Morgunblaðið - 02.03.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
5
Bridgehátíð 1984
hefst í kvöld
í kvöld klukkan 19.45 verður
Bridgehátíð 1984 sett. I*aö verður borg-
arstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson,
sem setur mótið. Strax á eftir eða um
í Betaníu:
Kristniboðs-
fréttir
Á morgun, laugardaginn 3. marsz,
heldur Kristniboðsfélag kvenna í
Rcykjavík sína árlegu fjáröflunar-
samkomu í Betaníu, Laufásvegi 13. A
samkomunni verða kristniboðsfréttir,
númeraborð, tvísöngur og hugvekja.
Allir fjármunir sem inn koma á
þessari samkomu renna til Sam-
bands ísl. kristniboðsfélaga, en sam-
bandið rekur kristniboð og margs
konar líknar- og skólastarf í Eþíópíu
og Kenýa. Fjórar fjölskyldur starfa
nú ytra, þar sem kristin trú hefur
víða kveikt ljós vonar í miskunnar-
lausum heimi heiðni og fátæktar.
Samkoman í Betaníu hefst kl. 20.30
og eru allir hjartanlega velkomnir.
kl. 10 hefst spilamennskan. Bridgehá-
tíðin hefst með tvimenningskeppni þar
sem fjöldi erlendra para verður með
ásamt okkar sterkustu bridgepörum.
Spiluð verða 2 spil milli para, alls 43
umferðir, og er áætlað að því verði lok-
ið um kl. 18 á laugardeginum.
Sveitakeppnin hefst á sunnudag
og verða spilaðar 4 umferðir en á
mánudag verða 3 umferðir. Spilað
verður eftir Monrad-kerfi 16-spila-
leikir.
Keppnisstjóri Bridgehátíðar verð-
ur Agnar Jörgensson en reiknimeist-
arar í tvímenningi Vigfús Pálsson og
Hallgrímur Hallgrimsson.
Að Bridgehátíð 1984 standa Flug-
leiðir, Bridgesamband íslands og
Bridgefélag Reykjavíkur.
Merkjasala
kvennadeild-
ar SVFÍ
ÁRLEG mcrkjasala kvennadeildar
Slysavarnafélags íslands í Reykjavík
fer fram í dag og á morgun, laugardag.
Verða merkin afhent skólabörnum kl.
10.00 í dag og eru foreldrar beðnir að
sjá til þess að börnin séu vel klædd við
merkjasöluna.
Kvennadeild SVFÍ var stofnuð í
aprílmánuði 1930 og er hún elsta
kvennadeildin innan samtakanna.
Deildin hefur á starfsferli sínum
lagt ýmsum málefnum lið sitt í
slysavarnastarfinu sem og í þágu
björgunarstarfs.
Hillel Tokazier við píanóið í Broadway í gær.
Popp - rokk - píanó-
tónlist í Broadway
POPP/ROKK píanóleikarinn
finnskí Hillel Tokazier skemmtir
gestum í veitingahúsunum Broad-
way og Hollywood frá og með
kvöldinu í kvöld og fram til 11.
þessa mánaðar.
Tokazier, sem er hagfræðing-
ur að mennt, hóf pínaóleik sinn
tíu ára að aldri og hefur leikið
alla tíð síðan. Hann hefur leikið
með ýmsum hljómsveitum,
finnskum og ísraelskum, m.a.
með Eero Raittinen og Jukka
Tolonen í hljómsveitinni Help.
Þá lék hann einnig í Country
Boys með Jussi Raittinen og
nýtti þar hæfileika sína í að líkja
eftir Floyd Kramer og Jerry Lee
Lewis. Tokazier stofnaði
hljómsveitirnar Rotox og Ball,
auk þess sem hann starfaði lengi
með dægurlagasöngvaranum
Tapani Kansa.
Fyrir Kansa samdi Tokazier
lagið „Veikko Nieminen" sem
átti vinsældum að fagna meðal
Finna. Þá samdi hann mörg af
lögum ofangreindra hljómsveita.
1982 gaf hann út sólóplötu,
„Hillel Tokazier and the Piano"
og seinna það ár kom út eitt
vinsælasta lag hans, „Smugglerá
Charleston". Auk dægurlaga-
tónlistar hefur Tokazier samið
tónlist við sjónvarpsleikrit.
Sæludagar í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti:
Ræðukeppni og
skemmtidag-
skrá í kvöld
Sæludagar hafa staðið yfir í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti frá því á
miðvikudag. Þeim lýkur í kvöld með
ræðukeppni og skemmtidagskrá í há-
tíðarsal skólans.
Nemendur og kennarar hafa valið
menn í ræðulið og verður ræðu-
keppni á milli nemenda og kennara í
kvöld í hátíðarsal fjölbrautaskólans.
Keppnin hefst klukkan 18 og er um-
ræðuefnið: „Á að taka upp hýðingar
í skólum?". Nemendur mæla með því
að það verði gert en kennaraV mæla
á móti.
Skemmtidagskrá hefst í hátíðar-
salnum kl. 20 í kvöld og munu þar
skemmta meðal annarra Laddi og
Jörundur, Ómar Ragnarsson, Val-
geir Guðjónsson, hljómsveitin Hrím
og fleiri.
Kynningarfund-
ur málfreyja
Útbreiðslunefnd 1. ráðs málfreyja á
íslandi gengst á morgun fyrir kynn-
ingarfundi í félagsheimilinu Seli á Sel-
fossi. Hefst fundurinn kl. 14.00
Samskonar kynningarfundur var
haldinn í Sjallanum á Akureyri fyrir
viku og voru í framhaldi af honum
stofnaðar tvær málfreyjudeildir þar.
Málfreyjudeildir eru nú 14 talsins á
landinu. Forseti 1. ráðs málfreyja á
tslandi er Kristjana Milla Thor-
steinsson.
fermingarfötin okkar slá svo sannarlega í gegn,
enda eru þau hönnuö meö útlit og hagsýni í huga,
og þau eru nú fáanleg í öllum verslunum okkar.
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 45800
Þ au w
slá n
1 áegn