Morgunblaðið - 18.03.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.03.1984, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 Gönguferð í stigum sjúkrahússins er einn þáttur endur- haefingarinnar. Hér eru þeir að leggja í’ann Guðmundur Á. Björnsson, Sveinn Skaftason og Aðalsteinn Eiríks- son. Sjúkraþjálfarinn leggur sjúklingunum lífsreglurnar áð- ur en haldið verður heim. Sveinn Skaftason, Guðmund- ur Á. Björnsson, Aðalsteinn Eiríksson og Gísli Jónsson hlýða á með andakt. „Fannst mér ég byrja nýtt líf á öðrum degi“ Rætt við hjartasjúklinga á Bromton- sjúkrahúsinu, sendiherrann í Lundúnum og sóknarprestinn á Stóra- Bretlandi LENGI hafa íslenzkir hjartasjúklingar feng- ið bót meina sinna á sjúkrahúsum í Lundún- um, meinum, sem ekki hefur verið hægt að vinna bug á hér heima. Allflestir þeirra koma aftur heim eftir árangursríka aðgerð og stuttan tíma til að byrja nýtt líf. Byrja að nýju í nánast sömu sporum og þeir voru áður en sjúkdómurinn fór að þrengja að þeim. Lengi hefur þetta fólk notið frábærrar um- önnunar enskra heilbrigðisstétta og síðast en ekki sízt ómetanlegrar aðstoðar þeirra íslendinga búsettra í Lundúnum, sem helgaö sig hafa þeim starfa. Þar er helzt að minnast Önnu Cronin, sem helgað hefur sig aðstoð og líkn þessa fólks um árabil og nýráðins sendi- ráðsprests, séra Jóns A. Baldvinssonar. Anna Cronin lætur nú af störfum í kjölfar ráðningar Jóns og hafa íslenzk stjórnvöld ákveðið að heiðra hana meö því að veita henni heiðurslaun, 1.000 pund á ári. Þeir sjúklingar, sem undirritaður hefur rætt við vegna þessa, eru á einu máli um að störf þeirra Jóns og Önnu séu og verði ómetanleg. Undirritaður var á ferð í Lundúnum fyrir skömmu og átti þá þess kost að kynnast störfum þessa fólks og heyra viðhorf sjúkl- inga og sendiráðsins við ferðum íslenzkra hjartasjúklinga þangaö. Fara hér á eftir við- töl við sjúklinga, sendiherrann, Einar Bene- diktsson, og sendiráðsprestinn, séra Jón A. Baldvinsson. Morgunblaðið hefur áður birt viðtal við Önnu Cronin. HG Get kannski farið að draga golfkerr- una fyrir konuna það gat ég ekki áður, segir Guðmundur Á. Björnsson „ÞAÐ hefur allt gengið svo miklu betur en maður þorði að vona og móttökur hér og þjónusta hafa verið með miklum ágætum. Þetta er miklu léttara en ég bjóst við og því finnst mér engin ástæða fyrir væntanlega „kandídata” að vera hræddir. Hér er ekkert hægt að setja út á, meira að segja maturinn er góður og and- rúmsloftið mjög frjálslegt. Við köll- um sjúkrahúsið oftast hótelið okkar á milli,“ sagði Guðmundur Á. Björnsson frá Reykjavík. „Mér finnst það nauðsynlegt fyrir fólk, sem gengur í gegnum þetta, að njóta aðstoðar sendi- ráðsprestsins við undirbúning ferðarinnar, aðstoð meðan á henni stendur og skipulagningu heim- ferðarinnar. Þá er gott að hafa nána ættingja með sér, í því felst mikið öryggi. Þá hefur það mikið að segja hve margir íslendingar eru hér og hve mikil samstaða er meðal þeirra. Nauðsyn aðstoðarmanna og sendiráðsprestsins er svo mikil, að Tryggingastofnun ætti tvímæla- laust að kosta ferð aðstoðar- mannsins hingað og tryggja það fyllilega, að starf séra Jóns falli ekki niður. Mér finnst ég hafa byrjað nýtt líf strax á öðrum degi. Ég get kannski farið að draga golfkerr- una fyrir konuna, það var ekki möguleiki fyrir mig áður,“ saeði Guðmundur Á. Björnsson. HG Guðmundur Á. Björnsson ásamt konu sinni, Sigríði Flygenring, og dóttur sinni, Bryndísi. „Ævintýri líkast að fylgjast með árangrinum og framförunum" segir séra Jón A. Baldvinsson „ÉG VAR sendur hingað í júlí síðast- liðnum til reynslu í 6 mánuði og nú hefur verið ákveðið, að áfram skuii vera prestur við sendiráðið hér, sér- staklega til aðstoðar sjúklingum auk annarra prestsstarfa. Upphaf þessa má rekja allt aft- ur til ársins 1982. Hvatamaður þessa var séra Jónas Gíslason, lektor. Hann kom hingað í upp- skurð þá, en hann var meðal ann- ars fyrsti sendiráðspresturinn í Kaupmannahöfn. Hann fann nauðsyn þess, að sama þjónusta væri veitt hér og þar, en á hans tíma var talsvert um það, að sjúkl- ingar væru sendir til Kaupmanna- hafnar. Þrátt fyrir að Anna Cron- in hefði starfað hér með miklum ágætum í mörg ár, fannst honum nauðsynlegt að starfsmaður Tryggingastofnunar, prestur, væri í beinum tengslum við sendiráðið og gæti það auðveldað honum störfin," sagði séra Jón A. Bald- vinsson, sóknarprestur í Stóra- Bretlandi, er blm. Morgunblaðsins ræddi við hann um embætti hans fyrir skömmu. Aöstoð Einars Benedikts- sonar ómetanleg „Jónas Gíslason ræddi þessa hugmynd sína við ráðmenn heima. Þeir tóku henni mjög vel og var þá haft samband við mig vegna þess að ég hafði lært í þessum efnum í Edinborg áður, meðal annars þjónustu við sjúklinga. Fram- kvæmdin dróst hins vegar á lang- inn og það var fyrst síðastliðið vor, sem tilraunin var ákveðin. Henni er nú lokið og ákveðið er að halda mér hér áfram, ekki sízt fyrir ákveðna framgöngu Einars Benediktssonar, sendiherra. Hann hefur bæði veitt mér alla aðstöðu og aðstoð, sem hægt er að hugsa sér og hefur það reynzt ómetan- legt. Alþingi samþykkti rétt fyrir síðustu jól að veita fé til þessa starfa. Sjúkraflutningarnir hafa verið kveikjan að því, að þetta er orðið að raunveruleika, en þeira hafa farið mjög í vöxt á undan- förnum árum. Sem dæmi má nefna að 1982 komu hingað tæp- lega 100 sjúklingar, í fyrra 160 og búizt er við rúmlega 200 í ár, fari svo sem horfir. Öðrum þræði starfsmaður Tryggingastofnunar Starf mitt felst aðallega í því, að greiða götu þessara sjúklinga og aðstoðarmanna þeirra og öðrum þræði er ég því starfsmaður Tryggingastofnunar. Starfið hefst gjarnan áður en sjúklingarnir koma, því þeim og aðstoðar- Séra Jón A. Baldvinsson á skrifstofu sinni í sendiráðinu. mönnum þeirra þarf að útvega húsnæði og fleira áður en þeir koma á staðinn. Oft hefur upplýs- ingaskortur heima gert þessu fólki erfitt fyrir, en það hefur lagazt verulega með tilkomu Félags hjarta- og æðasjúklinga, en það myndar fólk, sem gengið hefur í gegnum slíkar aðgerðir. Þegar sjúklingar og fylgdarmenn þeirra koma á flugvöllinn hér, þarf að taka á móti þeim, því þeir eru mis- munandi hressir og oft á tíðum gjörsamlega ókunnugir í borginni. Eftir að þeim hefur verið komið á áfangastað þarf síðan að aðstoða bæði sjúklinga og fylgdarmenn á ýmsan hátt meðan á dvölinni stendur. Þess vegna hef ég mikið samband við sjúkrastofnanir hér Inga Huld Markan, söngstjóri og organisti, gefur tóninn. og er milligöngumaður milli þeirra og stofnana heima á fs- landi. Að lokinni sjúkravistinni þarf síðan að gæta þess, að sjúkl- ingar komizt heilu og höldnu út í flugvél og gæta þess, að þar verði hugsað um þá eins og þörf er á. í því sambandi hefur samstarfið við starfsfólk Flugleiða verið með ágætum. Sóknarprestur í Stóra-Bretlandi Fyrir utan þetta, sem reynzt hefur aðalstarfið, er ég svo auðvit- að starfandi sendiráðsprestur og fæ því oft til meðferðar mál af því tagi, sem upp koma við sendiráð, þarf að leysa úr ýmis konar vand- kvæðum fólks. Síðan er ég safnað- arprestur íslendinga hér og hef fengið nafnbótina sóknarprestur í Stóra-Bretlandi og hér hefur í raun verið stofnaður íslenzkur söfnuður og kosin sóknarnefnd, þó löggilding hafi ekki fengizt. Sókn- arnefndina skipa Vigdís Pálsdótt- ir, sendiráðsritari, formaður, en hún var eitt sinn formaður sókn- arnefndarinnar í Kaupmanna- höfn, Sverrir Guðmundsson, námsmaður og Inga Huld Markan, námsmaður, en hún er jafnframt organisti og söngstjóri kirkjukórs- ins. Söfnuðurinn er bæði dreifður og sundurleitur. I honum eru aðal- lega námsmenn, sem auðvelt er að ná til og íslendingar búsettir hér, sem búa dreift og því löng heið fyrir marga á samkomur. Engin skrá er til yfir íslendinga búsetta hér, en það eru um 300 manns í Lúndúnasöfnuðinum og á fyrstu formlegu guðsþjónustu okkar hér um jólin komu um 100 manns. Sú guðsþjónusta var í norsku sjó- mannakirkjunni, en síðan höfum við fengið aðstöðu í dönsku kirkj- unni við Regents Park og nú stendur til að koma reglu á guðs- þjónustuhaldið. Það hefur verið mjög ánægjulegt að starfa að upp- byggingu safnaðarins hér vegna jákvæðra undirtekta, sérstaklega unga fólksins, en uppistaða kirkjukórsins eru til dæmis ungir námsmenn, sem eiga vel heiman- gengt. „Pubbinn“ eini reglulegi sam- komustaður íslendinga hér Þar sem söfnuðurinn hefur enn ekki fengið löggildingu, eru mér ekki leyfð öll venjuleg prestsstörf. Ég má til dæmis ekki vígja fólk í hjónaband, en það má hvergi á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.