Morgunblaðið - 06.12.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
Morgunblaðið/Július.
Ökumaður jeppans missti stjórn á bifreið sinni vegna mikillar hálku á Suðurlandsvegi.
Alda umferðaróhappa í Reykjavík:
Mörgum f umferðinni
varð hált á svellinu
MIKIL árekstraalda reið yfir í Keykjavík um helgina. Á
laugardag og sunnudag urðu 27 árekstrar og 3 bílveltur
og síðdegis í gær höfðu orðið 18 árekstrar, flestir eftir
hádegi. Engin alvarleg slys urðu á fólki. Ljóst er að
margar hifreiðir eru vanbúnar til vetraraksturs.
Tveir voru fluttur í slysadeild eftir að Willys-jeppi
valt á Suðurlandsvegi við Gunnarshólma. Mikil hálka
var á veginum og missti ökumaður stjórn á jeppanum
með fyrrgreindum afleiðingum. Jeppinn fór þrjár
veltur og má telja mikla mildi að ekki varð alvarlegt
slys.
A laugardag var ekið á Volkswagen-bifreið, þar sem
henni hafði verið lagt á Freyjugötu, skammt frá
gatnamótunum við Bragagötu. Ekið var á bifreiðina á
milli klukkan 11 til 15 á laugardag og fór sá er
árekstrinum olli af vettvangi. Lögreglan í Reykjavík
biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að árekstrin-
um vinsamlega að hafa samband við sig.
Söluskrifstofa SH í Hamborg:
Söluaukningin
115% fyrstu tíu
mánuði ársins
Áætluð heildarvelta 1983 er um 240 milljónir króna
MIKII, AUKNING hefur orðið á sölu fiskafurða frá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna í Vestur-Evrópu á þessu ári, og nemur aukningin á þeim hluta sem
fer um söluskrifstofu SH í Hamborg 115% fyrstu tíu mánuði ársins, miðað
við sama tíma í fyrra. Gylfi Þór Magnússon framkvæmdastjóri söluskrifstof-
unnar sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að fyrstu 10
mánuði þessa árs hefði heildarsalan í Vestur-Þýskalandi numið 5.340 tonn-
um, á móti 2.480 tonnum á sama tíma í fyrra. Allt árið í fyrra nam salan 2.970
tonnum.
Gylfi Þór sagði Vestur-Þýska-
land vera eitt af fjórum mikilvæg-
ustu markaðslöndum íslendinga í
frystum fiskafurðum á liðnum ár-
um. Ánægjuefni væri því að mark-
aðurinn færi nú vaxandi, og aukn-
ingin milli ára væri 115% sem
fyrr segir, og Gylfi Þór sagði ljóst
að um meira en tvöföldun yrði að
ræða í magni fyrir allt árið í ár og
verðmætaaukningin yrði væntan-
lega enn meiri vegna hærra með-
alverðs og aukins hlutfalls verð-
mætari vörutegunda. Sölusvæði
söluskrifstofunnrar í Hamborg er
Vestur-Þýskaland, Danmörk,
Austur-Þýskaland, Sviss, Austur-
ríki og Spánn. Heildarsala til
þessara landa er nú rétt innan við
6.000 tonn og nær væntanlega
7.000 tonnum í árslok, að sögn
Gylfa Þórs, og er það tvöföldun í
* _______
Agreiningur innan Framsóknar vegna bankastjórastöðu í Búnaðarbanka:
Stefán Pálsson með meiri-
hlutafylgi bankaráðsmanna
magni frá í fyrra. Heildarveltuna
sagði hann vera áætlaða 23 millj-
ónir vestur-þýskra marka, eða um
240 milljónir íslenskra króna á ár-
inu 1983.
Helstu vörutegundir sagði hann
vera rækjur, grálúðu og hrogn til
Danmerkur, humar og skötusel til
Sviss og síldarflök til Austur-
Þýskalands. Til Vestur-Þýska-
lands eru einkum seld síldarflök,
grálúða — heilfryst og í flökum —
karfaflök og rækja. Flakapakkn-
ingar almennt hafa aukist, enda
verið stefnt að því að draga úr
sölu iðnaðarblokka úr hinum
ýmsu fisktegundum á Þýska-
landsmarkaði og vinna blokkir
sem mest í eigin verksmiðjum, það
er í Bandaríkjunum og hinni nýju
verksmiðju í Grimsby. En hlut-
verk söluskrifstofu SH í Hamborg
sagði Gylfi Þór einmitt vera að
undirbúa þá nýju möguleika, sem
nú væru að opnast á meginlandi
Evrópu, með tilkomu verksmiðj-
unnar í Grimsby. Gylfi Þór sagði
að lokum, að sá árangur, sem að
framan greinir, hefði náðst þrátt
fyrir gífurlega harða samkeppni á
Vestur-Evrópumarkaðnum, og
ljóst væri að mikla vinnu þyrfti til
að halda hlut SH þar og auka við
hann á næstu árum.
- Stefán Valgeirsson alþingismaður og
bankaráðsformaður sækir einnig um stöðuna,
en hlaut ekki stuðning þingflokks síns
ALLT ÚTLIT ER fyrir aö á næsta bankaráðsfundi Búnaðarbanka íslands verði
Stefán Pálsson, forstöðumaður Stofnlánadeildar Búnaðarbankans, kjörinn
bankastjóri Búnaðarbankans í stað Þórhalls Tryggvasonar, sem sagt hefur
starfi sínu lausu. Bankastjórastaöa þessi hefur valdið miklum deilum innan
þingflokks Framsóknarflokksins og hefur Stefán Valgcirsson alþingismaður,
sem er einn þriggja umsækjenda um bankastjórastöðuna, ekki mætt á þing-
flokksfundi í hálfan mánuð, eða allt frá því hann flutti langan reiðilestur yfir
forystumönnum flokksins á þingflokksfundi á miðvikudag í fyrri viku, en
megininntak málflutnings hans var að flokksforystan hefði brugðist, hún ætti
að koma sér saman um einn frambjóðanda.
Hannes Pálsson, aðstoðarbanka- tímasetning bankaráðsfundarins
stjóri Búnaðarbankans, er þriðji
umsækjandinn, en allir eru um-
sækjendurnir taldir framsóknar-
menn. Framsóknarflokkurinn telur
sig eiga rétt á stöðu þessari sam-
kvæmt samkomulagi flokkanna um
skiptingu embætta. Ekki hefur
þar sem bankastjóraembættið
verður veitt verið ákveðin, en Stef-
án Valgeirsson alþingismaður, sem
er formaður bankaráðsins, mun
ekki mæta á fundinn þar sem hann
er einn umsækjenda. Formaður
bankaráðs ákveður þó fundartím-
ann, en varaformaður ráðsins,
Friðjón Þórðarson, mun stjórna
fundinum. Þegar ljóst var að Stef-
án alþingismaður ætlaði sér að
bjóða sig fram, þrátt fyrir að mikill
meirihluti bankaráðsmanna styðji
Stefán Pálsson, var farið að athuga
hver væri varamaður hans. Kom þá
í ljós að kjörinn varamaður banka-
ráðsformannsins var Jón Helgason
landbúnaðarráðherra. Þar sem
landbúnaðarráðherra er æðsti yfir-
maður Búnaðarbankans þótti ekki
við hæfi að hann tæki sæti banka-
ráðsformannsins og sagði ráðherr-
ann því af sér. Þingflokkurinn til-
nefndi síðan Þórarin Sigurjónsson
sem varamann í hans stað á þing-
flokksfundi sl. miðvikudag.
Auk Stefáns Valgeirssonar og
Friðjóns Þórðarsonar alþing-
ismanns, sem sæti á í bankaráðinu
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sitja þar
eftirtaldir: séra Gunnar Gíslason
fyrir Sjálfstæðisflokk, Haukur
Helgason skólastjóri fyrir Alþýðu-
flokk og Helgi Seljan alþingismað-
ur fyrir Alþýðubandalag. Sam-
kvæmt heimildum Mbl. munu allir
bankaráðsmennirnir, nema þá
e.t.v. Þórarinn Sigurjónsson, sem
kæmi inn fyrir Stefán Valgeirsson,
styðja Stefán Pálsson. Viðmælend-
ur Mbl. sem þekkja til mála sögðu
einnig, að Þórhallur Tryggvason
hefði ekki sagt starfi sínu lausu,
nema hann hefði verið þess fullviss
að Stefáni Pálssyni væri trygg
ráðningin í stöðu hans.
Fyrsti almenni
viðrædufundur
ASÍ og VSÍ í dag
FYRSTI almenni viðræðufundur Al-
þýðusambands íslands og Vinnu-
veitendasambands fslands um
kjaramál verður haldinn í dag, en
hingað til hafa aðilar aðeins ræðst
við um kjör þeirra er verst eru settir
í þjóðfélaginu.
Ekki er gert ráð fyrir, að til
neinna tíðinda dragi á fundi aðila
í dag, en almennt er búist við löng-
um og ströngum samningaviðræð-
um á komandi vikum.
Guðni A. Jónsson
úrsmiður látinn
Óttast að það geti
orðið til frambúðar
LÁTINN er í Reykjavík, Guöni A.
Jónsson úrsmiður, níutíu og þriggja
ára að aldri. Guðni fæddist hinn 26.
september árið 1890 á Gunnfríðarstöð-
um í Langadal í Austur-Húnavatns-
sýslu, sonur hjónanna Önnu Einars-
dóttur og Jóns Hróbjartssonar.
Framan af ævinni gekk Guðni til
allra almennra starfa á jörð foreldra
sinna, en árið 1912 fór hann inn í
Vatnsdal til að læra bókband og það-
an flutti hann á Sauðárkrók. Árið
1916 sigldi hann til Danmerkur og
lagði stund á nám í úrsmíði í fjögur
ár, og dvaldi að námi loknu um skeið
í Þýskalandi. Eftir að hann kom
heim á ný settist hann að í Reykja-
vík þar sem hann stofnaði eigið
fyrirtæki, sem hann rak um ára-
tugaskeið í Austurstræti 1.
Kona Guðna, Ólafía Jóhannesdótt-
ir frá Svínavatni, lifir mann sinn
ásamt þremur dætrum þeirra hjóna.
Guðni A. Jónsson
- segir Karl Steinar Guðnason um atvinnuleysið á Suðurnesjum
„ÉG SÉ ekki aö það geti orðið veruleg breyting á næstu vikurnar. Ég óttast að
þetta geti orðið til frambúðar, ef ekki kemur til verulegur stuðningur viö
atvinnulífið á svæðinu," sagði Karl Steinar Guðnason, alþingismaður og
forustumaöur verkalýðshreyfingarinnar á Suðurnesjum, er hann var spurður
álits á fjölda atvinnulausra á svæðinu, en eins og Mbl. skýröi frá á laugardag-
inn eru um 200 manns nú skráðir atvinnulausir þar.
Karl Steinar sagði aðalástæður
atvinnuleysisins vera þær, að ann-
ar togari Keflvíkinga, Bergvík,
þyrfti að fara í klössun til Akur-
eyrar, en ekki hefði fengist fyrir-
greiðsla til verksins. Hinn togar-
inn sigldi með aflann á meðan. Þá
væru almennir rekstrarerfiðleikar
hjá frystihúsunum og verið væri
að undirbúa breytingar á Hrað-
frystihúsi Keflavíkur.
Aðspurður um hvað helst væri
til ráða sagði hann að fyrst þyrfti
að fá fyrirgreiðslu til að koma
Bergvíkinni í notkun. Þá yrði að
hætta að sigla með afla hins togar-
ans. Síðan yrði að skoða vandamál
þeirra fyrirtækja sem nú væru að
leggja upp laupana og reyna til
hins ítrasta að koma þeim í gagnið
á ný. Sagði hann sem dæmi að eitt
frystihús sem væri nú stopp væri
að íhuga að kaupa Hafþór, skip
Hafrannsóknastofnunar, og gæti
það orðið lyftistöng fyrir. svæðið.
Karl Steinar bætti því við í lokin
vegna umræðu um að framkvæmd-
ir á Keflavíkurflugvelli við nýja
flugstöðvarbyggingu og í Helguvík,
að þær virtust engan veginn hafa
orðið sú lyftistöng fyrir verkafólk
á svæðinu eins og haldið hefði ver-
ið fram. Einungis þrír til fjórir
verkamenn hefðu nú atvinnu af
flugstöðvarbyggingunni, líklega
væri eina hagsbótin af fram-
kvæmdunum fyrir atvinnulífið sú,
að ekki hefði komið til fjöldaupp-
sagna hjá verktökum.
Um 200 manns eru nú skráðir
atvinnulausir, eins og fyrr segir, og
sagði Karl Steinar að hópurinn
væri aðallega konur, eða að tveim-
ur þriðja.