Morgunblaðið - 18.03.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984
5
Glugginn kl. 20.50:
Ballett, myndlist, tón-
list, leiklist og kvikmynd
Glugginn verður á dagskrá sjón-
varpsins í kvöld kl. 20.50 og er um-
sjónarmaður hans að þessu sinni
Sveinbjörn I. Baldvinsson, en þetta
er síðasti Glugginn sem hann sér
um.
í þættinum verða sýnd dans-
atriði úr „Öskubusku", ballettin-
um sem Þjóðleikhúsið sýnir um
þessar mundir og rætt er við Ás-
dísi Magnúsdóttur sem dansar
aðalhlutverkið, Öskubusku sjálfa.
Rætt verður við Völu Jónsdótt-
ur um nýja strauma og viðhorf í
myndlist og brugðið verður upp
myndum af verkum nokkurra
ungra íslenskra myndlistar-
manna. Þá verður hljómsveitin
Pax vobis kynnt og flutt atriði úr
sýningu vorkvenna Alþýðuleik-
hússins, „Undir teppinu hennar
ömmu“ eftir Nínu Björk Árna-
dóttur. Einnig verður rætt við
Ingu Bjarnason leikstjóra „tepp-
isins“.
Erlendur Sveinsson forstöðu-
maður Kvikmyndasafns íslands
kemur til viðtals um kvikmynd
sem Loftur Guðmundsson ljós-
myndari tók árið 1944. Sýnd
verða atriði úr myndinni, sem nú
hefur verið endurgerð og verður
sýnd almenningi á næstunni.
Nígeríu-
flug Arnar-
flugs ligg-
ur niðri
Málin munu skýrast á
næstu dögum, segir
Agnar Friðriksson,
framkvæmdastjóri
„MÁLIN munu skýrast á
næstu dögum, en þeir aðilar
sem við eigum viðskipti við,
eins og reyndar fleiri í Níg-
eríu, eiga í erfiðleikum með að
fá gjaldeyrisyfirfærslu til að
standa í skilum við aðila er-
lendis,“ sagði Agnar Friðriks-
son, framkvæmdastjóri Arnar-
flugs, í samtali við Mbl., er
hann var inntur eftir því hvort
félagið væri hætt flugi í Níg-
eríu.
„Þessi staða er hins vegar ekki
ný af nálinni í Nígeríu. Þarlendir
aðilar hafa iðulega átt í erfiðleik-
um með að standa í skilum á rétt-
um tíma, m.a. við íslenzka aðila,
sem átt hafa við þá viðskipti. Það
er hins vegar rétt að taka fram, að
um fyrirframgreiðslu er að ræða,
þannig að nú er verið að ræða um
greiðslu fyrir marzmánuð," sagði
Agnar ennfremur. Flug félagsins
mun liggja niðri þar til niðurstaða
fæst í málið.
Aðspurður sagði Agnar að
samningur félagsins við Líbýu-
menn hefði runnið út um mánaða-
mótin. „Samningaviðræður um
áframhaldandi flug standa nú yfir
og munu þau mál væntanlega
skýrast á næstunni. Boeing
707-þota félagsins hefur hins veg-
ar verið í stöðugu flugi fyrir aðila
í Evrópu og verður væntanlega
áfram, en samningar eru þar í
burðarliðnum."
Um frekari verkefni á erlendum
vettvangi sagði Agnar Friðriks-
son, að samningaviðræður stæðu
nú yfir við nokkra aðila, m.a. í
Evrópu, bæði um farþega- og
vöruflug.
Loks var Agnar Friðriksson,
framkvæmdastjóri Arnarflugs,
inntur eftir því hvernig áætlunar-
flug félagsins milli ísland og Evr-
ópu gengi. „Flutningar hafa verið
mun meiri en bjartsýnustu menn
þorðu að vona það sem af er árinu.
Við vorum með um 50% aukningu
farþega í janúar, yfir 100% aukn-
ingu í febrúar og ef litið er á far-
þega og bókanir í marz, þá er
aukningin þegar um 60% frá fyrra
ári. Við þetta bætist svo sú já-
kvæða þróun, að við fáum stöðugt
fleiri farþega, sem eru fullborg-
andi, sérstaklega erlendis frá.“
^Apglýsinga-
síminn er 2 24 80
Kynnir: Magnús Axelsson.
Stjómandi: Sigurður Haraldsson.
Verð kr. 70 fyrir börn yngri en 12
og kr. 130 fyrir fullorðna.
Sjá einnig auglýsingu um Ferðaveislu
í Súlnasal á sunnudagskvöld.
Samvinnuferdir - Lartdsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
ara
éO50
Stórglœsileg Hollandshátíð! Fjöldi góðra gesta frá
Hollandi kemur með ýmislegt spennandi í pokahorninu,
og íslenskir skemmtikraftar láta ekki sitt eftir liggja.
í anddyrinu verða settir upp spéspeglar, lírukassaleikari
sér um tónlistina, tréklossasmiður og gamaldags
ljósmyndari verða að störfum, og allir íá pönnukökur sem
hollenskur bakari bakar á staðnum.
★ Inni í sainum verður teiknimyndasýning á stóra tjaldinu.
★ Aíhent verða ókeypis bingóspjöld og allir taka þátt í
glœsilegu íerðabingói þar sem aðalvinningurinn er að
sjálísögðu dvöl í sœluhúsi í Hollandi íyrir alla fjölskylduna.
★ Allir taka þátt í nýstárlegum leikjum.
★ Bamaleikhúsið Tinna sýnir Nátttröllið - bráðskemmtilegt
barnaleikrit.
★ Steini og Olli (Magnús og Ómar) mœta, og aldrei að vita
hvað þeim dettur í hug.
★ Trúðurinn Skralli (Aðalsteinn Bergdal) leikur við krakkana.
★ Allir fá sœlgœti.