Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
5
Meðfylgjandi mynd er frá undirritun samningsins. Davíð Oddsson, borgar-
stjóri og séra George, fulltrúi kaþólska biskupsins á íslandi, staðfesta samn-
inginn. Á bakvið þá eru frá vinstri: Björn Friðfinnsson, framkvæmdastjóri
lögfræði- og stjórnsýsludeildar borgarinnar, Logi Guðbrandsson, lögfræði-
legur ráðunautur kaþólska biskupsins og Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri.
Borgin fær yfirráð yfir hluta Landakotstúns:
Skrúdgarður verður
á austanverðu túninu
8AMNINGUR á milli borgarinnar og
kaþólska biskupsins á íslandi um
stærstan hluta Landakotstúns, var
staðfestur sl. miðvikudag, en samning-
inn staðfestu Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, fyrir hönd borgarinnar og séra
George, fyrir hönd biskupsins. Samn-
ingurinn felur m.a. í sér að ræktaður
verður skrúðgarður á túninu.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Hafliða
Jónssyni, garðyrkjustjóra Reykja-
víkurborgar, var gerður samningur á
milli kaþólsku kirkjunnar og borgar-
innar árið 1978, en hann var nú stað-
festur. Fær borgin full afnot af hluta
túnsins og kemur upp skrúðgarði
austan kirkjunnar, en skipulag
garðsins hefur verið gert í samráði
við biskupsembættið.
Sá hluti sem borgin hefur af tún-
inu, miðast við miðjar kirkjudyr og
til norðurs og það svæði sem er aust-
an þeirrar línu er í umsjá borgarinn-
ar.
Að sögn Hafiiða felst það m.a. í
skipuiaginu að bílastæði verður við
Túngötu fyrir 28 bíla. Þá verða við
Túngötu gróðurker og gróðurbeð
meðfram Hólavallagötu og garður
verður steyptur í ióðarlínu, en ofan á
honum verður gróður. Þá verður
hellulögn yfir túnið á milli Túngötu
og Hávaliagötu og einnig frá Hóla-
vallagötu. Loks verða í garðinum
setbekkir, trjágróður og göngustíg-
ar, sem verða upplýstir, og leiksvæði
verður í garðinum.
Áformað er að framkvæmdum
ljúki hausið 1986.
„Ráðstefnan fyrst og
fremst fyrir foreldra“
„Vímuefnaráðstefnan er fyrst og
fremst haldin í því skyni að fræða
almenning um fikniefnavandann
sem við köllum „fjölskyldu-
vandamál". Það er til að mynda
ekki hægt að hjálpa ungum krökk-
um sem eiga við slík vandamál að
stríða nema aðstoð fjölskyldna
þeirra komi til,“ sagði Hendrik
Berndsen, formaður SÁÁ í samtali
við Mbl. SÁÁ, landlæknisembætt-
ið og Áfengisvarnanefnd Reykja-
víkur halda í dag ráðstefnu um
vímugjafa í Norræna húsinu kl.
13.30.
„Erindin sem verða flutt á
ráðstefnunni eru öll stíluð upp á
fjölskyldur og ég hvet eindregið
alla aðstandendur barna og ungl-
inga, foreldra og kennara til að
mæta. Þá á ég ekki einungis við
þá sem hafa kynni af vandamál-
— segir Hendrik
Berndsen, formaöur
SÁÁ, um fíkniefna-
ráöstefnu í Nor-
ræna húsinu í dag
inu. Ráðstefnan er ekki síður ætl-
uð hinum sem aðeins þekkja það
af afspurn. Enginn veit hvenær
vímugjafavandamál getur sprott-
ið upp í eigin umhverfi og stað-
reyndin er sú að foreldrar eru oft
tnjög grandaiausir fyrir vanda-
málinu. Þá ber að gæta þess að í
kringum einn fíkniefnaneytanda
eru nánir aðstandendur og
vandamál hans kostar ekki síður
andleg veikindi þessa fólks. Oft
bregst fjölskyldan rangt við
vandamálinu, einfaldlega vegna
þess að fólk hefur enga fræðslu
fengið um það. Og þó fjölskyldu-
tengsl séu oft meira eða minna
brostin hjá unglingum sem eiga
við fíkniefnavandamál að striða
þá þurfa þeir á hjálp aðstandenda
að halda ef bati á nást," sagði
Hendrik.
SÁÁ og Áfengisvarnaráð munu
síðan, í framhaldi af ráð-
stefnunni halda kvöldnámskeið
fyrir foreldra, innan foreldrafé-
laga skólanna. Kvaðst Hendrik
vona að hægt yrði að koma á fót
öflugri „foreldrahreyfingu" sem
ynni gegn fíkniefnanotkun ung-
menna. Sagði hann námskeið sem
haldin hefðu verið fyrir aðstand-
endur vímugjafanotenda hafa
verið fullskipuð til þessa.
Kristinn Sigmundsson
„Úr tónlist-
arlífinu“
EINS og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu, hefur Kristinn
Sigmundsson tekið við umsjón
þáttarins „Úr tónlistarhTinu" af
Margréti Heinreksdóttur. Birtist
fyrsti þáttur Kristins, sem er viðtal
við Jón Ásgeirsson, tónskáld, á
bls. 14 í blaðinu í dag.
Kristinn Sigmundsson er líf-
fræðingur að mennt. Hann hefur
starfað mikið að söngmálum og
helgað sig tónlistarmálum ein-
göngu sl. ár. Hann lærði söng í
Vínarborg og er landsþekktur
söngvari.
FALLEGUR
FISLÉTTUR
FÍLSTERKUR
FRA MTÍÐA RBÍLL
1929
i
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4. Kópavogi. Símar 77200 - 77202
1984
virðulegur
sprettfiarður
þægilegur
spameytinn