Morgunblaðið - 11.03.1984, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
37
• Nefndarmenn hafa í viðræðum
lagt sérstaka áherzlu á nýtingu
hafnarsvæða, frágang og
merkingu stiga, aukinn öryggis-
útbúnað við hafnir og um borð í
skipum, t.d. landganga og allan
frágang við þá.
• Leitað var samstarfs við hafn-
arstjóra og hafnarverði og beðið
um ábendingar og svör við fyrir-
spurnum í ellefu liðum, auk þess
sem skoðuð var úttekt í máli og
myndum um frágang hafnar-
mannvirkja sem gerð var 1978.
••Nefndarmenn telja nauðsyn-
legt að að skipta verkefnum eftir
landshlutum og heimsækja ýmsar
hafnir, en hafa ekki fengið fjár-
veitingu til að fullvinna umbeðið
verk. Ráðherra lagði áherzlu á að
nefndin lyki störfum sem fyrst og
taldi koma til álita að Hafnar-
málastofnunin legði út nauðsyn-
legan kostnað.
Hér er annað dæmi um þings-
ályktun, viljayfirlýsingu Alþingis,
sem náð hefur skemur eða gengur
hægar fyrir sig vegna þess, að
henni var ekki fylgt eftir af fjár-
veitingavaldinu, þ.e. þeim, sem er
að henni stóðu í atkvæðagreiðslu.
Stuðningurinn er í orði en ekki
fylgt eftir á borði.
Þingmennirnir og
embættismennirnir
Hér hefur verið staldrað við
tvær fyrirspurnir og tvær þings-
ályktanir, sem varða mikilvæg
mál sem eru verð umfjöllunar.
Það getur verið gagnlegt að vekja
athygli á máli með þessum hætti,
fyrirspurn á þingi. Hinsvegar má
ofgera á þessum vettvangi og
veruleg fjölgun fyrirspurna hin
síðari árin bendir til þess að svo
sé. Umræður utan dagskrár og
fyrirspurnir, sem geta átt rétt á
sér, verða oft, vegna ofnotkunar
þessa verklags, bragðlitlar og lit-
lausar í vitund almennings. Fyrir-
ferð þeirra tefur og fyrir megin-
verkefni þingsins, löggjafarstarf-
inu.
Tillögur til þingsályktunar, sem
oftast ganga út á það að þingið feli
ríkisstjórn framgang eða rann-
sókn eins og annars, geta verið
gagnlegar sem viljayfirlýsing
þessarar æðstu stofnunar þjóðfé-
lagsins. Þegar slíkar þingsálykt-
anir kosta fjármuni, án þess að
fjárveiting á fjárlögum fylgi, eru
þær á stundum „sýnd veiði en ekki
gefin", ef nota má slíkt orðalag.
Frumkvæði hins almenna þing-
manns við löggjafarstarf hefur,
því miður, farið minnkandi. Hann
velur sér í æ ríkara mæli það
verklag sem felst í fyrirspurnum
til ráðherra um „vinsæl mál“ — og
tillögum til þingsályktunar, sem
fela ríkisstjórnum að setja nefnd í
hitt og þetta. Ef allt frumkvæði í
löggjöf færist yfir til ríkisstjórna,
benda líkur til, að stafróf löggjaf-
ans verði samið af embættis-
mönnum hins margrædda „kerf-
is“. Ábendingar sérhæfðs aðstoð-
arliðs eru, ótvírætt, af hinu góða.
En þjóðkjörnir þingfulltrúar eiga
að ákveða stefnuna og ráða ferð-
inni.
Það er að vísu auðveldara að
ganga niður í móti, en stundum er
nauðsynlegt að vera brekkusæk-
inn.
3. sæti 19 stig, 4. sæti 16 stig, 5.
sæti 11 stig, 6. sæti 9 stig, 7. sæti
9 stig, 8. sæti 8 stig, 9. sæti 7
stig, 10. sæti 6 stig.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 6. mars hófst ný
keppni Board a Match-sveita-
keppni. Eftir þrjár umferðir eru
þessar sveitir efstar:
Sigmars Jónssonar 71
Sigrúnar Pétursdóttur 63
Guðrúnar Hinriksdóttur 57
Guðna Kolbeinssonar 57
Næsta þriðjudag verður gert
hlé á keppninni í eina viku en
þess í stað spilað við Bridgedeild
Húnvetninga, í Drangey klukkan
19.30 stundvíslega.
Bor útihurðir teak - fura
Bílskúrshurðir
f
t
Tilbúnar til afhendingar strax,
biðjið um myndabækling.
Vald Poulsen
Suöurlandsbraut 10
Innréttingadeild 2. hæð.
Túlípap?
Við ræktum 'aukWom.nsa ^dsins.
íullkomna .frskum og
ssssaafi-________________
5
átúlípönum'.
ínterfk>ra
Gróðurhúsinu við Sigtún: Simar 36770-8634
Metsölublad á hvetjum degi! »
ro