Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 31

Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 31 GEFUM GÓDARBÆKUR glambardS setriö K. M. Peyton Flambardssetrið Kristína Parsons er tólf ára þegar hún flytur til Russells móðurbróöur síns á ættarsetrið Flambards. Síðan hún varð munaðarlaus á barnsaldri hefur hún búið hjá frænkum sínum og henni finnst kvíðvænlegt að flytja, því frænkur hennar telja fullvíst að Russell ætli að gifta hana eldri syni sínum, Mark, til að komast yfir auðinn sem hún á í vændum. Sagan gerist í byrjun aldarinnar og er hörkuskemmtileg eins og allar bækur K.M. Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi. Sigríður Eyþórsdóttir Lena-Sól Lena-Sól er nýflutt í bæinn með mömmu sinni og í dag á hún að byrja í skóla. Hún hlakkar afskaplega mikið til, en dagurinn verður óþægilega afdrifaríkur... Cynthia Leplar teiknaði myndirnar. Bók handa þeim sem eru að byrja að lesa sjálfir. Astrid Lindgren Dagur barnanna í Ólátagarði segir frá því þegar allir krakkarnir ætla að skemmta Stínu, litlu systur Óla. Hún á að skemmta sér virkilega vel - en það gengur dálítið brösótt. Henni finnst stundum ekkert gaman að því sem henni á að þykja gaman! Myndir gerði llon Wikland. Þuríður Baxter þýddi. Andrés Indriðason Fjórtán... bráðum fimmtán Skemmtileg saga um unglinga í Reykjavík-og raunar viðar, því söguhetjan, Elías, kynnist stelpu frá Akranesi. Það er ekki tómt grín að vera fjórtán ára strákur.. . bráðum fimmtán, þurfa að passa fyrir Lása bróður og kærustuna hans eins og maður væri stelpa en standa sig svo eins og karlmaður þegar öðruvísi reynir á ... Fjórtán ... bráðum fimmtán er sjálfstætt framhald af bókinni Viltu byrja með mér? María hefur átt heima í fjölleikahúsi mestalla ævina, en í sögubyrjun fer skeggjaða konan með hana heim til ömmu í stóra, fína húsið. Þar á María að búa framvegis vegna þess að í fjölleikahúsinu hafa gerst hræðilegir atburðir sem María vill ekki hugsa um. Sagan um Maríu er bæði óvenjuleg og afar falleg, enda fékk höfundurinn H.C. Andersen-verðlaunin fyrir hana. Guðbergur Bergsson þýddi. Áslaug Ólafsdóttir Litla rauða rúmið Ása vill ekki sofa í rúminu sínu, það er miklu betra að sofa á milli pabba og mömmu. En svo kemur Pési og vill endilega fá að sofa í litla rauða rúminu ... Myndirnar gerði Ragnhildur Ragnarsdóttir. Handa yngstu hlustendunum. Gunilla Bergström Hvað varð um Einar ærslabelg? Þið þekkið öll hann Einar Áskel, það er alveg rétt, en hérna kemur ný bók um hann. Er hann kannski alveg hættur að láta illa? Sigrún Árnadóttir þýddi. Bjarne Reuter Kysstu stjörnurnar Það var nærri því einber tilviljun að Buster skyldi vera með í skólaleikritinu. Þannig var að leikritið hét bara Bjúgsverð furstans en Buster bætti við á veggspjaldið: „og þrjár allsberar skvísur." Það fréttist og Buster var skipað að mæta á fyrsta fundinn. Svoleiðis byrjaði þetta allt saman. Kysstu stjörnurnar er framhaldið á Veröld Busters sem kom út í fyrra og þýðandinn, Ólafur Haukur Símonarson, fékk viðurkenningu Fræðslu- ráðs Reykjavíkur fyrir. Astrid Lindgren Karl Blómkvist í hættu staddur Alveg ný bók um Kalla Blómkvist, hinn snjalla leynilögreglumann. í fyrra var fyrsta bókin um Kalla endurútgefin, en þessi hefur aldrei komið út áður á islensku. Það finnst vinum Kalla sjálfsagt ekki verra. í miðju Rósastríði úti á Gresjunni gerast hræðilegir atburðir. Eva Lotta finnur mann í runnunum - og hann er dauður... Þorleifur Hauksson þýddi. Njörður P. Njarðvík Sigrún fer á sjúkrahús í þessari skemmtilegu sögu segir frá lítilli stúlku sem þarf að láta taka úr sér hálskirtlana. Bókin er samin í samráði við barnadeild Landakotsspít- ala og ætlað kynningar- hlutverk, því börn sem eru vel undirbúin og vita hvað er i vændum eiga auðveldara með að mæta Vésteinn Lúðvíksson Guðmundur Hreinn með gull í nögl Ævintýrið um hann Hrein sem fæddist undir Dimmubjörgum í Ljósalandi. Eins og í öllum ævintýrum bíða hans margvíslegar hættur, hið góða þarf að berjast við hið illa, Ijósið við myrkrið. En ævintýri enda ævinlega vel. Frábærar myndir eftir Robert Guillemette. þeirri nýju og stundum erfiðu lífsreynslu að fara á sjúkrahús. Sigrún Eldjárn gerði myndirnar i bókinni. Endurútgáfa á þessari sívinsælu og þörfu bók. • Mál IMI og menning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.