Morgunblaðið - 10.02.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
31
Nýting eða grisjun?
— eftir Jón Krist-
jánsson og Tuma
Tumason
Við höfum orðið þess varir að
gagnrýni okkar á fiskveiði-
stefnuna hefur verið misskilin
af ýmsum. Einhvern veginn
hefur það komist inn hjá fólki
að hér sé um að ræða spannar-
langan fisk sem veiða verði upp
til þess að þau kóð sem eftir
verði fái viðurværi.
Þetta er rangur skilningur á
því sem við höfum verið að tala
um og þess vegna viljum við
gera nánari grein fyrir máli
okkar.
Svarta skýrslan
Upphaf þessa máls var að við
gátum ekki fallist á ráðlegg-
ingar Hafrannsóknastofnunar
um það hvernig skyldi bregðast
við því ástandi sem gögn henn-
ar sýndu að þorskstofninn væri
í. í skýrslu hennar stóð:
„Ástand þorskstofnsins er mun
lakara en áður var ætlað. Áætl-
að er að heildarstofn í ársbyrj-
un 1984 verði um 1130 þús. tonn
og stærð hrygningarstofns 300
þús. tonn.“ . .8. „dregið hefur úr
vaxtarhraða þorsksins undan-
farin ár.“
Síðar stendur í skýrslunni:
Hafrannsóknastofnunin
telur nauðsynlegt að stuðla
að vexti þorskstofnsins á
komandi árum í þeim til-
gangi að auka afrakstur
stofnsins í náinni framtíð.
Þær niðurstöður, sem nú
liggja fyrir um ástand
stofnsins benda til þess, að
þessu markmiði verði ekki
náð nema með því að tak-
marka þorskafla á næsta ári
við um 200 þús. tonn.
Þetta var það sem við gátum
ekki fengið til að ganga upp. Ef
drægi úr vexti gripa hjá bónda
vegna fóðurskorts þætti það
ekki góð búmennska að fjölga
enn á jötunni.
Vöxtur og stofnstærð
Það eru einföld sannindi í
dýrafræði að vöxtur einstakl-
inga í stofni er háður þeirri
fæðu sem til fellur handa
hverjum og einum. Sé matar-
búrið af ákveðinni stærð er
vöxtur hvers einstaklings í
stofninum háður stofnstærð.
Þó Hafrannsóknastofnun virð-
ist ekki viðurkenna það þá gild-
ir þetta einnig um fiskstofna í
sjó. Gulland (hann er höfundur
margra handbðka sem fiski-
fræðingar nota) segir t.d. í bók
sinni Fish Stock Assessment
frá 1983 á bls. 166:
„Growth values are likely to
decrease and natural mortality
increase as the stock increas-
es.“
(Sennilega minnkar vöxtur
og náttúruleg dánartala vex
þegar stofninn stækkar.)
Hvernig er hægt að byggja
stofninn upp með friðun þegar
vaxtarhraði er minnkandi og
náttúruleg dánartala líklega
vaxandi?
Reiknilíkan með
föstum breytistærðum
Okkur þykir einnig hæpið að
nota reiknilíkan til þess að
reikna út framleiðslu þorsks í
sjónum, án þess að taka tillit til
þess að þorskurinn er hluti af
sínu eigin umhverfi og þættir
eins og náttúruleg dánartala,
vaxtarhraði og nýliðun eru allir
tengdir stofnstærð. Til dæmis
hefur verið reiknað með því að
náttúruleg dánartala þorsks sé
alltaf 18% á ári hjá öllum ár-
göngum þriggja ára og eldri.
(Náttúruleg dánartala er það
hlutfall hvers árgangs sem ár-
lega deyr af „eðlilegum ástæð-
um“ sé engin veiði stunduð.)
í grein sinni frá 1967 um
þorskinn í Barentshafi reiknaði
Garrod út að náttúruleg afföll
hjá þorski sex ára og eldri væru
að meðaltali 28% á ári, svo sjá
má að þetta getur verið breyti-
legt. Auðvelt er að sýna fram á
að það borgi sig að sækja meira
í yngri fisk ef náttúruleg dán-
artala vex.
V.P. stofnmæling
Hafrannsóknastofnunin not-
ar V.P. stofnmælingu til þess
að reikna út stofnstærð. Að-
ferðin byggir á því hve mikið
veiðist af hverjum aldursflokki
á hverju ári.
Ekki þarf að lesa margar
greinar um fiskifræði til að
komast að því að sérfræðingar
eru almennt óánægðir með
þessa aðferð, m.a. vegna þess að
hún sýnir ekki fyrr en á eftir
hve stofninn var stór. Þeir nota
hana samt vegna þess að þrátt
fyrir gallana er ekki völ á öðru
betra. Á fundinum í líffræð-
ingafélaginu stungum við upp á
að nota vaxtarhraða sem stofn-
stærðarmælingu, vegna þess
nána sambands sem ríkir milli
þessara þátta. Slíkar hugmynd-
ir eru ekki nýjar af nálinni, þær
voru settar fram fyrir seinna
stríð af fiskifræðingum sem
unnu með sjávarfiska og reynd-
ar teknar í notkun síðar í vötn-
um í Hollandi m.a.
Sóknarbreytingar
og vöxtur þorsks
Á síðustu árum hefur dregið
úr vexti hjá þorski sbr. mynd 1.
Sú stefna var tekin upp á árun-
um 1976 og 1977 að takmarka
veiðar á smáfiski í þeirri von að
hún skilaði sér í aukningu á
stórum fiski síðar. Forsendan
hlýtur að hafa verið sú að
fæðudýr fiskstofna væru ekki
fullnýtt.
Um árangur friðunaraðgerð-
anna segir dr. Sigfús Schopka í
grein í Ægi 1980:
„Ef borin er saman meðal-
sókn í sérhvern aldursflokk
þorsks (mæld í fiskveiðidán-
arstuðlum) árabilið 1971 —
1975 annars vegar við árabil-
ið 1977—1979 hins vegar, eft-
ir að möskvastækkunin er
komin í framkvæmd og Bret-
ar horfnir af íslandsmiðum,
þá kemur í ljós að svo til öll
sóknarminnkunin, sem hefur
átt sér stað, er í yngri aldurs-
flokkana eins og vænta
mátti. Þannig hefur sókn í 3
ára þorsk minnkað um 78%
skv. bráðabirgðatölum, 35% í
4 ára þorsk og 25% í 5 ára
þorsk, en sóknarminnkun
eldri þorsks er hverfandi
(tafla 1).“
Tafla 1. Þorsksókn
Moóal n.skvcididánarstuðlar Sóknar-
minnkun
Aldur 1971—”75 1977—79 1%
3 0,112 0,025 78
4 0,313 0,204 35
5 0,493 0,372 25
6 0,557 0,504 10
7 1,045 0,986 6
Virðist því eðlilegt að spyrja
hvort rekja megi hægari vöxt
til þessarar sóknarminnkunar í
ungþorsk.
Hvað er smáfiskur?
í nýbirtri greinargerð Haf-
rannsóknastofnunarinnar seg-
ir:
„Fram hefur komið hjá
fiskifræðingunum Jóni Krist-"
jánssyni og Tuma Tómassyni,
að samdráttur í vexti þorsks
á síðustu árum stafi af fæðu-
skorti, sem orsakaðist af of
mikilli mergð smáfisks í
kjölfar þess að möskvi tog-
veiðarfæra var stækkaður
1976 og 1977.“
í ljósi þess að venjulegt fólk
leggur þann skilning í hugtakið
smáfisk að hann sé svo smár að
hann sé varla söluvara er rétt
að skilgreina þetta hugtak nán-
ar svo menn hafi það alveg á
hreinu um hvað er rætt þegar
þorskur á í hlut. Frá 1975 hefur
lágmarkslengd þorsks sem
landa má verið aukin úr 43 sm í
50 sm, og ef fjöldi 57 sm þorska
í afla fer yfir 30% er viðkom-
andi veiðisvæði lokað í viku (sk.
skyndilokun). Þegar fískifræð-
ingar tala um smáfísk í dag eiga
þeir við þorsk sem er minni en 57
sm að lengd. Slíkur þorskur er
tæp 4 pund að þyngd. Þessi
fiskur var stór hluti aflans á
íslandsmiðum hér áður fyrr,
eða fram til þess tíma að ákveð-
ið var að friða hann.
Hvað er lagt undir?
Þegar ákveða skal friðunar-
aðgerðir verður að vega það og
meta hverju er fórnað og hvað
gæti áunnist. Með því að friða
er verið að fórna ákveðnum afla
í von um meiri afla síðar. Þessu
er svipað farið og með verðbréf.
Á að selja þau strax á nafn-
verði eða geyma þau og bíða
eftir því að verðið hækki og
taka jafnframt þá áhættu að
þau gætu fallið í verði?
Lokaorð
Við höldum að orsökin fyrir
vaxtarrýrnun þorsks sé að
fjöldi fiska sé of mikill miðað
við þá fæðu sem þeir hafa til
skiptanna. Þetta sé afleiðing
þeirrar friðunarstefnu sem
mörkuð var 1976 og ’77. í grein-
argerð Hafrannsóknastofnun-
arinnar eru þessar skoðanir
okkar dregnar mjög í efa, aðrar
skýringar á vaxtarrýrnuninni
séu nærtækari. Umræður um
þær skýringar eru reyndar efni
í heila blaðagrein, en að okkar
dómi er það ekki réttur vett-
vangur á þessu stigi málsins.
Útskýringar í blaðagreinum
verða að vera þannig að allur
almenningur geti skilið þær og
það þýðir mjög langt mál, til-
vitnanir og endurtekningar.
Nær væri að sérfræðingar
ræddu þessi mál og reyndu að
komast að niðurstöðu. Við erum
reiðubúnir að taka þátt í slík-
um umræðum á þeim jafnrétt-
isgrundvelli að vísindaleg þekk-
ing manna sé ekki metin í
öfugu hlutfalli við hæð sil-
ungsvatna yfir sjó.
Hafundxr eru Ciskifrædingxr hjá
Veiðimálaslofnun.
Söguleg skurðaðgerð
Þessi 50 daga gamli pakistanski snáði gekk undir sögulegan uppskurð fyrir skömmu. Pakist-
anskir læknar skáru upp kviðinn á Awwal Khan litla og numu á brott „fimm eða sex“ fóstur.
Barnið er á batavegi.
Opiöídagtilkl.2l
17 A P V ATTP Skeifunni 15
nilVYliAUr Reykjavík