Morgunblaðið - 18.03.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.03.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 25 Merkasta fréttin? er spurt í útarpsþætti á sunnudögum. Ein af merkari fréttum þessa vetrar á voru landi eru kannski skreiðartöflurnar sem farið er að framleiða fyrir hjálparstarfið í hungruðum heimi. Að gera þannig úr skreiðinni töflur með eggjahvítuefninu, sem þetta hungraða fólk skortir mest. Svo auðveldar í flutningi og hand- hægar í dreifingu að auðvelt er að koma þeim við frumstæðustu samgöngur til þeirra sem þurfa. Þetta mátti sjá í fréttamynd í sjónvarpinu um daginn, þar sem íslenskir fulltrúar hjálparstarfs- ins sýndu dreifingu þessara proteinríku fæðu tii viðtakenda í Eþíopíu í litlum 15 töflu plast- pokum með hálfs mánaðar skammti af eggjahvítuefni. Stórkostleg lausn á góðu máli. Flutningur á fyrirferðarmik- illi skreiðinni og óhönduglegu í pökkun er æði dýr alla leið frá þessu landi norður á 64. breidd- argráðu suður undir miðbaug í Nígeríu og svo á áfangastað inn í skógana. Fyrr hafa menn velt því fyrir sér að mala hana. Þegar undirrituð fór á árinu 1962 með skreið á vörusýningu í Lagos, hafði einn útflytjandinn, Magn- ús Andrésson, mikinn hug á að draga úr kostnaðinum á þennan sama hátt. Hafði látið mala skreið og móta í kökur, stærri og lausari en þessar nú, en líka í plastpokum. Er skemmst frá að segja að ekki tókst að fá Nígeríu- mennina svo mikið sem að líta við þessari skrýtnu skreið. f þeirra huga var matvaran skreið allt annað en eitthvert mjöl. Hún er hefðbundinn réttur.sem fólkið hafði í áratugi lært að borða vegna þess að harður vökvalaus fiskurinn er næstum eina eggjahvíturíka fæðan sem unnt er að varðveita fyrir skor- dýrum og skemmdum í hitabelt- issvækjunni nægiiega lengi til að koma henni á áfangastað inni í landi. Og þeir höfðu líka lært að matreiða hana á áfangastað aft- ur, bleytta upp og soðna í olíu í herramannsmat með sterku kryddi og gjarnan grænmeti. Með þessu er svo gjarnan, eins og með öllum öðrum mat, músað yam, sem er gríðarstór rótar- ávöxtur og gegnir þar í landi sama undirstöðuhlutverki sem hrísgrjón í Austurlöndum, flat- kökur í Mexíkó og kartöflur á meginlandi Evfopu áður fyrr. Er magafylli með öllum mat. Mér hefur oft dottið í hug þegar verið er að skrifa um það hér að Níg- eríumenn séu óhressir með að við kaupum ekkert af þeim á móti skreiðinni, sem þeir kaupa af okkur fyrir harðan gjaldeyri, hvort ekki mætti í staðinn flytja yam í skipunum tii baka til þess- arar þjóðar, sem alltaf skortir kartöflur og kann að borða þær músaðar. Hvað um það, Nígeríumenn vildu ekkert duft í stað þessa herramannsmatar, skreiðarinn- ar. Eina sem bagaði var að haus- ana vantaði á sýningarskreiðina okkar, en þar í landi grunar fólk gjarnan að eitthvað sé bogið við það ef það fær ekki að sjá haus- inn — þá geti þetta nefnilega verið fiskur með mannshöfuð sem verið er að senda þeim. Átt- um við í mesta basli þar til norskur vinur gerði herför á sýningu Norðmannanna, sem höfðu vaðið fyrir neðan sig, og stal handa okkur nokkrum fisk- um með haus til að hafa á sýn- ingarbásnum. En mest skamm- aðist sölukonan frá íslandi sín þó þegar þeir spurðu: Borðið þið þetta sjálf? Grunaði að við legð- um okkur ekki skreiðina til munns sjálf. Þetta rifjaðist óþægilega upp þegar í vetur sást í sjónvarpinu hjá okkur ónýt skreið, sem einhverjir höfðu ætl- að að smygla fram hjá eftirlitinu í skip. Láta þetta fátæka fólk kaupa fisk og fara með heim til sín til að finna þar að enginn fiskur var innan í, bara beinin innan í harðri skelinni, og ekkert sást að utan. Það er meiri skepnuskapur en svo að það eigi nokkrar málsbætur. Þó virtist bóla á þeim. Við erum komin dulítið á ská við efnið. Skreiðartöflur hjálpar- stofnananna eru stórkostleg lausn á þeim vanda að bjarga fólki frá hungurdauða. Og drýgja söfnunarféð svo ekki fari of mikið í flutningskostnað. Þótt það geti ekki verið aðalsjónar- miðið, þá er gott þegar saman geta farið kaup á matvælum frá okkur og eins mikil hjálp við hungraða og hægt er að fá fyrir féð. í Eþíopíu er fólk líka óvant fiskmeti og á þar ekki mat- reiðsluhefð. Því er hægt að leið- beina fólki með að borða töfluna með korni, sem bætt er út í, eða sem súputeninga til að sjóða úr skreiðarsúpu og sjúkraskýlin gefa þeim verst settu hana með lýsi. Og nú áður en skreiðartöfl- urnar fara aftur þangað og einn- ig til Ghana, má skipuleggja dreifinguna eftir viðhorfum þar suður frá en ekki hér, eins og fram kom hjá Jóni Ormi sem var þarna fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Hjálparstarf er vit- anlega ekki til að losna við óseld- an varning. Það er til þess að nýtá til hins ýtrasta í þá fæðu sem drýgst er. Það uppfylla töfl- urnar úr skreiðinni. Stundum hefur skotið upp öðru viðhorfi hjá okkur og öðr- um líka. T.d. þegar á sínum tíma kom fram á Alþingi tillaga um að leysa offramleiðslu á mjólk hér á landi með því að gefa mjólkurduft, sem ríkið keypti, það til hjálparstarfs. Hækka þar með hinn vesæla kvóta okkar til þróunarhjálpar. Hljómaði nógu fallega og sjálfsagt í góðri mein- ingu fram sett. Um sama leyti var ég að koma úr flóttamanna- búðum Kambódíumanna á landamærum Thailands. Það eina sem nóg barst af handa þessu illa haldna flóttafólki var einmitt mjólkurduft. Höfðu bor- ist boð um mjólkurduft í tonna- tali frá Efnahagsbandalagslönd- unum og frá Nýja Sjálandi. Af hverju? Af því að umframbirgð- ir voru alls staðar svo miklar í heiminum og engin leið að selja þær. Auk þess voru menn að átta sig á því um allan heim að mjólkurduftsgjafirnar gátu ver- ið mesta hermdargjöf til þeirra sem þær voru sendar. Mæðurnar héldu gjarnan að þetta væri það besta fyrir vesælu börnin og hættu að gefa þeim brjósta- mjólkina, sem einmitt ver þau best fyrir pestum. Þar eru engir sýklar, eins og þau fengu svo úr menguðu vatninu sem mjólkur- duftinu var í blandað. Ef nokk- urt vatn var þá að fá, sem var miklu algengara og þá reynt að borða duftið, sem maginn þoldi ekki. í flóttamannabúðum Kambódíufólksins var þess vandlega gætt að hjálparfólkið blandaði sjálft mjólkina á hreinlegan hátt og léti stærri börnin drekka glas á staðnum og‘ að því ásjáandi. Hreint vatn er víðast á hjálp- arsvæðunum það sem skiptir sköpum. Við hér á íslandi, þar sem vatnið gusast og lemur lá- rétt og lóðrtt allan ársins hring, og hríslast niður yfir landið, eig- um erfitt með að gera okkur í hugarlund hvílíkt böl vatnsleysi er. Því er kannski einna mikil- vægast að gefa fólki „vatn“, þ.e. brunna til að fá úr vatn. Það verður viðvarandi hjálp. Hér á landi eru margir sem einmitt veita slíka hjálp. Ýmiskonar samtök, sem eru hluti af al- þjóðastarfi, leggja til brunna. Af tilviljun veit ég t.d. að kvenna- klúbbar leggja fram fé á hvern félaga í því skyni. Zontakonur til 4000 brunna til vatnsöflunar í Shri Lanka og Soroptimistakon- ur fyrir borunum eftir vatni í Senegal. Kvenfélagasambandið hefur líka lagt til brunna í Zambíu, ef ég man rétt, gegn um norræna húsmæðrasambandið. Stuðlar þannig að því að fólk í vatnslausum löndum fái þúsund- ir varanlegra brunna. Sjálfsagt eru fleiri í þessu en maður veit, enda kemur það ekki fram á myndum í blöðum. ViA Breiðdalsvík. Ljósm. Snorri Snorrason Siðan var smalað stíft á Iðjufund- inn og fór ekkert á milli mála, þar komu fleiri við sögu en Iðjumenn einir. Ekki tókst að fella samning- ana þar og þá beindu þessir áhugamenn um að fella ASÍ- samningana athygli sinni að Sókn og þar náðu þeir árangri. Síðan hafa þeir einbeitt sér að opinber- um starfsmönnum og mest unnið meðal kennara, sem að vonum eru ekki ánægðir með launakjör sín. Hin nýju vinnubrögð eru í því fólgin, að Alþýðubandalagið er ekki haft á oddinum. Því er er haldið í felum og Svavar Gestsson fær lítið að hafa sig í frammi. Hin opinbera forysta Dagsbrúnar með Guðmund J. í fararbroddi hefur líka hægt um sig. Hins vegar eru huldumenn á ferð, sem skjóta upp kollinum hér og þar, og leitast við að hafa áhrif í félögum, sem þeim koma ekki við. Mörgum þykja þessi vinnbrögð keimlík þeim, sem samtök stúdenta beittu eftir 1968, þegar Þröstur Ólafsson var einn helzti forystumaður þeirra. Hann er nú forstjóri Dagsbrúnar og hef- ur skipt um hlutverk frá því að hann sat í fjármálaráðuneytinu fyrir nokkrum misserum og barði niður kaupkröfur opinberra starfsmanna. Það er mat manna í verkalýðshreyfingunni, að nú þeg- ar hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um það á vinstri vængn- um að fella Ásmund Stefánsson sem forseta ASÍ á næsta þingi samtakanna. horfast í augu við þá staðreynd, að þetta misrétti gengur ekki lengur. Þau forréttindi, sem flokkur þeirra hefur notið um áratugi vegna ranglátrar kjördæmaskip- unar eru senn á enda. Það er skynsamlegra fyrir þá, að standa með sjálfstæðismönnum að sanngjörnum breytingum á stöðu samvinnufélaganna, sem jafni samkeppnisstöðu hinna ýmsu rekstrarforma heldur en að berj- ast með kjafti og klóm gegn af- námi sérréttinda, sem verða fyrr eða síðar þurrkuð út. Hins vegar er sjálfsagt til of mikils mælzt, að SÍS-kóngarnir fallist á nauðsyn þess að fella niður forréttindi þeirra. Forsvarsmenn Sjálfstæðis- flokksins verða að gera sér ljóst, að sérréttindi Sambandsveldisins er meiri háttar pólitískt mál. Reiðin er orðin svo mikil og óánægjan svo djúpstæð, að þeir sem berjast við risann, hver á sín- um stað, munu ekki una aðgerða- leysi og áhugaleysi af hálfu þeirr- ar stjórnmálahreyfingar, sem jafnan hefur sett einkaframtakið á oddinn. Huldufólk á ferð Kjarasamningar þeir, sem gerð- ir voru af ASÍ og VSÍ hafa verið samþykktir af meginþorra laun- þega. Nú eftir helgina fer fram atkvæðagreiðsla meðal opinberra starfsmanna um þessa samninga og skiptir hún að sjálfsögðu miklu máli. Andstæðingar þessa samkomu- lags í hópi verkalýðsmanna hafa beitt nýjum vinnubrögðum í bar- áttunni gegn samningunum. Upp- hafið var á Dagsbrúnarfundinum. Bæði opinberir starfsmenn og aðrir launþegar, sem ekki hafa gengið frá samningum enn, verða hins vegar að íhuga vandlega þá kosti sem fyrir hendi eru. Verði ASÍ-samningarnir ekki samþykkt- ir almennt í landinu er fyrir- sjáanlegt, að sá mikli árangur, sem náðst hefur í efnahagsmálum á nokkrum mánuðum þurrkast út. Vilja menn heldur 130% verð- bólgu eins og við bjuggum við fyrir ári og 50—60% vexti?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.