Morgunblaðið - 25.02.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
15
Frá blaðamannafundinum í tilefni biblíuársins. Mor^nbiaðið/óiafur K. Magnússon.
Bréf biskups til
presta í tilefni
Biblíudagsins
Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, hefur aö vanda
ritað prestum landsins bréf í tilefni Biblíudagsins. Þaö fer
hér á eftir.
„Eins og áður hefir fram komið
á minnislista um merkisdaga
kirkjuársins, verður Biblíudagur-
inn 26. febrúar nk., sem er 2.
sunnudagur í níuviknaföstu. Nú
ber daginn að á því ári, sem sér-
staklega er helgað Biblíunni vegna
400 ára afmælis Guðbrandsbiblíu,
sem prentuð var á Hólum í
Hjaltadai 1584. Það stækkar þenn-
an Biblíudag og eykur gildi hans
bæði í trúarlegu og sögulegu til-
liti.
Útgáfa hinnar fyrstu íslensku
Biblíu hefir haft ómetanlega þýð-
ingu fyrir Guðs kristni í landinu.
Guðbrandsbiblía er eitt hið mesta
bókmenntaafrek í sögu þjóðarinn-
ar. Þá ber einnig að geta þess, að
Oddur Gottskálksson lagði drjúg-
an skerf til verksins með þýðingu
Nýja testamentisins árið 1540.
Fyrir verk þeirra Guðbrands og
Odds er íslenska þjóðin í ævarandi
þakkarskuld. Það er því bæði
„maklegt og réttvíst" að þessarar
dýrmætu arfleifðar verði minnst á
Biblíudaginn. Gerum þennan dag
að miklum hátíðis- og boðunar-
degi Guðs orðs, eins og textar
dagsins gefa jafnan tilefni til:
„Takið með hógværð á móti hinu
gróðursetta orði." (Jak. 1:21.)
I sumum prestaköllum starfa
umræðu- og leshópar um Biblíuna
og víða notar safnaðarfólk Biblíu-
lestrarskrá, sem Hið íslenska
Bibiíufélag gefur út og hægt er að
fá í Guðbrandsstofu, Hallgríms-
kirkju í Reykjavík, þar sem Bibl-
íufélagið hefir aðsetur (s: 91-
17805). Það væri bæði verðugt og
ákjósanlegt á Biblíuári, að prestar
stofnuðu almennt Biblíulestrar-
hópa með sóknarnefndum, starfs-
mönnum kirkjunnar og öðru
áhugafólki. f nýjustu útgáfu Bibl-
íunnar er stutt kynning á hverju
riti hinnar helgu bókar, þar sem
skýrt er frá sögulegum uppruna,
höfundum, efni og tilgangi rit-
anna. Þar er yfirlit yfir tímatal
Biblíunnar, orðaskýringar, þar
sem nokkur torskilin orð textans
eru útskýrð. Kort er yfir sögustaði
Biblíunnar og nafnaskrá. Nýjar
tilvitnanir eru neðanmáls á blað-
síðum með lykilorðum. Þessi
hjálpargögn koma að góðum not-
um við Biblíulestur.
Þá bið ég presta að sjá svo um,
að gjöfum til Hins ísienska Biblíu-
félags verði veitt móttaka á Bibl-
íudaginn við guðsþjónustur eða
við annað hentugt tækifæri. Bibl-
íufélagið þarf að efla til þess að
það geti unnið ætlunarverk sitt:
„Að vinna að útgáfu, útbreiðslu og
notkun Heilagrar Ritningar meðal
landsmanna" — og að Biblían
verði ávallt fáanleg á sem væg-
ustu verði.
Kærkomið væri að geta fjölgað
félögum í Biblíufélaginu til muna
á þessu ári. Biblíufélagið er elsta
starfandi félagið í landinu, stofn-
að 1815 — og ætti einnig að vera
hið fjölmennasta, því að hvaða fs-
lendingur hefir ekki notið góðs af
Biblíunni beint eða óbeint fyrir
þann kærleiksboðskap sem hún
flytur, þar sem faðir miskunn-
semdanna opinberar handleiðslu
sína og vilja í syni sínum Jesú
Kristi eins og hann hefir gert öld
af öld á göngu kynslóðanna í landi
okkar?
Það er fögur játning og fyrir-
bæn sem Guðbrandur Þoriáksson
ritar í lokaorðum sinum til lesar-
ans um Biblíuna en þar segir
hann:
„í fyrstu er ég þess óskandi af
öllu hjarta, að þetta verk mætti
verða Allsmektugum Guði til lofs
og dýrðar, en þeim til nytsemdar
og gagns, sem lesa og Guðs heil-
aga orð elska.“
Bróðurlegast,
Pétur Sigurgeirsson"
jn*f0tmfrl*feifeí
Gódan daginn!
Fjölbreytt dagskrá
í tilefni Biblíuárs
„ÉG HELD það geti allir verið sammála um að útgáfa Guðbrandsbiblíu árið
1584 sé einn merkasti atburður í sögu íslenskrar þjóðar. Það sýna aldirnar
sem liðnar eru,“ sagði biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, á fundi
með blaðamönnum þar sem kynnt voru áform í tilefni Biblíuárs. Biskup
sagði að stjórn Hins íslenska Biblíufélags heföi í þessu sambandi haft
samráð við samstarfsnefnd kristinna trúfélaga.
Biblíudagurinn verður haldinn
sunnudaginn 26. febrúar í söfnuð-
um landsins, en íslenska kirkjan
heldur árið 1984 sérstaklega há-
tíðlegt sem Biblíuár þar sem á
þessu ári eru liðin 400 ár frá því
Guðbrandsbiblía kom út á Hólum
í Hjaltadal. Þess verður minnst
með margvíslegum hætti og er
stefnt að því að auka útbreiðslu
Biblíunnar jafnt sem lestur svo
boðskapur hennar megi ná sem
best til þjóðarinnar.
Um langt skeið hefur Biblíudag-
urinn verið haldinn hátíðlegur á
öðrum sunnudegi í níuviknaföstu
og hefur biskup að vanda skrifað
prestum og söfnuðum landsins og
mælst til að Biblíunnar verði sér-
stakiega minnst þennan dag við
helgihald safnaðanna og samkom-
ur og tekið verður á móti framlög-
um til Biblíuféiagsins.
Ný útgáfa Biblíunnar kom út
seint á árinu 1981 og þá í 8.000
eintökum. Síðan hafa komið nýjar
prentanir jafnt og þétt og hefur
Biblían nú verið prentuð í 23.000
eintökum á rúmum tveimur árum.
Sérprentun hefur einnig farið
fram á Nýjatestamentinu og Dav-
íðssálmum í 15.000 eintökum, en
stórum hluta þess dreifa Gid-
eonsmenn til skólanemenda. Bibl-
ían og Nýjatestamentið hafa því
verið prentuð í 38.000 eintökum á
rúmum tveimur árum.
Á Biblíudaginn verður sýning á
þeim útgáfum Biblíunnar sem til
eru á íslensku. Sýningin er í Hall-
grímskirkju, en þar er Biblíufélag-
ið til húsa í svokallaðri Guð-
brandsstofu. Þar verður Guð-
brandsbiblía m.a. til sýnis, en tvö
ár tók að prenta hana og unnu sjö
menn að verkinu. Guðbrandsbiblía
er 1.240 blaðsíður með útskornum
upphafsstöfum og mörgum mynd-
um og myndskreytingum. Á veg-
um Lögbergs koma út 400 ljós-
prentuð eintök af Guðbrands-
biblíu síðar á þessu ári.
Biblíufélagið heldur aðalfund
sinn í Hallgrímskirkju á Biblíu-
daginn. Félagið er elsta starfandi
félag í landinu, stofnað árið 1815.
AR BIBLIUNNAR
Á ÍSLANDI
■ W+
Guöbrandsbiblía 400 ára
Nýja testamenti
OddsGottskálkssonar 444ára
HIÐ ÍSLENSKA
BIBLÍUFÉIAG
Aðalfundurinn hefst með guðs-
þjónustu kl. 14.00. Þar predikar
biskup íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, en hann er forseti Bibl-
íufélagsins.
Biblíuársins verður einnig
minnst á Skálholtshátíð og
Prestastefnu og framhaldsaðal-
fundur Biblíufélagsins verður á
Hólum í Hjaltadal 17. sumarhelg-
ina, eða 12. og 13. ágúst.
Lækkun á
Kynntu þér Honda áöur en þú velur þér bíl.
Vandvirkni og nákvæmni eru einkunnarorö þeirra sem framleiða
Honda-bíla og tryggir eigendum mest fyrir peningana.
Var Nú Lækkun
Civic 3ja d. beinsk. Uppseldur Uppseldur Uppseldur
Civic 3ja d. sjálfsk. 310.400.- 288.000.- 22.600.-
Civic 4ra d. beinsk. 330.000.- 303.000.- 27.000.-
Á ÍSLANDI — VATNAGÖRÐUM 24 — SÍMAR 38772 — 39460.
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 1—5.