Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 41
Einvígi Magath og
Ásgeirs á morgun
í nýjasta hefti hins virta knattspyrnutímarits KIKCER sem kom út í
Þýskalandi á sunnudaginn er fjailað mjög ítarlega um leik Stuttgart og
Hamburger sem er é dagskrá í Bundesligunni annað kvöld. Á forsíöu
blaösins eru myndir af Ásgeiri Sigurvinssyni og Felix Magath. Síöan er
fjallað ítarlega um leikinn á fjórum síöum inni í blaöi og er sagt aö
leikurinn veröi einvígi Áageirs og Magath. Þeir stjórni leik liða sinna og
þvi skipti miklu hvernig þeim tekst upp í leiknum.
• Á 104 km hraða á
leið niður brunbraut-
ina. Resch frá Austur-
ríki sigraði í fyrstu
brunkeppni heimsbik-
arsins um helgina.
BRUNKEPPNIN:
104 km
meóalhraói
AP, Schladming, Austurríki.
Austurríkismaöurinn Erwin
Resch sigraöi í fyrstu brunkeppni
heimsbikarsins á skíðum um síð-
ustu helgi. Resch og landi hans
Harti Weirather háöu harða bar-
áttu um fyrsta sætiö og aöeins
örfá sekúndubrot skildu þá að í
lokin. Úrslit í brunkeppninni uröu
þessi:
1. Erwin Resch, Austurríki 1:58,50
2. Harti Weirather, Austurr. 1:58,89
3. Steve Podborski, Kanada 1:58,90
4. Urs Raeber, Sviss 1:58,97
5. Franz Klammer, Austurr.1:59,13
Austurríkismenn og Svisslend-
ingar áttu hvor um sig sex kepp-
endur á meðal fimmtán fyrstu.
Meðalhraöi Erwin Resch var
104,81 km í brautinni sem var með
1006 metra fallhæð. Hún var ísi-
lögö á kafla og þótti hættuleg.
Resch er 21 árs gamall og er spáð
frama í heimsbikarnum í vetur.
Brunkappinn frægi Franz
Klammer varð í fimmta sæti en
hann varð 30 ára á sunnudaginn.
Næsta keppni fer fram 9. —10.
des. í Val-Disere, Frakklandi.
Borötennis
UM HELGINA hóldu KR-ingar sitt
fyrsta punktamót á keppnistíma-
bilinu og fór keppni fram í félags-
heimili þeirra viö Frostaskjól.
Keppt var í meistara- og 2.
flokki karla og auk þess meist-
araflokki kvenna.
í m.fl. karla uröu úrslit þessi: 1.
Tómas Sölvason, KR, 2. Stefán
Konráösson, Víkingi, 3.-4. Jó-
hannes Hauksson KR og Kristján
Jónasson, Víkingi.
I úrslitaleiknum sigraöi Tómas
21 — 11, 23—25 og 21 — 17.
í 2. flokki karla sigraði Óskar
Ólafsson, Víkingi, en hann hefur
ekki tekiö þátt í punktamótum um
nokkurt skeið. Átti Óskar ágætt
„comeback", því auk þess að sigra
þá spilaði hann frábærlega í mörg-
um leikjum sinum. I öðru sæti varð
Snorri Briem, KR, en í 3.-4. þeir
Valdimar Hannesson og Eyþór
Ragnarsson, báöir úr KR.
í m.fl. kvenna sigraði Ásta Ur-
bancic, Erninum. í öðru sæti varð
Sigrún Bjarnadóttlr, UMSB. Er
Sigrún í 1. flokki og er því árangur
hennar sérstaklega góður. I þriöja
sæti varö síöan Arna Sif Kærne-
sted, Víkingi.
GETRAUNIR:
Rúmar 95.000
krónur fyrir
ellefu retta
Kr. 95.705,- fyrir 11 rétta.
Enn einu sinni kom enginn
seöill fram meö 12 rótta leiki, en í
15. leikviku komu fram 5 raðir
meö 11 rétta og var vinningur
fyrir hverja röö kr. 95.705.-. Þá
komu fram 99 raðir meö 10 rétt-
um og vinningur fyrir hverja röð
kr. 2.071.-.
Hæsti vinningur fyrir einn seðil
nam kr. 203.836.- fyrir kerfisseðil
með 11 rétta í 2 rööum og 10 rétta
í 6 röðum, en slíkt getur hent í 16
raða kefi, þegar tvítrygging hittir
ekki á rétt úrslit.
Síðasti getraunadagur fyrir jólin
verður laugardaginn 17. desem-
ber, en þá veröur hlé hjá getraun-
um fram til laugardagsins 7. janú-
ar.
• Ballesteros hlaut jafnviröi 900 þúsunda íslenskra
króna í verðlaun fyrir sigur í golfmóti um helgina.
Dágóð verðlaun
SPÁNVERJINN Severiano Ball-
esteros sigraöi í miklu golfmóti
í Sun City í Botswana á sunnu-
daginn og hlaut hann 300.000
dollara í sigurlaun. Ballesteros
lék á 274 höggum (69, 67, 70, 68)
— sem er 13 höggum undir
pari.
Ballesteros lék frábærlega vel,
og var fimm höggum á undan
næsta manni. Þrír uröu reyndar
efstir og jafnir í ööru sæti: David
Graham, Ástralíu, Nick Faldo,
Bretlandi og Fuzzy Zöller,
Bandaríkjunum. Þeir léku allir á
279 höggum, og komu 80.000
doilarar i hiut hvers þeirra.
Ray Floyd, Bandaríkjunum,
varö fimmti á 281 höggi og fékk
71.000 dollara. Johnny Miller,
landi Floyd, notaöi jafn mörg
högg og fékk því jafn mikiö í
verölaun.
Grétarsmótið í lyftingum:
Kári setti
íslandsmet
Lyftingamaðurinn kunni, Kári
Elísson, setti nýtt íslandsmet í
bekkpressu á Grétarsmótinu í
lyftingum sem fram fór á Akur-
eyri um helgina. Kári lyfti 167,5 kg
en hann keppti í 75 kg flokki. Kári
lyfti 155 kg í hnébeygju og 240 kg
í réttstööulyftu. Samanlagt 562.
Góöur árangur hjá Kára.
Mikil átök og hávaði voru í Sjall-
anum á Akureyri hér á laugardag-
inn, er keppt var i hinu árlega
Grétarsmóti í lyftingum, sem hald-
ið er til minningar um Bernharð
Grétar Kjartansson f. 17.11. ’51, d.
21.12 ’74, frumherja hér í lyfting-
um, einnig var hann okkar fyrsti
(slandsmeistari.
Er þetta stigakeppni milli Akur-
eyringa, og fær stigahæsti Akur-
eyringurinn veglega styttu er var
gefin til minningar um Grétar.
Hlaut Freyr Aöalsteinsson stytt-
una í eitt ár, setti hann fjögur Ak-
ureyrarmet.
Fengum við marga góða gesti,
má þar telja Jón Pál Sigmarsson,
Hjalta Árnason og Torfa Ólafsson
alla úr KR. Leiksstjóri var Guð-
mundur Sigurðsson og yfirdómari
Óskar Sigurpálsson, en dómarana
áttu Akureyringar, þá Bernharð
Haraldsson og Gísli Ólafsson.
• Freyr Aðalsteinsson, Þór, setti fjögur Akureyrarmet á Grétarsmót-
inu og hann hlaut Grétarsbikarinn. Hér lyftir Freyr 270 kg í réttstööu-
lyftu á mótinu.