Morgunblaðið - 25.02.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
39
fclk í
fréttum
Hefur Larry Hagman fallið fyrir Victoriu Principal? Þannig er spurt í evrópskum
blöðum.
Larry og Victoria
í leynilegu ástarævintýri?
+ Að tjaldabaki í „Dallas" logar
nú allt af afbrýðisemi og brostn-
um vonum og hjónaskilnaður ligg-
ur í lofti ef marka má fréttirnar.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma er ástarævintýri þeirra
Victoriu Principal og læknisins
Harry Glassmans nú lokið og
segja sumir, að Victoria hafi leit-
að sér huggunar í raunum sínum
hjá Larry Hagman. I fyrstunni
bara vegna þess, að þau eru góðir
vinir, en að síðan hafi sambandið
á milli þeirra orðið annað og
meira. í þessu sambandi er bent á,
að þau Larry og Victoria sjást nú
oft tvö ein saman á ákveðnu veit-
ingahúsi í New York og hafa þar
stöðugt frátekið borð að sögn eig-
andans. Þau kyssast líka án þess
að fara í felur með það og fara
jafnan ein af veitingahúsinu í bíl
Larrys.
Ekki eru allir á því, að mikil
alvara sé á ferðum þótt þau Larry
og Victoria hagi sér dálítið grun-
Victoria Princip- Larry Hagman
al og Harry með Maj, hinni
Glassman ætl- sænsku eigin-
uðu að gifta sig konu sinni.
en börnin hans
sögðu nei.
samlega og benda á það, að Holly-
wood-leikarar verði stundum að
gera fleira en gott þykir til að
detta ekki út úr sviðsljósinu.
Svona sögur auka líka vinsældir
þáttarins og svo vill til að Dallas
er nú aftur kominn í fyrsta sætið
vestra og er búinn að skjóta „Doll-
ars“ ref fyrir rass.
Larry Hagman hefur verið
hamingjusamlega kvæntur sömu
konunni i fjöldamörg ár, hinni
sænskættuðu Maj, og saman eiga
þau næstum uppkomin börn.
Caroline með Eddie Schlossberg
fyrir einu ári og Caroline nú.
Er Caroline búin
aö missa stjórn
á megruninni?
+ Hvað hefur komið fyrir Caroline
Kennedy? Er hún haldin megrun-
arsjúkleikanum svokallaða, sem staf-
ar af því, að fólk neitar sér svo lengi
um mat að það getur loksins ekki
haldið honum niðri? Sumir halda það
og benda því til sönnunar á myndir
af henni, sem voru teknar með árs
millibili. Á þeirri fyrri er hún vel í
holdum en eins og tálguð spýta á
hinni.
Caroline var alltaf heldur feit sem
barn og unglingur og móðir hennar,
Jackie, reyndi oft að fá hana til að
grenna sig. Nú hefur henni svo sann-
arlega tekist það en mörgum finnst
það fullmikið af því góða á jafn stutt-
um tíma. Caroline er þó á öðru máli:
„Ég var of feit sem unglingur en ég
vissi alltaf, að ég grenntist einn góð-
an veðurdag. Það gerðist líka þegar
ég hitti Eddie.“ Þá átti Caroline við
Eddie Schlossberg, unnusta sinn,
sem hefur haft þessi góðu áhrif á
Caroline.