Morgunblaðið - 02.03.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
39
Tókum allir við peningum
- segir Lárus Guðmundsson hjá Waterschei
„ÞAD er nokkuö langt um liöiö
síðan þetta geröist. Eg man þó
vel eftir þessu," sagði Lárus
Guömundsson, knattspyrnu-
maöur hjá Waterschei í Belgíu
er blm. Morgunblaösins ræddi
viö hann í gær vegna mútu-
málsins sem komið er upp í
Belgíu.
„Ronald Jansen, einn leik-
manna Waterschei, kom til okkar
á æfingu og sagöi aö Standard
hefði boöiö okkur peninga fyrir
að tapa leiknum á móti þeim, en
staöan í deildinni var þannig aö
heföu þeir tapaö leiknum heföu
þeir misst af meistaratitilinum.
Ég man eftir því aö við hlógum
góölátlega aö þessu tilboöi þeg-
ar það barst okkur og ég varö
ekki var við þaö í sjáifum leiknum
að viö legöum okkur ekki alla
fram. Viö lékum allvel eftir því
sem ég man best þrátt fyrir aö
viö töpuöum leiknum.
Skömmu eftir leikinn kom
Ronald Jansen meö peninga til
okkar á æfingu og sagðist vera
aö greiöa okkur fyrir tapiö gegn
Standard. Hver leikmaöur fékk
sem nam fimmtán þúsund ís-
lenskum krónum i greiöslu fyrir
leikinn.
Sannleikurinn er sá að ég var
nýbyrjaður hjá Waterschei er
þetta geröist — ég held aö þetta
hafi veriö sjötti leikur minn meö
liöinu — og ég geröi mér ekki
almennilega grein fyrir því aö ég
væri aö taka viö mútufé. Ég veit
ekki hvort þetta á eftir að draga
einhvern dilk á eftir sér,” sagöi
Lárus.
Standard var belgískur meist-
ari árið 1982 og þá fór umrædd-
ur leikur fram — í síóustu umferð
deildarkeppninnar. Hann skipti
sköpum eins og áöur sagöi —
Standard sigraöi og varö þar
með meistari — heföi liöiö tapaö
heföi meistaratitillinn fallið And-
erlecht í skaut.
— ÞR/SH.
• Lið Waterschei varð belgískur
bikarmeistari vorið 1982, sama
vor og ieikmönnum liösins var
mútaö af Standard. Myndin var
tekin eftir bikarsigur liðsins —
Lárus er til vinstri í öftustu röð.
„Skil ekki
svona lagað“
— Mér er gjörsamlega óskilj-
anlegt hvernig svona getur
gerst, ég skil hvorki upp né
niður í þessu máli. Um leiö
kemur mér þetta mjög á óvart. í
öllum svikamálum hlýtur bara
aó vera tímaspursmál hvenær
hlutirnir komast upp, þaó er
með öllu ómögulegt aó skilja
hvernig á því stóó aö Gerets
fyrirliöi Standard fór út í þetta.
Eg æföi aldrei undir stjórn
Goethels þjálfara Standard
þegar þetta skeður. Svona
mútumál draga alltaf dilk á eftir
sér og hafa slæm áhrif á alla þá
sem nálægt hafa komiö, ég skii
ekki svona lagað, sagöi Ásgeir
Sigurvinsson er Mbl. ræddi vió
hann í gær. — ÞR.
Petit og Goet-
hels hættu
• Roger Petit, forseti Standard
Liege og þjálfari liösins, Ray-
mond Goethels, sögóu báðir af
sér í gær í vegna mútumálsins í
Belgíu. Petit hætti einnig sem
varaforseti sambands belgískra
knattspyrnuliöa.
Verður Rush
ekki með?
Frá Bob Henneasy, fréttamanni Morg-
unblaðsins í Englandi.
lan Rush, miöherji Liver-
pool, meiddist á ökkla í lands-
leik Skota og Wales-búa á
Hampden Park í Glasgow í
vikunni og vafasamt er hvort
hann geti leikiö meö Liverpool
gegn Everton í 1. deildinni á
morgun —, í leiknum sem
sjónvarpað verður beint
híngaó til lands.
í leik liðanna á Goodison
Park á síöasta keppnistímabili,
en leikiö veröur á Goodison á
morgun, kom Rush heldur bet-
ur viö sögu: hann skoraði þá
fjögur mörk í 5:0-sigri Liver-
pool.
Öruggt má lelja aö Liverpool
vinni ekki svo stóran slgur á
morgun — Everton hefur leikiö
mjög vel aö undanförnu og er
jafnvel sigurstranglegra liöiö
leiki Rush ekki meó. Vissulega
sorgarfréttir fyrir Liverpool-
aödáendur geti hann ekki leikið
meö — en gleðifréttir úr her-
búöum liðsins eru hins vegar
þær aó Kenny Dalglish lék sinn
fyrsta leik meö varaliðinu i vik-
unni.
• Ónafngreindur enskur áhorfandi á Parc de
I.
Princes í París í fyrrakvöld — blóöugur á höndum og í andliti.
Morgunblaöiö/ Símamynd AP
Stuóningsmenn enska landsliósins samir við sig:
Þrjátíu handteknir
Michael Wetl og Andrew Warthaw, fréttamenn AP, tkrifa.
ÁHANGENDUR enska knattspyrnulandsliðsins uróu sér enn einu sinni
til skammar í fyrrakvöld er þeir létu öllum illum látum fyrir og eftir
landsleikinn viö Frakka á Parc des Princes í París, og reyndar einnig
meöan á leiknum stóö. Talsmaöur frönsku lögreglunnar sagöi aó 30 af
þeim 500 Englendingum sem fylgdu liöinu yfir Ermarsundiö hefðu
veriö handteknir vegna óspekta; vegna drykkjuskapar og slagsmála á
miðvikudagskvöld eftir leikinn.
Fimmtán Englendingar voru
færöir á sjúkrahús eftir slagsmál
viö franska áhorfendur og frönsku
lögregluna. Uppþot enskra hófst á
ferjunni yfir Ermarsundiö til Frakk-
lands. Hnífar og flöskur voru brúk-
uö sem vopn, sæti voru rifin úr
farþegasölum og er komið var til
Dunkirk eyöilögöu Englendingarnir
tólf bifreiðir sem uröu á vegi
þeirra.
Michel Hidalgo, þjálfari franska
landsliösins, sagöi eftir leikinn aó
enska knattspyrnusambandið ætti
aö setja bann á knattspyrnu-
áhugamenn þar í landi: þaö ætti
ekki aö leyfa þeim aö fara úr landi
til aö fylgja landsliöinu. Rætt var
um málið á enska þinginu í gær og
sagöi Margaret Thatcher, forsæt-
isráöherra, aö áhangendur lands-
liösins heföu oröiö bresku þjóöinni
til skammar. Sir Paul Bryan, einn
þingmanna íhaldsflokksins, hvatti
stjórnina til beinna aógeröa í
þessu máli til að hægt yröi aö
binda endahnútinn á ólæti enskra
knattspyrnuáhugamanna erlendis.
Englendingar sem komu heim
frá París í gær kenndu frönskum
áhorfendum á Parc des Princes
um hvernig fór. „Þeir byrjuöu á því
aö kasta tréstólum á svæöiö þar
sem viö vorum," sagöi Steve Cash,
19 ára Englendingur. „Viö vissum
ekki fyrri til en óeiröalögregla
ruddist inn til okkar og lamdi hvern
þann sem streittist á móti henni.
Ég sá þó nokkra landa mína býsna
illa meidda," sagöi Steve Cash.
Englendingar hafa löngum haft
slæmt orö á sér í tengslum við
knattspyrnuna. Áhangendur
enskra liöa hafa veriö iðnir viö aö
brjóta og bramla ýmislegt í heim-
sóknum sínum til annarra Evrópu-
landa. Síöast í nóvember i haust
varö her og lögregla í Lúxemborg
aö grípa til örþrifaráöa til aö
stööva uppþot enskra knatt-
spyrnuáhangenda er landsliðið var
þar á ferö.
Enskir
punktar
Fré Bob Hennessey, fréttamanni Morg-
unblaósins í Englandi.
COLIN Todd, fyrrum miövöröur
enska landsliósins, Derby og
Nottingham Forest hefur geng-
iö til liös viö 3. deildarlið Oxford
United. Hann fékk frjálsa sölu
frá Nottingham Forest. „Við
þörfnumst svo sannarlega
þeirrar reynslu sem hann hef-
ur,“ sagði Jim Smith, fram-
kvæmdastjóri Oxford United
eftir aó hann hafói fengið Todd
til liðs við félagið.
Forráöamenn Arsenal gera sér
vonir um að kaupa Graeme
Souness, fyrirliöa Liverpool og
enska landsliösins, þegar þessu
keppnistímabili lýkur. Átján mán-
uðir eru eftir af samningi Soun-
ess viö Liverpool og hann er hinn
ánægöasti meö aö vera samn-
ingsbundinn á Anfield. „Mér líður
vel hér og hef ekki hugsað mér til
hreyfings," sagöi hann í vikunni.
Souness er þrítugur og einn allra
besti miövallarspilari á Bret-
landseyjum. Ekki þykja miklar
líkur á aö hann fari frá Liverpool.
— • —
FIFA — alþjóða knattspyrnu-
sambandiö — á 80 ára afmæli í
sumar og verður haldið upp á
afmælið í Zúrich í Sviss. italía og
Vestur-Þýskaland mætast í
landsleik í knattspyrnu — úrslita-
liöin í síöustu heimsmeistara-
keppni — og dómarinn veröur sá
sami og í síöasta úrslitaleik HM
— brasiliumaðurinn Arnaldo A.
Coelho. Nokkrir kunnir kappar úr
knattspyrnuheiminum verða
heiðraöir sérstaklega í tilefni af
afmælinu, þeir eru Sir Stanley
Rouse, fyrrum formaöur enska
knattspyrnusambandsins, Helm-
ut Schön, fyrrum landsliösþjálfari
Vestur-Þýskalands, og leikmenn-
irnir Pele, Franz Beckenbauer,
Bobby Charlton og Cino Zoff. Þá
veröa þau sjö lönd sem stóðu aö
stofnun FIFA, alþjóöaknatt-
spyrnusambandsins, sérstaklega
heiðruö. Þau eru Frakkland,
Belgía, Danmörk, Holland,
Spánn, Svíþjóö og Sviss.