Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 22

Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 Samstöðuleiðtogi í útvarpssendingu: Hvetur Pólverja til ad kjósa ekki Buenos Aires, 24. febrúar. AP. ÆÐSTI herréttur Argentínu fyrir- skipaði handtöku þriðja og jafn- framt síðasta hershöfðingjans, sem sat í argentísku herstjórninni á með- an Falklandseyjastríðið stóð yfír. Hershöfðinginn, sem var handtek- inn, heitir Basilio Lami Dozo, 55 ára gamall, og fyrrverandi yfírmaður flughersins. Honum, ásamt þeim Leopoldo Galtieri, fyrrum forseta, og Jorge Anaya, aðmíráli, hefur verið gefið að sök að hafa gerst sekir um af- glöp í starfi. Þessir þrír sátu í her- stjórn landsins er Argentínumenn áttu í Falklandseyjastríðinu við Breta. Bæði Galtieri og Anaya hafa komið fyrir rétt og eru enn í haldi. Yfirmönnunum þremur er gefið að sök, auk ásakana um afglöp og vanrækslu í starfi, að hafa leitt Argentínumenn út í styrjöld við Breta. „Styrjöld af stærðargráðu, sem þjóðin var á engan hátt til- búin í,“ segir í ákæruskjalinu. Þá er bæði Galtieri og Anaya, en ekki Lami Dozo, gefið að sök að hafa ekki orðið við beiðni annarra deilda hersins um hjálp á örlaga- ríku augnabiiki. Slík neitun jafn- gildir dauðarefsingu í Argentínu. Lögregluvörður um fbúð Medvedevs „Kúlupilturinn“ látinn Davíð, 12 ára piltur, sem alla ævi varð að dvelja í sótthreinsuðum vistarverum vegna þess að líkama hans skorti allt ónæmi gegn sjúkdómum, lést sl. miðvikudag á Texas-barna- sjúkrahúsinu. Foreldrar hans voru við banabeð hans, en nöfn þeirra hafa aldrei verið gefin upp. Banamein Davíðs litla, sem þekktur var undir nafninu „Kúlupilturinn“, var hjartagalli. Vloskvu, 24. febrúar. AP. SOVÉSKI sagnfræðingurinn Roy Medvedev hefur orðið fyrir því að undanförnu, að lögregluvörður hefur staðið fyrir utan hús hans í Moskvu, heimtað skilríki af gestum hans og meinað erlendum að ganga inn. Med- vedev heimsækja oft vestrænir frétta- menn til að ræða um gang stjórnmála í Sovétríkjunum. Lögregluvörðurinn hefur nú staðið yfír í þrjá sólarhringa. A slíku hefur aldrei borið áður og Medvedev hefur engar skýringar fengið. í símtali við fréttamann AP sagði Medvedev að lögreglan heftaði á engan hátt för hans og Sovétmenn mættu eftir sem áður sækja hann heim. Medvedev er yfirlýstur marx- isti og skoðanir hans fjarri því að teljast andófskenndar. Þó ræðir hann opinskátt um sovésk málefni við vestræna fréttamenn án tilskip- ana eða leyfis stjórnvalda. Á síð- asta ári var hann varaður við að lauma andsovéskum áróðri með í málflutningi sínum, en að öðru leyti hefur hann verið látinn óáreittur þar til nú. Einn vestrænn fréttamaður ætl- aði að berja að dyrum í dag, en var meinað um það eftir að lögreglu- Roy Medvedev þjónn hafði skoðað skilríki hans. Er Vesturlandabúinn bað um skýr- ingar, vísaði vörður laganna á utan- ríkisráðuneytið, en er fréttamaður- inn hringdi þangað sagði talsmaður þess að lögregluvörðurinn væri ekki á þeirra snærum. Sagðist hann ekk- ert vita um málið. Afganistan: Barist víða í höfuðborginni Nýju I)elhí, 24. febrúar. AP. BARDAGAR blossuðu upp í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gær að því er útvarpsstöð stjórnvalda greindi frá. Á tveimur stöðum var barist og sagði í útvarpsfregninni að 18 frelsisliðar múhameðstrúarmanna hefðu fallið og talsvert af kínverskum vopnum hefði fallið í hendur stjórnarhermanna. Talsmenn friðargæsluliða sögðu á hinn bóginn að barist hefði verið á fjórum vígstöðvum í Kabúl og hefði stjórnarherinn afganski misst all- marga menn. Þá greindi sami talsmaður frá því að eldflaug hefði hæft sovéska sendiráðið í Kabúl í annað skiptið á fáum dögum, en tjón hefði þó orðið iítið bæði á mönnum og eigum þeirra. Babrak Karmal, forseti lepp- stjórnarinnar sovésku í Afganistan, hefur verið í Moskvu að undanförnu og í dag ávarpaði hann stjórnmála- ráðið sovéska og hinn nýja aðalrit- ara, Konstantin Chernenko. Þar bað hann um aukna aðstoð Sovét- manna í baráttunni við frelsissveit- irnar sem hafa gert stjórnarhern- um og sovéskum hersveitum í Afg- anistan margar og miklar skráveif- ur. Gat hann þess að hann væri í þann mund að hleypa af stokkunum heima fyrir áætlun sem miðaði að því að hneppa ungmenni og ekki síst táninga í auknum mæli í stjórnarherinn með þeim rökum, að byltingin í Afganistan hefði aukið möguleika ungmenna í landinu á því að „auka víðsýni sína og mennt- ast“, eins og hann komst að orði og bætti auk þess við: „Það verður að kenna ungum Afgönum, að hata óvini Afganistan." Galtieri á dauðarefe- ingu yfir höfði sér Þriðji fyrrum yfirmaður hersins handtekinn á skömmum tíma Varsjá, 24. febrúar. AP. EINN KUNNASTI leiðtogi Samstöðu, hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Pól- landi sem stjórnvöld hafa bannað, las tilkynningu í leyniútvarpsstöð samtak- anna í dag. Leiðtoginn, Zbignew Bujak, hvatti þar landsmenn til að kjósa ekki 17. júní næstkomandi, en með því að kjósa tæki fólk þar með á sig hiuta af ábyrgðinni á stjórnarháttum í landinu. Þetta var í fyrsta skipti síðan í varpsstöð Samstöðu sendi frá sér desember á síðasta ári að út- tilkynningu í þessum dúr og þess Dularfull flogaveiki veldur getuleysi karla Boston, 24. febrúar. AP. VÍSINDAMENN HAFA komist á snoðir um undarlega tegund floga- veiki sem hefur meðal annars getuleysi hjá karlmönnum í fór með sér. „Enn ein líkamlega skýringin á getuieysi, það líður senn að því að karlmenn hætti að leita sálfræðinga vegna getuleysis, það fínnast nú mjög ört hinar ýmsu líkamlegu óreglur sem valda slíku frekar en andlegar orsakir. Mér sýnist að þær séu í afar mörgum tilfellum afleiðing af óþekktum Ifkamlegum ástæðum," sagði Richard Spark prófessor við háskólann í Boston, og fyrirliði þeirra er rannsakað hafa málið. Hér er um tímabundna floga- veiki í afmörkuðum líkamshlut- um að ræða og kemur sýkin í veg fyrir framleiðslu kynhormóna, dregur þvi úr kynhvötinni. Spark segir að enn sé ógerningur að geta sér til um hversu út- breidd þessi tegund flogaveiki sé meðal getulausra karlmanna, en af 16 slíkum í rannsókn hans reyndust 11 óafvitandi vera haldnir henni. Auk þess hefur veikin fundist í 40 getulausum karlmönnum á sjúkrahúsinu þar sem hann starfar, síðan hann uppgötvaði hana fyrst, 1982. Flogaveiki þessi hefur ekki sömu einkenni og fólk setur strax í samband við sjúkdóminn. Þeir sem hafa þennan sjúkdóm fá ekki hin fárlegu krampaköst, en á hinn bóginn þjást sjúkl- ingarnir af fjölbreytilegum hegðunartruflunum. Má þar nefna verki sem virðast engar rætur eiga, skyndibræði af eng- um sökum, yfirlið, fólk vætir rúm sín og verður ringlað. Spark og samstarfsmenn hans rannsaka nú einnig möguleg lyf gegn þessari dularfullu floga- veiki, en hann segir að í sumum tilvikum hafi hefðbundin floga- veikilyf unnið bug á veikinni og fært mönnum aftur kyngetuna. Er nýtt breskt njósna- hneyksli í uppsiglingu? London, 24. febrúar. AP. BRESKA dagblaðið Daily Mail skýrði frá því í dag, að starfsmenn bresku leyniþjónustunnar hefðu komið upp um njósna- og fjar- skiptastöðvar sovésku leyniþjón- ustunnar, KGB, á Kýpur. Frétt blaðsins fylgdi í kjölfar þeirrar tilkynningar breska varnarmálaráðuneytisins, að háttsettur maður innan bækistöðvar breska flughersins á eynni hefði verið spurður spjörunum úr að undanförnu vegna gruns um upplýsingaleka. Annað Lundúnablað, Daily Telegraph, skýrði frá því í kjöl- far tilkynningar varnarmála- ráðuneytisins, að ráðherrar landsins hefðu verið varaðir við því að nýtt njósnamál kynni að vera í uppsiglingu. Kýpur var áður bresk nýlenda, en samkvæmt samkomulagi á milli þjóðanna frá árinu 1960, er eyjan fékk sjálfstæði, mega Bretar hafa tvær herstöðvar á henni. Fjarskiptastöðvar á Kýp- ur hafa gegnt mjög mikilvægu hlutverki í því styrjaldarástandi sem ríkt hefur fyrir botni Mið- jarðarhafs. Aðferðirnar, sem beitt hefur verið af hálfu Sovétmanna til þess að fá upplýsingar hafa einkum falist í því að lokka menn í faðm fagurra kvenna. Hafa þeir síðan verið myndaðir í bak og fyrir, oft fá- eða óklæddir með öllu, með nakið kvenfólkið sér við hlið. var getið, að aðrir leiðtogar Sam- stöðu, sem fara huldu höfði, væru fylgjandi yfirlýsingu Bujaks. Stjórnvöld reyna jafnan að trufla útsendingar Samstöðuútvarps- stöðva sem eru víða í Póllandi og tekst það jafnan all vel, enda eru sendar Samstöðu jafnan veikir. Þó komst tilkynning Bujaks til skila víða í Varsjá. Talið er að stjórnvöld óttist nokkuð að fólk muni hlýða kalli Bujaks og Samstöðu og kjósa ekki. Gæti það orðið til þess að kosning- unum yrði að fresta til næsta árs. Kosningarnar myndu ekki vera frjálsar, allir frambjóðendur eru kannaðir ofan í kjölinn ef svo mætti segja af nefnd á vegum stjórnvalda, þannig að stjórnar- andstæðingur myndi aldrei hreppa þingsæti. í tilkynningu sinni lýsti Bujak nokkrum fylgifiskum herstjórnar- innar, 300 pólitískum föngum, versnandi efnahag, umhverfis- spillingu og húsnæði í niðurníðslu. „Það yrði stórgóður pólitískur sig- ur ef fólk sæti heima í stað þess að kjósa," sagði Bujak. Eþíópía: 2,7 millj- ónir dóu úr hungri AÐ SÖGN stjórnvalda í Eþíópíu lét- ust a.m.k. 2,7 railljónir manna úr hungri á þeim fímm þurrkaskeiöum, sem voru í Eþíópíu á árunum 1958—74 og tvær milljónir manna flosnuöu upp af þessum sökum. Eng- ar tölur eru til um síöasta áratug eöa afíeiöingar þurrkanna, sem nú ríkja. Tigre og Eritrea eru þau svæði í Eþíópíu, sem verst hafa orðið úti í þurrkunum en þar ráða skærulið- ar víða lögum og lofum. Núverandi stjórnvöld segja fyrri stjórn Haile Selassie keisara hafa bannað allan fréttaflutning af hungurdauða í landinu en hafa þó sjálf engar upplýsingar um ástandið í landinu núna. Um þessar mundir er haldin ráðstefna á vegum SÞ um veður- farsbreytingar og þurrkana í Afr- íku en margir hafa nú miklar áhyggjur af framgangi eyðimark- anna í Afríku og annars staðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.