Morgunblaðið - 18.03.1984, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.03.1984, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 Ljóamyndir Mbl.: G.Berg. Oft er þröng á þingi í kringum „reiknimeistara" í keppnum félagsins. Hér er Margrét Þórðardóttir, reiknimeistari, umkringd spilurum sem líklega bíða spenntir eftir tölum. Þess má geta, að Margrét er dóttir Þórðar heitins Sveinssonar, sem lengi var í stjórn félagsins á fyrstu árum þess. Brídgefélag Akureyrar w ára: 40 Efnir til 80 para tvímenn- ingskeppni 23.—25. mars £ ^ Ár 1944 mánudaginn 5. júní komu nokkir áhugamenn fyrir Kontraktbridge saman í w W húsi Verslunarmannafjel. á Akureyri til þess að ræða um stofnun bridgefjelags hjer í bænum. Fundarstjóri var kosinn bæjarstj. Steinn Steinsen. Samþykkt var einróma að s-tofna fjelagið og stjórn þegar kosin. Þessir hlutu kosningu: Formaður Stefán Arnason, ritari Óskar Sæmundsson, gjaldk. Vernh. Sveinsson. — Varastjórn: Halldór Ásgeirsson, Árni Sigurðsson, Jón Steingrímsson. — Keppnisnefnd: Halldór Ásgeirsson, Karl Benediktsson, Sigtr. Júlíus- son, Einar Sigurðsson. Form. sjálfkjörinn. — Varamenn: Þórður Sveinsson, Friðrik Hjaltalín, Björn Einarsson. — Endurskoðendur: Jón Sólnes, Tómas Steingrímsson. Fleira gerðist ekki, fundi slitið. — OSæmundsson. ii Þannig hljóðar fyrsta fund- argerð Bridgefélags Akureyr- ar, sem samkvæmt þessu held- ur upp á fjörutíu ára afmæli starfseminnar um þessar mundir. I næstu fundargerð félagsins kemur fram, að sjóð- ur „Gamla spilaklúbbsins, samtals að upphæð kr. 87,09, er falinn hinu nýja félagi til varðveislu, þannig að eitthvað mun hafa verið spilað bridge á Akureyri áður. Allt frá þessum tíma hefur- félagið starfað, að vísu eru til litlar heimildir um fyrstu fimm starfsárin, en síðan eru allar fundargerðir til í varð- veislu stjórnar félagsins, og þar kemur fram að mikil gróska hefur verið í félaginu alla tíð, að vísu misjafnlega mikil, en þó ætíð töluverð. Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í félaginu og mun nú svo komið að félagið mun vera stærsta bridgefélag landsins. Á síðasta ári spiluðu alls um 140 manns hjá félag- inu auk þess sem félagið stóð fyrir bridgenámskeiðum í samstarfi við Námsflokka Ak- ureyrar og sá Magnús Aðal- björnsson um kennslu þar. Nú er nýlokið hjá félaginu fjöl- mennasta tvímenningi hjá ein- stöku bridgefélagi sem haldinn hefur verið hérlendis, alls með þátttöku 50 para. Vetrar- starfsemi félagsins er annars í nokkuð föstum skorðum. Vetr- arstarfið hefst með Thuletví- menningi, síðan er spilað Ak- ureyrarmót í sveitakeppni, þá Akureyrarmót í tvímenningi. Þá er einmenningskeppni, sem er jafnframt Akureyrarmót, og síðan er svonefnt Hall- dórsmót, sem er sveitakeppni haldin til minningar um Hall- dór heitinn Helgason, fyrrum bankastjóra Landsbanka ís- lands hér á Akureyri, en hann og bræður hans, Ármann og Jóhann, voru lengi einar styrk- ustu stoðir félagsins, og má reyndar segja að svo sé enn um þá tvo bræður, sem enn eru á lífi, Ármann og Jóhann. Á vordögum er síðan haldin bæj- arhlutakeppni og venjulega lýkur vetrarstarfseminni með þeirri keppni. Undanfarin ár hefur verið spilað á þriðjudög- um í Félagsborg, sal sem Starfsmannafélag SÍS-verk- smiðjanna á. Félagið hefur undanfarin ár sent eina sveit á íslandsmót í bridge og nokkur pör hafa að jafnaði fari á ls- landsmót í tvímenningi. Þá hefur félagið um áraraðir átt mikil og góð samskipti við fé- lög í nágrannabæjarfélögum og spilað árlega við félögin á Húsavík og Siglufirði. Þá eru einnig hafin nýlega samskipti við félögin á Dalvik og Ólafs- firði. Einnig hefur félagið tek- ið þátt í svokallaðri fjórvelda- keppni, en þar er um að ræða sveitakeppni milli Bridgefé- lags Akureyrar, Bridgefélags Fljótsdalshéraðs og nágrennis, Bridgefélagsins á Höfn í Hornafirði og Tafl- og bridge- klúbbsins í Reykjavík. Þá er aðeins ógetið Norðurlands- móts í bridge, en félagið hefur að jafnaði sent tvær sveitir í þá keppni. í tilefni afmælisins hefur Bridgefélag Akureyrar ákveðið að efna til veglegs afmælis- móts, sem haldið verður 23. til 25. mars nk. Verður þar spilað- ur tvímenningur og er mótið opið öllum bridgespilurum á landinu og búist er við þátt- töku um 80 para. Vegleg verð- laun verða veitt á móti þessu. Fyrstu verðlaun kr. 15 þúsund, önnur verðlaun kr. 12 þús., 3. verðlaun kr. 8 þús., 4. verðlaun verða helgarferð fyrir tvo til eða frá Akureyri, 5. verðlaun tveir svefnpokar frá Gefjun og 6. verðlaun myndataka fyrir tvo á ljósmyndastofunni Norð- urmynd á Akureyri. Spilað verður í mótinu um silfurstig Bridgesambandsins og keppn- isgjald er kr. 1.000 fyrir parið. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 18. mars til Þórarins B. Jóns- sonar eða Grettis Frímanns- sonar, sem sjá um framkvæmd mótsins fyrir hönd félagsins. Núverandi stjórn Bridgefé- lags Akureyrar skipa: Frí- mann Frímannsson formaður, Þormóður Einarsson ritari, Anton Haraldsson gjaldkeri, Örn Einarsson varaformaður og meðstjórnendur eru Krist- ján Guðjónsson, Gissur Jónas- son og Símon Gunnarsson. Keppnisstjóri Bridgefélags Akureyrar hefur verið við frábæran orðstír um áraraðir Albert Sigurðsson. GBerg. Stund milli stríða. Pétur Antonsson, Þórarinn B. Jónsson, Páll Jónsson og Jóhann Andersen Jón Stefánsson, Símon Gunnarsson og Guðlaugur Guðmundsson ræða vinningsleiðirnar í raeðast við um síðustu „setu“. síðasta spili — þser sem ekki fundust — eða þannig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.