Morgunblaðið - 10.02.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
7
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær Vesturbær
Þingholtsstræti Tjarnargata 39—
Úthverffi
Sæviöarsund
Kynnist töfratónum
kristalsins...
Heimsþekktur
tékkneskur kristall
Glös fleiri gerðir, skálar og vasar.
Greiðsluskilmálar.
„Matta rósin“
Þetta gullfallega mynstur komið. Mikið úrval.
Opið til kl. 12 á morgun laugardag.
cH.)&rtur* k/\
KRISTALL OG POSTULÍNSVÖRUR
TEMPLARASUNDI 3 SfMI 19935
Sérverslun með áratuga þekkingu.
— í hjarta borgarinnar.
20%1tninnkun á þremwj^m
/CL hálfur annar miHjarður t
, uwi **"•<- “““
tssm ts
Sáásg SSS'S: SSSr
£S‘ém ‘ÉSr-—
s
Þjóöartekjur og lífskjör
Þjóðarfjölskyldan hefur ekki úr öðru að spila, hverju sinni, en
nettóþjóðartekjum, þ.e. þjóðartekjum að frádregnum þeim
kostnaði sem til fellur við öflun þeirra. Það skiptir því meginmáli
að halda þann veg á stjórn þjóðarbúskaparins að þjóðartekjur,
sem lífskjörum ráöa í raun, geti fariö vaxandi — í staö þess aö
rýrna stööugt eins og verið hefur næstliðin ár.
Þjóðar-
framleiðsla
Botnfískani dróst saman
um 14% á sl. ári, 1983, frá
því sem hann var 1982.
Aflamörk, sem sett hafa
verið, standa enn til 14%
samdráttar 1984. Þannig
hefur verið staðið að fisk-
veiðistefnu og framkvæmd
hennar næstliðin ár, að
veiðisókn hefur ekki verið
löguð að veiðiþoli. Því er
komið sem komið er. Sam-
tímis stóðu stjórnvöld á öll-
um hremsum í stórvirkjun-
ar- og orkuiðnaðarmálum;
byggðu hvers konar tálma
gegn því að breyta orku
fallvatna í vinnu, verðmæti
og bætt lífskjör.
Þann veg var búið að
hvers konar atvinnurekstri
1978—1983 að hann sætti
taprekstri og safnaði skuld-
um. Taprekstri undirstöðu-
atvinnuvega (og raunar
einnig ýmissa opinberra
stofnana) og þjóðareyðslu
umfram þjóðartekjur var
haldið uppi með erlendri
skuldasöfnun, sem hlóðst
upp í 60% af þjóðartekjum.
Viðskiptajöfnuður 1983
var, svo dæmi sé tekið,
óhagstæður um 1.300—
1.400 m.kr., eða 5% af út-
flutningstekjum og 2'/2% af
þjóðarframleiðslu. Árið
1982 — á síðasta heila ári
fráfarinnar stjórnar —
nam viðskiptahallinn 24%
af útflutningstekjum og
10% af þjóðarframleiðslu.
Nærri fjórðungur útflutn-
ingstekna gengur til
greiðslu afborgana og
vaxta af þessari skulda-
súpu — og rýrir ráðstöfun-
artekjur þjóðarinnar að
sama skapi.
Samansafnaður vandi
fyrri ára er enn í veiga-
miklum atriðum óleystur.
Þannig segir í „Ágripi úr
þjóðarbúskapnum", sem
Þjóðhagsstofnun gefur út,
aö „rekstrarafkoma út-
gerðar sé afleit við ríkjandi
aðstæður“. — „Botnfísk-
veiðar í heild eru reknar
með tapi sem nemur a.m.k.
7—10% af tekjum ...
Kekstrarhallinn er þó að-
eins hluti vandans. Út-
gerðin er í vanskilum með
l. 100 m.kr. vegna stofn-
lána í árslok 1983, en 500
m. kr. vegna viðskipta-
skulda.“
Snúa verður
við blaði
Það skiptir mestu máli
að þjóðin sem heild snúi
við blaði í afstöðu til at-
vinnustarfsemi. Reka verð-
ur þjóðarbúið á þá lund, að
það skili allnokkrum hagn-
aði umfram tilkostnað, því
lífskjörin í landinu grund-
vallast á nettóþjóðartekj-
um og engu öðru, þegar
grannt er gáð.
Kinkaneyzla, samneyzla,
félagslegur kostnaöur
hverskonar, heilbrigðis-
kerfi, tryggingakerfi og
aðrir lífskjaraþættir sækja
allir kostnaðarlega undir-
stöðu til þeirra verðmæta
sem til veröa í landinu, þ.e.
til andviröis þeirra að frá-
dregnum tilkostnaði.
l*ess vegna veltur á
miklu að atvinnuvegum
séu búin viðunandi rekstr-
arskilyrði. Þar vegur
máske þyngst að tryggja
stöðugleika ■ efnahagslífi;
hliöstæða tilkostnaðar
þróun (verðbólgu) og hjá
samkeppnisþjóðum, sem
framleiða og selja sams
konar vöru. Atvinnufyrir-
tæki þurfa að hafa hagnað
til að mæta nauösynlegri
tæknivæðingu, eðlilegum
vexti og æskilegri launa-
þróun. Setja þarf nýjar
stoðir undir atvinnu og af-
komu landsmanna, við hlið
hefðbundinna atvinnu-
greina, ef tryggja á framtíð-
aratvinnuöryggi og framtíð-
arlífskjör landsmanna,
þ. á m. þeirra 30.000 ís-
lendinga, sem vaxa úr
grasi inn á vinnumarkað á
næstu 2 áratugum. Þetta
unga fólk þarf að mæta
störfum við hæfi og af-
komulíkum ekki lakari en
nágrannaþjóðir búa við.
I framfarasókn þjóðar-
innar þarf að leggja
áherzlu á að auka menntun
og þekkingu þjóðarinnar,
svo hún nái að virkja hug-
vit og hæfni, sem er henn-
ar mesta auðlind. Þar þarf
ekki sízt að huga að bylt-
ingu tölvunnar og sjálf-
virkninnar til að styrkja
samkeppnishæfni íslenzkr-
ar fraraleiðslu.
Við höfum glatað fimm/
sex árum í íslenzkri at-
vinnuupphyggingu. Dýr-
mætum tækifærum hefur
verið fórnað á altari marx-
ískrar þráhyggju. Áhrifa-
staða sú, sem Alþýðu-
bandalag var í 1978—1983,
hefur skaðað íslenzk lífs-
kjör meira en nokkuð ann-
að næstliðin ár. Fjórtán
verðbótaskeröingar launa,
sem Alþýðubandalagið
stóð að, segja sitt, en þó
smátt í samanburði við þá
dauðu hönd, sem það lagði
á eðlilega atvinnuþróun í
landinu. Verðbólgan,
skattaþróun, viðskiptahalli,
erlend skuldasöfnun og
röng fiskveiðistefna vega
þungt í þeirri helfor, en þó
máske enn þyngra sú af-
staða til atvinnustarfsemi,
að fyrirtæki megi aldrei
skila árangri umfram það
að hanga á horrim, því
„gróði“ sé „kapitalísk“
vUla.
Metsölublad á hverjum degi!
ST0RMARKAÐSV
Gerið verðsamanburð
Kr.
Wc pappír 12 rúllur
Elshúsrúllur Leni 2 stk.
Kellogs kornfleks 1. kg.
Juvel hveiti 2 kg.
Strásykur 2 kg.
Gevalía kaffi
Ritz kex
Þykkvabæjar franskar 750 gr.
Kjúklingar tilboðsverð 1 kg. kr. 125.-
Þorramatur, þorrabakkar.
Emmess ís 20%
afsláttur þessa helgi.
75.90
36.70
81.75
22.40
29.00
24.90
29.70
48.50
Opið:
Mánudag—
miðvikudag 9—18
Fimmtudaga 9—19
Föstudaga 9—21
Laugardaga 9—16
KREOITKQRT
_H_!É
STÓRMARKAÐURINN
SKEMMUVEGI4A KÓPAV0GI