Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 7

Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 7 Wh&mntíW-NT ' ^ fomnm <__ PELSINN Kirkjuhvoli, tími 20160. Um endalok Marianellu Á sínum tíma var frá því skýrt í Morgun- blaöinu að mönnum bæri ekki saman um þaö hvernig dauða Marianellu Garcia Vill- as bar aö í El Salvador 13. mars 1983. Enn eru endalok hennar gerö aö umræðuefni í Staksteinum vegna rostans í Ólafi R. Grímssyni sem byggist á hræsni eins og svo oft áöur. Ljómandi sjálfsánægja Kftir að Ólafur K. Gríms- ■son komst á þing í forföll- um (íuAmundar J. Guð- mundssonar skín Ijómandi sjálfsánegjan yfir frammi- stöðu alþýdubandalags- manna á alþingi út úr hverri setningu sem hann skrifar í Þjóðviljann og þingfréttari blaðsins er blindaður af ofbirtunni frá hinu skœra Ijósi og kallar nú þingmenn Alþýðu- bandalagsins úr Reykjavík „vaskt fólk“, en sú ein- kunn er bannorð á Þjóð- viljanum þegar (iuðmund- ur J. Guðmundsson kemur við sögu frá því að Olafur R. Grímsson féll fyrir hon- um { forvali um menn á framboðslistann. Kkkert upphlaupanna { Þjóðviljanum eftir að Olaf- ur R. Grímsson tók að skrifa í blaðið hefur verið með jákveðum formerkj- um nema gleðin yfír frammistöðu Ólafs R. ({rímssonar á alþingi. Lík- lega er gleðin byggð á jafn veikum forsendum og hneykslun blaðsins yfir því sem smáraeði reynist eins og frægast hefur orðið í umræðunum um gulgræna kjötið. Frá því um síðustu helgi hefur Olafur R. Grímsson til dæmis tvisvar látið að því liggja Ijómandi af sjálfsánægju og í hræsnis- fullum hneyklsunartón að Morgunblaðið hafi ekkert sagt frá örlögum Marian- ellu Garcia Villas, mann- réttindafrömuði í El Salva- dor. „Hví var hún lífs og hvi er hún liðin feimnismál á síðum blaðsins?** spyr Ólafur R Grímsson rit- stjóra Morgunblaðsins í til- efni af þvi að hingað til lands kom á dögunum Fatricio Euentes, fulltrúi Mannréttindanefndar El Salvador á Norðurlöndum og í Bretlandi, þeirrar sömu og Marianella Garcia Villas stofnaði. Segir í Þjóðviljanum að l'atricio Fuentes hafí sagt að „það værí einn tilgangur ferðar hans til íslands að þessu sinni að leggja fram sönn- unargögn um morðið á Maríanellu Garcia Villas." Greinargerð Morgun- blaðsins l*að er auðvitað alrangt hjá Ólafi R. Grímssyni að halda því fram að Morgun- blaðið hafi ekki sagt frá ör- lögum Marianellu Garcia Villas og er Ijómandi sjálfs- ánægja hans af þeim sök- um reist á sandi sem kem- ur ekki á óvart fyrir þá scm minnast upphlaupasögu mannsins fyrr og síðar. ( Morgunblaðinu hinn 13. april 1983 birtist bér í blað- inu ítarleg greinargerð í at- hugasemd frá ritstjóra við svipuðum ásökunum í garð Morgunblaðsins og Ólafur R. (irímsson hefur uppi nú en þá setti Einar Ólafsson þær fram í grein í Morgun- blaðinu. í þessari greinar- gerð eru birtar níu frásagn- ir, hvorki meira né minna en níu frásagnir, af því sem átti að hafa gerst þegar dauða Marianellu Garcia Villas bar að höndum. Og í framhaldi af birtingu þeirra segir í athugasemd ritstjóra: „Morgunblaðið getur ekki annað en látið lcsendum sínum eftir að gera upp á milli þessara frásagna og draga sínar ályktanir af þeim. Blaðið ætlar sér ekki þá dul að gerast dómari í þessu •uáli...“ Meðal þeirra sem komu við sögu í þessari greinar- gerð Morgunblaðsins var l'atricio Fuentes, sem hingað kom í síðustu viku. Hann sagði í Tímanum 17. mars: „Hún (Maríanella (■arcia Villas innsk. Stak- steina) hafði ásamt annarri konu úr mannréttinda- nefndinni verið í heimsókn hjá fjölskyldu í San Salva- dor og var á leið að stíga upp í bíl sinn þegar tveir bíúr með 8 hermönnum óku framhjá og hleyptu hermennirnir af vélbyssum að Marianellu og félögum hennar. Þær dóu sam- stundis. I>að er lygi að dauða þeirra hafi borið að í hernaðarátökum milli ska-ruliða og hersins." Og f Þjóðviljanum 17. mars er haft eftir Patricio Fuentes, að Marianella hafi „verið tekin af lífi án undangeng- inna átaka af 8 hermönn- um úr stjórnarhernum og hefði hér verið um kaldrifj- að morð að ræða." Þjóð- viljinn hafði það jafnframt eftir Fuentes að morðið hefði verið framið á „götu úti í þorpinu Bermuda." Frá þessum staðha-fing- um Patricio Fuentes var sem sé skýrt í Morgun- blaðinu 13. apríl 1983 en auk þess var þar bent á frásagnir 7 annarra aðila um endalok Marianellu Garcia Villas en sumir þeirra héldu því þá strax fram sem Fuentes gerði ekki að Marianella hefði veríð „limlest til dauða". f tilefni af komu l’atricio Fu- entes hingað í síðustu viku segir Ólafur R. Grímsson í forystugrein í Þjóðviljan- um: ,,Patricio Fuentes ber til Islands myndir sem sýna hið svívirðilega morð." Og í forsíðufrétt segir Þjóðviljinn af sama tilefni: „Meðferðis hefur hann (Patricio Fuentes innsk. Staksteina) myndir sem sýna svart á hvítu hvernig Marianella Garcia Villas formaður Mannrétt- indanefndar El Salvador var limlest til dauða." Eins og þessi upprifjun sýnir er athyglisverðast við upphlaup Ólafs R. Gríms- sonar nú 9 mánuðum eftir að þetta mál var reifað ít- arlegar af Morgunblaðinu en nokkrum öðnim ís- lenskum fjölmiðli, að hann skuli beina spjóti sínu að ritstjóra Morgunblaðsins en ekki Patrieio Fuentes. NÝTT KJARVALSKORT Skjaldbreiður (1957-62). Onnur ný jólakort: 3 vatnslitamyndir eftir Jörund Pálsson og 3 Ijósmyndir eftir Rafn Hafnfjörð (Haligrimskirkja, Oómkirkjan og Háteigskirkjaj. FAST I FLESTUM BÓKA- 0G GJAFAVORUVERSLUNUM Bastmottur frá Kína Kínversku bastmotturnar sem fást í Teppalandi, Grensásvegi 13, eru alltaf jafnvinsælar. Þær fást í mörgum stæröum og geröum. Kínversku bastmotturnar eru mjög fallegar skrautmottur sem hægt er aö nota í eldhús og parketgólf sem á aöra staöi í íbúðinni. Þaö fást kringlóttar, ferkantaöar og ýmsar aörar geröir í Teppalandi. Tilvaldar jólagjafir. TÉPPfíLfíND LITBRÁ-offset SÍMAR- 2 29 30 - 2 28 65 Grensásvegi 13, Reykjavík, síma 83577 og 83430. Jltor0ttttÞ(iikílk Metsolublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.