Morgunblaðið - 18.03.1984, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 18.03.1984, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 Jón Þórarinsson 1908—1926. Asgeir Ásgeirsson 1926—1931 1934-1938. Jakob Kristinsson 1938—1944. Helgi Elíasson 1931—1934 og 1944—1973. Fræðslumálastjórar á íslandi, 1908—1973 eftir Dr. Braga Jósepsson Með samþykkt fræðslulaganna 1907 voru sett sér- stök ákvæði um yfirstjórn fræðslumála á íslandi (33. grein). Þessi málaflokkur, sem áður var í höndum stiftsyfirvalda, heyrði nú undir Stjórnar- ráð íslands og ráðherra. í lögunum er gert ráð fyrir að ráðherra hafi sér til aðstoðar sérfróðan mann, sem eigi aöallega að gegna umsjónarstarfi fyrir hönd Stjórnarráðsins og undirbúa reglugerðir og sjá um ýmsar ráðstafanir um skólamál á vegum hins opinbera. Þá var gert ráð fyrir að þessi emb- ættismaður ferðaðist um landið og var veitt fé til þess sérstaklega. Umsjónarmaður fræðslumála Árið áður en fræðslulögin voru samþykkt, hafði Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Islands og þar með fyrsti menntamálaráðherrann á íslandi, ráðið Jón Þórarinsson, skólastjóra Flensborgarskóla, til þess að gegna þessu starfi. Jón var síðan skipaður umsjónarmaður fræðslumála samkvæmt fræðslu- lögunum, sem tóku gildi 1908. Jón kom til starfsins með mikla starfsreynslu að baki og þekkingu á skólamálum erlendis. Hann var brautryðjandi um kennaramennt- un á íslandi og afkastamikill f skrifum sínum um skólamái. Á al- þingi hafði hann einnig verið skeleggur baráttumaður fyrir kennaramenntun og almennri skólaskyldu. Jón Þórarinsson gegndi embættinu til ársins 1926. Embættisheitið fræðslumála- stjóri var ekki tekið upp formlega fyrr en 1930 með lögum um fræðslumálastjórn. Embættisheit- ið kemur að vísu fyrir í lögum um fræðslumálanefndir tveim árum áður, þ.e. 1928. I landsreikningum, allt til ársins 1922, er talað um umsjónarmann fræðslumála, en í bréfum Stjórnarráðsins og í launalögum er embættismaðurinn nefndur fræðslumálastjóri allt frá því fyrir fyrri heimsstyrjöld. I bók Einars Arnórssonar, Islensk þjóð- félagsfræði, sem út kom árið 1915, segir, að umræddur embættismað- ur sé venjulega kallaður fræðslu- málastjóri (bls. 95). Helgi Elíasson lýsir starfsað- stöðu umsjónarmanns fræðslu- mála á eftirfarandi hátt í óprent- aðri ritgerð frá því nokkru eftir 1950. Þar segir: „Allt frá 1906 fram undir 1930 var störfum fræðslumálastjóra svo háttað, að hann gat haft skrifstofu sína á heimili sínu. Hann annaðist sjálf- ur þau skrifstofustörf, sem óhjákvæmileg voru, en sum síðari árin hafði hann aðstoð að jafnaði 1—2 tíma á dag, við bréfaskriftir og snúninga. í júní 1930 fær fræðslumálastjóri húsnæði til skrifstofuhalds í Arnarhvoli, hinni nýbyggðu skrifstofu- byggingu ríkisins, 2 herbergi á efstu hæð og góða geymslu í kjall- ara. Jafnframt er þá fastráðinn aðstoðarmaður allan daginn og vélritari hálfan daginn. Vegna ákvæða laganna um fræðslumála- stjórn, aukinnar þátttöku ríkis- sjóðs í kostnaði við skólahald og meiri afskipti ríkisvaldsins en áð- ur af fræðslu og menningarmál- um, þá jókst starfsemi fræðslu- málastjóra jafnt og þétt.“ Lög um stjórn fræðslumála Eftir fráfall Jóns Þórarinssonar tók við embættinu Ásgeir Ás- geirsson, sem þá var kennari við Kennaraskólann, en síðar forseti íslands. Hann gegndi embætti fræðslumálastjóra frá 1926 til 1938. Á árunum 1931—34, meðan hann gegndi ráðherraembættum, fyrst sem fjármálaráðherra og síðar forsætisráðherra, gegndu þeir Freysteinn Gunnarsson og Helgi Elíasson störfum fræðslu- málastjóra. Freysteinn var þá skólastjóri Kennaraskólans og hafði verið það frá 1921, en Helgi var um þetta leyti byrjaður að starfa sem aðstoðarmaður fræðslumálastjóra. Ásgeir beitti sér mjög fyrir endurskoðun fræðslulaganna og þeim breytingum sem gerðar voru á þeim árið 1926 og aftur 1936. Fyrir hans atbeina voru svo lögin um fræðslumálanefndir samþykkt 1928 og lög um fræðslumálastjórn árið 1930. Þessi lög um stjórn fræðslumála voru í gildi allt til ársins 1968, er þau voru felld úr gildi með samþykkt laga um ráð- stafanir til lækkunar ríkisút- gjalda. Lögin um stjórn fræðslumála munu efnislega hafa byggst á reynslu og hefðum sem skapast höfðu þá rúmlega tvo áratugi frá því embættið var stofnað. Með þessum lögum var starfssvið fræðslumálastjóra aukið til muna og er augljóst, að löggjafinn ætl- aðist til þess, að fræðslumála- stjóri bæri að mestu leyti ábyrgð á framkvæmd laga um fræðslumál og flestu því, sem varðaði sérþekk- ingu á uppeldis- og skólamálum. Starfssvið fræðslumálastjóra í lögunum um fræðslumála- stjórn er starfssviði fræðslumála- stjóra lýst allnákvæmlega. f 2. grein laganna segir: „Fræðslu- málastjóri stýrir framkvæmdum í kennslu- og skólamálum. Hann sér um, að gildandi lögum og fyrirmælum um fræðslumál sé hlýtt, og heimtar allar nauðsyn- legar skýrslur um skólahald í landinu. Álits fræðslumálastjóra skal leitað um öll skólamál, sem undir fræðslumálaráðuneytið falla. Þó er Háskóli íslands und- anskilinn ákvæðum þessara laga. Kennslumálaráðuneytið getur fal- ið fræðslumálastjóra fullnaðaraf- greiðslu þeirra mála, sem ráðu- neytið telur sig ekki þurfa að hafa bein afskipti af, enda sendi hann ráðuneytinu ársfjórðungslega skrá um þau mál, er þannig hafa verið afgreidd. Nánar skal ákveða í reglugerð um skyldur og störf fræðslumálastjóra." í 9. grein laganna segir, að fræðslumálastjóri skuli hafa með höndum yfirstjórn kennslueftir- litsins og líta eftir skólum sjálfur eftir því sem ástæður leyfa. Um framkvæmd kennslueftirlitsins segir að skipaðir skuli „hinir hæf- ustu barnakennarar, einn fyrir hvert eftirlitssvæði til fimm ára í senn. Eftirlitssvæði skulu einkum fara eftir sýslum og kaupstöðum, en þó má víkja frá því, þegar ann- að þykir hentara. Eftirlitsmenn skulu a.m.k. einu sinni á ári koma í hvert skólahérað í sínu umdæmi, á þeim tíma, sem kennsla fer fram, og senda skólanefnd og fræðslumálastjóra árlega skýrslu um fræðsluástand síns héraðs." Þá er einnig í lögunum ákvæði um ráðningu „skólafróðra manna" til að gegna kennslueftirliti við aðra skóla en barnaskóla. Síðar voru sett lög um skipun náms- stjóra og skiptingu landsins í eft- irlitssvæði. Auk annarra verkefna fræðslu- málastjóra má nefna yfirumsjón hans með skólabókasöfnum og al- menningsbókasöfnum, námskeið- um og fyrirlestrum er varða menntun og skólamál á vegum hins opinbera. Að lokum var fræðslumálastjóra gert að gefa út yfirlitsskýrslu um allt skólahald í landinu. Framkvæmd og stefnumótun í lögunum frá 1928 er ákvæði um fræðslumálanefndir, annars vegar fyrir barnaskóla og hins vegar fyrir unglingaskóla. Fræðslumálanefndirnar höfðu það hlutverk með höndum að gera til- lögur til ráðuneytisins um nám- skrár, löggildingu og val kennslu- bóka, tilhögun prófa og um há- marks og lágmarks kennslu- stundafjölda fyrir hvern dag. í fræðslumálanefndinni fyrir barnaskólana áttu sæti fræðslu- málastjóri, fulltrúi Barna- kennarafélags íslands og skóla- stjóri Kennaraskólans. I fræðslu- nefnd fyrir unglingaskólana áttu sæti auk fræðslumálastjóra tveir starfsmenn við umrædda skóla, skipaðir af ráðherra. Þessi ákvæði voru tekin upp með nokkrum breytngum í lögun- um um fræðslumálastjórn, en þar segir m.a.: „Fyrir barnaskóla, hér- aðsskóla og gagnfræðaskóla skulu vera skólaráð. Fræðslumálastjóri er formaður og framkvæmdastjóri þeirra." Síðan segir, að í skólaráði fyrir héraðs- og gagnfræðaskóla skuli sitja auk fræðslumálastjóra einn maður kosinn af félagi hér- aðsskólakennara og annar af föst- um kennurum gagnfræðaskól- anna. Um skólaráð barnaskólanna í tilefni af 80 ára afmæli Helga Elíassonar, fræðslumálastjóra gilda sömu reglur og í lögunum frá 1928. Ef litið er nánar á starfssvið fræðslumálastjóra eins og því er lýst í lögunum, fer ekki á milli mála hversu umfangsmikið og vandasamt það hefur verið, ekki síst þegar það er haft í huga, að hér var um að ræða uppbyggingu og framkvæmd fyrstu laganna hér á landi um almenna fræðslu- skyldu. I fyrstu, eftir að umsjón- armaður fræðslumála tók til starfa, mun verksvið hans fyrst og fremst hafa beinst að barna- fræðslunni, en fljótlega fór hlut- verk hans að ná til annarra skóla og fleiri málaflokka. Ekki er ólík- legt að það hafi ráðið nokkru um breytinguna á embættisheitinu. Reglugerðin sem um getur í niðurlagi 2. greinar laganna frá 1930 mun sennilega aldrei hafa verið samin, enda varla þörf þar sem störf fræðslumálastjóra voru jafn ítarlega skilgreind í lögunum og raun ber vitni. Ekki verður heldur séð að fræðslumálastjóra hafi verið sett erindisbréf. Hins vegar er mjög víða, eftir 1930, vik- ið að hlutverki fræðslumálastjóra í reglugerðum og erindisbréfum, sem gefin voru út til einstakra starfshópa og annarra embætt- ismanna innan fræðslukerfisins. Fræðslumála- skrifstofan Ákvæðið í heimild ráðuneytis- ins til að fela fræðslumálastjóra fullnaðarafgreiðslu einstakra mála, má að vissu leyti skoða sem upphaf þeirrar stofnunar sem nefnd var Fræðslumálaskrifstof- an. Mörg önnur atriði má nefna sem bera það með sér, að með lög- unum um fræðslumálastjórn var verið að leggja drög að þeim starfsháttum, sem áttu eftir að móta þróun íslenskra skólamála allt fram til upphafs 8. áratugar- ins. Þriðji maðurinn, sem tók við embætti fræðslumálastjóra var séra Jakob Kristinsson. Það var árið 1938, en áður hafði hann verið skólastjóri Alþýðuskólans á Eið- um í einn áratug. Þegar hann tók við embætti fræðslumálastjóra, hafði Helgi Elíasson starfað þar um alllangt skeið og fylgst með framgangi Fræðslumálaskrifstof- unnar frá þeim tíma er hún telst stofnuð. Síöasti fræðslu- málastjórinn Helgi Elíasson tók síðan við embætti fræðslumálastjóra af Jakobi Kristinssyni. Eins og bent hefur verið á, var Helgi engtnn nýliði á þessum vettvangi. Fljót- lega eftir að hann kom heim frá framhaldsnámi í Danmörku og Þýskalandi var hann ráðinn að- stoðarmaður fræðslumálastjóra, Ásgeirs Ásgeirssonar. Aðeins rúmu ári eftir að Helgi tók við starfi sínu var honum falið að gegna embætti fræðslumálastjóra. Því embætti gegndi hann ásamt Freysteini Gunnarssyni til ársins 1934, en starfaði síðan áfram sem fulltrúi og aðstoðarmaður fræðslumálastjóra til ársins 1944 er hann tók við embættinu, þá fer- tugur að aldri. Forveri Helga Elíassonar, Jakob Kristinsson, skrifaði grein um Helga í tmaritið Menntamál árið 1944. Þar kemst Jakob svo að orði: „Á þessum árum sem hann hefur starfað sem fræðslumálastjóri eða skrifstofustjóri og fulltrúi hefur hann fengið víðtækari og að ýmsu leyti nánari kynni af íslenskum skólum og skólamönnum en senni- lega nokkur annar maður á Is-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.