Morgunblaðið - 02.03.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
15
og tekna til þess að hljóta þessi
niðurgreiddu lán. Verða menn
ekki að ætla, að lagasmiðurinn viti
betur en Jón, hvað hann vill kalla
félagslegar íbúðir? Er ekki ástæða
til þess að taka af allan vafa ef
Alþingi ætlar sér að samþykkja
þessi frumvörp?
Jón telur lífeyrissjóðina fullvel
geta lánað þessi 15% sem á vantar
tii þess að 95% markið náist.
Hvernig ætlar hann að leysa
vandann með veðið? Lán lífeyris-
sjóða auk annarra iána mega ekki
fara yfir 50% af mati íbúðar. Á
þar að koma til ríkisábyrgð eða
hvað? Ég heid að þeir Búsetamenn
ættu að fara að upplýsa sitt fólk
um stöðuna. Hvort það standi inn-
an paradísar eða utan.
Niðurgreiddir vextir
Almenn lán frá Húsnæðisstofn-
un bera núna 2,25% vexti. Fjár til
þessara lána er m.a. aflað hjá líf-
eyrissjóðunum og með útgáfu
spariskírteina. Fyrir hvort
tveggja eru greiddir rúmlega 5%
vextir. Ársgreiðsla (annúitet) af
5% láni til 30 ára er 6,5% af láns-
upphæðinni á ári á móti 4,6% af
2,25% Iáni til sama tíma. Eða 40%
hærri. Þannig borgar maður jafn-
mikið af 100 þús. kr. láni með 5%
vöxtum og af 140 þús. kr. láni með
2,25% vöxtum. Þegar stofnunin
lánar 140 þús. með 2,25% vöxtum
er hún að gefa með því 40 þús. eða
29% af láninu. Almennir lántak-
endur fá þessi niðurgreiddu lán
fyrir um 30% af íbúðarverði.
Þessa niðurgreiðslu á vöxtum
borga skattgreiðendur. Ef miðað
er við 0,5% lán, verður niður-
greiðslan um 44% af lánsupphæð-
inni. Þessa niðurgreiðslu vilja
Búsetamenn fá á sín 95% lán. Og
hana eigum við hinir að greiða
með sköttunum okkar bara af því
að þeir kalla sínar íbúðir „félags-
legar".
Hvað segja menn við eftirfar-
andi hugmynd: 20 eigendur einbýl-
ishúsa stofna með sér húsnæðis-
samvinnufélag. Samvinnufélagið
kaupir af þeim villurnar og fær
lánuð 95% af verðinu til 30 ára
með 0,5% vöxtum. Hinir fyrrver-
andi eigendur borga síðan 5%
fyrir búseturéttinn (þeir fá sem
sagt 95% eða allt lánið greitt út).
Þeir búa síðan áfram í húsunum
sínum sem leigjendur en kaupa
spariskírteini með 5% vöxtum
fyrir ódýra lánið. Eins og fram
kemur hér að framan fá þeir 44%
af láninu gefið. Og sleppa við eign-
arskatt og fasteignagjöld og geta
dregið helming leigunnar frá
skattskyldum tekjum.
Félagsleg íbúö
Jón notar orðið „félagsleg íbúð“
í nokkuð öðrum skilningi en ég á
að venjast. Hann segir orðrétt:
„... að þar sem Búsetaíbúðir koma
til með að standa utan þess
braskmarkaðar sem mestallt hús-
næði á fslandi nú gengur kaupum
og sölum á, þá teljast þær vera
félagslegar íbúðir". Jón tekur
fram, að engin krafa sé gerð til
tekna og jafnvel ekki til eigna við
inngöngu í húsnæðissamvinnufé-
lag. Þannig geta auðmenn hæg-
lega búið í félagslegum íbúðum.
Lordar á Englandi geta sennilega
skilgreint hallir sínar sem félags-
legar íbúðir á sama hátt. Þeir Bú-
setamenn, margir langskóla-
gengnir og eflaust einhverjir með
ágætislaun, vilja sitja við sama
borð og þeir, sem fá íbúðir í verka-
mannabústöðum. Fá vextina
niðurgreidda af almannafé og þá
frá hinum sem ekki kæra sig um
að vera leigjendur heldur vilja
eiga sína íbúð sjálfir. Og þeir vilja
meira. Þeir vilja losna við að
greiða opinber gjöld af sínum „fé-
lagslegu" íbúðum.
Ég er sannfærður um að ein-
hverjir íslendingar leggja annan
skilning í orðið félagslegar íbúðir
en Jón. Nefnilega að það séu íbúð-
ir til handa fólki með lágar tekjur
og litlar eignir.
í seinni grein minni mun ég
fjalla um eignarhald á íbúðum,
koma með nokkrar spurningar til
Búsetamanna, tala um sparnað og
ræða um kosti húsnæðissam-
vinnufélaga.
Dr. Pétur H. Blöndal er trygg-
ingastærðíræðingur og formaður
Húseigendafélags Reykjavíkur.
Ástæða er til að benda á, hvern-
ig Norðmenn og íslendingar hafa
með átaki verndunaraðgerða eflt
síldar- og loðnustofna á nýjan
leik. Þó hafa íslendingar enn
nokkrar áhyggjur af því að full-
fljótt sé sótt í síldarstofninn í
Norður-Atlantshafi. Sérhver þjóð
hlýtur að leggja á það megin-
áherslu að hafa stjórn á lífsbjörg
sinni og tryggja vernd hennar,
vöxt og viðgang. íslendingar vilja
eiga gott og náið samstarf við
granna sína um fiskvernd. Það er
allra hagur að samræmi sé í sókn
í þá fiskistofna sem þar er að
finna. Nágrannaþjóðir hljóta að
þróa með sér samskiptareglur um
nýtingu sameiginlegra auðlinda
þar sem tekið er mið af gagn-
kvæmum hagsmunum. Slíkir
samningar eru af svipuðum toga
og þeir sem þjóðir gera til að
tryggja öryggi sitt gegn ágengni
annarra með hervaldi. Eins og
málum er háttað er óskynsamlegt
að láta nokkurn vafa leika um
stefnu og ákvarðanir í öryggis-
málum. Það er jafnframt ástæða
til að minna á, að ekki er við hæfi,
að þeir sem vilja leggja stund á
tilraunastarfsemi í öryggismálum
og tala í nafni Norðurlanda eða
um Norðurlönd auðveldi sér leið
að óljósu markmiði með því að
gleyma íslandi viljandi eða óvilj-
andi.
Enginn má skilja orð mín þann-
ig að ég taki undir óljósar hug-
myndir um kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum; á Norður-
löndum eru engin kjarnorkuvopn.
Ég tel hins vegar með öllu ótíma-
bært að hefja slíka tilraunastarf-
semi nema hún sé liður í víðtækari
aðgerðum sem samið er um milli
austurs og vesturs og taki mið af
raunverulegum aðstæðum í Evr-
ópu allri og með fullu samkomu-
lagi allra Norðurlandanna.
Alvarleg vélarbilun
í Birtingi NK:
Skipið frá
veiðum í
vikur eða
mánuði
Neskaupstaó, 29. febrúar.
ALVARLEG vélarbilun varö í Birt-
ing NK þegar skipið var að veiðum á
laugardag. Enn er ekki vitað hversu
alvarleg bilunin er, en von er á sér-
fræðingum til að kanna skemmdirn-
ar. Fyrirsjáanlegt er, að skipið verð-
ur frá veiðum í nokkrar vikur eða
mánuði.
Bjartur NK kom með skipið í
togi inn til hafnar. Bjartur var
nýlega farinn aftur á veiðar eftir
fjögurra mánaða stopp vegna vél-
arskipta í Bretlandi.
Hjá Síldarvinnslunni hf. er nú
allt tilbúið til móttöku á loðnu-
hrognum. Komið hefur verið upp
mjög fullkomnum tækjabúnaði til
móttökunnar og vinnslu á hrogn-
unum. Von er á Beiti NK með full-
fermi af loðnu á morgun og gera
menn sér hér vonir um að búnað-
urinn fari að nýtast. Alls hefur
Síldarvinnslan hf. tekið á móti
17.500 tonnum af loðnu það sem af
er vertíðar.
Mikil veðurblíða hefur verið hér
sl. þrjár vikur. Jörð hefur verið
snjólaus og hefur hiti komist upp i
12—14 stig, sem er mjög óvenju-
legt á þessum árstíma hér eystra.
{ gær snjóaði þó og er hér nú al-
hvít jörð, þótt logn sé og blíða.
— Sigurbjörg.
Bútasala
Fimmtudag — föstudag
— laugardag til kl. 4.
Teppaverzlun
Friðriks Bertelsen hfM
Síöumúla 23, inngangur Selmúla megin.
Sími 86266.
sunnudagskvölds) gegn einu daggjaldi
auk venjulegs km. gjalds.
livað ertu að gera um helgina?