Morgunblaðið - 25.02.1984, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
9
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 232. þáttur
Nú skal reynt að leggja
nokkuð út af bréfi Haralds
Guðnasonar í Vestmannaeyj-
um, því sem birtist í síðasta
þætti. Skal þá fyrst minnst á
orðtakið að leika á als oddi, en
það hafði Haraldur séð víðar
en á einum stað ritað með
tveimur 1-um (alls). Orðtakið
að leika á als oddi merkir að
vera í mjög góðu skapi eða
leika við hvern sinn fingur.
Sumir hafa haldið að gleðin
væri svo mikil í þessu sam-
bandi að menn gætu leikið á
oddinum á al, en prófessor
Halldór Halldórsson hefur í
doktorsritgerð sinni um is-
lensk orðtök sýnt fram á að
þetta er alþýðuskýring, enda
alurinn erfiður leikstaður.
Mætti fimi leikenda mikil, ef
þeir fótuðu sig á alsoddi.
í Hrólfs sögu kraka segir um
menn nokkra, að „þeir sofna
eptir þat ok vakna við, að gnýr
svá mikill er úti at heyra, at
undir allt tekr, ok skjálfa þótti
húsit, sem þeir lágu í, svá sem
alsolla léki“. (Auðkennt hér.)
Ýmiss konar munur er í hand-
ritum, sumstaðar stendur
„sem á solli léki“ og annar-
staðar „lék sem á þræði".
Halldór Halldórsson heldur
að leika á als oddi sé alþýðu-
skýring fyrir að leika alsolla
(alsolli). Væri þetta lýsingar-
orð í veikri beygingu. Hann
gerir ráð fyrir að til hafi verið
sterka beygingarmyndin sollr
(kk.et.) og hafi þetta lýsingar-
orð merkt órólegur, á iði, á
hreyfingu. Síðan hafi menn
með forskeytinu al- myndað al-
solla, svipað og aldauða af
dauður. Síðan segir Halldór
orðrétt:
„Alsolli ætti þá að hafa
merkt „á mikilli hreyfingu", og
merking orðtaksins, sú er fram
kemur í Hrólfs sögu, er þannig
upprunaleg. En hreyfing, fjör
og þróttur einkenna gleðina,
svo að merkingarþróun orð-
taksins er mjög eðlileg.
Orðið alsolli (alsolla) hefir af
einhverjum sökum, sem nú eru
engin tök á að vita um, týnzt
nema í þessu eina sambandi.
Ef til vill hefir orðið aldrei
verið algengt. Mönnum kemur
það því ókunnuglega fyrir
sjónir, og þeir taka að skýra
það fyrir sér. Eftir að 11 hefir
breytzt í dl... fer alolli og als
oddi að hljóma líkt, og þá verð-
ur framan greind skýringartil-
raun til og ber að lokum sigur
af hólmi."
Ljóst er þá af þessu að rit-
hátturinn alls á hér engan veg-
inn við, nema þá að við gerum
ráð fyrir enn nýrri alþýðu-
skýringu: Menn verða svo glað-
ir að þeir geta leikið sér á
oddinum á öllu, hverju sem er!
Okkur Harald greinir ekki á
í neinu sem máli skiptir. Ég er
alveg sammála honum um það
sem hann segir um „símamál"
og „þingorð". Og um stjórn og
stjórnun vísa ég, máli okkar
Haralds til stuðnings, í þátt
sem Erlingur félagi minn Sig-
urðarson flutti ekki fyrir löngu
í Daglegu máli.
Um forskeytið hund- er
stundum bágt að vita hvort
það er upphaflega dregið af
hundur eða hundrað. Ég held
t.d. að hundgamall hafi upphaf-
lega merkt svo sem hundrað
ára, en ekki gamall eins og
hundur. Fjölfróðir jötnar eru í
fomum bókum kallaðir hund-
vísir. Þannig getur hund- verið
áhersluforskeyti í hundleiðin-
legur, það þarf ekki að merkja
„leiðinlegur eins og hundur",
enda er smekkur manna jafn-
misjafn í því efni og skepnurn-
ar sjálfar. Sjálfum finnst mér
hrútíeiðinlegur hið versta orð,
enda mikill aðdáandi sauðfjár.
Ætli það sé ekki til komið sem
einhvers konar eftirlíking eða
hliðstæða við hundleiðinlegur,
í munni þeirra sem telja víst
að það orð sé dregið af hundur.
Aftur á móti þóknast mér orð-
ið kýrskýr, sem andyrði við
nautheimskur, enda þykja mér
kýr ekki skynlitlar skepnur.
Að sjálfsögðu met ég mikils
lofkvæði Guðmundar Inga
Kristjánssonar á Kirkjubóli
um hrútana.
★
Eins og endranær gangast
vísur í munnlegri geymd, og er
stundum vant að finna upp-
runalegan texta. Mikið lesmál
varð til, þegar ég birti hér í
þáttunum vísu eftir Sigur-
björn frá Fótaskinni, tekna
eftir munnlegri geymd, en gáði
ekki í prentaðan texta frá höf-
undarins hendi. Slíkur texti er
heldur ekki ævinlega til.
Nú bar svo til um daginn að
ég birti vísu eftir Steingrím
Baldvinsson í Nesi í Aðaldal,
eins og Stefán Þorláksson
samkennari minn kenndi mér
hana, en hann er landskunnur
vísnasjór og kvæðakunnandi:
„Stundar af öllu efli“, o.s.frv.
Af þessu tilefni fékk ég eftir-
farandi bréf frá Daníel Daní-
elssyni á Selfossi og þakka
honum hið besta fyrir:
„Heill og sæll.
Ég gríp gjarnan niður í þín-
um ágætu þáttum um íslenzkt
mál í Mbl. Sé tími knappur
verð ég stundum að láta mér
nægja að renna augunum yfir
það bundið mál, sem þar er að
finna.
í 227. þætti þ. 21. janúar ’84
birtir þú vísu eftir minn elsku-
legan vin, Steingrím í Nesi.
Fjarri fer því, að vísunni sé
misþyrmt í þætti þínum. Mér
datt þó í hug, að þú kynnir að
hafa gaman af að heyra vísuna
eins og Steingrímur kenndi
mér hana, nýorta:
„Stundar af öllu efli
útvarpið málvöndun.
Breytir það skafli í skefli
svo skatnar fá um það grun,
að brátt verði hrafl að hrefli,
holan í kviðinn nefli,
allt sé að ganga af gefli —
— gfoest er sú nýsköpun."
FASTEIGIMAMIOLUIM
Sverrir Kristjánsson
Hús Verslunarinnar 6. hæö.
SWum. OuOm. OaM ÁgtetM. 70214.
Lðgm. Hafstuinn BatdvtiMaon hri.
OPIÐ I DAG 13—16
KVÍHOLT — HAFNARFIRÐi — SÉRHÆÐ
Sérstaklega falleg 140 fm efrl sérhæö ásamt bflskúr á mjög
góöum útsýnisstað. Hæðin skiptist i: anddyri, gesta-wc, skála,
eldhús, þvottaherb. og geymslu, stofu og boröstofu. Á sérgangi
eru 3 svefnherb. og baö (mögul. á fjóröa herb.). Ibúöin er mjög
vönduð og vel innréttuð. Lúxusíbúö. Ákv. sala.
2ja herb. íbúðir
HLÍÐARVEGUR KÓP.
Góö 65 fm ibúö á jaröhæö í
tvíbýli. Verð 1250 þús. Ákv.
Sdld
BÓLSTAÐARHLÍÐ. Góö
65 fm íbúö í kjallara. Nýtt gler
og gluggapóstar. Ákv. sala.
Verö 1250 þús.
3ja herb. íbúðir
HÁAKINN. Sérstaklega fal-
leg efri hæö (portbyggt ris).
Ibúöin er öll nýstandsett. Mikiö
útsýni. Bílskúrsréttur.
4ra herb. íbúðir
LYNGMÓAR. Ca. 100 fm
íbúö á 2. hæö ásamt bílskúr.
EGILSGATA. Ca. 100 fm
íbúö á 1. hæö. Góð íbúö ásamt
bílskúr. Ákv. sala.
KLEPPSVEGUR. Ca 110
fm íbúö á 1. hæö ásamt auka-
herb. í risi. Verö 1650 þús.
ÁLFTAHÓLAR. Ca. 120 fm
falleg íbúö á 6. hæö ásamt góö-
um bílskúr. Verö 2 millj.
MEISTARAVELLIR.
Skemmtileg ca. 120 fm íbúö á
4. hæð. öll mjög rúmgóö.
Skemmtileg eign. Ákv. sala.
í smíðum
BREIÐHOLT. Ca. 140 fm
raöhús tllb. undir tréverk ásamt
bilskúr.
Ákv. sala. Laus strax.
FASTEIGNAEIGENDUR
Okkur vantar allar stæröir og geröir fasteigna á söluskrá. Sér-
staklega eftirtaldar eignir: Einbýlishús, gott vandaö hús á verö-
bilinu 5—7 millj., æskilegt meö 5—6 svefnherb. Hólahverfi
4ra—5 herb. íbúö helst meö 4 svefnherb. og bílskúr, þó ekki
skilyrði.
Skordýr matvæli
framtíðarinnar?
Mexfkóborg, 21. febrúar. AP.
VÍSINDAMENN við Háskólann í
Mexíkóborg hafa hvatt til þess að
menn íhugi það í fullri alvöru að
viðurkenna skordýr sem efni í mat-
væli, en fram til þessa hefur slíkt
þótt heldur ógeðfelld tilhugsun.
Á það er bent að skordýrakjöt
sé ríkt af próteini og fjörefnum, og
í bók sem einn vísindamannanna,
Julieta Ramos, hefur nýlega sent
frá sér nefnir hún fleiri en eitt
hundrað skordýrategundir sem
gætu komið mannfólki í hungruð-
um heimi í góðar þarfir.
Rússaáróður
í amerísku
háskólablaði
Eaxl LuisÍDg, Mkhigan, 21. febrúar. AP.
MIKLAR deilur hafa spunnist af því
í Ríkisháskólanum í Michigan að
stúdentablaðið endurbirti nýverið
leiðara úr sovésku dagblöðunum
Pravda og Izvestia.
Einn stúdentanna sagðist ekki
vilja að skráningargjaldið sem
hann greiddi rynni til að fjár-
magna sovéskan áróður. Hann
gæti lesið lygar Sovétmanna ann-
ars staðar án þess að borga sjálfur
fyrir það.
Ritstjóri blaðsins sagði að í sov-
ésku leiðurunum kæmu fram sjón-
armið sem ekki sæjust oft í banda-
rískum blöðum og væri fjölbreytni
skoðana af hinu góða. í öðrum
leiðaranna var m.a. farið fögrum
orðum um innrás Sovétmanna í
Afganistan.
83000
Einbýlishús við
Sunnubraut Kóp.
[C ■J. » .n . X.J..4 I i
I ~l
□a*
t---------1
í.. ■ i
-JU.V.
-lAi-
-W.iTl
—
1«, —lu—4 aii
'/rninn. ^
U( }'
j ■; wwm
h 'uttmt
m - Ui —-í 4
h * r fmSUl
w
j
n
tuu
HH l
Vandað einbýlishús á einum grunni stærð grunn-
flatar 215 fm. 30 fm bílskúr — útisundlaug —
samþykkt bátaskýli. Teikningar á skrifstofunni.
Einkasala.
FASTEICNAÚRVALIÐl
10 ARA1973-1983
SilfurteigM
Sötustjóri: Auöunn Hermannsson. Kristján Eiriksson hæstaréttarlögmaöur.
SIMAR 21150-21370
S01USTJ LARUS Þ VA10IMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HOL
Tll sölu og sýnis auk annarra eigna:
Úrvals íbúðir í smíðum við Ofanleiti
Rúmgóöar 2ja og 3ja herb. íbúöir. Frágengnar undir tréverk í ágúst
1985. Fullgerö sameign. Bilskúrar geta fylgt. Byggjandi Húni tf.
Gott einbýlishús í Garðabæ
alls um 170 fm að meðtöldum innb. bílskúr undir svefnálmu. Húsiö er
steinhús um 20 ára. Óvenju góö innrétting. Ræktuö lóö. Verð aöeins 3,6
millj. gegn góöri útborgun.
Rúmgóð glæsileg íbúð við Ljósheima
4ra herb. á 6. hæð um 115 fm í háhýsi. Sérinng. Tvennar lyftur. Útsýni.
ibúöin er í enda, öll eins og ný.
í þriggja hæða blokk við Engihjalla
Rúmgóö 3ja herb. suöuríbúö um 90 fm á 2. hæö. Mikil og vönduö innr.
úr dekktri eik. Rúmg. suöursvalir. Fullgerö ágæt sameign. Mikið útsýni.
15 og 25 ára góö lán fylgja. Útb. aðeins kr. 900 þús.
3ja herb. íbúð á efri hæð við Álfhólsveg
um 75 fm. Nýleg velskipulögö. Sér hitaveita. Sér þvottahús. Bílskúr i
smiöum. Stórar svalir. Mikiö útsýni. Verð aðeins kr. 1450 þús. Góð
langtíma lán áhvflandi. Útb. aðeins kr. 800 þús.
2ja herb. íbúöir við:
Kríuhóla 4. hæó 65 fm í háhýsi. Ljós haröviöur. Útsýni.
Drápuhlíð í kj. um 75 fm. Samþykkt. Inng. sér. Hiti sér.
Hraunbæ á 2. hæö um 85 fm. Rúmg. svefnherb. Parket. Útsýni.
Sörlaskjól i kj. um 80 fm. Góö samþykkt. Eldhús endurbætt.
Barmahlíð rishæö um 75 fm. Rúmgóö svefnherb. Sérhiti. Kvistir.
Viðlagasjóðshús við Keilufell
með góðum innr. Vel frá gengiö. Með 5 herb. íbúð (4 svefnherb.) á haeð
og rishæö. Snyrting á báöum hæðum. Rúmgóöur bílskúr. Falleg frá-
gengin lóö.
Lítið einbýli í Mosfellssveit
Raöhús viö Grundartanga ein hæö um 85 fm með nýrri og glæsilegri 3ja
herb. ibúð. Parket á gólfum. Ljós viöarinnr. Stór sólverönd. Útb. aðeins
kr. 1 millj.
í Árbæjarhverfi óskast
góð 3ja—4ra herb. ibúö. Mjög mikil útborgun.
Á Seltjarnarnesi óskast
raðhús eða einbýlishús um 140—160 fm. Skipti möguleg á mjög góöri
sérhæö á Seltjarnarnesi.
í Garðabæ óskast
rúmgott einbýlishús með bílskúr. Fjérsterkur kaupandi.
Ennfremur óskast raðhús eða einbýlishús um 110—120 fm.
í Hafnarfirði óskast
Sérhæö 5—6 herb. með bílskúr. Skipti möguleg á góðu einbýlishúsi í
Hvömmunum í Kópavogi.
Að marggefnu tilefni
Aðvörun til viðskiptamanna okkar: Seljið ekki ef útb. er litil og/eða
mikiö skipt. Nema samtímis séu fest kaup á öóru húsnæói.
Opið í dag laugardag kl. 1—5.
Lokað á morgun sunnudag.
ALMENNA
FASTEI6NASAUH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370