Morgunblaðið - 11.03.1984, Page 21

Morgunblaðið - 11.03.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 19S4 21 Hringur Jóhannesson fyrir framan eina myndina á sýningunni. Ljósm. ÓI.K.Mag. myndlistinni hér enda stór hóp- ur sem fæst við myndlist. Nú er á ferðinni ákveðin tíska sem er dálítið gróf og ágeng. En það er mjög gott fólk sem að þessu stendur. Myndlist er í hávegum höfð hér á landi og ég hugsa að hvergi í heiminum sé eins mikið um að fólk sæki sýningar og kaupi myndir — erlendis ^kaupir fólk fyrst og fremst eftirprentanir, en hér er algengt að fólk eyði verulegu fé til málverkakaupa. Þetta er auðvitað styrkur fyrir myndlistina. Sumum finnst al- veg nóg um hversu margir eru í því að mála hér á landi — ég hef hins vegar alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé jákvætt að sem flestir leggi hönd á plóg. Það eykur líkurnar á því að við eignumst menn sem standa upp- Viðtal: Bragi Óskarsson Ævar R. Kvaran pre- dikar í Dómkirkjunni KIRKJUNEFND kvenna Dómkirkj- unnar verður með sína árlegu kaffi- sölu á Hótel Loftleiðum í dag, sunnudag 11. mars, og hefst hún kl. 15.00 að lokinni messu í Dómkirkj- unni. í messunni, sem hefst kl. 14.00, mun Ævar R. Kvaran prédika og Kristinn Sigmundsson, óperu- söngvari, syngja einsöng við und- irleik Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista. Ekki er að efa, að marga mun fýsa að hlýða á mál Ævars R. Kvaran, svo kunnur sem hann er fyrir áhuga sinn á andlegum mál- um bg sem þjóðkunnur leikari í áratugi. Þá er einnig ánægjulegt að fá Kristin Sigmundsson í heimsókn, en hann mun einna fyrst hafa komið fram opinberlega á Sunnu- dagstónleikum í Dómkirkjunni fyrir nokkrum árum og vakti þá verðskuldaða athygli áheyrenda. Að undanförnu hefur Kristinn sungið aðalhlutverkið í Rakaran- um í Sevilla við góðan orðstír. Forráðamenn Dómkirkjunnar vilja hvetja fólk til að fjölmenna í messuna á morgun kl. 14.00 til að hlýða á mál Ævars R. Kvaran og söng Kristins Sigmundssonr og bregða sér síðan suður að Hótel Loftleiðum og fá sér kaffisopa hjá konunum í kirkjunefndinni. óhætt er að mæla með kaffisop- anum og ekki svíkur meðlætið. Ævar R. Kvaran Strætisvagn verður við Dóm- kirkjuna að lokinni messu og flyt- ur þá kirkjugesti að Hótel Loft- leiðum, sem þess óska, og til baka aftur. Hjalti Guðmundsson Fróöleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Valgeir Guð- jónsson á vísnakvöldi VÍSNAKVÖLD verður haldið 13. mars á Hótel Borg kl. 20.30 á veg- um Vísnavina. Valgeir Guðjóns- son verður aðal gestur kvöldsins og flytur frumsamið efni. Auk þess koma Guðjón Guðmundsson og Islandssjokkið fram, Þór Sandholt les frumort ljóð og Harpa Helgadóttir flytur eigin lög og ljóð. Rannsóknarþjónusta Landspítala: Tryggingar- stofnunin neitar greiðslu reikninga TRYGGINGASTOFNUN ríkisins hcfur neitað greiðslu á reikningum frá Landspítala fyrir rannsóknir, sem unnar voru í þágu utanspítala- sjúklinga. Heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytið heimilaði gjaldtöku fyrir þessar rannsóknir með bréfi dag- settu 19. nóvember 1982, en sú heimild var miðuð við ákveðið tíma- bil. Stjórnarnefnd ríkisspítala ákvað 3. febrúar 1983 að stofna tækjasjóð, sem fjármagna átti með tekjum af þessari þjónustu út fyrir spítalann. Tryggingastofnunin hefur hins vegar ncitað greiðslu, þrátt fyrir heimild heilbrigðisráðuneytis til gjaldtök- unnar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins setur þessi neitun alvar- legt strik í tækjakaupadæmi Landspítala, viðhald og nauðsyn- lega endurnýjun. Tvær milljónir króna fengust af fjárlagafé til tækjakaupa Landspítala 1983 sem nægði til að leysa út tæki sem vóru þegar komin til landsins um áramótin 1982/1983. Ekkert fé hefur fengist til að fjármagna tæki sem vóru á forgangslista tækjakaupanefndar spitalans 1983. EIGNAÞJÓNUSTAN FASTEIGNA- OG SKIPASALA HVERFISGÖTU 98 (horni Ðarónstígs). SÍMAR 26650—27380. Opið í dag 1—3 Vantar sérhæð með bílskúr helst í Kópavogi. Vantar 3ja og 4ra herb. íbúð- ir fyrir kaupendur sem eru búnir að selja. Sterkar greiöslur. Vantar góðar 5 og 6 herb. íbuðir meö bílskúrum og góöu útsýni, t.d. í lyftublokk. Mjög fjársterkir kaupendur. Nesvegur 2ja herb. íb. á 2. hæð, mjög góð íbúð. Laugavegur, 2ja—3ja herb. ný innréttuö ibúö. Verð 1 millj. Kríuhólar, 2ja herb. 75 fm mjög góð íbúð á 4. hæð. Verð 1300 þús. Ásbraut 3ja til 4ra herb. íb. á 1. hæð. Verð 1550 þús. Orrahólar, 3ja—4ra herb. íbúö á 2. hæö. Æskileg skipti á íbúð með 4 svefnherb. Verð 1550 þús. Álftahólar, góö 4ra herb. ibúð á 3. hæð ásamt bílskúr. Tvennar svalir. Verð 2 millj. Hvannhólmi — einbýli, 196 fm ásamt innb. bílsk. Möguleiki á tveim ibúðum. Selás — einbýli, 189 fm á einni hæð ásamt tvöföldum bílskúr. Uppl. og teikningar á skrifstofu. Stórihjalli, 276 fm raöhús i ákv. sölu. Verð 3,5 millj. Einbýlishús í Mosfells- sveit, til sölu eöa í skiptum tyrir raðhús í Reykjavik. Vantar allar atæröir og geróir eigna á söluakrá okkar. Skodum og verömet- um þegar óakaö er. Sölumenn Örn Scheving. Steingrímur Steingrimsson. Gunnar Þ. Arnason. Lögm. Högni Jónsson, hdl. Falleg lína sem fáir standast MAXIS er burðarmikil og sterk samstæða. Tilvalin sem skilrúm, þar sem MAXIS er jafnfullkomin í bak og fyrir. Með MAXIS má byrja smátt og byggja upp. MAXIS er meiriháttar K *:K . i ' 31 AXIS Hönnuóur Pétur B. Lúthersson. SMIDJUVEGI 9 - SIMI 43500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.