Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
46. tbl. 71. árg.
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
fsraelar í átökum
vid óbreytta shíta
í Suður-Líbanon
Beirúi, Sídon, 24. feb. AP.
ÍSRAELSKIR hermenn skutu fjóra óbreytta borgara til bana
og særðu tuttugu og fimm í átökum í þorpinu Maaraka í
suðurhluta Líbanons í dag. Stríðandi fylkingar í landinu virða
að mestu vopnahléið sem komið var á í gær að forgöngu
Saudí-Araba. Bandaríkjamenn hafa haldið áfram að flytja
gæsluliða sína með þyrlum í herskip fyrir utan strönd Líban-
on.
Til átaka kom í dag milli ísra-
elskra hersveita og shíta sem búa
i þorpinu Maaraka í suðurhluta
Líbanons. Hersveitirnar, sem 30
skriðdrekar fóru fyrir, tóku hóp
þorpsbúa höndum, og söfnuðust
þá vinir þeirra og ættingjar sam-
an við mosku í þorpinu og fleygðu
grjóti í hermennina og höfðu uppi
hróp gegn þeim. Hermennirnir
skutu þá á mannsöfnuðinn með
þeim afleiðingum að fjórir týndu
lífi og tuttugu og fimm særðust.
Talsmaður hernaðaryfirvalda í
Tel Aviv fullyrti hins vegar að að-
eins tveir þorpsbúa hefðu særst í
átökunum.
Útvarpið í Beirút heldur því
fram að fimm ísraelskir hermenn
hafi látið lífið þegar handsprengju
var fleygt inn í herbíl í Sídon í
dag, en hernaðaryfirvöld í ísrael
segja að enginn hermaður hafi
látist í Sídon.
Friðargæsluliðar Bandaríkja-
manna héldu áfram að taka sam-
an pjönkur sínar og framhaldið
var flutningi nokkurs hóps þeirra
í bandarísk herskip fyrir utan
strönd Líbanons, en aðalsveitirnar
eru þó í Beirút.
Jonathan Motzfeldt ----------------------
Mjög hefur dregið úr bardögum
í Beirút og nágrenni eftir að sam-
komulag náðist með Sýrlending-
um og stjórn Gemayels um vopna-
hlé. Leiðtogar múhameðstrúar-
manna og drúsa segja að þeim
hafi ekki verið formlega skýrt frá
vopnahléinu, en hefðu hins vegar
gefið liðsmönnum sínum fyrir-
mæli um að virða það.
Hormuz-sund
í brennídeplí
Loka íranir einni mikilvægustu olíuflutningaleið heims?
Nicosa, Stokkhólmi, 24. feb. AP.
Motzfeldt á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn:
Meirihluti fyrir
EBE-samningnum
Kaupmannahöfn,24. feb., Niels-Jörgen Bruun, fréttaritari Mbl., símar.
JONATHAN Motzfeldt, formaður
grænlensku landsstjórnarinnar,
sagði á blaðamannafundi í Kaup-
mannahöfn að hann væri sannfærð-
ur um að mikill meirihluti manna á
grænlenska landsþinginu mundi
samþykkja samkomulagið um fisk-
veiðiréttindi EBE við strendur
Grænlands.
Motzfeldt benti á að ekki væri
ástæða til að hafa áhyggjur af
fiskistofnunum við Grænland, við
strendur landsins væri aukin
fiskigengd og ákvarðanir um
veiðikvóta væru í höndum Græn-
lendinga.
Hann kvaðst hitta Steingrím
Hermannsson forsætisráðherra á
fundi Norðurlandaráðs í Stokk-
Svíar sprengja
Stokkhólmi 24. feb. Frá Olle Kkström, frétta-
ritara Mbl.
SÆNSKI sjóherinn varpaði í dag
sprengju í skerjagarðinum suður af
Karlskrona, en grunur leikur á að þar
hafi kafbátur verið á ferð. Ekki er
neitt vitað um árangur sprengjunnar,
en Svíar hafa mikinn viðbúnað í
grenndinni.
hólmi og tók fram að Grænlend-
ingar hefðu áhuga á samstarfi um
fiskveiðimál við íslendinga.
ÍRANIR hótuðu í dag aö loka
Hormuz-sundi, einni mikilvægustu
olíuflutningaleið heims, ef Banda-
ríkjamenn veita írökum stuðning í
stríði þeirra og írana.
Ef marka má fréttir hernaðaryf-
irvalda í löndunum tveimur hafa
um tíu þúsund manns, fimm þús-
und í hvoru liði, fallið í átökum
síðan íranir hófu hina miklu sókn
inn í frak, en þeir virðast hafa sótt
um 40 kílómetra inn í landið og
halda því fram að úrslit styrjaldar-
innar, sem staðið hefur á annað ár,
ráðist á næstu dögum.
Lögreglumenn og flutningabílstjórar orna sér við lítinn bálköst á þjóðbraut
skammt frá París, en þar var þá engin umferð vegna þess að flutningabíl-
stjórar höfðu lokað brautinni.
Upplýsingum stríðsaðila ber ekki
saman um mannfall og hve langt
íranir hafa sótt inn í Irak. íranir
fullyrða að þeir hafi rofið hina
mikilvægu samgönguleið milli
borganna Bagdad og Basra, en ír-
akar neita því eindregið.
Staðfest hefur verið að frakar
hafi snúið sér ýmissa aðila og beðið
þá að beita sér fyrir því að binda
enda á átökin. M.a. hafa þeir haft
samband við Cuellar framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna og
Chedli Kleibi leiðtoga Araba-
bandalagsins. Saddam Hussein for-
seti fraks hefur haft símasamband
við forystumenn Arabaríkjanna og
sendifulltrúi fraks í Stokkhólmi
hefur beðið sænsku ríkisstjórnina
að reyna að hafa áhrif til þess að
vopnahléi verði komið á.
Bandaríkjastjórn hefur gefið í
skyn að hún muni beita hervaldi til
að opna Hormuz-sund ef franir
loka því. Allir frambjóðendur til
embættis forseta Bandaríkjanna
hafa lýst sig samþykka valdbeit-
ingu ef til lokunar sundsins kemur.
Frakkland:
Flutningabflstjór-
ar hætta aðgerðum
París, 24. Tebrúar. AP.
FRANSKIR vöruflutningabflstjórar hafa fallist á að binda enda á aðgerðir sem
lamað hafa samgöngur víða í landinu undanfarna átta daga.
Þegar er tekið að greiðast úr
þeim umferðarflækjum sem hindr-
að hafa Frakka í að komast leiðar
sinnar og öllum vegartálmum sem
komið hafði verið fyrir hefur verið
rutt burt.
Talsmenn flutningabílstjóra
segja að þeir hafi hætt aðgerðum
sínum eftir að fjármálaráðherra
Frakklands lofaði að eldsneytis-
tollar yrðu lækkaðir, en lækkun
þeirra var ein aðalkrafa bílstjór-
anna, sem með aðgerðum sínum
voru einnig að mótmæla seina-
gangi á afgreiðslu við landamæra-
hlið. .
Fundir hafa verið boðaðir í ríkis-
stjórnum ftalíu og Frakklands til
að ræða hinar miklu samgöngu-
truflanir að undanförnu, og forsæt-
isráðherra Hollands hefur hvatt til
þess að haldinn verði skyndifundur
samgönguráðherra EBE-ríkjanna
þar sem rætt verði um ráðstafanir
til að hindra að atburðir af þessu
taki endurtaki sig.