Morgunblaðið - 28.02.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
27
Road
Átta mörk á Vicarage
— hraður og skemmtilegur leikur Watford og Everton
Hjörtur Gíslason, blaöamaöur Morgun-
blaösins, símar frá London:
„Já, viö heföum átt aö vinna. En
ég get ekki verið of haröur viö
mína menn vegna þess hve vel
þeir eru farnir aö leika á ný. Þetta
er óþekkjanlegt liö frá því fyrir
nokkrum vikum,“ sagði Graham
Taylor, framkvæmdastjóri Wat-
ford, eftir aö lið hans haföi gert
jafntefli 4:4 gegn Everton á Vicar-
age Road á laugardag í mjög
hrööum og skemmtilegum leik.
Þaö er ekki á hverjum degi sem
áhorfendur fá að sjá átta mörk í
einum leik — hvað þá sjö í einum
hálfleik, eins og þarna geröist.
Watford átti allan fyrri hálfleik-
inn — leikmenn Everton voru þá
mjög daufir. John Barnes skoraöi
eina mark hálfleiksins á 24. mín.
meö skalla eftir hornsþyrnu Nigel
Callaghan. Úr hornspyrnunni kom
boltinn á nærstöngina og Barnes
skallaöi aftur fyrir sig í netiö.
Hornspyrnur Callaghan áttu eftir
aö valda Everton-vörninni miklum
vandræöum hvaö eftir annað í
leiknum. Áöur en Barnes skoraöi
hafði hann í tvígang komist einn
inn fyrir vörnina en Nevil Southall í
markinu bjargaöi í bæöi skiptin vel
meö úthlaupi. Leikmenn Everton
gátu þakkaö honum fyrir aö vera
ekki nema einu marki undir í leik-
hléi.
Óþekkjanlegt Everton-liö
Þaö var óþekkjanlegt Everton-
liö sem kom inn á völlinn í síöari
hálfleikinn. Leikmenn liösins frá
bítla/hafnar-borginni frægu viö
ána Mersey settu þá strax í efsta
gír og léku mjög vel. Þaö geröu
heimamenn reyndar líka þannig aö
úr varö mikiö fjör. Hraöi var geysi-
legur í leiknum. Graeme Sharp
náöi aö jafna fyrir Everton á 51.
mín. meö fallegu marki úr víta-
teignum. Hann tók boltann viö-
stööulaust á lofti í meters hæö eftir
fyrirgjöf frá hægri og Sherwood
átti ekki möguleika á aö verja.
Aöeins fjórum min. eftir aö Ev-
erton jafnaði höföu heimamenn
náð forystunni á ný og þar var
enginn annar en Maurice John-
ston. Þessi nýji markakóngur á
Vicarage Road hefur nú gert sautj-
án mörk í tuttugu leikjum eftir aö
Graham Taylor keypti hann frá
Skotlandi. Frábær árangur þessa
smávaxna framherja. Þó ekki sé
Johnston hár í loftinu er hann
sleipur skallamaður og þaö var
einmitt meö skalla sem hann skor-
aöi á laugardag. En þaö var horn-
spyrna frá Nigel Callaghan sem
• Graeme Sharp skoraöi tvö
mörk fyrir Everton
kom Everton-vörninni í bobba.
Johnston smeygöi sér á milli varn-
armanna og skallaöi auöveldlega í
netiö. Watford sótti mjög stíft eftir
markið og á 63. mín. skoraöi John
Barnes sitt annaö mark í leiknum.
Staöan var þá oröin 3:1 og útlit
fyrir öruggan sigur heimalisins.
Barnes komst þá inn í lausa send-
ingu Gary Stevens sem ætluö var
Neville Southall í markinu og var
ekki í vandræöum meö aö skora.
Enn jafnar Everton
En leikmenn Everton voru ekki á
þeim buxunum aö gefast upp.
Fjórum mín. eftir aö Barnes skor-
aöi haföi Andy Gray minnkaö mun-
inn. Hann skoraöi með lausum en
hnitmiöuðum skalla í stöngina og
inn. Wilf Rostron, vinstri bakvöröur
Watford, kom liöinu tveimur mörk-
um yfir á ný á 75. mín. meö hörku-
skoti úr vítateignum eftir aö leik-
mönnum Everton haföi en einu
sinni mistekist að hreinsa frá eftir
hornspyrnu frá Callaghan. Fimm-
tán mín. tii leiksloka og staöan 4:2.
En Everton-liðiö gafst ekki upp
þrátt fyrir mótlætiö. Liöiö hefur
leikiö sérlega vel aö undanförnu.
Þaö hefur tryggt sér sæti í úrslita-
leik mjólkurbikarkeppninar gegn
Liverpool á Wembley 26. marz og
á góöa möguleika á aö leika til úr-
slita í FA-bikarnum einnig. En þaö
er önnur saga.
Graeme Sharp skoraði þriöja
mark Everton á 79. mín. Hann fékk
boltann inn aö vítapunkti og skor-
aöi meö vinstrifótarskoti í hægra
hornið. Algjörlega óverjandi. Andy
Gray fékk á næstu mínútum nokk-
ur góö marktækifæri en tókst ekki
aö skora — skot og skallar hans
fóru rétt framhjá. En Everton upp-
skar mark eftir mikla pressu —
Adrian Heath jafnaöi 4:4 meö
þrumuskoti utan úr teig á siöustu
mínútunni.
Mikill hraöi
Leikurinn var mjög hraöur "og
skemmtilegur. Leikmenn geröu sig
þó á köflum seka um mistök eins
og alltaf vill veröa, en þaö spillti
ekki ánægjunni. Áhorfendur kunnu
vel aö meta leikinn — þeir fengu
að sjá átta mörk. John Barnes lék
sérlega vel hjá Watford, einnig
varnarmennirnir Steve Sims og
Wilf Rostron. Graham Sharp, Pet-
er Reid og Kevin Sheedy voru
bestir hjá Everton. Léku allir mjög
vel.
Liöin sem léku á Vicarage Road
voru þannig skipuö: Watford:
Steve Sherwood, Bardsley, Paul
Franklin, Steve Sims, Wilf Rostron,
Les Taylor, Kenny Jackett, Nigel
Callaghan, Maurice Johnston,
John Barnes og Atkinson. Watford
beitti leikaöferöinni 4—2—4. Ev-
erton: Neville Southall, Gary Stev-
ens, Derek Mountfield, Kevin
Ratcliff, John Bailey, Alan Irvine,
Peter Reid, Adrian Heath, Kevin
Sheedy, Graham Sharp og Andy
Gray. Uppstilling Everton var
4—4—2. — SH.
Meistaramót íslands í kraftlyftingum 23 ára og yngri:
Hjalti Árnason maður mótsins
FYRSTA meistaramót íslands í kraftlyftingum fyrir unglínga undir 23ja
ára aldri, var haldiö í íþróttahúsi Hverageröis á laugardaginn. fbúar
staöarins tóku þessu uppátæki lyftingasambandsins býsna vel og
komu allmargir þeirra til aö fylgjast meö. Ýmis fyrirtæki á staönum
veittu mótinu fjárstuöning og Hveragerðishreppur gaf til mótsins bik-
ar, er vannst fyrir bestan árangur skv. stigatöflu. Sá keppandi fékk
einnig blóm aö gjöf frá Eden, Hverageröi.
Allir skráöir keppendur mættu til leiks, nema Seyöfiröingar, sem fengu
ekki flugfar. Voru keppendur frá 4 héraðssamböndum og sýndu margir
þeirra skemmtileg tilþrif.
hioKKur or,o Kg.
HB BP RL Samt.
Björgúlfur Stefánsson ÍBV 160,0 100,0 170,0 430,0
Björgúlfur var eini keppandinn í flokknum, en árangur hans er mjög
þokkalegur. Hann geröi 6 lyftur gildar af 9 og er mjög vel byggöur fyrir
kraftlyftingar. Veriö getur aö Björgúlfur fylli síöar meir þaö skarö, sem
Skúli Óskarsson skildi eftir sig í 75 kg flokki.
Flokkur 75 kg.
Gunnar Hreinsson ÍBV 170,0 100,0 210,0 480,0
Báröur B. Olsen KR 167,5 95,0 185,0 447,5
Ólafur Sveinsson KR 150,0 102,5 180,0 432,5
Keppnin í þessum flokki var nokkuð jöfn framan af, en í síöustu
greininni, réttstööulyftu, voru yfirburöir Gunnars algerir og vann hann
meö nokkrum mun. Keppinautur hans, Báröur Olsen, sem er kornungur
náöi þó mjög þokkalegum árangri í þessum þyngdarflokki, sem hann á
þó ekki eftir að vera lengi i, þar sem hann hefur alla byggingu fyrir 90 kg
flokk. Ólafur Sveinsson, sem vann þriöju verðlaun, hefur undanfarið æft
vaxtarrækt og hefur því ekki næga þjálfun í hnébeygjunni og réttstööu-
lyftunni, en þær greinar má þó fljótt bæta meö auknu æfingarálagi.
Flokkur 82,5 kg.
Bjarni Jón Jónsson KR 200,0 112,5 210,0 522,5
Bjarni lyfti 6 gildum lyftum af 8 tilraunum, en þar sem engin keppni var
• Hjalti Árnason, með bikarinn sem hann hlaut lyrir góöan árangur á
mótinu í Hverageröi um helgina. Morgunbiaðiö/Friðþjófur
í flokknum sleppti hann síðustu réttstööulyftunni. Árangur Bjarna er i
nokkru innbyröis samræmi, en þó þyrfti hann aö leggja aukna áherslu á
bekkpressuna.
Flokkur 90 kg
Birgir Þorsteinsson KR 207,5 122,5 215,0 545,0
Magnús Steindórsson KR 210,0 100,0 215,0 525,0
Mjög jöfn keppni var í þessum fiokki í hnébeygju, en dró heldur í
sundur í bekkpressunni, þar sem Birgir haföi 22,5 kg betur. i réttstööu-
lyftunni átti Magnús þó enn von á sigri, en Birgi tókst þaö vel upp þar, aö
Magnús átti engin svör viö.
Flokkur 100 kg
Garöar Vilhjálmsson Höttur200,0 130,0 260,0 590,0
Ari Jóhannsson KR 170,0 110,0 185,0 465,0
Arngrímur Konráösson ÍBA — — — —
Garðar haföi mikla yfirburöi í þessum flokki og var feröalag hans alla
leiö frá Egilsstööum ekki til einskis. Hann lyfti öllum sínum tilraunum
gildum og virtist alls ekki gera sér grein fyrir afli sínu.
Árangur hans í réttstöðulyftu er sérstaklega athyglisveröur, 260 kg. Ari
keppti þarna á sínu fyrsta móti og er greinilega á réttri leið í sínum
æfingum. Arngrímur lyfti í fyrstu tilraun sinni í hnébeygju 140 kg, en geröi
smávægileg mistök sem geröu lyftuna ógilda. í staö þess aö taka sömu
þyngd til aö tryggja sig í keppninni lét aðstoöarmaður hans hann hækka
um 20 kg, sem leiddi til þess aö hann féll úr keppni.
Flokkur 110 kg
Halldór E. Sigurbjörnsson KR 310,0 180,0 230,0 720,0
Enginn keppandi þoröi aö mæta Halldóri, sem best hefur lyft 800 kg.
Hann varö því öruggur sigurvegari. Árangur hans í hnébeygju er 12,5 kg
frá Heimsmeti unglinga. Halldór var í haröri keppni viö Hjalta Árnason um
stigaverölaunin og í þeirri baráttu reyndi hann viö 277,5 kg í réttstööu-
lyftu, sem mistókst. Meö ööruvísi vigtarvali heföi hans samanlagöi árang-
ur getað oröiö betri.
Flokkur 125 kg
Hjalti Árnason KR 290,0 172,5 320,0 782,5
Matthías Eggertsson KR 230,0 150,0 270,0 650,0
Hjalti var besti maöur mótsins og fékk sérstök verölaun fyrir. Árangur
hans er allur góöur og gott samræmi, en réttstööulyftan er þó sérstak-
lega athyglisverö, 320 kg, aöeins 20 kg frá heimsmeti. Hjalti er enn eitt
afarmenniö, sem upp kemur í kraftlyftingunum og mun þróunin hjá
honum næstu mánuöina skera úr um þaö, hvort hann mun slá öllum viö.
Matthías stóö sig mjög vel á mótinu og sýndi töluveröa keppnishörku, en
framfarir hans eru ekki eins miklar og hjá.afarmenninu Hjalta (Ursus).
Flokkur + 125 kg
Torfi Ólafsson KR 270,0 130,0 300,0 700,0
Helgi Eövaldsson ÍBA 210,0 105,0 220,0 535,0
Torfi á best 815 kg i samanlögöu, en meiddist á hné fyrir 3 mánuðum
og er ekki orðinn góöur. Hann á mörg ár eftir í unglingaflokki og á því
framtíöina fyrir sér. Hann er Noröurlandameistari unglinga. Helgi lyfti af
töluveröu öryggi og lyfti öllu sem hann reyndi viö, nema mistókst tvisvar
í bekkpressunni. Hann mun fljótlega lyfta 600 kg.
Þetta meistaramót var í alla staöi mjög vel heppnaö og vonandi hefur
tekist aö glæöa lyftingaáhuga á ný i héraöinu, en fyrir 10 árum voru um
70 keppendur í HSK í lyftingum og mikil gróska.
• Chris Woods
Þrír semja
við Norwich
Frá Bob Hennessy, fréttamanni
Morgunblaösins í Engiandi
KEN BROWN, framkvæmda-
stjóri Norwich hefur gert nýj-
an sex ára samning viö félag-
ið. Þá hafa tveir af bestu
mönnum liösins gert þriggja
ára samning hvor, þaö eru
þeir Dave Watson, miövörður
og Chris Woods, markvöröur.
Watson er 22 ára og Woods 24
ára.
Brown hefur veriö hjá Nor-
wich í 10 ár — en hann tók viö
framkvæmdastjórastööunni er
John Bond fór til Manchester
City fyrir nokkrum árum. Brown
hefur gert mjög góöa hluti meö
liðið sem hefur leikiö vel aö
undanförnu.
„Þetta gæti verið þýöingar-
mesti dagurinn í sögu félags-
ins,“ sagöi formaöur þess
kampakátur eftir aö þremenn-
ingarnir höföu allir skrifaö undir
samning fyrir helgina. „Ég vona
aö þetta sé hornsteinninn að
velgengni félagsins í framtíö-
inni.“ Dave Watson sagöi aö
hingað til hefðu flestir leik-
manna Norwich sem skarað
hefðu fram úr og veriö frama-
gjarnir fariö frá félaginu en
hann og Woods heföu ákveöiö
aö vera um kyrrt. „Viö trúum
því aö félagið geti veitt þeim
stærstu haröa keppni á næstu
árúm,“ sagöi hann.