Morgunblaðið - 22.02.1984, Page 19

Morgunblaðið - 22.02.1984, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984 19 Þingsályktunartillaga um sameiginleg hagsmunamál íslendinga og Grænlendinga: Grænlendingar ættu rétt á að hafa áhrif á okkar veiðar — segir Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra TALSVERÐAR umræður urðu á Alþingi í gær um þingsálykt- unartillögu fulltrúa allra flokka um sameiginleg hagsmuna- mál Grænlendinga og íslendinga, en fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Eyjólfur Konráð Jónsson (S). Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að kanna til fullnustu möguleika á samkomulagi við Grænlendinga um sameiginleg hagsmunamál, sérstaklega að því er snertir verndun fiskistofna og fiskveiðar, og leita jafnframt nánari samvinnu þeirra ríkja, sem liggja að fiskimiðunum norð- arlega í Atlantshafi, um verndun og nýtingu fiskistofna og önnur sameiginleg hagsmunamál. Samkomulag áhyggjuefni Fyrstur talaði við umræðuna Ólafur Jóhannesson (F), formað- ur utanríkismálanefndar, og kynnti hann álit nefndarinnar og lagði til að tillagan yrði sam- þykkt. Sagði hann í alla staði eðli- legt að Alþingi lýsi vilja sínum í þessu efni enda væri um mikil- vægt málefni að tefla, bæði fyrir íslendinga, Grænlendinga og aðr- ar þjóðir. Skynsamleg verndun og nýting fiskistofnanna væri bæði Grænlendingum og íslendingum nauðsyn og byggðist slíkt á sam- vinnu þjóða enda væri að því stefnt með tillögunni. Þá sagði Ólafur að fslendingar hefðu skiln- ing á vandamálum Grænlendinga og fregnir um samkomulag þeirra við Efnahagsbandalag Evrópu væri áhyggjuefni. Fundir með EBE valdið vonbrigðum Næstur talaði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra (F). Sagði hann að það hefði kom- ið fram í viðræðum við Grænlend- inga allt frá árinu 1980 að þeir myndu leita til EBE um samninga við það um fiskveiðiheimildir, fjárhagsstuðning og tollamál. Þá sagði Steingrímur að hann hefði rætt við Jonathan Motzfeldt og hefðu þeir bundið það fastmælum að hittast í Stokkhólmi á Norður- landaráðsþingi í næstu viku og í framhaldi af þeim fundi væntan- lega taka upp formlegar viðræður um þessi efni. Þá sagði Steingrím- ur að samkvæmt samningi Græn- lendinga við EBE, væri veiðikvóti á karfa 57.880 lestir, á þorski 23.500 lestir og á rækju 4.300 lest- ir. Fyrir þessar veiðiheimildir greiddi EBE 216 milljónir danskra króna sem jafngilti um 650 milljónum ísl. króna. Þá sagði Steingrímur að íslend- ingar ættu í viðræðum við EBE um sameiginleg hagsmunamál við Grænland og hefðu margir fundir verið haldnir, en þeir valdið veru- legum vonbrigðum. Virtist lítill áhugi vera hjá EBE um sameig- inlega hagsmuni. Þá sagði hann að Grænlendingar væru að stíga erfitt skref með útgöngu úr EBE og sig undraði ekki að þeir skyldu hafa valið þann kostinn að selja veiðileyfi, en hins vegar væri leyft að veiða allt of mikið af karfa, samkvæmt honum. Verstu tíðindi í mörg ár Næstur talaði Sighvatur Björgvinsson (A). Sagði hann tíð- indin um samninga Grænlend- inga við Grænland ein verstu tíð- indi sem íslendingar hefðu fengið í mörg ár, enda væri næsta veiði- slóð við veiðisvæði Grænlendinga auðugustu fiskimið íslendinga. Sagði Sighvatur að aðstaða Grænlendinga til að fylgjast með veiðum, afla og stunda landhelg- isgæslu vegna veiða EBE-ríkj- anna, væri mun verri en íslend- inga. Þá lét hann í ljós mikla óánægju með að Grænlendingar skuli hafa gert samkomulag þetta án þess að ræða við íslendinga. Hins vegar krefðist samkomulag- ið þess að eitt skip Landhelgis- gæslunnar væri við miðlínu land- anna til eftirlits, en það þýddi í raun, miðað við fjárveitingar til Gæslunnar, að ekkert skip yrði tiltækt á öðrum miðum til eftir- lits og ekkert yrði tiltækt í neyð- artilvikum. Því þyrfti að efla Landhelgisgæsluna til muna. EBE reynir að ná eins miklu og unnt er Næstur talaði Eyjólfur Konráð Jónsson (S). Sagði hann að sér segði svo hugur um að EBE- þjóðirnar myndu reyna að ná eins miklum afla við Grænland og unnt væri og myndi flotinn engu hlífa, ekki einu sinni ungviði. Þá sagði Eyjólfur Konráð að íslend- ingum væri skylt, samkvæmt Hafréttarsáttmálanum, að hafa náið samstarf við Grænlendinga um fiskistofnana, enda væru á miðum beggja þjóða fiskistofnar sem flökkuðu á milli lögsaganna og væri þjóðunum skylt að sjá um verndun þessara stofna og eðli- lega nýtingu þeirra. Þá sagði Eyj- ólfur að ekki væri óeðlilegt að ís- lendingar og Grænlendingar tækju upp sameiginlega landhelg- isgæslu, ásamt Færeyingum, á hafsvæðum þar sem sameigin- legir stofnar þjóðanna væru. Vondar fréttir Þá talaði Ragnar Arnalds (Abl.). Hann sagði að fréttirnar af samningunum hefðu verið vondar fréttir, en nú værum við búnir að missa af strætisvagnin- um, með það að ná einhverjum samningum við Grænlendinga um þessi mál, áður en þeir gerðu samninga við EBE. Kvaðst Ragn- ar ekki fullyrða að hægt hefði verið að koma í veg fyrir sam- komulag Grænlendinga og EBE, ef þingsályktunartillaga þessi hefði verið samþykkt í tíma, en hins vegar sagðist Ragnar vilja fá upplýst, hvað ríkisstjórnin hefði aðhafst í málinu. Ótíðindi Næst talaði Guðrún Helgadótt- ir (Abl.). Sagði hún að samning- urinn væri mikil ótíðindi og með ólíkindum að nágrannaþjóðir skuli gera svona samning, án þess að ræða við okkur um það. Kvaðst hún vilja spyrja tveggja spurn- inga; hvernig þetta hefði getað gerst og hvað yrði um norrænt samstarf í framhaldi þessa samn- ings. Grænlendingar tryggja sér stuðning EBE Þá talaði Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, (S). Geir sagði að þó tíðindi þessi væru vissulega ill, þá mættu þau ekki koma fólki úr jafnvægi. Sagði Geir síðan að íslendingar ættu rétt á að fjalla um vernd og veiðar á þeim fiski- stofnum sem gengju á milli lög- sagna landanna og lagöi hann áherslu á að þingsályktunartillag- an yrði samþykkt. Þá sagði Geir að um leið og vísað væri til ákvæða Hafréttarsáttmálans um veiðar og vernd fiskistofna, þá væri ljóst að Grænlendingar ættu rétt á að hafa áhrif á veiðar okkar á karfa, loðnu, rækju og fleiri teg- undum. Og vegna gangna þorsks á milli lögsagna landanna og um leið og við krefðumst samráðs af Grænlendinga hálfu, þá yrðum við að gefa þeim kost á samráði við okkur. Hins vegar vöknuðu ís- lendingar fyrst upp þegar séð væri að hagsníunum okkar væri ekki fyllilega borgið. Sagði Geir að samningar Græn- lendinga við EBE væru gerðir í því augnamiði að losa þá úr EBE. Grænlendingar teldu sér nauðsyn á að semja við EBE og miðaðist þeirra hegðan við að tryggja sér sama eða aukinn fjárstuðning úr sjóðum EBE og einnig að því að IryKKÍa aðgang útflutningsvara sinna á markaði EBE. Hins vegar hefðu ríki EBE stundað veiðar í grænlenskri lögsögu á meðan EBE fór með mál Grænlands, og að því leyti væri ástandið að vissu leyti óbreytt, nema að um ein- hverja aukningu væri að ræða. Þá sagði Geir að það sem við ætluðumst til af Grænlendingum, væri um leið skylda okkar gagn- vart þeim. Kemur ekki á óvart Þá talaði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, (F). Sagði hann að ekki væri ástæða til að láta samninginn koma mjög á óvart. Til dæmis hefðu V-Þjóð- verjar lagt á það áherslu að fram- hald yrði á veiðum þeirra við Grænland. Sagði hann mikilvægt að rætt yrði við Grænlendinga um þessi mál, en hins vegar hefðu Grænlendingar ekki viljað ræða þau fyrr en þeir hefðu gengið úr EBE og þar með fengið forræði yfir fiskimiðum sinum. Þvi hefði engu breytt þó þessi þingsálykt- unartillaga hefði komið fyrir Al- þingi fyrr. Grænlendingar fórni ekki okkar hagsmunum Þá talaði Kjartan Jóhannsson (A). Sagði hann að það sem nú hefði gerst ylli áhyggjum. Við værum ekki að biðja Grænlend- inga um að fórna sínum hags- munum, en hins vegar krefðumst við þess að þeir fórnuðu ekki hagsmunum okkar. Þá sagði hann þingsályktunartillöguna gagn- lega. Guðmundur Einarsson (Bj) sagði að Bandalag jafnaðarmanna stæði heilshugar að tillögunni. Hann gat þess að við Grænland hefðu verið stundaðar veiðar og svo yrði áfram. Guðmundur Bjarnason (F) lýsti stuðningi við tillöguna og sama gerði ólafur Þ. Þórðarson (F), en hann lét þess þó getið að hann harmaði afstöðu manna gagnvart Grænlendingum. Ný þingmál: Starfsmannasjóðir — þróunarstofnun landshluta — lausaskuldir launafólks StarfsmannasjóÖir .Kristjana Milla Thorsteinsson (S) hefur lagt fram svohljóð- andi tillögu um kynningu á starfsmannasjóðum: „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að athuga á hvern hátt megi kynna í starfs- mannafélögum og meðal atvinnurekenda, hvernig stofna megi starfsmannasjóði og að hvaða gagni þeir geta komið í atvinnulífinu." í greinargerð segir: „Greinilegt er að undir- stöðuatvinnuvegir íslendinga, landbúnaður og sjávarútveg- ur, geta ekki tekið við fleira fólki á næstunni. Mikil þörf er því fyrir fleiri störf í öðrum atvinnugreinum. Nauðsynlegt er að hugvit og framtak ein- staklingsins fái að njóta sín við slíka atvinnusköpun. Aukin þátttaka starfs- manna í uppbyggingu atvinnulífsins, t.d. með stofn- un starfsmannasjóða, gæti orðið hvati til framtaks. Slíkir sjóðir hafa lítið verið kynntir hér á landi, hvorki hjá starfs- mannafélögum eða hjá stjórn- um fyrirtækja, og virðist því brýnt að bæta úr því.“ Þróunarstofnun landshlutanna Þingmenn Bandalags jafn- aðarmanna hafa lagt fram svohljóðandi tillögu til þings- ályktunar: „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að skipa nefnd til að semja frumvarp til laga um þróunarstofur landshlutanna. Frumvarp þetta feli m.a. í sér eftirtalin atriði: 1. Þróunarstofur hafi for- göngu um mótun byggða- stefnu og veiti alhliða ráðgjöf á öllum sviðum atvinnulífs. 2. Stjórnir þróunarstofa séu skipaðar fulltrúum lýðræðis- lega kjörinna landshlutasam- taka. 3. Þróunarstofur hafi sjálfsfor- ræði til áætlanagerðar, ákvarð- anatöku og fjármagnsútvegunar. 4. Þróunarstofur starfi í nán- um tengslum við Byggða- og áætlanadeild (núverandi Framkvæmdastofnunar) sem verði sjálfstæð stofnun undir umsjón félagsmálaráðuneytis- ins. 5. Þróunarstofur skuli m.a. a) sjá um gerð og framkvæmd byggðaáætlana; sé leitað til Alþingis eftir fjármagni til stuðnings byggðaáætlunum og það fjármagn samþykkt á fjárlögum skuli þróunarstofur bera ábyrgð á veitingu fjárins í samræmi við áætlanir; b) vera sameiginlegur vett- vangur þess ráðgjafarstarfs sem þegar fer fram á ýmsum sviðum; c) varðveita iðnþróunarsjóði landshlutasamtaka; d) starfa í tengslum við lands- hlutastofur ríkisfyrirtækja." Lausaskuldir launafólks Sighvatur Björgvinsson (A)og Olafur Ragnar Grímsson (Abl.) hafa lagt fram frum- varp til laga um breytingu á lausaskuldum launafólks í löng lán. Samkvæmt frum- varpinu skal Veðdeild Lands- banka íslands gefa út nýjan flokk bankavaxtabréfa sam- kvæmt ákvörðun Húsnæðis- stofnunar ríkisins. Stjórn Húsnæðisstofnunar undirritar bankavaxtabréf þessi. Þau skulu notuð til þess að breyta í föst lán lausaskuldum launa- fólks vegna fjárfestinga í íbúðarhúsnæði, s.s. íbúða- bygginga, íbúðakaupa, endur- bóta og breytinga á árunum 1979—1983. Til tryggingar bréfa þessum eru: Veðskulda- bréf þau sem veðdeildin fær frá lántakendum; 2) ábyrgð Húsnæðisstofnunar ríkisins, 3) ábyrgð ríkissjóðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.