Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
Vöhindur hefur verið til húsa á horni Klapparstígs og Skúlagötu allar götur
síðan 1905.
_ -r ». ; _ • <
Timbursala hefur verið stór hluti starfsemi Völundar í gegnum tíðina.
Úr framleiðsludeild í Skeifunni 19.
Sýningarsalur Völundar í Skeifunni hefur verið stækkaður til muna og er
hugmyndin að sem mest af framleiðsluvörum fyrirtækisins sé þar uppsett.
F.v. Gestur Geirsson, sölumaður, Þóra Birna Björnsdóttir, arkitekt, og Jón
Þór Hjaltason, verksmiðjustjóri.
Sveinn K. Sveinsson, framkvæmdastjóri.
Kjarni starfsmanna hefur unnið
áratugum saman hjá fyrirtækinu
og hefur verið okkur ómetanlegur
Timburverzlunin Völundur hf.
er 80 ára í dag, en stofnfundur
félagsins var haldinn 25. febrú-
ar 1904, að sögn Sveins K.
Sveinssonar, annars tveggja
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins. „Á stofnfundinum lögðu 40
hluthafar fram 300 krónur hver í
stofnfé, eða samtals 12.000
krónur. Flestir voru stofnendur
fyrirtækisins trésmiðir.“
„Fljótlega eftir stofnun Völ-
undar fékkst hentug lóð fyrir
starfsemi fyrirtækisins að
Klapparstíg 1. Fljótlega var
hafizt handa við að reisa
timburverksmiðju fyrirtækis-
ins og var hún tekin í notkun
7. nóvember 1905. Verksmiðju-
stjóri var ráðinn danskur
maður, Rostgard að nafni, en
fyrsti framkvæmdastjóri vari
ráðinn Magnús H. Blöndal,"
sagði Sveinn K. Sveinsson
ennfremur.
„Auk timburverzlunarinnar
var tekin ákvörðun um rekst-
ur á tunnuverksmiðju og hús-
gagnaverksmiðju. Fyrirtækið
haslaði sér fljótlega völl sem
verktakafyrirtæki og byggði
mörg af þekktustu húsum
landsins og ber þar hæst
Safnahúsið við Hverfisgötu.
Smám saman breyttist starf-
semin í það form, sem hún er í
í dag,“ sagði Sveinn K. Sveins-
son.
„það má segja, að starfsemi
okkar sé tvíþætt í megindrátt-
um í dag. Annars vegar er það
innflutningur á timbri og öðr-
— segir Sveinn
K. Sveinsson,
framkvæmda-
stjóri Völundar
um byggingarvörum og hins
vegar er það rekstur verk-
smiðju, sem framleiðir ýmsar
tegundir hurða, glugga og
fleiri tréhluta.
Við höfum verið með sér-
stakt hagræðingarverkefni í
gangi í verksmiðju fyrirtækis-
ins í Skeifunni 19 og það hefur
gefið mjög góða raun. Skilað
sér í mun meiri framleiðni og
framleiðslu," sagði Sveinn K.
Sveinsson.
Aðspurður um aðstöðu
fyrirtækisins í dag sagði
Sveinn, að verulega væri að
fyrirtækinu þrengt. Það hefði
í raun sprengt utan af sér
starfsemina. „Borgarstjórn
hefur ákveðið, að íbúðabyggð
muni rísa á því svæði, sem við
höfum til umráða við Klapp-
arstíg og Skúlagötu. Mun
starfsemi fyrirtækisins því
flytjast til þeirra lóða, sem
borgaryfirvöld hafa úthlutað
fyrirtækinu, annars vegar í
Skeifunni, þar sem trésmiðja
fyrirtækisins hefur þegar
starfað í nokkur ár, og hins
vegar að lóð á horni Gufunes-
vegar og Vesturlandsvegar.
Þegar þessar breytingar verða
um garð gengnar reikna ég
með, að aðstaða okkar verði
komin í gott horf,“ sagði
Sveinn K. Sveinsson.
Sveinn K. Sveinsson sagði
það hafa verið happ fyrirtæk-
isins í gegnum tíðina hversu
gott starfsfólk það hefði alla
tíð haft. „Við höfum haft
kjarna starfsmanna, sem hef-
ur unnið hjá okkur áratugum
saman, sem hefur verið fyrir-
tækinu ómetanlegt."
Um framtíðina sagði Sveinn
K. Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Völundar: „Framtíðin er
björt að mínu mati. Það hafa
átt sér stað miklar breytingar
á undanförnum mánuðum,
sem hafa komið mjög vel út.
Hagræðingarverkefni hefur
verið í gangi síðustu mánuði í
verksmiðju fyrirtækisins í
Skeifunni og það mun halda
áfram, enda hefur það þegar
skilað umtalsverðum árangri.
Þá er vert að geta um tölvu-
væðingu fyrirtækisins, sem
átti sér stað um síðustu ára-
mót. Segja má, að öll starf-
semin tengist tölvunni á einn
eða annan hátt, nema hvað
framleiðslubókhaldið kemur
ekki inn fyrr en í vor.“
Eins og áður sagði er Sveinn
K. Sveinsson annar tveggja
framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins, en auk hans veitir bróðir
hans, Leifur Sveinsson, Völ-
undi forstöðu.
Leifur Sveinsson, framkvæmdastjóri.