bauð mun lægri far- gjöld en voru við lýði, hefur nú óskað eftir enn frekari heimild- um til flugs á flugleiðinni milli Bandaríkjanna og Bretlands. Félagið hefur flogið milli Gatwick-flugvallar í London og Newark í New Jersey í Banda- ríkjunum. Hefur félagið haldið uppi fimm ferðum í viku hvora leið, en það hefur nú farið fram á að auka ferðatíðnina upp í sjö ferðir í viku strax og síðan upp í allt að 14 ferðir í viku, þegar líða tekur á árið 1984, eða tvisvar á dag. Uppgangur People Express hefur verið með ólíkindum á þessu ári, en það flutti um 4,5 milljónir farþega á fyrstu tíu mánuðum ársins, bæði á Norður-Atlantshafinu og inn- an Bandaríkjanna. Farþega- fjöldinn hefur meira en tvö- faldast milli ára, því á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs flutti félagið liðlega 2,2 milljónir far- þega. Talsmaður félagsins sagði á fundi með blaðamönnum, að hleðsluhlutfall félagsins á Norður-Atlantshafsleiðinni hefði verið mjög gott á þessu ári, eða vel yfir 90%. People Express rekur í dag 22 flugvélar af gerðinni Boeing 737,12 vélar af gerðinni Boeing 727 og loks eina Boeing 747 júmbó, sem hefur verið í Norður-Atlantshafsfluginu. Með aukinni ferðatíðni á haf- inu verður félagið að bæta við vél, eða vélum, og sagði tals- maður þess, að fljótlega kæmi önnur vél af gerðinni Boeing 747 inn í áætlun. Talsmaðurinn sagði enn- fremur á fundi með blaða- mönnum, að félagið hefði mik- inn áhuga á að taka upp ferðir milli Bandaríkjanna og megin- lands Evrópu, en viðræður þar að lútandi væru ekki hafnar ennþá. Þjóðarframleiðsla jókst um 1,7% í V es tur-Þýskalandi Þjóðarframleiðsla Vestur- Þjóðverja jókst um 1,7% á 3. ársfjórðungi 1983, borið saman við sama tímabil í fyrra, sam- kvæmt upplýsingum þýzka efna- hagsmálaráðuneytisins, en tals- maður ráðuneytisins sagði þróun efnahagsmála vera á réttri leið. Þjóðarframleiðsla jókst um 0,7% á 2. ársfjórðungi þessa árs, en á 1. ársfjórðungi dróst hún hins vegar saman um 0,5%. Á síðasta ári dróst þjóð- arframleiðsla í heild saman um 1,6%. Talsmaður efnahagsmála- ráðuneytsins vestur-þýzka sagði á dögunum, að allar líkur bentu til þess, að þjóðarfram- leiðsla myndi aukast í nám- unda við 1% á þessu ári. Hins vegar bentu líkur til þess, að aukningin í þjóðarframleiðslu yrði á bilinu 2—2,5% á næsta ári. Innlend eftirspurn jókst um 5% á 3. ársfjórðungi, en til samanburðar jókst hún um 2,3% á 2. ársfjórðungi og 3,6% á 1. ársfjórðungi. ERGO-DATA stóllinn fná DRABERTheldur þér í góóu skapi allandaginn I Drabert siturðu rétt HALLARMÚLA 2 .Tcuunjih FALLEG OG VÖNDUÐ VARA Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi •:r' Snjo- sköfur Verðfrá kr. 217,- Snjo- skóflur Veröfrá kr. 530,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.