Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
25
fHttgtmliIfifrife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið.
Forysta Dagsbrúnar
á flótta
Alþýðusambandið klofnaði
á fundi í Dagsbrún í
fyrradag og ekki nóg með það,
forystusveit Dagsbrúnar með
Guðmund J. Guðmundsson er
lögð á flótta undan róttækum
Fylkingarfélögum sem ætla
að breyta Dagsbrún og
Verkamannasambandinu þar
sem Guðmundur J. Guð-
mundsson er forseti úr
„skrifstofuapparati" í „bar-
áttutæki verkalýðsins", það
er að segja p>ólitískan vett-
vang fyrir öfgafulla marxista.
Það er dæmigert fyrir stjórn-
málaþróun á vinstri væng ís-
lenskra stjórnmála, að á
sama tíma og Verkamanna-
flokkurinn er að hreinsa
skoðanabræður Fylkingarfé-
laga úr röðum sínum eru þeir
að færa sig upp á skaftið bæði
innan Alþýðubandalagsins og
í verkalýðsfélögum þar sem
alþýðubandalagsmenn hafa
ráðið ferðinni. Undir forystu
Svavars Gestssonar er Al-
þýðubandalagið að breytast í
pólitísk regnhlífarsamtök að
ósk Ólafs R. Grímssonar þar
sem hver höndin er uppi á
móti annarri og vegna þrek-
leysis forystumannanna ná
þeir öfgafyllstu undirtökun-
um þegar mest á reynir.
Ein af kenningum skoðana-
bræðra Fylkingarfélaga í út-
löndum er sú, að lýðræðisleg-
ir stjórnarhættir felist í því
að þeir skuli ráða sem „virk-
astir" eru í starfi, það er að
segja þeir sem geta smalað
flestum á fundi. Þessi regla
hefur leitt til þess að minni-
hluti manna í verkalýðsfélög-
um ræður þar ferðinni og
berst hatrammlega gegn því
að mál séu borin undir félags-
menn alla. Til marks um
vinnubrögð af þessu tagi er að
á fundinum í Dagsbrún skyldi
því vera hafnað að afgreiða
tillögu um afstöðu til kjara-
samninganna með leynilegri
atkvæðagreiðslu. Eða halda
menn -að meirihluti Dags-
brúnarmanna sé því fylgjandi
að fara í verkfall núna? Það
er æðsta takmark Fylkingar-
félaganna, sem nú stjórna
Dagbsrún í gegnum Guðmund
J. Guðmundsson og Þröst
Ólafsson, að félagið skapi
glundroða í efnahagslífi þjóð-
arinnar með verkfallsaðgerð-
um. Þann glundroða ætla fé-
lagarnir í fjórða alþjóðasam-
bandi kommúnista síðan að
nota til að koma ár sinni bet-
ur fyrir borð í anda höfuð-
smiðs heimsbyltingarinnar,
Leon Trotskys.
Svavar Gestsson hefur
skipað sér í sveit með Fylk-
ingarfélögunum í Dagsbrún
og tekið upp markvissa bar-
áttu gegn Asmundi Stefáns-
syni, forseta Alþýðusam-
bands íslands. Formaður Al-
þýðubandalagsins vill að efnt
verði til verkfalla gegn Ás-
mundi Stefánssyni og bindur
vonir við Dagsbrún í því sam-
bandi. Þetta er sá lærdómur
sem draga verður af niður-
stöðunni á Dagsbrúnarfund-
inum. Að lokum verða það
hinir almennu félagsmenn í
Dagsbrún sem bera herkostn-
aðinn af þessu valdabrölti
öllu, því að hvorki Fylkingar-
félagarnir né hin nýja stétt
Alþýðubandalagsins setur
kjör þeirra og afkomu í fyrir-
rúm.
Samiö í
álverinu
Samningar tókust um kaup
og kjör í álverinu í
Straumsvík á elleftu stundu.
Hljóta allir góðviljaðir menn
að fagna því að ekki kom til
stöðvunar á framleiðslu í ál-
verinu en hún hefði leitt til
stórtjóns fyrir þjóðina í heild.
Meginatriði samningsins í
Straumsvík eru sambærileg
við niðurstöðu Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitenda-
sambandsins en auk þess var
samið um hlutdeild starfs-
manna í tekjum af framleiðsl-
unni ef vel gengur, sú hlið
samkomulagsins er viljandi
sett fram með frekar óljósum
hætti.
Þetta er fyrsta alvarlega
vinnudeilan í álverinu og hef-
ur ekki farið á milli mála að
forystusveit Alþýðubanda-
lagsins, sem nú veðjar á Fylk-
inguna í Dagsbrún, leit á
launþega í álverinu sem brim-
brjóta í pólitískum átökum
um völd og áhrif í þjóðfélag-
inu. Var ekki einleikið hvern-
ig Þjóðviljinn hamaðist út af
kjörum álversmanna án þess
að meina nokkuð með ofsan-
um annað en að koma illu aí
stað á öðrum vettvangi.
Æskilegt væri að forystu-
menn starfsmanna álversins
áttuðu sig á þessum vinnu-
brögðum og skýrðu það út
fyrir Dagsþrúnarmönnunum,
sem sendu þeim baráttu-
kveðjur á fimmtudaginn,
hvers eðlis þau eru í raun.
Félag bókagerð-
armanna:
Boöið upp
á ASÍ-VSÍ
grundvöll
„Við HÖFUM boðist til að Ijúka
samningagerð við Félag bókagerðar-
manna á sömu nótum og samningur
ASÍ opg VSÍ gengur út á, jafnframt
því sem samræmingu kjarasamn-
inga þeirra þriggja félaga sem sam-
einuðust í Félagi bókagerðarmanna
verði haldið áfram,“ sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, lögfræöingur hjá
VSÍ, sem aöild á samningum Félags
prentiönaðarins og Félags bókagerð-
armanna, en fundur var í deilunni
hjá rfkissáttasemjara á miövikudag
og hefur verið boðað til nýs fundar á
mánudaginn kemur kl. 13.30.
Magnús E. Sigurðsson, formað-
ur Félags bókagerðarmanna sagði
að staðan væri óljós í samninga-
málunum og ekkert hefði gengið í
dag. Það væru mörg atriði sem
þeir þyrftu að fá leiðréttingu á,
sem ekki myndu kosta aukin út-
gjöld fyrir Félag prentiðnaðarins,
sagði hann meðal annars.
Trúnaðarmannaráðsfundur var
í Félagi bókagerðarmanna á mið-
vikudag.
Viöræður
Dagsbrún-
ar og VSÍ á
miðvikudag
Verkamannafélagið Dagsbrún
óskaði í gær eftir viðræðum við
Vinnuveitendasamband íslands
um kjaramál, í framhaldi af fé-
lagsfundi í fyrradag, sem felldi
samninga þá sem VSÍ og ASÍ hafa
gert með sér og fól stjórn félags-
ins að leita eftir viðræðum á nýjan
leik.
VSÍ samþykkti að hefja við-
ræður og munu þær hefjast í
næstu viku. Fundur hefur verið
ákveðinn á miðvikudaginn
klukkan 10.00.
Þorsteinn Geirsson:
Semja má
við BSRB á
sömu nótum
„NIÐURSTAÐAN varð sú, að það
væri hægt að semja við BSRB á
sömu nótum og VSI og ASÍ án þess
að fjárlagaramminn springi,“ sagði
Þorsteinn Geirsson, formaður samn-
inganefndar fjármálaráðuneytisins, í
samtali við Mbl. í gærkvöld.
Margskonar yfirlýsingar hafa
gengið undanfarna daga um
möguleika ríkisins til að gera
hliðstæðan samning milli BSRB
og fjármálaráðuneytisins. M.a.
hefur verið haft eftir fjármála-
ráðherra, að hann teldi það ekki
gerlegt, til þess vantaði fé í ríkis-
sjóð. Blm. Morgunblaðsins spurði
Þorstein Geirsson hvar þeir pen-
ingar hefðu nú fundist. „Það
reyndist ekki mikill vandi," svar-
aði hann. „Málið er minna en það
sýnist í fljótu bragði."
Klukkan tíu árdegis í dag hefst
samningafundur samninganefnda
BSRB og ríkisins hjá ríkissátta-
semjara. „Almennum kjarasamn-
ingum er lokið og ég vona að okkur
takist að ljúka þessu fljótlega,"
sagði Þorsteinn Geirsson.
Frá undirritun samningsins. Talin frá vinstri: Magnús Geirsson, Örn Friðriksson, frá samninganefnd starfs-
manna, Guðmundur Vignir Jósefsson, Guölaugur Þorvaldsson og Elfsabet Ólafsdóttir hjá sáttasemjaraembætt-
inu, og dr. Giorgio Brighenti og Einar Guðmundsson frá ÍSAL.
Jakob R. Möller:
Er ánægður með að
samningar hafa náðst
„ÉG ER fyrst og fremst ánægður
með að það tókst að ná þessu sam-
an með aöstoð sáttasemjara á erfiö-
um punktum f deilunni," sagði Jak-
ob R. Möller, lögfræðingur hjá fs-
lenska álfélaginu í samtali við
Morgunblaöiö um samningana.
„Eg held að samkomulagið sé
mjög viðunandi fyrir okkur. Báð-
ir aðilar vildu reyna til hins ýtr-
asta að ná samkomulagi og í
gærkveldi var ákveðið að sitja
þar til samningar næðust og
þetta væri búið, enda ekki um
annað að gera ef verksmiðjan átti
ekki að lokast,“ sagði Jakob enn-
fremur.
„Þetta er langerfiðasta vinnu-
deila sem háð hefur verið hjá
ÍSAL í þau 14 ár sem um heildar-
samninga á vinnustaðnum hefur
verið að ræða. Oftast hafa samn-
ingar gengið mjög friðsamlega
fyrir sig,“ sagði Jakob ennfremur.
Báðar samningsnefndirnar ásamt ríkissáttasemjara
við undirskriftina.
• •
Orn Friðriksson:
Samningar
undirritaðir á
V estfjörðum
ALÞÝÐUSAMBAND Vestfjarða, Vinnuveitendafélag Vestfjarða
og Vinnumálasamband samvinnufélaganna undirrituðu í gærdag
nýjan kjarasamning. Samningurinn er í öllum atriðum samhljóða
þeim heildarkjarasamningi, sem ASÍ og VSÍ undirrituðu fyrr í
vikunni, að sögn Jóns Páls Halldórssonar, formanns vinnuveit-
endafélagsins.Við undirritun kemur 5% almenn launahækkun,
síðan 2% áfangahækkun 1. júní n.k., 3% 1. október og 3% 1.
janúar á næsta ári. Gildistími samningsins er og til 15. apríl 1985.
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins,
að „hin nýja vígstaða" yrði rædd á
sunnudag á kjaramálaráðstefnu
sambandsins.
„Sannleikurinn er nefnilega sá,“
sagði Pétur, „að verkalýðshreyf-
ingin er meira og minna í molum
vegna rangra viðbragða undanfar-
in ár, þegar stjórnvöld hafa verið
að ráðast á gerða samninga. For-
ystumenn hreyfingarinnar, hverju
nafni sem þeir nefnast, hafa verið
of litaðir af pólitík sinna flokka.
Þeirra afstaða hefur mótast af
hagsmunum flokkanna en ekki
hagsmunum hreyfingarinnar í
heild. Það hefur valdið því, að al-
mennir félagar í hreyfingunni eru
hættir að treysta henni. Það er
ekki lengur hægt að veðja á, að
fólk trúi því, að betri samningar
haldi, jafnvel þótt hægt væri að ná
þeim. Og vegna þessa er verka-
lýðshreyfingin ekki í stakk búin
núna til að ná betri samningum.
Þetta þarf að skoða og ræða
mjög rækilega á næstu mánuðum.
Menn þurfa að gefa sér góðan
tíma til þess að átta sig á hvað
hefur skeð á undanförnum árum
og hvernig má bæta stöðu verka-
lýðshreyfingarinnar," sagði Pétur
Sigurðsson.
Svavar Gestsson formaður
Alþýöubandalagsins:
Fögnum því ef
menn eru tílbún-
ir til að slást
Ánægðir að hafa skil-
að okkar verkeftii
„Það HEFUR tekist samkomulag
og samninganefndin hefur ákveðið
að mæla með samþykkt þess sam-
komulags við starfsmennina á
fundum sem verða í dag,“ sagði
Örn Friðriksson, aðaltrúnaðarmað-
ur starfsmanna í álverinu i
Ntraumsvík í samtali við Morgun-
blaðiö.
„Þegar menn standa í samn-
ingum verða hvorir tveggja aðila
að reyna að nálgast sjónarmið
viðsemjenda og ég tel að báðir
aðilar hafi gert það og verið
sæmilega ánægðir," sagði Örn.
„Ég læt það vera, menn eru
einkum hressir yfir því að hafa
lokið sínu verkefni," sagði Örn
aðspurður um hvort ekki gætti
þreytu hjá samningamönnum
eftir þennan langa samninga-
fund.
*
Þórarinn V. Þórarinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri VSI:
Hækkunin kemur á alla
launaliði starfsmanna
Yfirlýsingar um skerðingu eru beinlínis rangar
„ÞESS HEFUR gætt nokkuð
á síðustu dögum, að nýgerðir
kjarasamningar ASÍ og VSÍ
hafi verið rangtúlkaðir, nú
síðast í ályktun Dagsbrúnar.
Ég vil taka sérstaklega fram,
að frá og með 21. febrúar sl.
hækka öll laun félagsmanna
þeirra verkalýðsfélaga, er
samþykkja samninga um
a.m.k. 5%,“ sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VSÍ, í
samtali við Mbl.
„Þetta gildir jafnt um dagvinnu,
eftirvinnu og næturvinnukaup.
Ennfremur tekur hækkunin til
hverskyns launa fyrir ákvæðis- og
bónusvinnu. Eftir- og næturvinna
greiðist eftir sem áður með 40%
og 80% álagi á dagvinnutaxta. Það
er því beinlínis rangt, sem fram
hefur verið haldið, að laun fyrir
eftirvinnu, næturvinnu og bónus-
vinnu hafi verið skert með þessum
samningum," sagði Þórarinn enn-
fremur.
Þórarinn sagði að lágmarks-
tekjutrygging fyrir dagvinnu
bækkaði um 5% fyrir starfsmenn
16 ára og eldri, en sérstök hækkun
tekjutryggingar kemur til fyrir þá
sem náð hafa 18 ára aidri og starf-
að hafa 6 mánuði í starfsgrein.
„Sú hækkun er 15,5% frá því sem
verið hefur.
Ákvæðum um lágmarkstekjur
er ætlað að tryggja þeim launþeg-
um sem taka lægri fastalaun en
12.660 krónur á mánuði, eða 11.509
krónur sé um byrjendur að ræða,
og ekki geta aukið við tekjur sínar
í dagvinnu með t.d. bónus eða öll-
um þvílíkum greiðslum að
minnsta kosti framangreindar
lágmarkstekjur. Tekjutrygging
þessi kemur því einnig ákvæð-
isvinnufólki til góða, ef bónus-
greiðslur verða t.d. lágar eða falla
„NEI, FÓLKIÐ vill bara taka til sinna
ráða. Þegar spurt er þá koma svona
svör. Ég er sannfærður um að slík svör
gætu komið víðar að, ef opnaöur væri
möguleiki á því að menn gætu tjáð sig.
Það er ekki verið að skipuleggja eitt
eða neitt af pólitískum aðila", svaraði
Svavar Gestsson formaður Alþýöu-
bandalagsins, er hann var spurður,
hvort líta mætti á niðurstöður Dags-
brúnarfundar í fyrrakvöld sem vinn-
ing pólitískra afla til vinstri við Al-
þýðubandalagið, og að skoðanir Al-
þýðubandalagsins, sem formaður
Dagsbrúnar, Guðmundur J. Guð-
mundsson, framfylgdi á fundinum,
hefðu orðið undir.
Svavar sagðist telja að það væru
engar pólitískar forsendur á bak við
niður vegna tímabundinnar verk-
efnatregðu á einhverju launa-
greiðslutímabili," sagði Þórarinn.
„Með þessu ákvæði og tillögu
samningsaðila til ríkisstjórnar um
sérstakar úrbætur fyrir barnafólk
og einstæða foreldra ásamt lífeyr-
isþegum var leitast sérstaklega
við að mæta þörfum þeirra, er við
kröppust kjör búa. Þessar sér-
stöku hækkanir á ráðstöfunar-
tekjum þeirra er þyngst hafa
framfærið og lægstar tekjurnar
skerða að sjálfsögðu ekki hlut
þeirra sem hærri laun hafa,“ sagði
Þórarinn V. Þórarinsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri VSÍ
að endingu.
niðurstöðu Dagsbrúnarfundarins.
Þar hefðu eingöngu faglegar for-
sendur verið að baki.
Hann var þá spurður, hvort Al-
þýðubandalagið hefði ekki löngum
talið sig verkalýðsflokk og hvort
forustumenn flokksins hefðu ekki
lýst yfir hræðslu sinni á síðasta að-
alfundi verkalýðsráðs flokksins við
of harða afstöðu og aðgerðir verka-
lýðshreyfingarinnar. Hann svaraði:
„Þú hefur fengið undarlega skýrslu
af þeim fundi. Það var engin niður-
staða í þá átt, en menn ræða allt
mögulegt, jafnvel það áróðursvald
sem íhaldið hefur í landinu. Það er
verið að gera lítið úr verkafólki með
að segja að það sé eins og þægir
sauðir í rétt Alþýðubandalagsins og
alveg furðulegt að Sjálfstæðisflokk-
urinn skuli aldrei læra það, að það
er fólkið sjálft sem ræður.“
— Mun Alþýðubandalagið styðja
Dagsbrún til harðra aðgerða?
„Alþýðubandalagið stendur með
verkalýðshreyfingunni, og er partur
af þeirri baráttu sem hún er í á
hverjum tíma. Alþýðubandalagið er
auðvitað hluti af verkalýðshreyfing-
unni og sem slíkt fögnum við því ef
menn eru tilbúnir til þess að slást,
því þetta er ekki spurningin um það
hvort fólk ætlar í átök eða ekki.
Þetta er spurningin um það hvort
fólk vill reyna að hækka kaupið eða
ekki.“
Kjarasamning-
ar samþykktir
í Keflavík
ALMENNUR félagsfundur í
Verkalýðs- og sjómannafélagi
Keflavíkur samþykkti nýgerða
kjarasamninga ASÍ og VSI með
miklum meirihluta atkvæða, að
sögn Karls Steinars Guðnason-
ar, formanns félagsins. Alls
greiddu 27 atkvæði með samn-
ingunum og 5 voru á móti.
Einar Ingi Halldórsson, bæjarstjóri, tekur á móti mótmælaskjali frá nemendum og kenn-
urum Flensborgarskóla.
Flensborg og bæjaryfirvöld Hafnarfjaröar
f hár saman út af ritvél:
Var keypt f heimildar-
leysi og því ekki borguð
— segir Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri
NEMENDUR og kennarar Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði gengu í gær á fund bæj-
arstjóra, Einars Inga Halldórssonar, í því
skyni að mótmæla þeim aðgerðum bæjaryf-
irvalda að láta fjarlægja ritvél, sem skólinn
hafði fest kaup á fyrir bókasafn skólans.
Aðdragandi þessa máls er sá, að í
haust fóru stjórnendur Flensborgar-
skóla fram á það við fræðsluráð að ný
ritvél yrði keypt fyrir bókasafnið, þar
sem sú gamla var orðin slitin og úr sér
gengin. Að sögn Kristjáns Bersa
Olafssonar, skólastjóra, var málið rætt
í fræðsluráði og varð niðurstaðan sú,
að ekki væri stætt á því að fara fram á
aukafjárveitingu til ritvélarkaupanna,
en hins vegar var samþykkt að mælast
til þess að málið yrði tekið upp við gerð
næstu fjárhagsáætlunar.
Síðan gerðist það fljótlega eftir ára-
mótin, að skólinn festi kaup á ritvél af
Facit-gerð á tæpar 60 þúsund krónur,
án þess að bera kaupin undir bæjaryf-
irvöld sérstaklega, eins og reglur skól-
ans gera ráð fyrir. Bæjaryfirvöld
brugðust hart við, endursendu seljanda
reikninginn fyrir vélinni, með þeim
orðum að hann yrði ekki greiddur þar
sem kaupin væru gerð í heimildarleysi.
Áður en varð af því að seljandi tæki
vélina aftur, hafði Kristján Bersi sam-
band við fræðsluráð og reyndi formað-
ur fræðsluráðs, Páll V. Daníelsson, að
finna lausn á málinu sem allir mættu
við una. Lagði hann til að ritvélin yrði
notuð sameiginlega af skólabókasafn-
inu og Bókasafni Hafnarfjarðar. Þeirri
hugmynd var hafnað af bæjaryfirvöld-
um og var vélin sótt í fyrradag.
Kristján Bersi sagði að það hefðu
verið mistök, eða slys, af hálfu skólans
að hafa ekki samráð við bæjaryfirvöld,
en hann hefði staðið í þeirri trú að
óformlega væri búið að samþykkja
kaupin, þar sem fræðsluráð féllst á
þörfina fyrir ritvél í umræðunum í
haust. Sagði Kristján Bersi að sér
fyndust þetta full harkalegar aðgerðir
af hálfu bæjaryfirvalda af litlu tilefni.
„Ég er undrandi á þessu upphlaupi
nemenda og kennara Flensborgarskóla
og það er auðséð á orðalagi mótmæla-
skjalsins að þau hafa ekki leitað sér
upplýsinga um það um hvað málið
snýst," sagði Einar Ingi Halldórsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, þegar Mbl.
innti hann álits á mótmælunum í gær.
„Kjarni málsins er sá, að vélin er
keypt án heimildar og fjárveitingar og
því var ekki annað fyrir okkur að gera
en að endursenda reikninginn," sagði
Einar Ingi.
Einar Ingi sagði að fjárhagsáætlun
yrði afgreidd nk. þriðjudag og í því
frumvarpi sem fyrir liggur sé gert ráð
fyrir 430 þúsund krónum til tækja-
kaupa fyrir Flensborgarskóla, en til að
uppfylla allar óskir skólans þyrfti 1400
þúsund krónur. Sagði Einar Ingi að
ekki væri búið að sundurliða það sér-
staklega í hvað þessar 430 þúsund
krónur yrðu notaðar, það væri seinni
tíma verkefni og því ekkert ha*gt að
segja um það á þessu stigi málsins,
hvort ritvél yrði keypt eða ekki.
Gengið á fund bæjarstjóra til að mótmada brottnámi rilvélarinnar.