Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 Heildarloðnuafli um 350 þús. tonn „SEGJA má, að loðnuveiðarnar hafi gengið furðuvel miðað við það slæma veður, sem var á mið- unum,“ sagði Andrés Finnboga- son hjá Loðnunefnd í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Frá miðnætti föstudagsins fram til um miðjan dag í gær höfðu borizt tilkynningar um 4.300 lesta loðnuafla skipanna, en á fimmtudag komu um 2.000 tonn á land. Andrés Finnbogason sagði aðspurður, að heildarloðnuafl- inn á þessari vertíð væri nú kominn í um 350 þúsund lestir, en eins og kunnugt er hefur verið heimilað að veiða allt að 640 þúsund lestir á vertíðinni, sem sennilega mun standa fram í aprílmánuð. Deilan um Bollagötu 12: Lögerfingjanum úrskurðuð eignin KVEÐINN hefur verið upp úrskuröur í erfðamáli Sigurjóns heitins Jónssonar að Bollagötu 12 í Reykjavík, sem lést 1964. Þegar ekkja hans lést 1982 kom fram í dagsljósið erfðaskrá Sigurjóns, þar sem hann ánafnar íbúð sína til þeirra félaga- samtaka, er störfuðu í anda Marx og Lenins. Var þá lýst eftir tilköllum til eignarinnar. Þrír aðilar gerðu kröfu til bús- ins: Baráttusamtökin fyrir stofn- un kommúnistaflokks; vináttufé- lög íslands og Vietnam, íslands og Kúbu og íslands og DDR auk Kínversk-íslenska menningarfé- lagsins sameiginlega og loks föð- urbróðir ekkju Sigurjóns Jónsson- ar, Kristinn Gunnarsson. „Niðurstaða mín varð sú, að Iög- erfinginn væri réttur aðili," sagði Markús Sigurbjörnsson, fulltrúi borgarfógeta, sem kvað upp úr- skurðinn í gær. „Aðrir aðilar þóttu ekki fullnægja ákvæðum erfðaskrárinnar. Þessi úrskurður er því endanlegur — ef ekki kemur til áfrýjun einhvers þeirra, sem gerðu kröfu til eignarinnar." Engu breytir í þéssu sambandi þótt Kristinn Gunnarsson hafi látist í þessari viku. Eignin gengur áfram til erfingja hans, að sögn Markúsar. Farrýmaskipting tek- in upp hjá Flugleiðum FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að taka upp farrýmaskiptingu í flugvélum sínum á flugleiðum milli íslands og Norðurland- anna, Danmerkur, Noregs og Sviþjóðar, svo og á leiðinni milli íslands og Bretlands, frá og með 1. aprfl nk. Sæmundur Guðvinsson, frétta- fulltrúi Flugleiða, sagði aðspurður að undirbúningur að farrýma- skiptingu hefði staðið yfir um all- langt skeið, enda væri þessi háttur hafður á hjá flestum stærri áætl- unarflugfélögum heimsins. Sæmundur sagði að fremst í vél- unum yrði svokallaður „Business- class", sem væri farrými ætlað fyrir þá farþega félagsins, sem væru á fullgreiddum farmiðum. „Við teljum, að með því að far- rýmaskipta vélunum getum við veitt þeim farþegum, sem greiða fullt gjald betri þjónustu, sem er eðlilegt. Þeir munu afhenda far- angur sinn á sérstöku afgreiðslu- borði, bæði í Keflavík og á við- komustöðum félagsins erlendis, auk þess sem þjónusta um borð í vélunum verður aukin fyrir þessa farþega," sagði Sæmundur. Sæmundur Guðvinsson, frétta- fulltrúi Flugleiða, sagði ennfrem- ur aðspurður, að væntanlega myndu farþegar Flugleiða sem greiða fullt gjald, fá aðgang að setustofum erlendra flugfélaga ætlaðar slíkum farþegum, þar sem þær væru fyrir hendi á viðkom- andi stöðum á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Gréta Jónsdóttir var að verka kútmaga heima í eldhúsi, þegar hún fann gullankerið. Gullankeri fannst í þorskmaga ísaflrði, 21. febrúar. „ÉG SÁ glitta á eitthvað í gorinu, þegar ég var að hreinsa kútmag- ana,“ sagði Gréta Jónsdóttir á ísa- fírði. „Við nánari athugun kom í Ijós að þetta var ankeri úr skíra gulli.“ Maginn var úr þorski, sem mb. Orri veiddi um 30 mílur undan Kóp. „Mér finnst þetta vera mik- ill happagripur, því ankerið er merki vonarinnar, en vonin er okkur sjómannskonunum alltaf svo mikilvæg. Vonin um það að maðurinn komi heim úr róðrin- um og hann komi með góðan afla að landi. Þá er ég ekki síður ánægð með það, að fiskurinn veiddist af Orranum þar sem Hermann maðurinn minn var svo lengi, en hann er núna kom- inn á annan bát. Það er líka svolítið sniðugt, að Ankerið í lófa finnandans. móðir mín og önnur kona voru að verka maga norður á Dalvík líklega í kring um 1920. Þá fannst gullhringur þar í maga.“ Ef einhver kannast við anker- ið og kann á því skil hvernig það komst í þorskmagann vildi Morgunblaðið gjarnan frétta af því. Úlfar Keflavíkurflugvöllur: Nauðgun- arkæran upplogin UNGA bandaríska konan, sem þann 23. janúar síðastliðinn kærði nauðgun, viðurkenndi í gær að kær- an hefði ekki átt við rök að styðjast; að það hefði verið hugarburður hennar, að maður hefði ráðist inn á heimili hennar og nauðgað henni. Konan er nú til meðferðar á sjúkra- húsi á Keflavíkurflugvelli. í frétta- tilkynningu, sem blaðafulltrúi varn- arliðsins sendi út í gær, eru þau óþægindi, sem einstaklingar kunna að hafa orið fyrir vegna rannsóknar málsins, hörmuð en jafnframt er lýst yfir létti að málið skuli upplýst. Konan kærði nauðgun til lög- reglustjórans á Keflavíkurflug- velli. Hún bar að maður hefði ruðst inn á heimili sitt og ógnað sér með hnífi og komið fram vilja sínum og að fslendingur hefði verið að verki. Umfangsmikil rannsókn fór fram á vegum emb- ættis lögreglustjóra og voru fjöl- margir yfirheyrðir vegna máls- ins. Þota Flug- leiða tafðist vegna sprungu í framrúðu SPRUNGA kom í framglugga Boeing 727-200 þotu Flugleið^, þeg- ar hún var nýlega lögð af stað frá Keflavík til Osló og Stokkhólms í gærmorgun, að sögn Sæmundar Guðvinssonar, fréttafulltrúa Flug- leiða. Sæmundur sagði að engin hætta hefði verið á ferðum, en tekin hefði verið ákvörðun um að snúa vélinni aftur til Keflavíkur til að skipta um glugga, þar sem vara- gluggi var til í Keflavík. Var það gert og seinkaði vélinni um nokkra klukkutíma. Nýtt loðnuverð ákveðið og því sagt upp frá 2. marz nk. YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar- útvegsins hefur ákveðið lágmarks- verð á loðnu veiddri til bræðslu frá II. fehrúar sl. til loka vetrarloðnu- vertíðar 1984 og verður það 800 krónur fyrir hvert tonn, en til sam- anburðar var verðið ákveðið 900 krónur á hvert tonn 2. janúar sl., en því verði var sagt upp og hefur verið deilt um verðlagningu síðan. Lækk- Deilur bóksala og bókaforlaganna í Veröld: Endanlegt uppgjör og bæk- ur í umboðssölu innkallaðar BÓKAFORLÖGIN sem standa að bókaklúbbnum Veröld innkölluðu formlega í gær allar umboðssölu- bækur sínar frá bókaverslunum sem endursendu tilboðsbækur Veraldar í janúar. Óformlegar samningavið- ræður bóksala og aðstandenda Ver- aldar hafa átt sér stað undanfarna daga, en án árangurs. Verslanirnar sem endursendu bækurnar eru um 30, en alls eru útsölustaðir bóka um 110 á landinu. í skeyti sem bókafor- lögin fjögur, Vaka, Iðunn, Fjölvi og Setberg, sendu fyrrnefndum bók- sölum var enfremur óskað eftir end- anlegu uppgjöri. Deilur bóksala og forlaganna fjögurra eru til komnar vegna tuttugu bókartitla sem boðnir voru á tilboðsverði í fréttabréfi Veraldar sl. janúar. Telja bóksalar að forlögin fjögur hafi gerst brot- leg við samning bóksala og bóka- útgefenda frá 19. september sl. sem gildir til 1. júlí í ár. Segir þar m.a. að heimilt sé að hafa bækur til sölu á allt að 30% lægra verði en í verslunum. Segja bóksalar samninginn hafa verið brotinn því að forlögin bjóði bækur sínar á allt að 50% lægra verði. Aðstand- endur Veraldar telja hins vegar samningsbrotið hjá bóksölum, þar sem engin bókanna tuttugu hafi verið boðin á afslætti yfir 30%. Bóksalar hafi heimild til að taka úr sölu bækur sem Veröld býður félagsmönnum sínum á allt að 30% afslætti meðan á tilboðinu stendur, en engin heimild sé til að taka þær alfarið úr söiu. Bóka- titlarnir sem nú hafa verið inn- kallaðir skipta nokkrum hundruð- um. unin er um 11,1%. Verðið er miðað við 8% fituinni- hald og 16% fitufrítt þurrefni. Verðið breytist um 65,00 krónur til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem fituinnihaldið breytist frá viðmiðun og hlut- fallslega fyrir hvert 0,1%. Fitu- frádráttur reiknast þó ekki, þegar fituinnihald fer niður fyrir 3%. Verðið breytist um 75,00 krónur til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem þurrefnismagn breytist frá viðmiðun og hlut- fallslega fyrir hvert 0,1%. Auk framangreinds verðs greiði allir kaupendur 18,00 krónur fyrir hvert tonn í loðnuflutningasjóð. Ennfremur greiði þær verk- smiðjur, sem loðna er flutt til með styrkgreiðslu úr loðnuflutninga- sjóði 36,00 krónur fyrir hvert tonn í loðnuflutningasjóð. Til viðbótar þessum greiðslum greiðist stofn- fjársjóðsframlag og kostnaðar- hlutur útgerðar samkvæmt lögum, sem einnig renni í loðnuflutn- ingasjóð. Jafnframt greiði kaup- endur framlag til rekstrar Loðnu- nefndar, 2,00 krónur fyrir hvert tonn. Lágmarksverð á úrgangsloðnu til bræðslu frá frystihúsum skal vera 87,00 krónum lægra fyrir hvert tonn en að ofan greinir og ákvarðast á sama hátt fyrir hvern farm samkvæmt teknum sýnum úr veiðiskipi. Verðið er uppsegjanlegt frá og með 2. marz 1984 með fimm daga fyrirvara. Að þessu sinni var verð- ið ákveðið af oddamanni nefndar- innar, Bolla Þór Bollasyni og full- trúum seljenda, Ágústi Einarssyni og Ingólfi Stefánssyni gegn at- kvæðum fulltrúa kaupenda, þeirra Guðmundar Kr. Jónssonar og Jóns Reynis Magnússonar. Fulltrúar kaupenda gerðu sér- staka grein fyrir atkvæði sínu: „Það hráefnisverð, sem nú hefur verið ákveðið er langt frá öllum raunveruleika miðað við ríkjandi markaðsaðstæður sem Þjóðhags- stofnun eru fullkunnar. Sýnilegt er að vinnslutekjurnar nægja hvergi nærri fyrir beinum útlögð- um kostnaði. Afleiðingin hlýtur að verða sú að verksmiðjurnar dragi stórlega úr móttöku á loðnu til bræðslu og/eða loki með öllu.“ Fulltrúar kaupenda hafa þegar sagt upp loðnuverðinu frá og með 2. marz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.