Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
17
Starfsemin hefur tekið
ótrúlegum breytingum
samfara tölvuvæðingu
— segir Sigurður Hall, skrifstofustjóri
„Starfsemi fyrirtækisins hefur í
raun tekið ótrúlegum breytingum,
samfara tölvuvæðingu þess, en um
síðustu áramót tókum við nýtt
tölvukerfi í notkun, sem hefur
reynzt ótrúlega vel þennan stutta
tírna," sagði Sigurður Hall,
skrifstofustjóri hjá Völundi, í
samtali við Morgunblaðið, en
hann sá um undirbúningsvinnu og
uppsetningu tölvukerfis fyrirtæk-
isins.
ALLT SÍÐASTA ÁR
NOTAÐ TIL
UNDIRBÚNINGS
„Óhætt er að fullyrða, að ekki
hafi verið anað að neinu við tölvu-
væðinguna hér. Við notuðum allt
síðasta ár til að komast að niður-
stöðu um þarfir okkar hvað tölvu-
vinnslu varðar og síðan fór fram
mjög ítarleg könnun á þeim tölvu-
kerfum, sem í boði voru á markað-
num. Það er í raun mun meira en
að segja það, að tölvuvæða stórt
fyrirtæki. óneitanlega hefur það
tegundir á stundinni, en áður var
ástandið þannig, að aðeins fáir af-
greiðslumenn höfðu í raun ein-
hverja mynd af því hvernig lager-
inn stóð frá degi til dags. Þetta er
auðvitað gríðarlegur munur fyrir
okkur sjálfa og viðskiptavini
fyrirtækisins. Hingað hringja
menn og fá svar samstundis um
allar vörur fyrirtækisins."
GERIR OKKUR KLEIFT
AÐ HALDA LAGER
AF EÐLILEGRI STÆRÐ
„Þetta bætta eftirlit með vöru-
birgðum fyrirtækisins gerir okkur
kleift að halda lager af eðlilegri
stærð, ef svo má að orði komast.
Hann þarf ekki að vera of stór til
þess að tryggja, að vörur séu alltaf
til á lager og ennfremur er hægt
að sjá fyrir breytingar í tíma og
gera innkaup, þegar þurfa þykir.
Virkara eftirlit með vörubirgðum
kemur því til með að lækka fjár-
magnskostnað okkar nokkuð, sem
er ekki lítið hagræði i atvinnu-
Sigurður Hall, skrifstofustjóri.
\
viljað brenna við hjá fyrirtækjum,
að þau hafa alls ekki sýnt nægjan-
lega fyrirhyggju, þegar þau hafa
keypt tölvur. Ýmist hafa menn
keypt of litlar tölvur eða of stór-
ar,“ sagði Sigurður Hall enn-
fremur.
ÖLL STARFSEMI VÖL-
UNDAR VERÐUR TÖLVU-
VÆDD Á ÞESSU ÁRI
„Við ákváðum á sínum tíma, að
skynsamlegt væri að byrja með
því, að taka inn viðskiptamanna-
bókhald, fjárhagsbókhald, lager-
bókhald og launabókhald. Síðan
munum við bæta framleiðslukerfi
inn í síðar á þessu ári, þannig að
segja má að öll starfsemi fyrir-
tækisins verði orðin tölvuvædd
þegar á þessu fyrsta ári sem við
notum þessi verkfæri hér. Það má
kannski segja í gamni og alvöru,
að við séum ungir í anda, þótt
fyrirtækið sé nú að ná þeim merka
áfanga að hafa starfað í 80 ár,“
sagði Sigurður Hall.
GÍFURLEGAR BREYT-
INGAR SAMFARA TÖLVU-
VÆÐINGU
Sigurður Hall sagði aðspurður,
að gífurlegar breytingar væru því
samfara að tölvuvæða fyrirtækið.
„Við sjáum stöðuna á hinum ýmsu
þáttum starfseminnar nánast frá
degi til dags. Allt eftirlit er mjög
auðvelt, bæði hvað varðar birgðir
fyrirtækisins og fjárhag frá degi
til dags. Þetta kemur síðan út sem
aukin og bætt þjónusta við við-
skiptamenn fyrirtækisins. í dag er
hægt að svara fyrirspurnum við-
skiptamanna um tilteknar vöru-
rekstri við okkar aðstæður hér á
landi," sagði Sigurður Hall.
EKKI BREYTING Á
FJÖLDA STARFSMANNA
Sigurður Hall sagði aðspurður,
að tölvuvæðing Völundar myndi
ekki hafa í för með sér fækkun á
starfsliði. „Hagræðið kemur hins
vegar fram á öðrum sviðum, eins
og ég lýsti reyndar að hluta hér að
framan. Við byggjum kerfið þann-
ig upp, að móðurtölvan, sem er af
Digital-gerð, er staðsett hér í
skrifstofubyggingu fyrirtækisins.
Síðan erum við með 11 útstöðvar í
dag, en þær verða 16, þegar allt
kerfið er komið í gagnið með vor-
inu. Ef okkur á síðari stigum sýn-
ist heppilegt að stækka eða víkka
út kerfið, er það hægur vandi. Við
getum þrefaldað vinnslugetu kerf-
isins án vandkvæða."
ALMENN BETRI
ÞJÓNUSTA OG
BÆTTUR REKSTUR
Að endingu sagði Sigurður Hall,
skrifstofustjóri, að tölvuvæðingin
hefði almennt bætta þjónustu í för
með sér. „Öruggari og betri upp-
lýsingar liggja fyrir á hverjam
tíma fyrir viðskiptamenn fyrir-
tækisins og okkur sjálfa. Við-
skiptavinir fyrirtækisins fá nú
sent mánaðarlegt yfirlit um stöðu
sína, þar sem hlutirnir eru ná-
kvæmlega skýrðir. Við getum mun
betur fylgzt með rekstrinum frá
degi til dags og þótt ekki séu liðnir
nema tæplega tveir mánuðir frá
því að við tókum tölvukerfið í
gagnið, er það þegar farið að skila
sér í bættum rekstri."
Jón Þór Hjaltason, verksmiðjustjóri.
Sérstakt hagræöingarverkefni
í gangi í framleiösludeild:
Hefur leitt til veru-
lega aukinnar fram-
leiðni fyrirtækisins
— segir Jón Þór Hjaltason,
yerksmiðjustjóri
„HJÁ OKKUR hefur verið hagræðingarverkefni í gangi
frá síðastliðnu vori, en það hefur leitt til verulegrar
aukningar á framleiðni fyrirtækisins," sagi Jón Þór
Hjaltason, verksmiðjustjóri Völundar, í samtali við
Morgunblaðið.
„Samfara þessu hagræðingarverkefni hefur verið
fjárfest í nýjum og afkastameiri vélum, sem hafa
gerbreytt framleiðsluferlinu. Allt þetta hefur leitt
til um 30—35% framleiðsluaukningar hjá fyrirtæk-
inu á tiltölulega skömmum tíma,“ sagði Jón Þór
Hjaltason ennfremur.
„Eitt af stærri vandamálum okkar er sú stað-
reynd, að staðla varðandi stærðir á gluggum og
stöðluð hurðaop vantar tilfinnanlega, sem hefur leitt
til þess, að fjöldaframleiðsla á lager hefur verið mun
minni en æskilegt væri, en slík framleiðsla skilar sér
undantekningalaust í lægra verði til viðskipta-
manna.
Þrátt fyrir þetta hefur lagerframleiðsla hjá Völ-
undi stóraukist á síðustu mánuðum. Það hefur lækk-
að vöruverð umtalsvert, auk þess að stytta af-
greiðslutímann mikið. Sem dæmi má nefna, að af-
greiðslufrestur á innihurðum hefur verið um fjórar
vikur. Ef fólk kaupir hurðir af lager er afgreiðslu-
tíminn innan við ein vika, sem er mjög viðunandi,"
sagði Jón Þór Hjaltason.
„Ég tel að þessi þættir samanlagðir hafi gert Völ-
und mjög sterkan í þeirri hörðu samkeppni sem
trésmíðaiðnaðurinn er í og ég geri ráð fyrir, að við
munum enn styrkja stöðu okkar í framtíðinni, sam-
fara aukinni hagræðingu, auk þess sem tölvuvæðing
fyrirtækisins er verulega til bóta,“ sagði Jón Þór
Hjaltason.
Jón Þór gat þess, að um síðustu áramót hefði
tölvuvæðing fyrirtækisins hafizt fyrir alvöru, en hún
hefði stórlagað allt upplýsingastreymi innan þess.
„Við gerum síðan ráð fyrir, að framleiðslubókhald
verði tekið inn með vorinu.
Þá er í gangi mikið átak í sölu- og markaðsmálum
og er stækkun verzlunarinnar í Skeifunni 19 einn
liðurinn í þeim aðgerðum. Þar er ætlunin að sýna
sem flestar framleiðsluvörur fyrirtækisins á sama
stað, en með aukinni þjónustu við viðskiptavini hef-
ur aukin sala fylgt í kjölfarið," sagði Jón Þór Hjalta-
son.
í samtalinu við Jón Þór Hjaltason kom fram, að
Völundur hefur um árabil bæði þurrkað og gagnvar-
ið timbur. „f Skeifunni 19 er afkastamikill þurrkofn,
einn sá fullkomnasti á Norðurlöndunum. Völundur
hefur gagnvarið timbur til utanhússklæðningar og
einnig gluggaefni frá því um 1960 og er þvi komin
með áratuga reynslu í að gagnverja tirnbur."
Jón Þor var beðinn að nefna helztu framleiðslu-
vörur fyrirtækisins. „það eru innihurðir, útihurðir,
gluggar, bílskúrshurðir, verksmiðjuhurðir, svala-
hurðir, ýmsar gerðir útveggjaklæðninga, loftklæðn-
ingar, veggklæðningar, viðarþiljur, skilrúmsefni svo
og vmsir frágangslistar. Ef ég á að nefna helztu
innflutningsvöFUr fyrirtækisins, þá eru þær móta-
viður, smíðaviður, krossviður, ápésaplötur, plast-
húðaðar spónaplötur, harðtex, Velux-þakgluggar,
parkett, sólbekkir, límtré, tjörutex-einangrun, þak-
pappi, Uno form-eldhúsinnréttingar, baðinnrétt-
ingar og fleira."
Um framtíðina sagði Jón Þór Hjaltason, verk-
smiðjustjóri Völundar: „Ég lít björtum augum á
framtíðina. Okkur hefur tekizt mjög vel upp f hag-
ræðingu okkar á síðustu mánuðum og ég sé ekki
annað, en að áframhald verði á því. Við höfum aukið
framleiðslu okkar og stefnum að enn frekari aukn-
ingu.“
Vöntun á íslenzkum
stöðlum gerir okkur
erfitt fyrir með fjölda-
framleiðslu á lager
— segir Ferdinand Hansen,
verkstjóri framleiðsludeildar
„ÞAÐ HAFA orðið verulegar breytingar á framleiðsl-
unni hjá okkur á síðustu misserum, sérstaklega á síð-
asta ári, en þá var sérstakt hagræðingarátak í gangi,“
sagði Ferdinand Hansen, verkstjóri í framleiðsludeild
Trésmiðjunnar Völundar, í samtali við Morgunblaðið.
Ferdinand sagði að undir hans stjórn í framleiðsl-
unni störfuðu 14 starfsmenn, en framleiðslunni er
skipt upp í tvö megin svið. Annars vegar er um að
ræða innihurðaframleiðslu og síðan útihurða- og
gluggaframleiðslu, auk framleiðslu á ýmiss konar
tréverki.
„Þær aðgerðir, sem framkvæmdar hafa verið til
hagræðis í framleiðslunni, hafa skilað sér framar
vonum og ég geri ráð fyrir, að þetta eigi ennþá eftir
að batna. Ekki sízt eftir að framleiðslubókhald verð-
ur tekið upp í framleiðslunni hjá okkur, en gert er
ráð fyrir, að það komi í gagnið með vorinu," sagði
Ferdinand.
Það kom fram í samtalinu við Ferdinand, að unnið
væri á einni vakt. „Við vinnum dagvinnu að viðbætt-
um einum tíma í eftirvinnu. Þetta fyrirkomulag hef-
ur gefizt ágætlega, en við hefjum vinnu hér á morgn-
ana klukkan 7.20 og unnið er til 16.30 á daginn.
Aðstaða fyrir starfsmenn er hér til fyrirmyndar
og andinn er mjög góður. Við höfum góða kaffistofu
og búningsklefum hefur verið komið upp, þannig að
aðstaða er mjög góð,“ sagði Ferdinand.
Það kom fram I samtalinu við Ferdinand, að hann
er menntaður trétæknir frá Danmörku og sagði
Ferdinand Hansen, verkstjóri framleiðsludeildar.
hann menntunina nýtast sér mjög vel í þessu starfi
sem verkstjóri.
„Eitt af vandamálum okkar er skortur á stöðlum
hér á landi. Það eru engir staðlar til um stærð og
gerð hurða og glugga. Það gerir það síðan að verk-
um, að erfitt er að fjöldaframleiða á lager, sem síðan
lækkar verðið til neytandans. Við höfum reyndar
tekið upp ákveðna fjöldaframleiðslu á hurðum, sem
hefur stytt afgreiðslufrestinn úr 4 vikum niður í
3—4 daga. Þar er fólki boðið upp á sex mismunandi
hurðir. Ef hurðaop eru með öðrum málum, verður
fólk að bíða í 4 vikur eftir afgreiðslu," sagði Ferdin-
and Hansen.
Það kom að sfðustu fram í samtalinu við Ferdin-
and Hansen, verkstjóra í framleiðsludeild trésmiðj-
unnar Völundar, að honum líkaði mjög vel að starfa
hjá fyrirtækinu, enda væri starfsandi mjög góður og
við áhugaverða hluti væri verið að fást.
Gefa Hringnum
100 þúsund kr.
f TILEFNI 80 ára afmælis Timburverzlunar-
innar Völundar og Kvefifélagsins Hringsins í
ár, tók stjórn Völundar ákvörðun uiíi 2ð gefa
Hringnum 100 þúsund krónur í Barnaspítala-
sjóð, sem stendur straum af kostnaði við
væntanlegan Barnaspítala Hringsins við
Landspítalann. Gjöfin var afhent á afmæli
Hringsins í janúar sl.