Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 37 M orgu n bl *óid/Ar nór. Reykjavíkurmeistarar í tvímenningi 1983, Guðmundur Páll Arnarson og Þórarinn Sigþórsson, ásamt forseta Bridgesambands, íslands Birni Theodórssyni. Myndin var tekin að lokinni keppni sl. sunnudagskvöld. Þórarinn og Guðmund- ur Páll Rvíkurmeist- arar í tvímenningi Bridge Arnór Ragnarsson Guðmundur Páll Arnarson og Þórarinn Sigþórsson unnu yfir- burðarsigur í úrslitakeppni Reykja- víkurmótsins í tvímenningi sem fram fór í Hreyfilshúsinu um helg- ina. Þeir tóku forystu þegar mótið var rúmlega hálfnað og juku það jafnt og þétt til loka mótsins og að 27 umferðum loknum höfðu þeir fengið 345 stig yfir meðalskor sem er tvplega 13 stig úr hverri um- ferð. Jöfn og skemmtileg keppni var um annað sætið í mótinu en sterkastir á endasprettinum urðu Ásmundur Pálsson og Karl Sigurhjartarson með 205 stig. Jón Baldursson og Hörður Blöndal urðu í þriðja sæti með 201 stig og í fjórða sæti urðu Guðmundur Sveinsson og Þor- geir Eyjólfsson með 174 stig en þeir leiddu mótið framanaf. Röð efstu para: Gylfi Baldursson — Sigurður B. Þorsteinsson 144 Aðalsteinn Jörgensen — Runólfur Pálsson 121 Hermann Lárusson — Ólafur Lárusson 84 Björn Eysteinsson — Guðm. Sv. Hermannsson 46 Guðlaugur R. Jóhannsson — Örn Arnþórsson 45 Hróðmar Sigurbjörnsson — Karl Logason 35 Spiluð voru 4 spil milli para. Reiknimeistari var Vigfús Páls- son og keppnisstjóri Agnar Jörg- ensson. Svipmynd frá mótinu. „Enn er von — hand- bók piparsveinsins Útgáfufyrirtækið Fjölsýn hefur gefið út bókina Enn er von — hand- bók piparsveinsins, eftir Eric Weber í þýðingu Baldurs Hólmgeirssonar. I bókinni er að finna ráðlegg- ingar til piparsveina um hvernig fara skuli á fjörurnar við kven- fólk. Enn er von hefur hlotið frá- bæra dóma hjá erlendum bóka- gagnrýnendum og hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál. f kynningu frá útgáfunni segir að meðal efnis í Enn er von sé: Viðtöl við 25 þokkagyðjur um „áhrifaríka" þætti í fari karl- manna. Urmull heppilegustu upp- hafssetninganna. Ráðleggingar til fráskilinna. Hvernig fá skal kven- fólk til að ieita á sig. Hvar heppi- legast er að fara í fjörurnar við kvenfólk og margt fleira. Bókin er filmusett og prentuð hjá Prentsmiðju Friðriks Jóels- sonar í Hafnarfirði, en þýðandi bókarinnar, Baldur Hólmgeirsson, setti texta og braut um. Enn er von — handbók pipar- sveinsins er 160 bls. að stærð. Valentina eftir Rafael Sabatini BÓKHLAÐAN hefur gefið út bók- ina „Valentina" eftir Rafael Sab- atini. Bókin fjallar um ættardeil- ur og afbrýði og óvæntar upp- ljóstranir og ókunnar hættur auka enn á spennuna, segir í kynningu á bókarkápu. Sabatini hefur skrifað margar skáldsögur. Jlttfgmiftlfifeifc Metsölublcid á hverjum degi! Olympia Omega 001 Ljósritunarvélin sem beðið hefur verið eftir Engir stenslar, enginn vökvi, aðeins myndtromla og eitt framköllunarefni (duft). Verð og greiðsluskilmálar sem vert er að athuga AÐEINS EITT FRAMKÖLLUNAR- EFNI (DUFT). Kr. 69.750.- KJARAIM E ARMULI 22 - REYKJAVIK - SIMI 63022 Mazda 626 MARGFALDUR VERÐLAUNABÍLL og metsölubíll á íslandi sem annars staðar, og engin furða, því að MAZDA 626 er: ★ Rútngódur. MAZDA 626 er rúmbetri en sambærilegir bílar og jafn rúm- góður og margir bílar, sem eru mun stærri að utanmáli. jrFramdrifid tryggir góða aksturseiginleika og gefur frábæra spyrnu í snjó og hálku. ■frEyðslugrannur. MAZDA 626 eyðir aðeins liðlega 6 lítrum á hverja 100 kílómetra á 90 km hraða. ifVandaður.MAZDA 626 er hannaður og smíðaður af alkunnri vand- virkni japanskra handverksmanna og framleiddur í nýrri bílaverksmiðju, sem talin er vera sú fullkomnasta í heiminum í dag. ★6 ára ryðvarnarábyrgð. MAZDA 626 er ryðvarinn með nýja ryðvarn- arefninu VAXOYL og fylgir honum 6 ára ryðvarnarábyrgð. MAZDA 626 árgerð 1984 OOC 0011 kostar frá aðeins kr. m með ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð. 1600 Saloon gengisskr. 24.11.83 MAZDA — bestur í endursölu undanfarin 10 ár. BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.