Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
Keramiknámskeið
verður haldið að Ingólfsstræti 18. Uppl. á vinnu-
stofu í síma 21981 eða í heimasíma 29734 og
35349.
Til sölu
jöröin Sveinungseyri, Gufudalshreppi, Austur-
Barðastrandarsýslu. Veiðiréttur í Múlaá og góðir
möguleikar til fiskiræktar.
Uppl. gefur Björgvin Þorsteinsson hdl., Lágmúla
7, sími 82622.
Bíll til sölu:
Range Rover ’80
Litur hvítur, ekinn aöeins 30 þús. km, lituö gler,
útvarp og segulband, teppalagöur, góð Michelin-
dekk, listar á hliðum. Mjög fallegur og vel meö
farinn bíll.
Tilboð merkt: „R — 1836“ leggist inn á augld. Mbl.
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins veröa til viðtals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12.
Er þar tekið viö hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum
og er öllum borgarbúum boðið aö notfæra sér viðtals-
tíma þessa.
Laugardaginn 25.
febrúar veröa til viötals
Magnús L. Sveinsson
og Vilhjálmur G. Vil-
hjálmsson.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir SVEIN SIGURÐSSON
Erling Norvik og Jo Benkow. Flokkurinn byggist á fólkinu, ekki bara þingstörfunum.
Söguleg formannsskipti
í norska Hægriflokknum
Hægriflokkurinn norski er 100 ára um þessar mundir og heldur upp á
afmæliö með sögulegum formannsskiptum. Jo Benkow, formaöur flokks-
ins og þingflokksins, hefur ákveðið að gefa ekki aftur kost á sér og á
landsfundi flokksins í ágúst nk. mun Erling Norvik, fyrrum formaður
flokksins, taka við embættinu á nýjan leik. Segja má, að Benkow sé
neyddur til að segja af sér, því að í nóvember sl. ákvað hann að vera aftur
í framboði, en dró sig til baka, þegar hann gerði sér grein fyrir sam-
blæstrinum gegn sér innan flokksins.
Jo Benkow tók við for-
mennskunni á landsfundi
Hægriflokksins í Skien árið 1980
og hefur jafnframt verið for-
maður þingflokksins. Benkow er
vel metinn í flokknum og hefur
ávallt unnið honum vel, en
flokksdeildunum finnst sem
hann hafi ekki sinnt þeim sem
skyldi, hann hafi einfaldlega
ekki haft tíma til að gegna báð-
um störfunum samtímis. Auk
þess ríkir mikil óánægja með
þær málamiðlanir, sem hafa ein-
kennt stjórnarsamstarfið og
þynnt út eða gert að engu mörg
helstu stefnumál Hægriflokks-
ins.
Benkow hefur talið sér það
skylt sem formanni að verja all-
ar málamiðlanirnar, en flestir
flokksmanna telja, að formaður-
inn eigi „bara“ að vera formaður
flokksins og ekki sjálfskipaður
talsmaður allrar ríkisstjórnar-
innar.
Erling Norvik á langan feril
innan Hægriflokksins og hóf sín
pólitisku afskipti fyrst árið 1948
þegar hann barðist fyrir kjöri
föður síns, sem líka hét Erling,
sem þingmanns fyrir Finn-
mörku. Faðir hans var kjörinn á
þing árið 1949 og sat í þrjú kjör-
tímabil, en þá tók sonurinn við
og var einnig á þingi í þrjú kjör-
timabil, frá 1961—73.
Norvik var varaformaður
þingflokksins í tvö ár en samt
virtust þingstörfin ekki eiga vel
við hann. Honum fannst hann
kafna innan um skjalabunkana í
Stórþinginu, í nefndarstörfum
og baktjaldamakkinu. Hans
staður var í flokksfélögunum þar
sem hann gat einbeitt sér að
starfinu sjálfu, skipulagningu
þess og stefnumótun. Árið 1970
varð Norvik varaformaður
Hægriflokksins og formaður
hans árið 1974.
Með formennsku Norviks
hófst mikið uppgangstímabil
fyrir Hægriflokkinn, sem jók
fylgi sitt í hverjum kosningun-
um á fætur öðrum, úr 25% þegar
Norvik tók við í 30% þegar hann
fór frá. Norvik var með eindæm-
um vinsæll formaður, alltaf
glaður og reifur, stefnufastur og
kunni um leið að tala við fólk á
því máli, sem það skildi og lík-
aði. Norvik tókst að vekja eldleg-
an áhuga meðal flokksmanna, en
Jo Benkow er hins vegar sakaður
um að hafa tekist að slökkva
hann. Það er fyrst og fremst
þess vegna sem flokksmennirnir
kalla nú aftur á Norvik.
Miklar vonir eru bundnar við
Norvik sem formann og e.t.v.
meiri en eðlilegt er. Hægriflokk-
urinn er ekki lengur stjórnar-
andstöðuflokkur heldur ríkis-
stjórnarflokkur, sem þarf óhjá-
kvæmilega að taka tillit til sam-
starfsflokkanna, en víst er þó, að
formennska hans verður með
öðrum brag en hjá Benkow.
Norvik þarf ekki að sinna tíma-
frekum þingstörfum og mun því
geta helgað sig starfinu óskipt-
ur, farið um landið þvert og
endilangt og blásið nýju lífi í
flokksstarfið. Fyrir þremur ár-
um var Norvik spurður hvort
hægribylgjan í Noregi væri búin
að ná hámarki sínu og þá gaf
hann þetta svar, sem er einkenn-
andi fyrir og skýrir um leið
hvers vegna hann er nú kallaður
aftur til forystu: „Það er undir
okkur sjálfum komið."
Eins og fyrr sagði hafði Jo
Benkow ákveðið í nóvember sl.
að gefa aftur kost á sér sem
formaður Hægriflokksins og
lengi vel var ekki útlit fyrir ann-
að en hann yrði sjálfkjörinn á
landsfundinum í ágúst. Almenn-
ir flokksfélagar voru hins vegar
á öðru máli og hófu þá strax að
vinna að endurkomu Norviks.
Það sýnir kannski hvað best
hvað Benkow hefur verið ein-
angraður í embættinu og í litlum
tengslum við hinn almenna
flokksmann, að það kom honum í
opna skjöldu þegar flokksdeildin
á Finnmörku reið á vaðið og
stakk upp á Norvik sem for-
manni. I kjölfarið komu svo
flokksdeildirnar í öðrum fylkj-
um og þá sá Benkow hvert
stefndi. Hann boðaði til blaða-
mannafundar þar sem hann til-
kynnti, að hann hefði dregið
framboðið til baka og að Norvik
væri rétti maðurinn í embættið.
Nú kann einhverjum að finn-
ast sem formannsskipti í norska
Hægriflokknum komi ekki öðr-
um við en- Norðmönnum og
flokksmönnum sjálfum, en þetta
mál sýnir þó í hnotskurn þann
vanda, sem við er að glíma í lýð-
ræðislegum stjórnmálaflokkum.
Forystumönnum hættir nefni-
lega til að einangrast frá al-
menningi og flokksmönnum sín-
um. Þeir gleyma sér stundum í
annríkinu á þingi, nefndastörf-
unum, utanlandsferðunum og
samningamakkinu og muna
kannski ekki eftir því nema á
fjögurra ára fresti hvaðan þeir
hafa umboð sitt.
Með þetta í huga er búist við
milu af Erling Norvik því að
hann ætlar aðeins að gegna
formannsstarfinu, lifandi sam-
bandi við fólkið sjálft. Að sjálf-
sögðu mun hann verða að út-
skýra fyrir flokksmönnum
ákvarðanir flokksforystunnar,
sem ekki hefur verið gert nóg af
hingað til, en auk þess mun hann
hafa aðstöðu til að skýra fyrir
forystunni skoðanir almennra
flokksmanna. Ef vel tekst til
með þessa skipan hjá Hægri-
flokknum er ekki ólíklegt að hún
muni hafa mikil áhrif á skipulag
annarra stjórnmálaflokka í Nor-
egi. (Heimildir: Aftenpostcn,
Daghladet, Verdens Gang.)