Morgunblaðið - 02.03.1984, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2 MARS 1984
Keppa
hér á
EINS og skýrt var frá í blaðinu í
gær þá er góður möguleiki á því
að 23. júní árið 1985 verði stórmót
í frjálsum íþróttum hér á landi.
Forsaga þessa máls er sú að á
fundi Frjálsíþróttasambands Evr-
ópu i London 1981 áttu formaður
FRÍ, Örn Eiösson, og þáverandi
• Steve Ovett
framkvæmdastjóri, Guöni Hall-
dórsson viöræður viö Svend Arne
Hansen frá Noregi um að efnt yröi
til stórmóts í Reykjavík á næstu
árum. Rætt var um, aö sjónvarpað
yröi beint frá þessu móti til nokk-
urra landa, m.a. Bandaríkjanna og
Bretlands. Hansen og Englending- [
urinn Andrew Norman hafa átt
stóran þátt í að gera Bislet-leikana
og fleiri mót í Evrópu aö þeim stór-
viöburðum sem þau eru. Stærö og
umfang mótanna þyggjast aö
mestu á beinum sjónvarpssend-
ingum eins og áður er getiö. Flestir
fremstu og eftirsóttustu afreks-
menn í frjálsum íþróttum taka þátt
í slíkum mótum, m.a. bresku
stjörnurnar Sebastian Coe, Steve
Ovett og Steve Cram, svo aö ein-
hverjir séu nefndir.
Formaöur og varaformaöur FRi
ræddu aftur viö Hansen og Nor-
man á fundi Evrópusambandsins í
Madrid í haust og nú var Hansen
öllu ákveönari en áöur og kvaöst
myndi hafa samband viö þá fljót-
Coe og Ovett
landi 1985?
lega eftir áramótin, en hann ætlaöi
aö hitta félaga sinn Norman á mót-
um á Nýja-Sjálandi og Ástralíu.
Þetta stóöst og nú tjáði hann
formanni FRÍ í símtali, aö þeir
heföu rætt við fulltrúa sjónvarps-
stöðva í Bandaríkjunum og Bret-
landi um hugsanlegt mót í Reykja-
vík 1985 og þeir heföu sýnt málinu
áhuga. Þeir væru meira aö segja
svo langt komnir meö róálið, aö
borin var fram tillaga um, aö mótiö
færi fram sunnudaginn 23. júní.
Hér gæti orðiö um aö ræða
íþróttaviöburð á heimsmælikvaröa
og enginn vafi er á því, aö land-
kynning af slíkum viöburði er
ómetanleg, ef vel tækist til. Þegar
um slíkt stórmót er aö ræöa, eru
gerðar ákveðnar kröfur um ásig-
komulag og tækjabúnaö íþrótta-
leikvanga og þar er e.t.v. okkar
veikasta hliö. Ekki er þó útilokaö,
að frjálsíþróttavöllurinn í Laugar-
dal myndi duga, ef gengiö yröi af
krafti í að endurnýja hlaupabrautir
og keypt yröu ýmis ný tæki, sem
skort hefur tilfinnanlega.
• Gitte Paulsen og Gitte Segárd, Norðurlandameistarar í tvíliðaleík
stúlkna.
Noróurlandamót unglínga í badminton:
Hefst í Höllinni
Norðurlandamót unglinga í
badminton hefst í Laugardalshöll
í dag. Dagskrá mótsins í dag
verður á þessa leiö, en þá veröa
landsleikir á dagskrá:
Kl. 9.00
Færeyjar — Finnland
ísland — Danmörk
Noregur — Svíþjóö
Kl. 12.30
Finnland — Danmörk
Færeyjar — Noregur
ísland — Svíþjóð
Kl. 15.00
Danmörk — Noregur
Finnland — island
Færeyjar — Svíþjóö
Kl. 18.00
Noregur — ísland
Danmörk — Færeyjar
Finnland — Svíþjóö
Kl. 20.30
ísland — Færeyjar
Noregur — Finnland
Danmörk — Svíþjóð
Ef reynt er aö geta sér til um
sigurvegara í einstökum greinum,
þá er helst aö styöjast viö úrslit frá
nýafstöönu unglingamóti sem fram
fór í Danmörku (Yonex Helsinge
Cup). Þátttakendur voru 66 frá
fimm þjóöum, keppendur, sem hér
taka þátt í mótinu um helgina.
I einliöaleik pilta er líklegur sig-
urvegari Daninn Poul Erik Höyer,
en hann tapaöi í undanúrslitum
fyrir sigurvegaranum Darren Hall
frá Englandi í fyrrnefndu móti.
í einliöaleik stúlkna má búast
viö að sænska stúlkan Carlotta
Wihlborg hreppi gulliö og Lene
Sörensen silfriö, en þetta gæti al-
veg eins snúist viö.
í tvíliðaleik pilta eru líklegir sig-
urvegarar dönsku piltarnir Poul Er-
ik Höyer og Henrik Jensen. Þeir
sigruöu með töluveröum yfirburö-
um í fyrrnefndu móti, unnu þar tvo
sænska pilta sem einhverra hluta
vegna koma ekki hingað. Þess
vegna má búast viö að Danir nái
einnig ööru sæti.
í tvíliöaleik stúlkna eru
NM-meistararnir Gitte Poulsen og
Gitte Sögárd mættar til leiks. Þaö
er nokkuð öruggt aö þeim takist
aö verja titilinn, en keppnin um
annað sæti veröur trúlega hörö og
ekki gott að segja hver hreppir
silfriö.
Þá er komið aö síðustu grein
mótsins, tvenndarleik. Þar eru
sjálfir Evrópumeistararnir, Anders I
Nielsen og Gitte Poulsen, mættir til
leiks og veröa þau aö teljast líkleg-
ir sigurvegarar, en um annað sæti
er erfitt aö spá.
Eins og sjá má, þá hefur ein-
göngu veriö fjallað um Dani og
Svía sem væntanlega verölauna-
hafa í þessu NM-móti. En þaö
verður aö segjast aö þessar tvær
þjóöir hafa haft nokkra yfirburði í
undanförnum NM-mótum. En
Norömenn og Finnar hafa sótt á í
þessari keppni og íslendingar eru
þar ekki langt á eftir. Um íslensku
piltana er þaö aö segja, aö þeir eru
hér að taka þátt í sínu fyrsta
NM-móti, allir nema einn, og mæta
þeir Norðmönnum og Svíum i ein-
liöaleik og gætu á góöum degi
unnið þar leik.
í tvíliöaleik mæta ÍA-piltarnir
Árni Þór og Þórhallur Færeyingun-
um í fyrsta leik og ættu þeir aö
vinna þá. Snorri og Haukur mæta
Dönum í fyrsta leik og veröur þaö
erfiöur róöur hjá þeim.
Um stúlkurnar er þaö aö segja,
aö Þórdís Edwald er sú sem hefur
mestu reynsluna en hún mætir
norskri stúlku í sinum fyrsta
einliöaleik og ætti aö hafa tölu-
veröa möguleika til aö sigra.
Elísabet Þóröardóttir mætir
ídag
finnskri stúlku og ef henni tekst vel
upp, ætti hún aö hafa töluveröa
möguleika á sigri. Guörún Júlíus-
dóttir er yngst stúlknanna, hún
mætir danskri stúlku í sínum fyrsta
leik, en þaö veröur aö segjast eins
og er, aö möguleikar hennar eru
ekki miklir. Þórdís og Elísabet
mæta finnskri og norskri stúlku í
tvíliðaleik og ættu þær aö hafa
stóra möguleika á vinningi. Guö-
rún keppir meö færeyskri stúlku
og mæta þær NM-meisturunum
dönsku og því er ekki við miklu aö
búast.
í tvenndarleiknum mæta Snorri
og Guörún færeysku pari í fyrsta
leik og ættu aö ná sigri þar. Þór-
hallur og Elísabet fá norskt par í
fyrsta leik og gæti hann farið á
hvorn veginn sem er. Árni Þór og
Þórdís mæta sænsku pari og verö-
ur þaö erfiður róöur fyrir okkar
fólk.
Þá er lokiö spádómum um
væntanlega keppni í þessu
NM-móti. En sjón er sögu ríkari og
ástæöa er til aö hvetja áhugafólk
um badminton til aö koma í Laug-
ardalshöllina um helgina og sjá
þetta unga fólk í leik, þvt ef til vill
eru í þessum hópi veröandi stór-
meistarar í badminton, hver veit?
Magnús gerir það
gott á Spáni
MAGNÚS Bergs leikur nú með
spánska liðinu Racing Santander
eins og Morgunblaðið hefur áður
skýrt frá og hefur staðiö sig vel í
undanförnum leikjum.
Magnús skoraöi mark strax í
fyrsta leik sínum meö liöinu og var
,T
• Magnús Bergs í leik með Sant-
ander á Spáni.
I tekiö meö kostum og kynjum af
áhangendum þess. Hann hefur
ekki skoraö upp á síökastið — en
engu aö síður leikiö v.el. Racing er
í toppbaráttu deildarinnar — og er
í þriöja sæti — þykir líklegt til aö
komast upp í 1. deild í vetur.
Bilbao Athletic og Castille eru í
tveimur efstu sætunum — en þau
lið eru varaliö 1. deildarliöa og
geta því ekki færst upp í 1. deild-
ina. Möguleikar Racing á 1. deild-
arsæti eru því miklir.
Innanhússmót UMSK
UMSK fyrir yngri flokka veröur
haldið á morgun. 6., 5., 4. og 2.
flokkur keppa í Digranesi í Kópa-
vogi. Keppni hefst kl. 10 og einn-
ig kl. 10 á sunnudag. 5. og 6.
flokkur A og B leika á morgun en
4., 3. og 2. flokkur á morgun. Eins
og mönnum er kunnugt er bein
lýsing úr ensku knattspyrnunni á
morgun — leikur Everton og Liv-
erpool og verður sjónvarpi komið
fyrir í íþróttahúsinu í Digranesi
þannig aö keppendur geti horft á
sjónvarpið meðan þeir eiga frí frá
keppni.
—
• lan Ross f leik meö Aston
Villa fyrir nokkrum árum —
reyndar gegn sínu gamla félagi,
Liverpool.
lan Boss mun
þjálfa Valsara
- fyrrum leikmaður Liverpool og Aston Villa
VALSARAR haf ráöið Skot-
ann lan Ross, fyrrum leik-
mann Liverpooi, Aston Villa
og Peterborough, þjálfara
fyrir meistaraflokk félagsins í
knattspyrnu næstu tvö árin.
Þetta var tilkynnt í gær.
Eggert Magnússon, gjald-
keri knattspyrnudeildar Vals,
fór til Englands fyrir helgina
eins og Morgunblaöiö greindi
frá og samdi hann viö Ross.
Þaö var John Barnwell, sem
kom hingaö til lands til viö-
ræöna við Valsmenn, sem
benti á Ross. Barnwell var
sem kunnugt er framkvæmda-
stjóri Peterborough og Wolves
og var Ross aðstoðarmaður
hans hjá báöum þessum fé-
lögum. Ross hefur undanfariö
starfað sem þjálfari hjá 1.
deildarliöi Birmingham City —
hóf þar störf 1981 — eftir aö
hann hætti sem aöstoöar-
framkvæmdastjori John
Barnwell hjá Wolves.
Ross er 37 ára, giftur og
tveggja barna faðir. Hann
kemur hingaö til lands eftir
u.þ.b. þrjár vikur og tekur þá
viö þjálfun meistaraflokks Vals
af Róbert Jónssyni.
lan Ross kom til Liverpool
aöeins 15 ára aö aldri, hann
fékk samning viö liöiö árið
1964 og lék meö liðinu til árs-
ins 1971. Á árunum 1972 til
1977 var Ross leikmaöur Ast-
on Villa og fór þaöan til Pet-
erborough. Þar var hann þjálf-
ari og leikmaöur 1978—1980.
Þar lauk hann sínum keppnis-
ferli — en Ross lék jafnan í
stööu miövarðar. Forráða-
menn Vals sögöu í gær
hugsanlega aö Ross þjálfaöi
einhverja yngri flokka félags-
ins.
— SH.