Morgunblaðið - 10.12.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
9
ÉQmsOsö ŒBáD
Umsjónarmaöur Gísli Jónsson 221. þáttur
Er hér fyrst lokakaflinn úr
bréfi Þórunnar Guðmunds-
dóttur í Reykjavík, því sem
nokkur skil voru gerð í síð-
asta þætti. Hún segir:
„Blessuð danskan helduri
furðulega velli þótt enskan
veiti henni harða keppni.
Allir hlutir „gefa sig“ en eng-
inn lætur undan. Menn eru
oft seinir að „fatta", samt
borða þeir „rauðspettu" af
bestu lyst. Hvað finnst þér
um orðið lífshlaup? Er það1
ekki óþörf dönskusletta, þar
sem allir eiga sína ævi og
sinn æviferil? Að endingu:
Hvort er betra að segja ég
hef eða ég hefi? Þetta veit ég
bara ekki. Með góðri kveðju."
Lýkur svo þessu skemmti-
lega og vel samda bréfi, og er
þá fyrst að reyna að svara
beinum spurningum.
Mér þykir orðið æviferill
fallegra en lífshlaup. Hins
vegar finnst mér hið síðar-
nefnda ekkert skelfilegt. í
því er visst líkingamál, og í
því sambandi má minna á
frægan sálm eftir Hallgrím
Pétursson, Um dauðans óviss-
an tíma, en þar segir meðal
margs annars sem frægt hef-
ur orðið:
Lífið manns hratt fram hleypur,
hafandi enga bið,
í dauðans grimmar greipur,
gröfin tekur þar við.
Veit ég vel af fyrri bréfum
Þórunnar að hún er ekki
haldin neinni oftrú á óskeik-
ulleik frægra höfunda (átórí-
tetstrú), og hefur hér áður
verið um slíkt fjallað.
Þá er það beyging sagnar-
innar að hafa. Ég skrifaði
fyrir nokkru, að gefnu sams
konar tilefni, langan pistil
um beygingu veikra sagna og
vitna til hans, en skal þó
endurtaka meginatriðin
varðandi þessa sögn. Hún er
í fjórða flokki veikrar sagn-
beygingar (é-beyging) ásamt
sögnum eins og brosa, horfa,
þora og duga. Megineinkenni
þessa flokks voru þau, að
sagnirnar voru hljóðvarps-
lausar í öllum kennimyndum
og nútíð framsöguháttar í
fyrstu persónu endaði á i.j
Dæmi: brosa — brosti — bros-
að og ég brosi.
Samkvæmt þessu „ætti“
sögnin að hafa að vera í nú-
tíð framsöguháttar ég hafi og
hann hafir eða alltjent ég hefi
og hann hefir, en flestir segja
nú og skrifa ég hef og hann
hefur.
Ástæðan til þessarar
breytingar er talin áhrif frá
öðrum sögnum eins og veiku
sögninni að krefja (ég kref,
hann krefur) og sterku sögn-
inni að hefja (ég hef eitthvað
á loft, hann hefur frásögnina
á þessum orðum). Sem sagt
eldri og upprunalegri myndir
(sem sumir nota enn) eru
hefi og hefir, yngri og algeng-
ari myndir eru hef og hefur.
Nú get ég ekki sagt hvort sé
„betra“, heldur, eins og svo
oft endranær, vísað til
smekks og hefðar. Ég hef
engar áhyggjur af málsmekk
Þórunnar Guðmundsdóttur
og hennar líkra.
Ég hafði gaman af að sjá
orðmyndina rauðspetta í bréfi
Þórunnar. Þessi blessaði
fiskur (pleuronectes plat-
essa) heitir á máli okkar
skarkoli, en á dönsku röd-
spætte, að mér skilst vegna
rauðra blettanna. Nú hef ég
aldrei heyrt eða séð fyrr svo
ómengaða dönsku í íslensku
máli sem rauðspetta, heldur
alltaf rauðspretta, þar sem
reynt er að gera orðið ívið
íslenskulegra (alþýðuskýr-
ing, sjá síðasta þátt). Hef ég
reyndar af veikum mætti og
með litlum árangri reynt að
blása lífi í orðið skarkoli í
stað rauðsprettunnar, með
r-i. Ég viðurkenni þó fúslega
að oft er hæpið að útrýma
tökuorðum, þó góð orð af
innlendum uppruna séu til.
Slíkt getur horft til málfá-
tæktar og tilbreytingarleysis
í stíl. Hver vill til dæmis út-
rýma orðinu bíll, þótt við eig-
um orðið bifreið?
Víkur þá bréfaskriftum
um set, frá Reykjavík til
Kópavogs, en þaðan sendir
mér Matthías Jónasson þetta
notalega bréf:
„Kæri Gísli Jónsson.
Hafðu heila þökk fyrir
þátt þinn íslenskt mál. Eg les
hann jafnan mér til fróðleiks
og ánægju. Einkum hefi (um-
sjónarm. auðkennir hér
þessa orðmynd, sjá fyrr) eg
gaman af vísum, sem þú
kryddar greinar þínar með. í
þættinum hinn 19. þ.m.
(þetta er skrifað í nóv.) birtir
þú gátuna:
Sat ég og át,
og át af mér.
Át það sem ég á sat
og át af því.
Ég lærði þennan húsgang í
bernsku þannig:
Sat eg og át,
og etið var af mér'.
Át það sem eg á sat,
og etið var af því.
Ekki veit eg hvaðan þetta
er komið í bernskuminni
mitt, en svona gangast kviðl-
ingar í munni.
Margt færi betur í máli
fólks, ef almennt væri gefinn
gaumur að ábendingum þín-
um og annarra málvöndun-
armanna. En oft sé eg og
heyri endurteknar am-
bögurnar, sem þið leiðréttið
daginn áður.
Með bestu kveðju."
Með bestu þökk fyrir bréf-
ið hlýtur það að viðurkenn-
ast, að stundum virðist talað
fyrir daufum eyrum, og er
ekkert við því að segja.
Margföld laun viðleitni
okkar „málvöndunarmanna"
fáum við í þeirri vitneskju
hversu margir hafa lifandi
og brennandi áhuga á móð-
urmálinu og myndarlegan
metnað þess vegna. En um
villur og leiðréttingar stilli
ég mig ekki að vitna til hinna
frægu orða Árna Magnús-
sonar handritasafnara, þótt í
öðru samhengi væru sögð,
svo frábær sem þau eru í
sjálfum sér:
„Svo gengur það til í heim-
inum, að sumir hjálpa errori-
bus (villum) á gang, og aðrir
leitast síðan við að útryðja
aftur þeim sömu erroribus.
Hafa svo hverir tveggju
nokkuð að iðja.“
Þórir Áskelsson á Akur-
eyri heyrði auglýst að miða-
pantanir yrðu seldar við inn-
ganginn. Við Þórir erum
reyndar á því, að þetta hafi
verið framkvæmt þannig, að
miðarnir hafi verið seldir, en
ekki hafi þurft að greiða
fyrir sjálfar pantanirnar.
Jólafagnaður
Hinn árlegi jólafagnaöur Félagsstarfs eldri borgara í
Reykjavík veröur haldinn á Hótel Sögu, Súlnasal, í dag,
10. desember og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
Upplestur, Borgar Garöarsson, leikari.
Söngur, nemendur frú Snæbjargar Snæbjarnardóttur,
söngkonu.
Upplestur, frú Olga Siguröardóttir.
Einsöngur og tvísöngur, hjónin Sieglinde Kahmann og
Sigurður Björnsson óperusöngvarar.
Kaffiveitingar.
Fjöldasöngur, frú Sigríður Auöuns viö hljóöfæriö.
Helgileikur, nemendur úr Vogaskóla, stjórnandi Guö-
mundur Guöbrandsson, skólastjóri.
s___________________________________________________________.
Tónlist
á hverhi heimili
umjólin
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Þú svalar lestrarþcirf dagsins
ásídum Moggans!
^^^^a^mmmmmmm^m^^mmmmmmm
Ljósritunarpappír
fyrir flestar gerðir Ijósritunarvéla.
sími 72400.
CMJND
FASTEIGNASALA
Bugöutangi Mosfellssveit
Snyrtllegt einlyft raöhús meö verönd mót suöri, allar inn-
réttingar úr Ijósum víð. Húsiö er 100 fm. Verö 1,8 millj.
Skipti á 3ja herb. 2ja herb.
Mjög falleg 2ja herb. íbúö á 1. hæð við Hamraborg. Fæst í
skiptum fyrir 3ja herb. íbúö í Fannborg.
Óskast miösvæöis
120 fm hæö fyrir félagasamtök á hæöinni þarf aö vera pláss
fyrir bókasafn, fundarherb. og 2 skrifst. Verö um 2 millj.
Opiö í dag kl. 13—15.
Glafur Geirsson viötkfr., Borghildur Flórentadóttir,
Guöni Stefinsson, porsteinn Broddason.
29766
I__□ HVERFISGÖTU 49
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H ÞOROARSON HDL
Til sölu og sýnis auk annarra eigna:
Glæsileg raöhús í smíöum
í Suðurhlíóum í Fosavogi. Annað húsió er um 80x2 fm meö 5 herb.
íbúö á tveim haeðum. Selst fokhelt meö innb. bílskúr. Hitt húsió er um
80x3 fm meö tveim íbúðum þ.e.a.s. 5—6 herb. íbúö á rishæð og efrihæð
og 2ja herb. séríbúð á neöri hæö. Innbyggöur bílskúr. Útsýnisstaður.
Teikningar og nánari uppl. á skrifstofunni. Hagstæó kjör.
Góö eign í vesturborginni
endurbyggt og sfækkaó timburhús á nýjum kjallara viö Lágholtsveg
meö 5—6 herb. íbúó á hæö, rishæó og í kjallara. íbúöarhæft en ekki
fullgert. Lóð frágengin. Skiptamöguleikí á góöri 4ra—5 herb. íbúö í
vesturborginni.
Á góöu veröi í Hafnarfiröi
steinhús við Tjarnarbraul um 70x2 fm meó 5 herb. ibúó á tveim
hæóum. Bílskúr. Þak o.fl. endurnýjaó. Ræktuö lóö.
Góö íbúö í Kópavogi
3ja herb. á neöri hæö í tvíbýlishúsi um 80 fm vió Dalbrekku. Sérhiti.
Sérinng. Næsfum skuldlaus. Góö sameign. Mjög gott varð.
Nýleg 2ja herb íbúö í Kópavogi
á úrvalsstaö viö Digraneaveg á jaröhæö um 70 fm. Mjög rúmgóó,
fullgeró, vönduö innrétting. Teppi Danfosskerfi. Sólverönd. Mikió út-
sýni. Getur losnaó fljótlega.
Á Högunum skammt frá Háskólanum
5 herb. rúmgóö suöuríbúö á 2. hæö um 120 fm. Ágæf sameign. Næst-
um skuldlaus. Skipti möguleg á nýlegri 3ja herb. íbúó i vesturborginni.
Endurnýjuð íbúö í gamla bænum
3ja herb. á 3. hæö um 80 fm í reisulegu steinhúsi viö Laugaveg. Mikió
endurbætt. Góó kjör.
Laus 1. júní nk.
Þurfum aö útvega gööa 3ja—4ra herb. íbúö í Heimum, Háaleitishverfi
eöa Neöra-Breiöholti. Mikil og ór útborgun.
Góö íbúö veröur borguö út
Þurfum aö útvega góóe 2ja herb. íbúð i Seijahverfi fyrir fjársterkan
kaupanda.
Sérhæö óskast til kaups
tii eigin atnote fyrir iönaöarmann Æskileg stærö 130—160 fm. Má
þarfnast standsetningar eða vera í byggingu ekki fullgerö
í Garöabæ óskast
einbýlishús 120—140 fm og 180 —220 fm. ör útborgun. Fjársterkur
kaupandi.
Til sölu í Þingholtunum
í smíóum litil einstaklingsíbúö i kjallara. Sér hitaveita. Rúmgott baö meö
tækjum.
Opiö f dag frá kl. 1—5.
Lokað á morgun aunnudag.
ALMENNA
FASTEIGHASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370