Morgunblaðið - 18.03.1984, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.03.1984, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 Skuldbreyting bænda: Fráleitt að flest bréf- anna endi í Seðlabanka — segir Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðarbankastjóri „ÞVÍ fer fjarri, ad þessi skuldabréf endi flest í Sedlabankanum," sagöi Kjarni Bragi Jónsson, aóstoöar- bankastjóri Seölabanka íslands, í samtali við Mbl., í tilefni bréfs Guö- mundar Siguróssonar, bónda að As- landi í Hrunamannahreppi, til land- búnaöarnefndar neðri deildar Al- þingis á dögunum, þar sem hann fullyröir, að stærstur hluti þeirra skuldabréfa, sem bændur hafa gefið út vegna skuldbreytinga, endi flest eða öll hjá Seólabankanum í formi innlánsbindingar banka, sparisjóöa og innlánsdeilda kaupfélaga. „Samkvæmt reglugerð, sem endurnýjuð er ár frá ári, er gert ráð fyrir, að minnstu sparisjóðir og innlánsdeildir minni kaupfé- laga geti nýtt sér þann möguleika, að koma þessum bréfum inn vegna bindiskyldu í Seðlabankanum. Bankarnir og stærri sparisjóðir gera þetta hins vegar ekki og því er fráleitt að halda því fram, að stærstur hluti þessara bréfa endi hjá okkur," sagði Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, að endingu. Reglugerð um sjálfvirkan sleppibúnað: „Stöðva verður upp- setningu á ófullnægj- andi sleppibúnaði“ I. „ Vorbodinn“ á 30 krónur stk. Vorboðinn Ijúfi þarf ekki endilega aö vera af fuglakyni. Sjómenn nefna rauðmagann einnig vorboðann og nú er „nýr vorboði" til sölu víða um borgina á 30 krónur stykkið. Meðfylgjandi mynd tók Ijósmyndari Morgunblaðsins, Ólafur K. Magnússon, af ungum sölumanni fyrir skömmu. Tvö böm á sjúkrahús á síðasta ári eftir að hafa gleypt rafhlöður: Hætta á kvikasilfurs- eitrun og sáramyndun — segir Árni John- sen alþingismaður „ÉG FAGNA yfirlýsingu Matthíasar Bjamasonar samgönguráðherra, þar sem hann segir í Morgunblaðinu í gær að reglugerð sem skyldi fiski- skip að vera með sjálfvirkan sleppi- búnað björgunarbáta sé í gildi og ráðuneyti hans hafi kvatt til þess að þeirri reglugerð veriö framfylgt af auknum krafti," sagði Árni Johnsen alþingismaður í samtali við Mbl. í gær þegar hann var spurður um stöðu þessa máls í framhaldi af um- ræðum á Alþingi í vikunni. „Ráðherrann sagði," hélt Árni áfram, „að daglega væri verið að setja sleppibúnað með sjálfvirka möguleikanum um borð í íslenzk skip, en þessi yfirlýsing sam- gönguráðherra hlýtur að þýða að þegar verði stöðvuð uppsetning á öðrum búnaði sem fulinægir ekki kröfum reglugerðarinnar. Það sorglega er að sá búnaður, gorma- búnaðurinn, er kominn um borð í 230 íslensk skip, en sá búnaður hefur alls ekki sjálfvirkan sleppi- búnað. Sigmundsbúnaðurinn er mun fullkomnari búnaður með fleiri möguleikum en er þó aðeins í 130 skipum og þess vegna verður að krefjast þess að nú þegar verði stöðvuð uppsetning á öðrum sleppibúnaði en þeim sem tryggir best öryggi sjómanna. Sigmunds- búnaðurinn er eini búnaðurinn sem hefur þessa möguleika, það er hægt að losa björgunarbátana á hefðbundinn hátt með handafli, í öðru lagi með því að taka í hand- fang sem skýtur björgunarbáts- hylkinu frá borði og í því sam- bandi er hægt að velja um það hvort báturinn er þá blásinn upp sjálfvirkt eða hvort hann er blás- inn upp síðar með því að manns- höndin kippi í band sem opnar loftþrýstiflösku bátsins, en í þriðja lagi er Sigmundsbúnaður- inn eini sleppibúnaðurinn sem er sjálfvirkur og skilar bátnum upp á yfirborðið ef mannshöndin hefur ekki komist að til að losa björgun- arbáta, en sjálfvirki búnaðurinn er þannig úr garði gerður að 6—10 sek. eftir að box í stýrishúsi skips er fullt af sjó skýst björgunarbát- urinn frá skipi og er blásinn upp um leið.“ SÍDASTLIDH) sumar gleyptu tvö smá- börn litlar smárarafhlöður hér á landi, en í bæði skiptin tókst að ná rafhlöðun- um úr maga barnanna áöur en skaði hlaust af, að því er fram kemur í grein eftir læknana Ólaf Gísla Jónsson og Þröst Laxdal í Læknablaðinu, tímariti Læknafélags íslands og Læknafélags Keykjavíkur. Það getur verið hættulegt að gleypa slikar rafhlöður vegna hættu á kvikasilfurseitrun og einnig sára- myndun. Reynsla erlendis sýnir að hættulegast er ef rafhlöður festast í vélinda og erlendis hafa börn látist þegar svo óheppilega hefur viljað til. Að undanförnu hefur birzt í erlendum læknatímaritum vaxandi fjöldi greina um börn, sem hafa gleypt litlar rafhlöð- ur, sem notaðar hafa verið í úr, mynda- vélar, heyrnartæki og tölvuspil. f júlí 1983 var 15 mánaða gamall drengur lagður inn á barnadeild Landakotsspítala eftir að hafa gleypt litla rafhlöðu úr tölvuspili og var hún um það bil 11 mm í þvermál og 5 mm á þykkt. Þegar var farið með drenginn í slysadeild þar sem hann fékk uppsölulyf. Hann kastaði þrisvar upp, en rafhlaðan skilaði sér ekki. Mynd af kviði sýndi röntgen- þéttan aðskotahlut ofarlega í maga. Drengurinn var lagður inn og kall- að á Tómas Árna Jónsson, vakthaf- andi sérfræðing í meltingarsjúk- dómum. Barnið var svæft og þess freistað að ná rafhlöðunni með griptöng. Vel gekk að koma maga- spegli niður og gekk greiðlega að ná rafhlöðunni upp. Ofarlega í vélinda losnaði rafhlaðan en fljótlega náðist tak á henni á nýjan leik og náðist rafhlaðan úr barninu eftir að hafa verið fjóra klukkutíma í maga. Nikk- elhúðin utan um hana var orðin kolsvört en rafhlaðan heil að öðru leyti. Drengurinn var útskrifaður daginn eftir og varð honum ekki meint af. Innan mánaðar var annað smá- barn lagt inn, 12 mánaða gömul stúlka, sem hafði komist í tölvuspil bróður síns. Þremur klukkustundum síðar var rafhlöðu úr spilinu saknað og var þá þegar farið með barnið í slysadeild. Röntgenmyndir sýndu tvær rafhlöður í maga. Barnið var lagt inn á Landakotsspítala og gefin lyf til að minnka magasýruáhrif og flýta fyrir magatæmingu. Síðan var barnið sent heim, en kom næsta morgun til myndatöku, sem sýndi að rafhlöðurnar voru komnar vel áleið- is niður smáþarma. Barnið fékk þá laxerolíu og var aftur sent heim. Rafhlöðurnar skiluðu sér átakalítið tveimur klukkustundum síðar, eða um 20 klukkustundum eftir að barn- ið hafði gleypt þær. í grein eftir T. Litovitz við Nation- al Capital Poison Center í Washing- ton DC er skýrt var afdrifum 56 ein- staklinga, sem gleypt höfðu rafhlöð- ur, þar af voru 53 börn, flest yngri en 5 ára. í fimm börnum festist raf- hlaðan í vélinda og fengu þau öll mjög ákveðin einkenni, svo sem kyngingarörðugleika, uppköst og hita. Hjá þremur þeirra dróst að ná rafhlöðunni upp og veiktust þau öll mjög alvarlega og tvö þeirra létust. Hjá 51 barni gekk rafhlaðan niður P maga og fékk aðeins eitt þeirra al- varlega fylgikvilla. Þrjú börn fengu einkenni vegna þess að rafhlaðan opnaðist og fékk eitt þeirra kvika- silfurseitrun. Af þessum 56 einstakl- ingum fengu níu fylgikvilla. 1 33 til- vikum fóru rafhlöðurnar óáreittar niður eftir meltingarvegi án með- ferðar. í 14 tilvikum var reynt að ná rafhlöðu burt með magaspeglun eða skurðaðgerð. í fjórum tilvikum var börnum gefið uppsölulyf, en í engu tilvika komu rafhlöður upp með upp- köstum. Leiðrétting SÚ MISRITIJN varð í Morgunblaðinu í gær er borin voru saman sundafrek Guðlaugs Friðþórssonar úr Vest- mannaeyjum og Drangeyjarsund Grettis Asmundssonar, að sagt var að Grettir hefði synt til land eftir eldivið. Orðstofninum „við“ var þar ofauk- ið. Grettir synti til lands til að ná í eld. Morgunblaðið leiðréttir hér með þessa misritun og biðst jafnframt velvirðingar á henni. Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar: Samþykkt samninganna bezti kosturinn í erfiðri stöðu STARFSMANNAFÉLAG Reykjavíkurborgar undirritaði hinn 9. marz síð- astliðinn kjarasamning við Reykjavfkurborg. Hann er samhljóða þeim samningi, sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja gerði við ríkisvaldið skömmu áður. Á mánudag og þriðjudag munu félagar í Starfs- mannafélaginu segja af eða á um það, hvort þeir vilja samninginn, í allsherjaratkvæðagreiðslu, sem fram fer í félaginu. Af því tilefni ræddi Morgunblaðið við Harald Hannesson, formann félagsins. „Þótt samningurinn sé ekki gallalaus," sagði Haraldur, „þá tel ég það vera bezta kost félags okkar, að hann verði samþykkt- ur. Helztu meinbugir samnings- ins eru að hann er óverðtryggð- ur, engir samningar gilda um verðbætur, en svo er raunar um þá kjarasamninga, sem þegar hafa verið gerðir í þjóðfélaginu, milli Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands ís- lands, og mikill hluti aðildarfé- laga ÁSÍ hefur þegar samþykkt. Á þessari forsendu fyrst og fremst tel ég óráð að fella þenn- an samning. Það er einfaldlega ekki hægt að hafna honum, þeg- ar svo mikill fjöldi launþega í landinu hefur þegar sætzt á óverðtryggða samninga. Það má ef til vill segja í þessu sambandi, að samningurinn sé gerður í trausti þess að ríkis- stjórnin haldi fast við stefnu sína. Henni hefur tekizt að koma verðbólgunni úr 130 prósentum á ári niður u.þ.b. 10 prósent. Auð- vitað hefur þetta átak, að færa verðbólguna niður á þetta stig, orðið til þess að launþegar landsins hafa þurft að færa miklar fórnir. Við mótmælum því að þær byrðar, sem við höf- um þurft að axla í þessu sam- bandi, séu eingöngu lagðar á launþega þessa lands, en reynsl- Haraldur Hannesson an sýnir einnig að verðbólgan er mikill óvinur launafólks, ekki sízt þeirra, sem lægst hafa laun- in. Þær áfangahækkanir, sem í samningnum eru, ættu þó að andæfa aðeins við ríkjandi verð- bólgu og koma í veg fyrir kjara- skerðingu á samningstímanum. í raun munum við með samþykkt samninganna leggja ábyrgð á þeim á herðar stjórnvalda." Að lokum sagði Haraldur Hannesson: „Það er ljóst, að við erum á engan hátt ánægðir með þennan samning, en eftir miklar vangaveltur, komst samninga- nefnd Starfsmannafélagsins að því að hann var bezti kosturinn í erfiðri stöðu. Það er því bjarg- föst skoðun mín, að starfsmenn Reykjavíkurborgar eigi að sam- þykkja þessa samninga. Ég per- sónulega vil að minnsta kosti ekki bera ábyrgð á því, að þeir félagar innan Starfsmannafé- lagsins, sem við lökust kjör búa, þurfi enn í einhverja mánuði að bíða eftir þeim hækkunum, sem samningarnir fela í sér.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.