Morgunblaðið - 02.03.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 02.03.1984, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 Draumabúseta eftir dr. Pétur H. Blöndal I>au mistók urðu því miður í blað- inu sl. miðvikudag, að síðari hluti greinar l'éturs Blöndal, „Draumabú- seta“, birtist á undan fyrri hlutan- um. Fer hinn rétti fyrri hluti hér á eftir, en síðari hlutinn verður birtur aftur. Þann 5. janúar 1984 reið fram á ritvöllinn Jón Rúnar Sveinsson formaður hins nýstofnaða hús- næðissamvinnufélags Búseta. Gagnrýni sú, sem fram kom í grein eftir mig þann 17. des. sl., hafði farið fyrir brjóstið á honum. Þessi gagnrýni er sú eina, sem ég hefi enn séð í fjölmiðlum á þær forsendur, sem notaðar eru til þess að fegra og dásama nýtt form á búsetu manna. Hér er um að ræða húsnæðissamvinnufélög, þar sem menn kaupa sér ævilangan leigurétt fyrir 5% af verði íbúðar og borga síðan leigu, sem standa á undir afborgunum,' vöxtum og kostnaði af íbúðinni. íbúðina sjálfa eignast þeir aldrei. Þær niðurstöður, sem birtar hafa verið og byggja á ákveðnum forsendum, benda til þess að hér sé um ákaf- lega ódýra og þægilega lausn á húsnæðisvanda þjóðarinnar að ræða. Þessi lausn hefur verið prís- uð í fjölda greina að undanförnu í öllum dagblöðum, án þess nokkur gagnrýnisrödd hafi heyrst um þessar forsendur himnaríkis. Er kannski ekki hægt að gagnrýna þessar nýju leiðir? Sé svo, þá óska ég þjóðinni til hamingju með þessa einföldu og góðu lausn á húsnæðisvandanum. Ég er þakklátur fyrir þessi viðbrögð við grein minni, því það gefur þó tækifæri á því að ræða þessa lausn, kosti hennar sem og galla. Ekkert hefur verið minnst á gallana í þeim ótal greinum, sem birst hafa að undanförnu um Pétur H. Blöndal þetta nýja eignarform á íbúðar- húsnæði. Vona ég, að fleiri finni hjá sér hvöt til þess að tjá sig um þessa nýju lausn áður en það skref verður stigið, sem gerir alla ís- lendinga að leigjendum hjá óper- sónulegu kerfi þegar fram líða stundir. Gífuryrði í hita baráttunnar taka menn stundum sterkt til orða og mála einatt sterkum litum til þess að eftir sé tekið. En ég vona að ég falli ekki í þá gryfju að segja Jón hafa vaðið fram að óyfirveguðu máli og látið hleypidóma og van- þekkingu stýra penna sínum né að ég dragi John Stuart Mill inn í umræðuna til þess að sanna að skoðanir Jóns séu fordómar. Slíkt fékk ég á mig hjá Jóni. í minni grein tók ég einmitt skýrt fram, að ég virði skoðanir þeirra, sem hafa þá lífsstefnu að hafa sitt húsnæði á leigu. En jafnframt hlýt ég að mega gera þá kröfu til annarra, að ég megi hafa mínar skoðanir án þess að þær séu stimplaðar for- dómar. Og ekki vil ég gera látnum mönnum upp skoðanir eins og Jón gerir í grein sinni. Hvaða skoðun forveri minn í formannssæti Hús- „Hvernig geta menn við slíkar aðstæður sett fram svona forsendur? Og kröfur? Ef reynt yrði að verða við kröfum Búsetamanna, þýddi það einfaldlega enn lægri lán til almennra húsbyggjenda. Hvers eiga þeir að gjalda?“ Óæskileg gagnrýni? Fyrri grein eigendafélags Reykjavíkur hefði haft á Búseta fáum við víst aldrei að vita. Gífuryrði sem þessi eru algerlega óþörf í umræðunni um húsnæðismál og eru einungis til tjóns. í lok fyrri greinar sinnar klykk- ir Jón út með því að tilkynna al- þjóð, að hann hafi nú hrakið öll hagfræðileg rök mín (hvað sem það nú er) gegn húsnæðissam- vinnufélaginu Búseta. Mikill mað- ur Jón. Ekki er það nú árennilegt að takast á við slíkan mann. En ég æla nú samt að reyna. Aðalatriðið Grein mína ritaði ég aðallega til þess að vara við afleiðingum þess að nýju búsetukerfi yrðu veitt for- réttindi á sviði lána, vaxta og skatta umfram venjulegar íbúð- arbyggingar. Forréttindi, sem þröngva myndu ungu fólki inn í kerfi, sem það hugsanlega kærði sig ekki um. Það ætti ekki annarra kosta völ. Með lána- og skatta- stefnu má hreinlega neyða menn til inngöngu í húsnæðissamvinnu- félög vegna þess ástands sem núna ríkir á lánamarkaði. Þetta aðal- atriði greinar minnar virðist Jón ekki koma auga á og er sífellt að vísa í lagafrumvörp og greinar- gerðir með þeim. Það eru einmitt þessi frumvörp, sem ég er að benda á og biðja menn að gaum- gæfa betur. Frumvörp eru nefni- lega ekki orðin lög fyrr en alþingi hefur samþykkt þau og forseti undirritað. Enn má gera á þessum frumvörpum breytingar. Fái Bú- setamenn 95% lán til 31 árs með 0,5% vöstum og skattfrelsi að auki, á ungt fólk ekkert val. Það verður að taka þessum kosti, því ekki virðast vera til fjármunir til þess að lána nema brot af þessari upphæð til almennra húsbyggj- enda núna. Og ekki aukast pen- ingarnir til þeirra, ef lána á svona mikið til húsnæðissamvinnufé- laga. Mér segir svo hugur, að ekki líði á löngu áður en nánast hver einasti maður sé orðinn leigjandi. Mig hryllir við þessari hugsun og býst við að fleiri finnist á Islandi, sem er hún ógeðfelld. Uppskrift að paradís I þeim (halelúja-)greinum, sem birst hafa um þetta nýja húsnæð- isform, er ítrekað bent á mjög lág- an kostnað, sem undirstrika á ágæti hins nýja húsnæðisforms. Jón talar um að greiðslur afborg- ana og vaxta nemi kr. 3.707 (miðað við 0,5% vexti) eða kr. 4.922 (mið- að við 2,5% vexti) á mánuði miðað við lán til 31 árs. Lánið nemi 95% af verði vísitöluíbúðar (ca. 1.240 þús.) Svo talar hann um að annar kostnaður nemi kr. 2.000 á mán- uði. Vísitöluíbúðin er rétt rúmlega þriggja herbergja. Alls nemur kostnaðurinn tæpum 6 þús. til 7 þús. á mánuði. Og engar uppsagnir á leiguhúsnæðinu né fallandi víxl- ar vegna íbúðakaupa. Og íbúðin er að sjálfsögðu fullfrágengin. Er þetta ekki dásamlegt? Ætli marg- ur húseigandinn, sem núna er að kreista fasteignagjöldin upp úr buddunni sinni og borgar ólíkt stærri tölur í hússjóð, greiðslur af lánum og víxlum þættist ekki hafa himin höndum tekið, ef þetta væri öll greiðslubyrðin. Nú ætla ég, eins og Jón, að lofa öllum hús- byggjendum þessu himnaríki. Ég gef mér einfaldlega þær forsend- ur, að almennir húsbyggjendur fái 95% af verði íbúða sinna lánuð til 30 ára með 0,5% vöxtum og húrra!, við búum í himnaríki. Og að sjálfsögðu yrðu engin fast- eignagjöld greidd til borgarinnar né eignarskattar til ríkisins. Og við Jón verðum komnir á þing áð- ur en við vitum af, eins og aðrir boðendur fagnaðarerindisins. En hversvegna er þetta ekki gert? Af hverju erum við íslend- ingar svona vondir við unga fólk- ið? Utan paradísar Raunveruleikinn er æði napur um þessar mundir hér á landi. Fjármagn er af skornum skammti og við þurfum að veita stórum hluta þess til atvinnuveganna (sem við lifum víst á) til þess að örva atvinnu og koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi. Þorskurinn er að hverfa og innlendur sparnaður er í molum. Ríkið reynir að selja spariskírteini með 5,08% vöxtum. Slegist er um lán frá lífeyrissjóð- um (sem sjaldan hafa verið lægri að raunvirði) og menn vita jú um getu bankanna. Hvernig geta menn við slíkar aðstæður sett fram svona forsendur? Og kröfur? Ef reynt yrði að verða við kröfum Búsetamanna, þýddi það einfald- lega enn lægri lán til almennra húsbyggjenda. Hvers eiga þeir að gjalda? Jón bendir reyndar á leið til fjáröflunar, sem ég kem að hér á eftir. Jón bendir í fyrri grein sinni á frumvörp um húsnæðismál, sem nú liggja fyrir Alþingi, og segir, að Búseti eigi ótvíræðan rétt á 80% láni til 31 árs með 0,5% vöxtum samkvæmt þessum frumvörpum (ef samþykkt yrðu). Nú liggur fyrir yfirlýsing félagsmálaráð- herra um að þetta sé ekki rétt. Það verði að gera kröfu til lágra eigna Vara við aukinni miðstýringu hjá Norðurlandaráði segir Matthías A. Mathiesen, viðskiptaráöherra Matthías Á. Mathiesen Hér fer á eftir í heild ræða sú, sem Matthías Á. Mathiesen, við- skiptaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, flutti á þingi Norður- landaráðs sl. þriðjudag. Ákvörðun forsætisnefndar Norðurlandaráðs og forsætisráð- herranna um skipan fimmmanna- nefndar til heildarendurskoðunar á starfsreglum og samstarfi Norð- urlandanna var rökrétt framhald af fyrri athugunum sem gerðar höfðu verið, en á takmarkaðra sviði. Nefndin, sem skipuð var einum fulltrúa frá hverju Norðurland- anna hafði það hlutverk að yfir- fara starfsreglur Norðurlandaráðs og aðra þætti samstarfs Norður- landa, lauk starfi sínu í desember sl. Fyrstu tíu árin byggðist starf- semi Norðurlandaráðs alfarið á samstarfi og viljayfirlýsingu þjóð- þinga Norðurlanda, en frá 1962, er Helsingforssamningurinn var undirritaður af ríkisstjórnum Norðurlanda hefur starfið í vax- andi mæli færst á svið ráðherra og embættismanna og málin meira og minna verið í þeim farvegi síð- an. Nýjar hugmyndir, nýjar starfs- aðferðir fylgja að sjálfsögðu í kjölfar þeirra ótrúlega miklu framfara, sem þekking nútímans gerir kleift og leiðir af sér. Á því leikur enginn vafi að í skýrslu fimmmannanefndarinnar eru margar góðar hugmyndir, sem gætu bætt og aukið samstarf okkar. Hitt liggur ljóst fyrir að ýmsar hugmyndir munu þykja orka tvímælis og mæta mót- spyrnu. Við verðum að gefa okkur tíma til þess að ná samstöðu, ella er hætt við að undirstaðan verði ekki nógu traust til langframa í svo þýðingarmiklu samstarfi. Þar sem mig greinir á við hina nefndarmennina í þýðingarmikl- um atriðum, hlýt ég að vekja at- hygli Norðurlandaráðs á sérstöðu minni, og vara við þeirri tilhneig- ingu, að áhrif fulltrúa þjóðþing- anna verði enn minnkuð og eins og meirihluti nefndarinnar gerir ráð fyrir — að miðstýring verði aukin til hliðar við vaxandi áhrif skrif- ræðisins. Slíkt er andstætt eðli ís- lendinga og ég trúi, að þeir muni standa fast á þeim sjónarmiðum sem voru í upphafi grundvöllur að samstarfi og áhrifum þjóðþing- anna í Norðurlandaráði. Það er engum vafa undirorpið, að efling norræns samstarfs er ekki einungis æskileg vegna margra sameiginlegra hagsmuna, heldur nauðsynleg í þeim heimi sem við lifum í. Um sterk menn- ingarleg og félagsleg tengsl efast enginn og á þau verður ekki skor- ið, en það eru hin daglegu sam- skipti um efnaleg gæði, sem setja í vaxandi mæli meiri svip á sam- starfið. Efnahags- og viðskipta- samvinna, samvinna á sviði iðnað- ar og tækni hlýtur að verða veiga- mikill þáttur í norrænu samstarfi, enda „Norðurlönd sem ein mark- aðsheild" mjög ofarlega á baugi. Sú stöðnun og jafnvel samdrátt- ur sem orðið hefur síðustu árin í verslunarviðskiptum milli Norð- urlandanna hefur valdið áhyggj- um. Stjórnvöld svo og forystu- menn á sviði viðskipta og iðnaðar beita sér nú fyrir átaki til að snúa þessari þróun við. Um þessi mál þarf að nást gott samstarf og vil ég í því sambandi láta í ljós ánægju yfir frumkvæði viðskipta- ráðherra Norðurlandanna. Fara nú fram athuganir á gildandi viðskiptahömlum á öllum Norður- löndunum með það fyrir augum að reynt verði að fjarlægja þær og greiða þannig fyrir auknum við- skiptum. Ánnar þáttur í efnahagssam- starfi Norðurlanda sem hefur haft mikla þýðingu og á eflaust eftir að fara vaxandi er starfsemi Nor- ræna fjárfestingabankans. Þegar má víða sjá árangur af starfsemi hans. Þá finnst mér vera ástæða til að minnast á þá staðreynd að Noreg- ur er orðinn stór olíuframleiðandi sem verður hvati að auknu sam- starfi milli Norðurlandanna í orkumálum. Þegar rætt er og unnið að því að Norðurlönd verði að einni mark- aðsheild hefur ísland að ýmsu leyti sérstöðu vegna fjarlægðar frá markaðinum og fámennis, ein- hæfrar framleiðslu og síðast en ekki síst hins gífuriega halla á vöruskiptajöfnuðinum við hin Norðurlöndin. Á árinu 1983 var 28,5% af heildarinnflutningi Is- lands frá hinum Norðurlöndunum, en aðeins 5,1% af heildarútflutn- ingi landsins fór til þeirra. Von- andi breytist þetta við það mark- aðsátak, sem nú er unnið að, þar sem íslendingar koma til með að njóta aðstoðar Ráðherranefndar- innar og Norðurlandaráðs. fslendingar hafa enn ekki orðið aðnjótandi þeirra auðlinda, sem hafsbotninn gefur frændum okkar Norðmönnum og okkar næstu nágrönnum en vonandi verður það í framtíðinni. Hitt er öllum ljóst sem til þekkja að efnahagslega hafa íslendingar verið háðari út- flutningi sjávarafurða en flest ríki. ísland leggur því megin- áherslu á samstarf við nágranna- löndin um verndun fiskistofnanna í Norður-Atlantshafi. Þörfin fyrir samstarf til vernd- ar fiskistofnunum verður aldrei nægilega undirstrikuð. Sjálfir þekkjum við það af dýrkeyptri eig- in reynslu hve mikla gát þarf að sýna við sókn í fiskistofnana. Þau úrræði sem notuð hafa verið við stjórn á fiskveiðum við fsland undanfarin ár hafa til dæmis ekki dugað til að tryggja viðgang þorskstofnsins og þess vegna hef- ur nú verið tekin upp sú tilhögun að sérhverju veiðiskipi er ætlaður árlegur kvóti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.