Morgunblaðið - 04.02.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1984
7
CEjasizaai
Álhuröir — álgluggar
Smíðum allar geröir af ál-
huröum og álgluggum fyrir
fyrirtæki, verslanir og aöra
sem þurfa vandaöan glugga-
og dyraumbúnaö. Þýsk
gæöaframleiösla, brotin
kuldabrú. Viö önnumst allan
frágang og glerísetningu.
Föst verðtilboð. Okkar viöur-
kennda viöhalds- og vara-
hlutaþjónusta.
Málmtækni sf.,
Vagnhöfða 29, sími 83045 - 83705.
OPTT) AT.T.AK
HELGAR
TIL4
Skattahllö
íiu-^j/ahí
SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 36370 • 105 REYKJAVÍK
Skjalavarsla og friðaruppeldi
Nú stendur yfir á Alþingi umræöa um öryggi íslands vegna skýrslu
þremenninganna frá 1971 um hádegisverðinn með Treholt og
hugsanleg „pólitísk skemmdarverk“ í utanríkisráðuneyti íslands.
Um þessa hlið skýrslumálsins er rætt í Staksteinum í dag. Þar er
einnig minnst á samtök um friðaruppeldi en Gunnar Karlsson „árs-
nefndarmaður" í þeim lét þessi orö falla í tilefni af stofnun samtak-
anna: „Það er aö mínum dómi m.a. hlutverk sögukennslunnar, að
gera fólki fært að ímynda sér heiminn öðruvísi en hann er.“ (!) Er
það einnig tilgangur friðaruppeldis aö innræta börnum að heimur-
inn sé öðruvísi en hann er? Hver er bættari að fá slíkt veganesti út
í lífið?
Óþörf hræðsla
Stefáns
Stefán Benediktsson,
þingmaður Bandalags jafn-
aðarmanna, hefur lagt
fram fyrirspurn á Alþingi í
tílefni af þvi að Morgun
blaðið hefur birt kafla úr
skýrslu sem þeir Stefán
Jónsson, frá Alþýðubanda-
lagi, Bragi Jósepsson, frá
Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna, og liannes
Pálsson, frá Framsóknar-
fokki, sendu Einari Ágústs-
syni, þáverandi utanríkis-
ráðherra, eftir setu þre-
menninganna á alls-
herjarþingi Sameinuðu
þjóðanna haustið 1971.
Telur Stefán Benediktsson
að birting úr þessari póli-
tísku skýrslu stofni öryggi
þjóðarinnar í voða og leiði
til trúnaðarbrests milli ís-
lands og annarra aðildar-
rfkja Atlantshafsbanda-
lagsins.
Það er mikill misskiln-
ingur ef Stefán Bene-
diktsson er þeirrar skoðun
ar, að unnt sé að líta á
þessa skýrshi sem trúnað-
armál vegna þess að hún
hafi að geyma atriði er
varða öryggi íslensku þjóð-
arinnar. Skýrslan hefur
ekkert gildi sem slík held-
ur er hún merkileg fyrir þá
sök að hún er að megin-
stofni árás á embættis-
menn íslensku utanríkis-
þjónustunnar fyrir að skilja
ekki eða vilja ekki fram-
fylgja þeirri „sjálfstæðu
utanríkisstefnu" sem
vinstri stjórnin sagðist hafa
mótað þegar hún settist að
völdum eftir 12 ára við-
reisn í júlí 1971. Þá er
skýrslan eftirtektarverð
vegna þess að þar er lýst
hvernig Arne Treholt, sem
nú hefur verið afhjúpaöur
sem útsendari KGB, lagði
á ráðin um stuðning við
stefnu vinstri stjórnarinnar
í varnarleysis- og landhelg-
ismálum og sagðist hæg-
lega getað safnað liði hvar-
vetna á Norðurlöndum.
Þessi skýrsla þremenn-
inganna er pólitfskt plagg
sem áreiðanlega hefur ver-
ið merkt sem trúnaðarmál
vegna þess að þar er vegið
að ýmsum starfsmönnum
utanríkisþjónustunnar. Til
þess að Stefán Benedikts-
son sannfærist um rétt-
mæti þessara orða ætti
hann að fara í smiðju til
skýrsluhöfundanna og fá
að lesa ritsmíðina alla.
llm leið og Stefáni Bene-
diktssyni er bent á þetta
skal því fagnað að hann
vekur máls á því á Alþingi,
hvort nægilega vel sé gætt
að öryggisreglum við með-
ferð skjala í utanríkisráðu-
neytinu. En öryggisgæsla
felst í fleiru en að passa
pappíra og ættu þingmenn
að ræða það fyrr en seinna.
hvort nægileg aðgæsla sé
höfð með starfsemi er-
lendra sendiráða ■ landinu
og þá ekki síst sendiráða
kommúnistaríkjanna. Það
mál þarf að taka fostum
tökum til að traust okkar
rýrni ekki meðal banda-
manna og tiltrúin til örygg-
isgæslu íslenskra stjórn-
valda verði ekki að engu.
Nú eru það
skólarnir
Það hefur ekki farið
fram hjá neinum að Sam-
tök hcrstöðvaandstæðinga,
Þjóðviljinn, Alþýðubanda-
lagið og fleiri öfl á vinstra
kantinum, sem vilja að ís-
land sé óvarið og halda því
fram í tíma og ótíma að þar
með séu minnstar líkur á
að Sovétmenn kasti á
okkur kjarnorkusprengjum
telja sig hafa náð miklum
árangri innan prestastétt-
arinnar, því að þar hafi
opnast augu æ fleiri fyrir
því að í þessi boöskapur
falli best að kristinni frið-
arkenningu.
Nú hafa þessir sömu að-
ilar staðið fyrir því með að-
stoð annarra að stofnuð
hafa verið samtök sem eiga
að koma kenningum af
þessu tagi á framfæri í upp-
eldisstofnunum, það er að
segja á dagvistarheimilum
og í skólum þar sem börn
standa berskjölduð frammi
fyrir kennurunum. Þessi
innræting sem nú á að fara
að beita í skólum með
skipulegum hætti er kennd
við friöaruppeldi og til
hennar er efnt undir þeim
venjulega hatti samtaka af
þessu tagi að þau séu
„óháð öllum stjórnmála-
samtökum og taka ekki af-
stööu til þjóðmála, annarra
cn þeirra sem koma frið-
armálum beint og bersýni-
lega við“. Hér liggur auð-
vitað Fiskur undir steini
eins og jafnan þegar aðilar
á þessum kanti stjórnmál-
anna klæða sig í nýtt gervi.
Að sögn Þjóðviljans Mta
hin nýju samtök stjórn
„ársnefndar" sem er ný-
yrði í ætt við „lárétt gras-
rótarsamtök" en í „árs-
nefndinni" eiga sæti:
Gunnar Karlsson, prófess-
or í sagnfræði við Háskóla
íslands, Nína Baldvins-
dóttir og Sólveig Georgs-
dóttir. llm skipulag sam-
takanna segir þetta eitt I
Þjóðviljanum: „Ársnefndin
skal fjölga í nefndinni með
því að bæta við fulltrúum
starfshópa." (!) Eins og af
þessu sést eru uppeldis-
samtökin í þágu friðar ekki
að hafa fyrir því að setja
reglur sem tryggja eðlilega
starfshætti í félögum.
Hugmyndir Gunnars
Karlssonar um lýðræðis-
lega stjórnarhætti eru þær
helstar ef rétt er munað að
fullkomnasta lýðræði á
jarðríki sé um þessar
mundir hjá Fidel Castró á
Kúbu enda starfa menn
þar líklega í „ársnefndum"
og „starfshópum" sem
Castró skipar þegar honum
hentar.
T3ítamazt:aðuzinn
lettiíýötn 12-18
BMW 520Í1982
Silfurgrár, ekinn aöeins 17 þús. km. Sjólfsk.,
aflstýri o.fl. Ýmsir aukahlutir. Bfll fyrir vand-
láta. Verö kr. 550 þús. (Skipti ath. á ódýrarl.)
Saab 99 GL 1960
Drapplitaöur, 4ra dyra, eklnn 50 þúa. Útvarp
og segulband. 2 dekkjagangar. Dráttarkúla
o.fl. Verö kr. 260 þús.
Mazda 323 1.500 Saloon 1981
Blásanseraöur (1500 vél), 5 gíra, eklnn aö-
elns 38 þús. km. Toppbill. Verö kr. 225 þús.
Range Rover 1978
Drapplltur, eklnn 100 þús. km. Belnskiptur
m. overdrive. Uppt. kassi o.fl Verö 470 þús.
Sklptl.
Kaffi á könnunni allan daginn.
Verölaunbíllinn vinsæli
Fiat Uno 45 1984. Blósanseraöur (ókeyröur).
Verö kr. 230 þús.
Lada Sport 1982
Ljösgrænn. eklnn 16 þús. Útvarp, silsallstar,
drðttarkrókur. Verö 240 bús. Skiotl.
„Drif é öllum"
Subaru, eklnn 5 þús. km. Útvarp og segul-
band. Verö kr. 215 þús.
Mazda 626 2000 1981
Dðkkbrúnn. eklnn 47 þús. km. Sjáltsk , út-
varp, segulband. Snjó- og sumardekk. Verö
240 bús.
Benz Unimoc m/húsi
Litur orange, vél 6 cyl. Ekinn 36 þús. km. 6
gira, talstöö. Torfssrutröil I toppstandi.
Verö 290 þús.
HLJ0MPL0TUR —
KA^SETTUR
SJ0RK0STLEG
RYMINGARSALA
ALLRA SÍÐASTI DAGUR
Leggjum niöur hljómplötuverslun okkar og höfum um leið innkallað allar okkar plötur
og kassettur frá öðrum verslunum og seljum nú á rýmingarsölunni nokkra tugi titla af
plötum og kassettum meö 80% afslætti. Eftirleiðis verður ekkert af þessum titlum á
sölumarkaði.
0G Í DAG K0STA ALLAR
PLÖTUR AÐEINS KR. 50.- STK.
SG-Hljómplötur, Ármúia 38.
OPID KL. 9—18.